Morgunblaðið - 12.11.2020, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020
www.gilbert.is
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Afurðaverð á markaði
10. nóv. 2020, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 455,93
Þorskur, slægður 412,85
Ýsa, óslægð 301,10
Ýsa, slægð 301,74
Ufsi, óslægður 128,92
Ufsi, slægður 167,95
Djúpkarfi 209,00
Gullkarfi 254,32
Blálanga, óslægð 20,00
Blálanga, slægð 130,09
Langa, óslægð 189,07
Langa, slægð 241,54
Keila, óslægð 30,22
Keila, slægð 75,21
Steinbítur, óslægður 282,59
Steinbítur, slægður 565,54
Skötuselur, slægður 558,26
Grálúða, slægð 428,62
Skarkoli, óslægður 150,00
Skarkoli, slægður 482,54
Þykkvalúra, slægð 471,39
Langlúra, óslægð 189,90
Langlúra, slægð 234,39
Sandkoli, óslægður 94,00
Bleikja, flök 1.421,50
Gellur 1.167,31
Hlýri, óslægður 372,17
Hlýri, slægður 427,78
Lúða, slægð 258,58
Lýsa, óslægð 61,56
Lýsa, slægð 112,64
Skata, slægð 120,00
Stórkjafta, slægð 188,00
Undirmálsýsa, óslægð 167,18
Undirmálsýsa, slægð 191,98
Undirmálsþorskur, óslægður 182,51
Undirmálsþorskur, slægður 188,85
leitað leiða til þess draga úr meðafla
sjávarspendýra til að mæta kröfum
bandarískra laga, sérstaklega í
sambandi við grásleppuveiðar, að
því er fram kemur í svari ráðuneyt-
isins. Vísað er til þess að bann hefur
verið sett við selveiðum og að gripið
hafi verið til svæðalokana í grá-
sleppuveiðum. Þá hefur einnig verið
lögð áhersla á að fá ítarlegri og ná-
kvæmari upplýsingar úr afladag-
bókum veiðiskipa svo hægt verði að
greina tíma- og svæðaskiptingu
meðaflans, en slík kortlagning er
talin nauðsynleg til að afla þekk-
ingar sem getur verið grundvöllur
frekari aðgerða.
„Áhersla stjórnvalda er að byggja
allar aðgerðir á traustum vísinda-
legum grunni og taka þátt í tvíhliða,
alþjóðlegu sem og svæðisbundnu
samstarfi um þróun aðferða til að
lágmarka meðafla sjávarspendýra.“
Þá segir í svari ráðuneytisins að
enn liggi ekki fyrir „endanleg af-
greiðsla bandarískra yfirvalda á
hvernig verður farið með afurðir úr
mismunandi veiðum frá einstaka
löndum en þann 2. nóvember sl.
barst tilkynning frá bandarískum
stjórnvöldum um að frestur til að
skila gögnum væri framlengdur frá
1. mars 2021 til 30. nóvember 2021
og að reglurnar tækju gildi 1. jan-
úar 2023 í stað 1. janúar 2022,“ seg-
ir í svari atvinnuvegaráðuneytisins.
Rætt við hvert tækifæri
Utanríkisráðuneytið hefur einnig
átt hlutverki að gegna og hefur
ásamt „sendiráði Íslands í Wash-
ington haldið uppi virkri vöktun og
hagsmunagæslu vegna málsins í
samráði við atvinnu- og nýsköpun-
arráðuneytið frá árinu 2017,“ að því
er segir í svari utanríkisráðuneyt-
isins við fyrirspurn blaðamanns. Þá
segir að „engar undanþágur hafa
verið veittar frá ákvæðum um með-
afla“.
Ráðuneytið kveðst hafa „nýtt
hvert tækifæri sem gefst til þess að
vekja athygli á þeim áhrifum sem
ákvæðin sem banna meðafla geta
haft á innflutning á sjávarafurðum
frá Íslandi, m.a. á fundum utanrík-
isráðherra, sendiherra og annarra
fulltrúa utanríkisráðuneytisins við
bandarísk stjórnvöld og embættis-
menn, nú síðast á fundi í efnahags-
samráði ríkjanna sem fram fór
þriðjudaginn 27. október“. Auk þess
taka Íslendingar þátt í „reglulegu
samráði fiskveiðiþjóða þar sem lög-
gjöfin hefur verið til umræðu og
skipst er á upplýsingum um ferlið,
samskipti við bandarísk stjórnvöld
og afleiðingar bannsins, m.a. til að
tryggja að sömu kröfur séu gerðar
til allra fiskveiðiþjóða“.
Fram kemur í svari utanríkis-
ráðuneytisins að það sé NOAA-
stofnunin (National Oceanic and At-
mospheric Administration) sem sjái
um öflun gagna og innleiðingu á
ákvæði laganna gagnvart fiskveiði-
þjóðum, en stofnunin heyrir undir
viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna.
Þá hefur sendiráðið í Washington
átt í samskiptum við NOAA og við
viðskiptaráðuneytið, utanríkisráðu-
neytið og samtök fyrirtækja í sjáv-
arútvegi í Bandaríkjunum vegna
málsins.
Engar undanþágur frá banni
Afurðir úr fiskveiðum þar sem meðafli er yfir mörkum fá ekki innflutningsleyfi til Bandaríkjanna
Unnið að því að draga úr meðafla sjávarspendýra Upplýsinga aflað með aðgerðir í huga
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Spendýr Grásleppuveiðar eru mikilvæg tekjulind fyrir marga sjómenn, en þeim fylgir óhjákvæmilega meðafli.
Samráðshópur um bann
» Undir forystu atvinnuvega-
ráðuneytisins.
» Á að veita íslenskum stjórn-
völdum ráðgjöf við samskiptin
við bandarísk stjórnvöld.
» Ætlað að vera vettvangur til
skoðanaskipta og mótunar við-
bragða sem og að miðla upp-
lýsingum til greinarinnar um
kröfur Bandaríkjanna um að-
gerðir til að lágmarka áhrif
fiskveiða og fiskeldis á sjávar-
spendýr.
» Fulltrúar Hafrannsókna-
stofnunar, Samtaka fyrirtækja
í sjávarútvegi, Landssambands
smábátaeigenda, utanríkis-
ráðuneytisins og Samtaka
smærri útgerða eiga sæti í
hópnum.
BAKSVIÐ
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Gildistöku banns bandarískra yfir-
valda við innflutningi sjávarafurða
frá ríkjum er heimila sjávarspendýr
sem meðafla við fiskveiðar til
Bandaríkjanna hefur verið frestað
til fyrsta janúar 2023, en bannið átti
að taka gildi fyrsta janúar 2022, að
því er fram kemur í svari atvinnu-
vegaráðuneytisnins við fyrirspurn
blaðamanns.
Þorlákur Halldórsson, fráfarandi
formaður Landssambands smábáta-
eigenda, er meðal þeirra sem hafa
lýst verulegum áhyggjum af bann-
inu þar sem það getur haft þau
áhrif að hætta þurfi veiðum þar sem
töluverð hætta er á að sjávarspen-
dýr verði meðafli. Hefur hann sér-
staklega vísað til grásleppuveiða og
annarra netaveiða, en bannið hefur
valdið áhyggjum allt frá árinu 2017
þegar lögin voru sett þar ytra.
Gripið til aðgerða
„Viðbúið er að afurðir úr þeim
veiðum þar sem meðafli er yfir
mörkum fái ekki innflutningsleyfi,
en þó liggur ekki fyrir endanleg af-
greiðsla bandarískra yfirvalda á
hvernig verður farið með afurðir úr
mismunandi veiðum frá einstaka
löndum. Verði sótt um leyfi til inn-
flutnings á grásleppuafurðum til
Bandaríkjanna eru einhverjar líkur
til að afurðir úr öllum veiðum sem
samanlagt fara yfir meðaflamark
lendi í sömu takmörkunum, þ.e. all-
ar veiðar þar sem land- eða útselur
kemur í veiðarfæri en grásleppu-
veiðar eru þær einu sem fara yfir
meðaflamarkið,“ segir í svari at-
vinnuvegaráðuneytisins.
Íslensk stjórnvöld hafa þegar