Morgunblaðið - 12.11.2020, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.11.2020, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020 www.gilbert.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Afurðaverð á markaði 10. nóv. 2020, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 455,93 Þorskur, slægður 412,85 Ýsa, óslægð 301,10 Ýsa, slægð 301,74 Ufsi, óslægður 128,92 Ufsi, slægður 167,95 Djúpkarfi 209,00 Gullkarfi 254,32 Blálanga, óslægð 20,00 Blálanga, slægð 130,09 Langa, óslægð 189,07 Langa, slægð 241,54 Keila, óslægð 30,22 Keila, slægð 75,21 Steinbítur, óslægður 282,59 Steinbítur, slægður 565,54 Skötuselur, slægður 558,26 Grálúða, slægð 428,62 Skarkoli, óslægður 150,00 Skarkoli, slægður 482,54 Þykkvalúra, slægð 471,39 Langlúra, óslægð 189,90 Langlúra, slægð 234,39 Sandkoli, óslægður 94,00 Bleikja, flök 1.421,50 Gellur 1.167,31 Hlýri, óslægður 372,17 Hlýri, slægður 427,78 Lúða, slægð 258,58 Lýsa, óslægð 61,56 Lýsa, slægð 112,64 Skata, slægð 120,00 Stórkjafta, slægð 188,00 Undirmálsýsa, óslægð 167,18 Undirmálsýsa, slægð 191,98 Undirmálsþorskur, óslægður 182,51 Undirmálsþorskur, slægður 188,85 leitað leiða til þess draga úr meðafla sjávarspendýra til að mæta kröfum bandarískra laga, sérstaklega í sambandi við grásleppuveiðar, að því er fram kemur í svari ráðuneyt- isins. Vísað er til þess að bann hefur verið sett við selveiðum og að gripið hafi verið til svæðalokana í grá- sleppuveiðum. Þá hefur einnig verið lögð áhersla á að fá ítarlegri og ná- kvæmari upplýsingar úr afladag- bókum veiðiskipa svo hægt verði að greina tíma- og svæðaskiptingu meðaflans, en slík kortlagning er talin nauðsynleg til að afla þekk- ingar sem getur verið grundvöllur frekari aðgerða. „Áhersla stjórnvalda er að byggja allar aðgerðir á traustum vísinda- legum grunni og taka þátt í tvíhliða, alþjóðlegu sem og svæðisbundnu samstarfi um þróun aðferða til að lágmarka meðafla sjávarspendýra.“ Þá segir í svari ráðuneytisins að enn liggi ekki fyrir „endanleg af- greiðsla bandarískra yfirvalda á hvernig verður farið með afurðir úr mismunandi veiðum frá einstaka löndum en þann 2. nóvember sl. barst tilkynning frá bandarískum stjórnvöldum um að frestur til að skila gögnum væri framlengdur frá 1. mars 2021 til 30. nóvember 2021 og að reglurnar tækju gildi 1. jan- úar 2023 í stað 1. janúar 2022,“ seg- ir í svari atvinnuvegaráðuneytisins. Rætt við hvert tækifæri Utanríkisráðuneytið hefur einnig átt hlutverki að gegna og hefur ásamt „sendiráði Íslands í Wash- ington haldið uppi virkri vöktun og hagsmunagæslu vegna málsins í samráði við atvinnu- og nýsköpun- arráðuneytið frá árinu 2017,“ að því er segir í svari utanríkisráðuneyt- isins við fyrirspurn blaðamanns. Þá segir að „engar undanþágur hafa verið veittar frá ákvæðum um með- afla“. Ráðuneytið kveðst hafa „nýtt hvert tækifæri sem gefst til þess að vekja athygli á þeim áhrifum sem ákvæðin sem banna meðafla geta haft á innflutning á sjávarafurðum frá Íslandi, m.a. á fundum utanrík- isráðherra, sendiherra og annarra fulltrúa utanríkisráðuneytisins við bandarísk stjórnvöld og embættis- menn, nú síðast á fundi í efnahags- samráði ríkjanna sem fram fór þriðjudaginn 27. október“. Auk þess taka Íslendingar þátt í „reglulegu samráði fiskveiðiþjóða þar sem lög- gjöfin hefur verið til umræðu og skipst er á upplýsingum um ferlið, samskipti við bandarísk stjórnvöld og afleiðingar bannsins, m.a. til að tryggja að sömu kröfur séu gerðar til allra fiskveiðiþjóða“. Fram kemur í svari utanríkis- ráðuneytisins að það sé NOAA- stofnunin (National Oceanic and At- mospheric Administration) sem sjái um öflun gagna og innleiðingu á ákvæði laganna gagnvart fiskveiði- þjóðum, en stofnunin heyrir undir viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna. Þá hefur sendiráðið í Washington átt í samskiptum við NOAA og við viðskiptaráðuneytið, utanríkisráðu- neytið og samtök fyrirtækja í sjáv- arútvegi í Bandaríkjunum vegna málsins. Engar undanþágur frá banni  Afurðir úr fiskveiðum þar sem meðafli er yfir mörkum fá ekki innflutningsleyfi til Bandaríkjanna  Unnið að því að draga úr meðafla sjávarspendýra  Upplýsinga aflað með aðgerðir í huga Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Spendýr Grásleppuveiðar eru mikilvæg tekjulind fyrir marga sjómenn, en þeim fylgir óhjákvæmilega meðafli. Samráðshópur um bann » Undir forystu atvinnuvega- ráðuneytisins. » Á að veita íslenskum stjórn- völdum ráðgjöf við samskiptin við bandarísk stjórnvöld. » Ætlað að vera vettvangur til skoðanaskipta og mótunar við- bragða sem og að miðla upp- lýsingum til greinarinnar um kröfur Bandaríkjanna um að- gerðir til að lágmarka áhrif fiskveiða og fiskeldis á sjávar- spendýr. » Fulltrúar Hafrannsókna- stofnunar, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Landssambands smábátaeigenda, utanríkis- ráðuneytisins og Samtaka smærri útgerða eiga sæti í hópnum. BAKSVIÐ Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Gildistöku banns bandarískra yfir- valda við innflutningi sjávarafurða frá ríkjum er heimila sjávarspendýr sem meðafla við fiskveiðar til Bandaríkjanna hefur verið frestað til fyrsta janúar 2023, en bannið átti að taka gildi fyrsta janúar 2022, að því er fram kemur í svari atvinnu- vegaráðuneytisnins við fyrirspurn blaðamanns. Þorlákur Halldórsson, fráfarandi formaður Landssambands smábáta- eigenda, er meðal þeirra sem hafa lýst verulegum áhyggjum af bann- inu þar sem það getur haft þau áhrif að hætta þurfi veiðum þar sem töluverð hætta er á að sjávarspen- dýr verði meðafli. Hefur hann sér- staklega vísað til grásleppuveiða og annarra netaveiða, en bannið hefur valdið áhyggjum allt frá árinu 2017 þegar lögin voru sett þar ytra. Gripið til aðgerða „Viðbúið er að afurðir úr þeim veiðum þar sem meðafli er yfir mörkum fái ekki innflutningsleyfi, en þó liggur ekki fyrir endanleg af- greiðsla bandarískra yfirvalda á hvernig verður farið með afurðir úr mismunandi veiðum frá einstaka löndum. Verði sótt um leyfi til inn- flutnings á grásleppuafurðum til Bandaríkjanna eru einhverjar líkur til að afurðir úr öllum veiðum sem samanlagt fara yfir meðaflamark lendi í sömu takmörkunum, þ.e. all- ar veiðar þar sem land- eða útselur kemur í veiðarfæri en grásleppu- veiðar eru þær einu sem fara yfir meðaflamarkið,“ segir í svari at- vinnuvegaráðuneytisins. Íslensk stjórnvöld hafa þegar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.