Morgunblaðið - 12.11.2020, Side 37

Morgunblaðið - 12.11.2020, Side 37
37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020 Hinn 27. maí á næsta ári verða hundrað ár liðin frá því Elliðaár- virkjun tók til starfa. Hún var fyrsta vatnsaflsvirkjun Reykvík- inga, var starfrækt til ársins 2014 er aðrennslisrör hennar gaf sig og var þá ein elsta virkjun í heim- inum sem enn var í notkun. Um langt árabil hefur Árbæjar- stíflan myndað samfellt lón beggja kvísla Elliðaánna yfir vetrartím- ann, með yfirfalli á stíflunni. Snemma á vorin hefur lónið verið tæmt, fyrst með því að opna fyrir botnloka í syðri kvíslinni og síðan opna lokurnar í Árbæj- arkvíslinni svo Árbæjarlónið tæmist. Nokkr- um dögum síðar hefur svo vatnsborðið verið hækkað nokkuð í Árbæjarkvíslinni og Árbæj- arlóninu þannig viðhaldið. Náttúruperla Þegar komið er upp fyrir stíflu hefur Ár- bæjarlónið verið ein af perlum Elliðaárdalsins í hundrað ár. Lónið hefur verið fagurt og veigamikið kennimark í náttúru dalsins og fyr- ir íbúa hverfisins. Kennimark sem sést víða að, hvort sem horft er niður einbýlishúsabotn- langana frá Rofabænum, frá Höfðabakkanum eða frá Árbæjarlauginni. Í blíðviðri hefur norðurbakki lónsins iðað af mannlífi enda vin- sælasta göngu- og áningarsvæðið á þessum slóðum. Lónið laðar einnig að sér óvenju fjöl- skrúðugt fuglalíf sem tekur stöðugum árs- tíðabundnum breytingum, ungum sem öldnum til yndisauka. En nú er lónið okkar horfið fyrir fullt og fast. Hinn 12. maí sl. var haldinn rýnifundur Orkuveitu Reykjavíkur og Hafrannsókna- stofnunar um varanlega landmótun við Elliða- árnar fyrir ofan Árbæjarstíflu. Þar var ákveð- ið að opna í eitt skipti fyrir öll allar lokur stíflunnar, árið um kring, og gera skarð í einn þröskuld hennar, Árbæjarmegin, með þeim af- leiðingum að Árbæjarlónið hverfur endanlega. Furðuleg ákvörðun Þessi ákvörðun er lyginni líkust, hvernig sem á hana er litið. Þeir sem að henni stóðu voru fjórir háttsettir starfsmenn Orkuveit- unnar, einn fulltrúi frá Orku náttúrunnar og tveir fulltrúar frá Hafró. Ákvörðun þessi var ekki borin undir stjórn OR. Þá hefur umhverf- isráð Reykjavíkurborgar ekkert fjallað um þetta mál og fékk ekkert að vita af ráðabrugg- inu fyrr en í sjónvarpsfréttum er búið var að tæma lónið í síðasta sinn. Málið var heldur aldrei borið undir Náttúrufræðistofnun Ís- lands, Hollvinasamtök Elliðaárdalsins og/eða íbúaráð, íbúasamtök eða íbúa almennt í Árbæ og Breiðholti. Eftir því sem næst verður komist með hliðsjón af minn- ispunktum Orkuveitunnar var þessi ákvörðun tekin eftir ábendingu frá Fiskistofu og súrefnismælingu Hafró. Fiski- stofa benti á að skyndileg tæm- ing heildarlónsins hefði í för með sér „snögga rennslisbreyt- ingu“ (nema hvað?) ásamt fram- burði aurs, úr lóninu, niður ár- farveginn. Hafró mældi síðan súrefnismagn í ánum fyrir neð- an stíflu þegar stíflislokur voru opnaðar í vor sem leið og kom þá í ljós að súr- efnismagnið féll mjög í ánum meðan á tæm- ingu stóð. Þá fékk Orkuveitan það álit frá dýravistfræðingi hjá Verkís að það ætti ekki að hafa teljandi áhrif á fuglalíf í og við lónið þótt lónið hyrfi! Ekki verður séð að aðrar vist- fræðiathuganir liggi til grundvallar þessari furðulegu ákvörðun. Hér má svo enn bæta við að rafstöðin við Elliðaár, með öllum sínum mannvirkjum, er friðuð. Árbæjarlónið er hluti af manngerðri umhverfismótun stöðvarinnar og því líklega einnig friðað. Ekki leitað umsagnar Náttúrufræðistofnunar Íslands Ég hef enga trú á því að ekki sé hægt að tempra rennsli ánna um stífluna á varanlegan hátt án þess að þurfa að fórna öðru hvoru, fiski og seiðum í ánum, eða Árbæjarlóninu og fuglalífi þess. En til þess þarf þá mun víð- tækari vistfræðirannsóknir og yfir lengra tímabil. Þá væri nú ekki verra að umhverf- isráð Reykjavíkurborgar fengi að fjalla um málið og fylgjast með því og þeir aðilar sem málið helst varðar fái upplýsingar um það í tíma. Því hef ég farið fram á að fulltrúar Orku- veitunnar komi á fund umhverfisráðs borg- arinnar til að ræða málið. Þá mun ég enn fremur óska eftir umsögn Náttúrufræðistofn- unar Íslands enda er lónið á náttúruminjaskrá og ber Orkuveitunni samkvæmt lögum að leita umsagnar Náttúrufræðistofnunar Íslands sem ekki var gert. Eftir Björn Gíslason »Umhverfisráð Reykja- víkurborgar hefur ekkert fjallað um þetta mál og fékk ekkert að vita af ráðabrugginu fyrr en í sjónvarpsfréttum er búið var að tæma lónið í síðasta sinn. Björn Gíslason Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og situr í umhverfisráði Reykjavíkurborgar. Árbæjarlón þurrkað upp eftir furðuleg vinnubrögð Við erum atvinnurekendur með 177 starfsmenn á launaskrá og vinnum með sóttvarnareglur í landinu, sem heftir verulega alla möguleika til tekjuöflunar. Er okkar fyrirtæki svo sannarlega ekki eina fyrirtækið í þeirri stöðu. Fjöldinn all- ur af fyrirtækjum er að berjast á hverjum degi til að finna nýjar leiðir til að halda sínum rekstri gangandi og margir farið langt út fyrir boxið í þeim tilraunum. Eins og allir aðrir landsmenn höfum við fylgt í hvívetna þeim sóttvarnareglum sem settar hafa verið og reynt að vinna með stöðuna á jákvæðan og upp- byggilegan hátt. Covid-19 er engum að kenna og þetta er ástand sem við stöndum öll frammi fyr- ir að þurfa að kljást við tímabundið. En tímabundið er afstætt hugtak. Ævi hús- flugu er tímabundin óþægindi fyrir okkur en ævistarf húsflugunnar. Á Íslandi eru 70-80% allra fyrirtækja lítil og millistór fyrirtæki. Þetta er hryggjarstykki atvinnulífs hér á Íslandi. Þetta eru fyrirtækin sem halda uppi efnahag landsins og hagvexti. Eigendur og starfsmenn þessara fyrirtækja eru að stærstum hluta millistéttin í þessu landi. Millistéttin er þegjandi meirihluti þjóðarinnar sem heldur uppi efnahag landsins. Núna er að myndast mikið hættuástand hjá millistéttinni og það virðast ekki vera neinar til- lögur sem virka frá stjórnvöldum til að fyrir- byggja það. Þær tillögur sem lagðar hafa verið fram eru bitlausar og virka ekki. Þær voru eflaust lagðar fram í von um virkni, en svo er ekki. Því miður. Ráðamenn þurfa, líkt og atvinnulífið, að vera tilbúnir að meta stöðuna hratt og vera tilbúnir að bakka með fyrri tillögur og koma með nýjar. Það er kapphlaup allra atvinnurekenda og slíkt þarf líka að vera upp á teningnum hjá ráða- mönnum á svona stundum. Í stað þess að nota blekið í að tala um hvað virkar ekki langar okkur að leggja fram eina til- lögu sem er raunhæf, réttlát og gætir jafnræðis fyrir öll fyrirtæki sem lúta þurfa takmörkunum í sóttvarnaaðgerðum þjóðarinnar. Staðgreiðsluskatti og virðisaukaskatti verð- ur slegið á frest (lánaður) af ríkinu, vaxtalaust á þeim tímabilum sem takmarkanir standa yfir. Fyrirtæki, sem gert er að takmarka starfsemi sína og hefur bein áhrif á þeirra áætlanir, veltu og greiðslugetu, fá með þessu vaxtalausan greiðslufrest frá ríkinu til að halda þeim við efnið. Greiðslufresturinn er eðlilega tengdur þeirri veltu sem þó er enn til staðar og með því gætir þessi tillaga jafnræðis. Tillagan veitir fyr- irtækjum tækifæri á því að standa undir skuld- bindingum sínum, sem minnkar neikvæð marg- feldisáhrif á atvinnulífið. Tillagan er ekki styrkur, heldur greiðslufrestur (lán). Ríkið mun fá sitt á endanum þegar úr Covid er kom- ið, þannig að þetta er ekki styrkur eða peningur út um gluggann. Þetta eru fjármunir sem skila sér bara síðar. Sem er réttlátt. Greiðslufrest- urinn er vaxtalaus þar sem ríkið hefur gríð- arlegan hag af því að fyrirtækin haldi áfram rekstri. Ekki er hægt að svindla á þessu kerfi, enda upphæð greiðslufrestsins alltaf miðuð við þá veltu sem hefur verið í fyrirtækinu. Upp- greiðslu á þessum greiðslufresti er síðan stillt upp með þeim hætti að fyrirtæki eigi auðvelt með að brúa endurgreiðsluna þegar allt er gengið yfir. Horfa mætti til 12 mánaða sem dæmi (fer þó eftir lengd faraldursins). Tak- markanir sem settar væru á fyrirtæki þessu tengt væru bundnar við argreiðslur, hlutfall af hagnaði o.fl. Með þessari tillögu er verið að veita öllum líf- vænlegum fyrirtækjum sem hafa þurft að þola miklar takmarkanir á sinni tekjuöflun ákveðið svigrúm og andrými til að standa við skuldbind- ingar sínar. Þetta mun spara gríðarlega fjár- muni hjá hinu opinbera til skamms tíma og hvað þá lengri tíma. Án þess að geta talað fyrir hönd allra lítilla og millistórra fyrirtækja (enda eiga þau fyrir- tæki ekki sín eigin hagsmunasamtök) þá er öruggt að öll lítil og millistór fyrirtæki sem hafa orðið fyrir takmörkunum á rekstri vegna sótt- varnaaðgerða munu fagna þessari tillögu. Gerum þetta saman! Eftir Sigmar Vilhjálmsson og Óla Val Steindórsson »Með þessari tillögu er verið að veita öllum lífvænlegum fyrirtækjum, sem hafa þurft að þola miklar takmarkanir á sinni tekjuöflun, ákveðið svigrúm og andrými til að standa við sínar skuldbindingar. Sigmar Vilhjálmsson Höfundar eru eigendur Hlöllabáta, Barion og Minigarðsins. Katrín Jak. og Bjarni Ben. – hér er tillaga Óli Valur Steindórsson Ólöf Kristjánsdóttir, verkfræð- ingur og fagstjóri hjá Mannviti hf., og Meta Reimer Brödsted, frá danska ráðgjafafyrirtækinu COWI, birtu grein í Morgun- blaðinu 6. nóvember sl. Í þeirri grein var gerð tilraun til að upp- lýsa almenning um að borgarlínan myndi færa landsmönnum ein- hvern félagshagfræðilegan ábata. Sú tilraun misheppnaðist hrap- allega enda birtist borgarlínan þar í felulitum. Í frétt af vef Mannvits frá 12. september 2019 segir að „Mannvit í samstarfi við Cowi var hlutskarpast í útboði Vegagerð- arinnar á gerð nýs samgöngulíkans fyrir höf- uðborgarsvæðið […]“. Einnig segir í sömu frétt að verkefnið væri „[…] samvinnuverkefni Vega- gerðarinnar og Samtaka sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu“. Almennt er nú svo um slík útboð að samningssambandið hér er annars vegar verktaki og hins vegar verkkaupi, þ.e. Vegagerðin og Samtök sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu. Þar sem Samband íslenskra samvinnufélaga er löngu liðið undir lok og lítið um samvinnufélagaform almennt er ekki séð að fyrirkomulagið sé nokkuð annað en verið hefur um áratugi, þ.e. hefðbundið samningssamband milli verktaka og verkkaupa. Í grein þeirra Ólafar og Metu er leitast við að svara gagnrýni á nýlega útgefna skýrslu um félagshagfræðilega greiningu á borgarlínuverkefninu. Það hefur komið fram að sitt sýnist hverjum og hér er leitast við að koma öðru sjónarmiði að. Ólöf og Meta nefna til leiks Teresu. Það er heitið á arðsem- islíkani því sem samgöngu- ráðuneyti Danmerkur gefur hverjum sem verða vill. Hef ég m.a. nálgast Teresu á vef danska ráðuneytisins. Það er alveg ljóst að Teresa er álíka snúin og grein þeirra Ólafar og Metu, a.m.k. sú útgáfa af henni sem ég fékk. Sú Teresa sem ég fékk var reyndar galtóm og óútfyllt en með áhugaverðum skýr- ingum. Þar mátti þó sjá að gert hafi verið ráð fyrir 4% ávöxtunarkröfu í henni annars óspilltri. Teresa er í raun ekkert annað en danskt excel-skjal á sterum. Í grein sinni staðfesta þær Ólöf og Meta að þær hafi náð tökum á Teresu, fyllt hana og tekið hana „út á lífið“. Úr varð borgarlína, uppfull af ábata. Um þá aðferð fjölluðu þær í grein sinni og allan þann rómans. Í krafti umboðsins sem ég fékk í síðustu sveitarstjórnarkosningum hef ég sett mig í samband við fulltrúa Verkefnastofu borgarlínu og Ólöfu Kristjánsdóttur hjá Mannviti. Mark- miðið var að fá að sjá þessa Teresu sem Ólöf segist þekkja vel. Það er skemmst frá að segja að ég hef hvorki fengið svör né skýringar. Þær skýringar sem lesa má út úr grein þeirra tveggja, Ólafar og Metu, lýsa fremur trúboði. Þar segir m.a. að lausn „[…] fælist í fjöl- breyttum samgönguvalkostum sem auka afköst í samgöngum og gæði hins byggða umhverfis“. Hver getur hafnað fegurð þessari? Eftir útlist- un á draumsýn verktaka Vegagerðarinnar og SSH er aðeins eitt eftir. Það er að fá að vita hvað „heilaga“ Teresa hefur sjálf um þetta að segja. Þrátt fyrir ítrekanir og eftirgangsmuni, m.a. í ljósi þess að ég sit í svæðisskipulagsnefnd höf- uðborgarsvæðisins fyrir hönd hluta íbúa svæð- isins, þ.e. Mosfellinga, sem eiga m.a. að borga kostnaðinn, hefur ekkert svar borist. Engin gögn hafa komið fram sem útskýra útreikninga Teresu eða hvar hún er niður komin. Með þessari grein minni ítreka ég enn og aft- ur óskir mínar um að fulltrúar Verkefnastofu borgarlínu, SSH og Vegagerðin, þ.e. verk- kaupar, kalli eftir þessum upplýsingum, ná- kvæmum skýringum og að Teresa verði fram- seld frá Danmörku til Íslands hið fyrsta. Þar sem skattborgarar hér á landi hafa þurft að greiða fyrir útfyllingu excel-skjalsins góða er rétt að þeir sem hafa unnið að því fyrir opinbert fé skýri aðferðirnar og skili niðurstöðunum út- skýrðum betur en nú er. Þeim ber skilyrðislaus skylda til að útlista ítarlega alla útreikninga og koma þessu öllu á þannig form að almenningur geti áttað sig á hvað býr að baki. „Aumir“ trú- leysingjar og fulltrúar þeirra sem eiga allt að borga eru afskiptir í öllu ferlinu á meðan Teresu er beitt úr mikilli fjarlægð á fremur fáfróða ís- lenska stjórnmálaelítu. Er það kannski mark- miðið? Svo er það með ávöxtunarkröfuna blessuðu sem brúkuð er við núvirðisútreikninga Mann- vits og Cowi. Venja er að ákvörðun um slíka kröfu liggi hjá eigendum verkefna, ekki verk- taka úti í bæ. Þar hafa trúboðarnir tekið sér meira vald en telja má að Teresa boði í raun. En fjarlægðin gerir víst fjöllin blá og Teresu töff. Hvers vegna í ósköpunum notaði Mannvit þá 5% ávöxtunarkröfu við mat á „fluglest“ fyrir fá- einum misserum? Mat á því ástarævintýri Reykjavíkurborgar og Mannvits gat af sér þennan „króga“ árið 2014 sem virðist ættaður frá Bifröst og virðist belgja út ábata eftir pönt- un. Hvatberi þess verkefnis starfar nú ötull við að byggja fyrir Reykjavíkurborg ofan í veg- stæði Sundabrautar á Gufunesi. En Teresa, hún fékk aðeins notið 4% ávöxt- unarkröfu en það virðist alveg hafa nægt fyrir Ólöfu og Metu til að fylla hana. Ástæðan kann að vera sú að Teresa sé í raun dönsk. Borgarlínuverkefni í felulitum – Hvar er Teresa? Eftir Svein Óskar Sigurðsson Sveinn Óskar Sigurðsson »En Teresa, hún fékk aðeins notið 4% ávöxtun- arkröfu en það virðist alveg hafa nægt fyrir Ólöfu og Metu til að fylla hana. Höfundur er bæjarfulltrúi Mosfellsbæjar og situr í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins (SSH).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.