Morgunblaðið - 12.11.2020, Blaðsíða 52
Marta María
mm@mbl.is
„Kórónuveiran hefur haft áhrif á allt
okkar líf um allan heim sem er alveg
magnað. Ég er svo mikill sælkeri að
það sem ég geri meðal annars til að
hressa mig við á þessum tímum er að
elda og borða dásamlega góðan mat
eða sækja spennandi rétti á veitinga-
staðina sem eru flestir með „take
away“ eða senda heim. Svo til þess að
halda í andlega og líkamlega heilsu
fjárfesti ég í vetur í hlaupabretti sem
ég setti upp hér heima og það er
geggjað. Ég stilli á góðan þátt í sjón-
varpinu og áður en ég veit af er ég bú-
in að ganga eða hlaupa í góðan tíma.
Ég gleymi mér alveg sem er algjör
snilld,“ segir Vala.
Vala starfar nú við þáttinn Ísland í
dag á Stöð 2 og á dögunum tók hún
viðtal við Evu Dögg Sigurgeirsdóttur
sem oft er kennd við vefinn tíska.is.
„Ein af leiðunum til að díla við þetta
á jákvæðan hátt er að finna flottar og
skemmtilegar grímur. Ég er búin að
prufa margar týpur því ég fjallaði um
grímuúrvalið í Íslandi í dag með Evu
Dögg hjá tíska.is og ég er því búin að
finna uppáhaldsgrímurnar mínar sem
eru frá Gyllta kettinum. Held mest
upp á svartar og svo andlitslitaðar.
Svo finnst mér gott að eiga nógu
margar svo ég geti alltaf átt ferska
grímu á hverjum morgni og svo bara
þvegið þær allar saman eftir vikuna.
Og ég set þær í flotta poka annars
vegar fyrir hreinar og svo annan fyrir
þær sem ég er búin að nota svo allt í
kringum þær sé fallegt og konfekt
fyrir augun. Þá verður þetta bara
hluti af útliti og klæðaburði þótt ekki
sé þetta skemmtilegt og það verður
auðvitað dásamlegt þegar þessu lýk-
ur,“ segir Vala.
Talandi um grímur og farða. Þegar
Vala er spurð hvort hún farði sig öðru-
vísi þegar hún er með grímu á sér seg-
ir hún svo vera.
„Ég er að vísu ein af
þeim sem alltaf eru mál-
aðar þegar þær fara út
úr húsi því þegar maður
vinnur í sjónvarpi og í
fjölmiðlum er maður svo
oft kominn í aðstæður
þar sem maður er í út-
sendingu eða upp-
tökum eða verið er
að ljósmynda
þannig að ég hef
vanið mig á að
mála mig á ein-
faldan hátt flesta
daga með smá
maskara, varalit
og smá farða.
Núna þegar ég er
með grímu úti á
meðal fólks nota ég
ekki varaglossinn
minn því hann klínist í
grímurnar. En það
kemur ekki að sök því
ég nota alltaf snilldar-
varalitina Lipfinity frá Max Factor
sem endast allan daginn og eru mattir
og klínast ekkert. Svo ef maður ætlar
að vera extra jákvæður þá er stundum
þægilegt að geta falið sig á bak við
grímuna þá daga sem maður er
kannski ekki alveg upp á sitt besta,“
segir Vala og hlær.
Vala hefur alltaf hugsað vel um sig
og nú gætir hún þess að
næra húðina vel. En hvaða
vörur skyldu vera í uppá-
haldi hjá henni?
„Ég nota helst andlits- og
augnkremin frá Estee
Lauder því þau eru öll svo
góð. Þau eru svo geggjuð
Revitalizing Supreme+
kremin. Ég finn alveg mun
á húðinni í andlitinu og í
kringum augun þegar ég á
þau ekki til og núna finnst
mér á þessum kórónuveiru-
tímum ennþá mikilvægara
að vera með gott krem sem
verndar húðina og gefur
henni raka.“
Gerir þú eitthvað sér-
stakt á þessum tímum til að
hressa þig við?
„Það sem ég geri á hverj-
um degi til að hressa mig við
andlega í þessu ástandi er
að finna stöðugt ný spenn-
andi verkefni til að
sökkva mér niður í.
Ég er svo heppin að
vinna svo ótrúlega
skemmtilega vinnu
á Stöð 2 og þar er
alltaf eitthvað nýtt
sem ég er að gera
fyrir Ísland í dag
sem ég hlakka til að
vinna við á hverjum
degi. Hlakka því til að
vakna á morgnana
þrátt fyrir ástandið.
Líkamlega passa ég
mig á því að eiga alltaf
græna safann minn í
frysti frá Ísey Skyr
Bar sem ég fæ í Kringlunni. Hann
gerir mér kleift að „sukka“ smá af og
til án samviskubits. Og talandi um að
„sukka“ smá þá er ég með smá æði
fyrir rauða Bounty með mjög dökku
súkkulaði. Það er geggjað. Ég borða
bara dökkt súkkulaði og þetta er með
því allra besta og hressir mig sannar-
lega við í þessu ástandi,“ segir Vala.
Hleypur á hlaupabrettinu
og „sukkar heilsusamlega“
Valgerður Matthías-
dóttir, eða Vala Matt.
eins og hún er kölluð, er
ein af jákvæðustu
manneskjum þessa
lands. Hún keypti sér
hlaupabretti til að stytta
sér stundir og hleypur
heima til þess að andast
ekki úr leiðindum. Á
meðan horfir hún á
skemmtilega sjónvarps-
þætti. Á þessum veiru-
tímum eldar hún ein-
stakan mat og hugar
sérlega vel um heilsuna.
Frísklegri húð Vala er mjög
hrifin af andlitskremunum
frá Estee Lauder.
Alltaf á hlaupabretti
Vala festi kaup á hlaupa-
bretti í vetur og horfir nú
á sjónvarpið meðan hún
hleypur eins og vindurinn.
Kínist ekki
Þessi gloss
frá Max Fac-
tor er snilld
að því leytinu
til að hann
klínist ekki í
grímuna.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com,
kajaorganic@gmail.com
Byggmjólk
Eina íslenska
jurtamjólkin
Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, Vegan búðin
Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið og Matarbúr Kaju á Akranesi