Morgunblaðið - 12.11.2020, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 12.11.2020, Qupperneq 52
Marta María mm@mbl.is „Kórónuveiran hefur haft áhrif á allt okkar líf um allan heim sem er alveg magnað. Ég er svo mikill sælkeri að það sem ég geri meðal annars til að hressa mig við á þessum tímum er að elda og borða dásamlega góðan mat eða sækja spennandi rétti á veitinga- staðina sem eru flestir með „take away“ eða senda heim. Svo til þess að halda í andlega og líkamlega heilsu fjárfesti ég í vetur í hlaupabretti sem ég setti upp hér heima og það er geggjað. Ég stilli á góðan þátt í sjón- varpinu og áður en ég veit af er ég bú- in að ganga eða hlaupa í góðan tíma. Ég gleymi mér alveg sem er algjör snilld,“ segir Vala. Vala starfar nú við þáttinn Ísland í dag á Stöð 2 og á dögunum tók hún viðtal við Evu Dögg Sigurgeirsdóttur sem oft er kennd við vefinn tíska.is. „Ein af leiðunum til að díla við þetta á jákvæðan hátt er að finna flottar og skemmtilegar grímur. Ég er búin að prufa margar týpur því ég fjallaði um grímuúrvalið í Íslandi í dag með Evu Dögg hjá tíska.is og ég er því búin að finna uppáhaldsgrímurnar mínar sem eru frá Gyllta kettinum. Held mest upp á svartar og svo andlitslitaðar. Svo finnst mér gott að eiga nógu margar svo ég geti alltaf átt ferska grímu á hverjum morgni og svo bara þvegið þær allar saman eftir vikuna. Og ég set þær í flotta poka annars vegar fyrir hreinar og svo annan fyrir þær sem ég er búin að nota svo allt í kringum þær sé fallegt og konfekt fyrir augun. Þá verður þetta bara hluti af útliti og klæðaburði þótt ekki sé þetta skemmtilegt og það verður auðvitað dásamlegt þegar þessu lýk- ur,“ segir Vala. Talandi um grímur og farða. Þegar Vala er spurð hvort hún farði sig öðru- vísi þegar hún er með grímu á sér seg- ir hún svo vera. „Ég er að vísu ein af þeim sem alltaf eru mál- aðar þegar þær fara út úr húsi því þegar maður vinnur í sjónvarpi og í fjölmiðlum er maður svo oft kominn í aðstæður þar sem maður er í út- sendingu eða upp- tökum eða verið er að ljósmynda þannig að ég hef vanið mig á að mála mig á ein- faldan hátt flesta daga með smá maskara, varalit og smá farða. Núna þegar ég er með grímu úti á meðal fólks nota ég ekki varaglossinn minn því hann klínist í grímurnar. En það kemur ekki að sök því ég nota alltaf snilldar- varalitina Lipfinity frá Max Factor sem endast allan daginn og eru mattir og klínast ekkert. Svo ef maður ætlar að vera extra jákvæður þá er stundum þægilegt að geta falið sig á bak við grímuna þá daga sem maður er kannski ekki alveg upp á sitt besta,“ segir Vala og hlær. Vala hefur alltaf hugsað vel um sig og nú gætir hún þess að næra húðina vel. En hvaða vörur skyldu vera í uppá- haldi hjá henni? „Ég nota helst andlits- og augnkremin frá Estee Lauder því þau eru öll svo góð. Þau eru svo geggjuð Revitalizing Supreme+ kremin. Ég finn alveg mun á húðinni í andlitinu og í kringum augun þegar ég á þau ekki til og núna finnst mér á þessum kórónuveiru- tímum ennþá mikilvægara að vera með gott krem sem verndar húðina og gefur henni raka.“ Gerir þú eitthvað sér- stakt á þessum tímum til að hressa þig við? „Það sem ég geri á hverj- um degi til að hressa mig við andlega í þessu ástandi er að finna stöðugt ný spenn- andi verkefni til að sökkva mér niður í. Ég er svo heppin að vinna svo ótrúlega skemmtilega vinnu á Stöð 2 og þar er alltaf eitthvað nýtt sem ég er að gera fyrir Ísland í dag sem ég hlakka til að vinna við á hverjum degi. Hlakka því til að vakna á morgnana þrátt fyrir ástandið. Líkamlega passa ég mig á því að eiga alltaf græna safann minn í frysti frá Ísey Skyr Bar sem ég fæ í Kringlunni. Hann gerir mér kleift að „sukka“ smá af og til án samviskubits. Og talandi um að „sukka“ smá þá er ég með smá æði fyrir rauða Bounty með mjög dökku súkkulaði. Það er geggjað. Ég borða bara dökkt súkkulaði og þetta er með því allra besta og hressir mig sannar- lega við í þessu ástandi,“ segir Vala. Hleypur á hlaupabrettinu og „sukkar heilsusamlega“ Valgerður Matthías- dóttir, eða Vala Matt. eins og hún er kölluð, er ein af jákvæðustu manneskjum þessa lands. Hún keypti sér hlaupabretti til að stytta sér stundir og hleypur heima til þess að andast ekki úr leiðindum. Á meðan horfir hún á skemmtilega sjónvarps- þætti. Á þessum veiru- tímum eldar hún ein- stakan mat og hugar sérlega vel um heilsuna. Frísklegri húð Vala er mjög hrifin af andlitskremunum frá Estee Lauder. Alltaf á hlaupabretti Vala festi kaup á hlaupa- bretti í vetur og horfir nú á sjónvarpið meðan hún hleypur eins og vindurinn. Kínist ekki Þessi gloss frá Max Fac- tor er snilld að því leytinu til að hann klínist ekki í grímuna. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020 Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Byggmjólk Eina íslenska jurtamjólkin Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, Vegan búðin Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið og Matarbúr Kaju á Akranesi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.