Morgunblaðið - 12.11.2020, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 12.11.2020, Blaðsíða 62
62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Stafræna tónlistarhátíðin Live from Reykjavík fer fram á morgun og hinn, 13. og 14. nóvember, á vegum tónlistarhátíðarinnar Iceland Air- waves í samstarfi við Íslandsstofu, RÚV, Reykjavíkurborg, Icelandair, Einstaka ölgerð og Landsbankann. Tónleikar hátíðarinnar verða sýndir á miðlum RÚV og verður einnig seldur aðgangur að streymi frá hátíðinni um allan heim í gegnum vefinn Dice.fm. Fjöldi íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita kemur fram: Ásgeir, Auður, Bríet, Cell7, Daði Freyr, Emilíana Torrini og vinir, GDRN, Hatari, Hjaltalín, Júníus Meyvant, Kælan mikla, Mammút, Mugison, Ólafur Arnalds, Of Monsters and Men og Vök. Samhliða hátíðinni mun ÚTÓN, Útflutningsmiðstöð íslenskr- ar tónlistar, standa fyrir stafrænni ráðstefnu fyrir áhrifafólk úr tónlistar- geiranum til að kynna íslenska tónlist og listamenn. Eins og fram kom í til- kynningu á dögunum er tilgangurinn að styðja við sköpun og starf ís- lenskra tónlistarmanna, búa til reynslu og þekkingu í streymi sem nýtast mun íslenska tónlistargeir- anum til framtíðar og efla markaðs- og kynningarstarf íslenskrar tón- listar á erlendum vettvangi. Lagar sig að aðstæðum Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir, betur þekkt undir listamannsnafni sínu GDRN, er ein þeirra sem koma fram sem fyrr segir og er fyrirkomulagið þannig að upp- tökum af tónleikum verður streymt á netinu. Tónleikar Guðrúnar og hljóm- sveitar hafa því þegar verið teknir upp og bíða útsendingar. „Það er allt öðruvísi að spila á fullu blasti fyrir framan fjölda fólks en fyr- ir framan myndavél þannig að við ákváðum að það væri skemmtilegra að hafa meiri „live“ fíling þannig að við slepptum öllu „playback“-i, þetta er bara bandið mitt og ég að syngja og ekkert annað. Þannig að þetta mun skila sér heim í stofu til fólks, þetta er stuð en maður verður að laga sig að aðstæðum,“ segir Guðrún. Í hljómsveitinni sem hún nefnir leikur Bergur Einar Dagbjartsson á trommur, Arnar Ingi Ingason á bassa, Rögnvaldur Borgþórsson á gítar og Magnús Jóhann Ragnarsson á píanó. Guðrún segist á tónleikunum flytja lög af nýjustu plötu sinni, GDRN, sem kom út 21. febrúar, rétt áður en kófið skall á. Hún náði því ekki að fylgja þeirri útgáfu eftir og þurfti að aflýsa útgáfutónleikum. Erfitt og leiðinlegt – Hvernig er hljóðið í tónlistar- mönnum sem þú hefur verið í sam- skiptum við að undanförnu? „Það er nú bara mismunandi, margir eru neikvæðir, skiljanlega, finnst þetta erfitt og aðrir sem henda sér í aðra vinnu eða einbeita sér að verkefnum meðan á þessu stendur. Það er erfitt að tala fyrir heilan hóp af fólki sem er svo mismunandi og hóp- urinn stór en ég held að allir séu sam- mála um að þetta er svolítið erfitt og leiðinlegt, eins og að vera alltaf að skrifa greinar fyrir blöð sem eru svo aldrei gefnar út og þá er enginn að fara að lesa þær. Það er erfitt að vera alltaf að vinna að einhverju og vita svo ekki hvað koma skal,“ svarar Guðrún. Tónlistarfólk gefist ekki upp þótt móti blási en nú sé að vísu ansi hvasst. Guðrún er spurð að því hvaða áhrif hún haldi að kófið muni hafa á tón- listarbransann í framtíðinni, að far- sótt lokinni, og segir hún erfitt að spá fyrir um það. „Ég held að margir fari kannski að hugsa meira um réttindi sín sem tónlistarmenn og þann hluta að eiga tónlistina sína. Þú ert kannski búinn að selja plötufyrirtæki öll rétt- indi hvað varðar streymi og þú ert bara að fá tekjur af því að túra um all- an heim og svo er það tekið frá þér og þá siturðu eftir með ekkert í hönd- unum,“ segir hún. – Tónlistarútgáfa virðist ekkert minni núna en í venjulegu ári … „Nei og örugglega margir að semja meira en gengur og gerist því nú hef- ur fólk tíma til að einbeita sér að því. Ég held að núna og á næsta ári verði mikið af nýju efni.“ Á eintali við sjálfa sig Guðrún segist mjög ánægð með að fá að taka þátt í Live from Reykjavík en um leið þyki henni erfitt að geta ekki farið á Iceland Airwaves og horft á vini sína spila. Að geta ekki tekið þátt í þeirri uppskeruhátíð sem Airwaves sé. Hún segir tónleika í raun vera samtal flytjenda og gesta og skrítið að eiga slíkt samtal við myndavélar. „Það er mjög fyndið að vera á einverju eintali við sjálfan sig fyrir framan myndavélar, það er ákveðinn hæfileiki að geta komið því á framfæri sem maður vill þegar maður fær ekkert feedback, þegar enginn tekur á móti eða gefur eitt- hvað til baka,“ segir hún um tónleika- formið sem er nú orðið hvað algeng- ast, þ.e. án gesta. Guðrún er að lokum spurð að því hvort hún sé byrjuð að vinna að næstu plötu. „Ég er alla vega farin að vinna að einhverju nýju og það kemur í ljós hvað það er. Þetta er á byrj- unarstigi, komið eitthvað áleiðis,“ svarar hún. Frekari upplýsingar um Live from Reykjavík má finna á ice- landairwaves.is/live/. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Vinsæl Tónleikar GDRN og hljómsveitar verða sýndir á Live from Reykjavík á laugardag, 14. nóvember. Gefast ekki upp þótt á móti blási  GDRN flytur lög af nýjustu plötunni sinni á tónlistarhátíðinni Live from Reykjavík sem fram fer 13. og 14. nóvember  Erfitt að vita ekki hvað koma skal, segir hún um stöðu tónlistarmanna í kófinu Morgunblaðið/Eggert OMAM Hljómsveitin Of Monsters and Men á Iceland Airwaves í fyrra. Tilnefningar til EFA, Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna, hafa nú allar verið kunngjörðar. Kvikmynd- irnar sem tilnefndar eru sem besta evrópska kvikmyndin eru Druk eftir leikstjórann Thomas Vinterberg, Berlin Alexanderplatz eftir Burhan Qurbani, Corpus Christi eftir Jan Komasa, Martin Eden eftir Pietro Marcello, The Painted Bird eftir Václav Marhoul og Undine eftir Christian Petzold. Tilnefnd sem besti leikstjóri eru Agniezka Holl- and fyrir Charlatan, Jan Komasa fyrir Corpus Christi, Pietro Mar- cello fyrir Martin Eden, Francois Ozon fyrir Summer of 85, Maria Sö- dal fyrir Hope og Thomas Vinter- berg fyrir Druk. Viggo tilnefndur Í flokki leikkvenna eru tilnefndar Paula Beer fyrir Undine, Natasha Berezhnaya fyrir Dau, Natasha, Andrea Bræin Hovig fyrir Hope, Ane Dahl Torp fyrir Charter, Nina Hoss fyrir Schwesterlein og Marta Nieto fyrir Madre. Í flokki karla eru tilnefndir Bartosz Bielenia fyrir Corpus Christi, Goran Bogdan fyrir Otac, Elio Germano fyrir Volevo nascondermi, Luca Marinelli fyrir Martin Eden, Mads Mikkelsen fyrir Druk og Viggo Mortensen fyrir Fall- ing. Tilnefndir handritshöfundar eru Martin Behnke og Burhan Qurbani fyrir Berlin Alexanderplatz, Costa- Gavras fyrir Adults in the room, Da- miano og Fabio D’Innocenzo fyrir Favolacce, Pietro Marcello og Maurizio Braucci fyrir Martin Eden, Mateusz Pacewicz fyrir Corpus Christi og Thomas Vinterberg og Tobias Lindholm fyrir Druk. Tilnefndar í flokki gamanmynda eru Ventajas de viajar en tren eftir Aritz Moreno, Teräsleidit eftir Pam- elu Tola og Un triomphe eftir Emm- anuel Courcol. Tilnefndar í flokki bestu heimildarmyndar eru Acasã eftir Radu Ciorniciuc, Colectiv eftir Alexander Nanau, Gunda eftir Vict- or Kossakovsky, Petite fille eftir Sébastien Lifshitz, Saudi runaway eftir Susanne Regina Meures og The Cave eftir Feras Fayyad. Ónefndar eru stuttmyndir og má finna lista yfir þær tilnefndu á europeanfilmawards.eu. Tilnefningar til EFA 2020 liggja nú fyrir Drykkja Mads Mikkelsen í Druk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.