Morgunblaðið - 12.11.2020, Page 72

Morgunblaðið - 12.11.2020, Page 72
Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu ef verslað er fyrir 5.000 kr. eða meira ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is mánudaga - sunnudaga 12-18 20-25% Sparadu- af borðstofu- húsgögnum 6. - 23. nóvember 20% Sparadu- af borðbúnaði 20% Sparadu- af jólavörum Listamannahópurinn Sunday Seven mun senda út gjörningadagskrá í streymi annað kvöld, föstudags- kvöld. Dagskráin hefst kl. 20 og stendur í á þriðju klukkustund. Listamennirnir sem fram koma, og í þess- ari röð, eru þau Styrmir Örn Guðmundsson og Agata Mickiewicz, Ásta Fanney Sigurðardóttir, Magnús Logi Kristinsson, Snorri Ásmundsson, Sigtryggur Berg Sig- marsson, Ingibjörg Magnadóttir og Darri Lorenzen. Streymt verður á vef Artzine.is og á viðburðasíðu hóps- ins: „Sunday 7 live on Friday the 13th“. Hópur listamanna með gjörninga í streymisdagskrá annað kvöld FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 317. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Það sem ég hef lært af þessum leikmönnum er að þeir eru ennþá hungraðir. Ef þú hefur þetta hungur þá skipt- ir aldurinn engu máli,“ sagði vígreifur Erik Hamrén, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, á blaðamannafundi í Búdapest í gær fyrir hreinan úrslita- leik Íslands og Ungverjalands um sæti á EM næsta sumar. Leikurinn fer fram á Púská Aréna klukkan 19:45 í kvöld. Karlalandslið þjóðanna mættust síðast á knatt- spyrnuvellinum í lokakeppni EM í Frakklandi árið 2016 og gerðu þá 1:1-jafntefli. »60 Íslensku leikmennirnir hafa notið velgengni en eru enn hungraðir ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hugur margra landsmanna er nú við þjóðarleikvang Ungverjalands í Búdapest, en þar leika heimamenn og Íslendingar í kvöld um sæti í Evrópukeppni landsliða í fótbolta, sem til stendur að fari fram um víðan völl í álf- unni næsta sumar. Völlurinn er nefndur eftir miðherj- anum Ferenc Puskás, frægasta knattspyrnumanni Ungverjalands. „Hann var aðalhetjan og mitt fyrsta átrúnaðargoð í fótboltanum,“ segir Guðmundur Pét- ursson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður í KR. Ungverjar voru á hátindi frægðar sinnar á sjötta áratug liðinnar aldar. Þeir unnu til dæmis Englendinga 6:3 á Wembley 1953, fyrsta tap Englendinga á heima- velli í 90 ár. Puskás skoraði tvö mörk í leiknum, sem síðar gekk undir nafninu „leikur aldarinnar“. Ungverj- ar endurtóku leikinn á heimavelli í maí 1954 og unnu þá 7:1 og aftur skoraði Puskás tvö mörk. Í heimsmeistara- keppninni í Sviss skömmu síðar unnu þeir Þjóðverja 8:3 í riðlakeppninni en töpuðu 3:2 fyrir þeim í úrslitum eft- ir að hafa komist í 2:0. Áfall og tannbursti „Ég hef haft áhuga á fótbolta frá því ég man eftir mér og þegar ég var átta ára fylgdist ég með HM í fyrsta sinn, fyrst og fremst í Mogganum,“ rifjar Guð- mundur upp. „Puskás var fyrsta ofurhetjan sem ég man eftir í fótbolta og það var mikið áfall fyrir mig og fleiri í Mosfellssveit þegar Ungverjar töpuðu úrslita- leiknum.“ Innrás Sovétríkjanna í Ungverjaland 1956 hafði eðli- lega áhrif. Puskás sneri ekki heim eftir Evrópuleik með Honvéd, var settur í bann og varð síðan lykilmaður hjá Real Madríd á Spáni, en ný stjarna kom fram á sjónar- sviðið á HM í Svíþjóð 1958, Edson Arantes do Nasci- mento eða Pelé frá Brasilíu, „Svarta perlan“. „Puskás hvarf úr dagblöðunum og í staðinn varð Péle helsta hetjan,“ segir Guðmundur, sem var varaformaður Knattspyrnusambands Íslands og formaður landsliðs- nefndar 1990 til 1995. Sem slíkur tók hann ásamt Egg- erti Magnússyni, þá formanni KSÍ, á móti Pelé sumarið 1991 og var með honum í þriggja daga heimsókn um landið. „Það var auðvitað ævintýri að hitta besta knatt- spyrnumann sögunnar og hann var auðmjúkur, elsku- legur og þægilegur.“ Ferðataska snillingsins skilaði sér ekki og gestgjafarnir voru miður sín en hann stappaði stálinu í þá. „„Verið þið rólegir, þið berið ekki ábyrgð á töskunni, en ef þið bjargið mér um tannbursta er ég góður,“ sagði hann við okkur.“ Nokkrum árum síðar voru Eggert og Guðmundur á fjölmennum fundi FIFA vegna HM 1994. „Pelé kom sérstaklega til okkar og heilsaði upp á okkur. Það þótti okkur vænt um.“ Gordon Banks, landsliðsmarkvörður Englands á HM 1966, var fyrirmynd Guðmundar í markinu. „Ekkert var sjónvarpið en mér fannst hann besti markvörður í heimi út frá því sem ég las og við rifjuðum það upp þegar við hittumst fyrir Evrópuleik Stoke, þar sem ég var eftirlitsmaður UEFA 2011.“ Puskás sneri aftur til Ungverjalands 1981 og var landsliðsþjálfari 1993. Leiðir þeirra Guðmundar lágu saman í Búdapest 1995, þegar Ungverjaland og Ísland léku í undankeppni EM. „Þótt ég væri að verða fimm- tugur var það stór stund að hitta hetjuna frá æsku- árunum.“ Guðmundur er bjartsýnn fyrir leikinn í kvöld. „Eftir frábæran sigur á Rúmenum spái ég sigri okkar manna. Þessir strákar hafa gert svo mikið fyrir okkur, finnst gaman að hittast, búa til skemmtilega stemningu og njóta þess að spila fótbolta, en auðvitað getur allt gerst, Ungverjar eru á heimavelli og hafa staðið sig vel að undanförnu.“ Svarthvítu hetjurnar Fyrsta átrúnaðargoðið Guðmundur Pétursson og stór- stjarnan Puskás áttu góða stund saman í Búdapest.  Puskás og Pelé koma fyrst upp í huga Guðmundar Péturssonar í tengslum við úrslitaleikinn í kvöld Lausn „Ef þið bjargið mér um tannbursta er ég góður,“ sagði Pelé við Guðmund og Eggert Magnússon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.