Morgunblaðið - 17.12.2020, Page 1

Morgunblaðið - 17.12.2020, Page 1
F I M M T U D A G U R 1 7. D E S E M B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  297. tölublað  108. árgangur  VALINN ÍÞRÓTTA- MAÐUR ÁRSINS Í FYRSTA SINN ÚR SÖNGLEIK Í KVIKMYND HAGSÝNN BRAUTRYÐJANDI Í HÚSAGERÐ TÓNLISTARSKÓLI BORGARFJARÐAR 32 GUÐJÓN SAMÚELSSON 72HILMAR SNÆR 69 Nautalundir Danish Crown 3.999KR/KG ÁÐUR: 4.999 KR/KG JÓLIN ERU KOMIN Í NETTÓ! Hangilæri Úrbeinað 2.354KR/KG ÁÐUR: 3.139 KR/KG Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 17.—20. desember -25% -20% Bökunarkartöflu 135KR/KG ÁÐUR: 269 KR/KG r -50% Hurðaskellir kemur í kvöld 7dagartil jóla jolamjolk.is Snorri Másson snorrim@mbl.is Á meðan fólk flykkist á Laugaveg og í Austurstræti í hátíðlegum er- indagjörðum nú í aðdraganda jóla, stendur hið nýja Hafnartorg meira og minna afskipt niðri við höfn. Ýmislegt veldur, að sögn sérfræð- inga. Í fyrsta lagi er það linnulaus norðanáttin í Reykjastræti, þar sem jólatréð stendur á miðri mynd. Hún bítur kinnar þeirra sem hætta sér inn á hennar svið, en sviðið er vind- göng sem myndast vegna hæðar nýbygginganna á svæðinu. Í öðru lagi vantar upp á að framboð þjón- ustu á svæðinu sé fjölbreyttara: Á mörg hundruð metra fleti er aðeins að finna H&M og COS, þó að hinum megin séu nokkrar aðrar verslanir. Að sögn arkitekts, veðurfræðings og umhverfissálfræðings sem Morgunblaðið ræddi við um svæðið, er skipulag þess vanhugsað frá upphafi og afleiðingarnar eru þess- ar: Fæstir sjá ástæðu til að leggja leið sína í þennan nýja miðbæ Reykjavíkur. »18-20 Morgunblaðið/Árni Sæberg Út undan á aðvent- unni  Mannfólk hafnar Hafnartorgi Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur Alþingi ákveðið að fresta fyrirhugaðri niðurfellingu ívilnunar sem tengiltvinnbílar hafa notið í formi lækkaðs virðisauka- skatts. Ívilnunin er að hámarki að fjórum milljónum króna af bílverði og getur því numið að hámarki 960 þúsund krónum. Upprunalega átti að taka fyrsta skrefið í niðurfellingu ívilnunarinn- ar þann 1. janúar nk. en áramótin þar á eftir átti ívilnunin að lækka enn frekar og falla svo alveg niður 1. janúar 2023. Jón Trausti Ólafsson, forstjóri bílaumboðsins Öskju, fagnar niður- stöðunni. „Nú hefur drægni tengil- tvinnbíla aukist hratt á síðustu ár- um, og það hefur sýnt sig að margir kaupa fyrst tengiltvinnbíl á leið sinni yfir í hreinan rafbíl,“ segir Jón Trausti. Tengiltvinnbíll hleður inn á sig rafmagni á ferð, auk þess sem hægt er stinga bílnum í samband. Jón Trausti segir að Bílgreina- sambandið og fleiri hafi talið mik- ilvægt að halda þessum ívilnunun áfram af fyrrgreindum ástæðum, ásamt því að árið 2020 hafi verið mjög óvenjulegt á bílamarkaðnum vegna kórónuveirufaraldursins. Ívilnanir þrengdar Jón Trausti bendir þó á að á sama tíma og verið sé að fram- lengja ívilnanirnar sé verið að þrengja þær, og aðeins umhverf- isvænstu bílarnir muni njóta íviln- ana, þ.e. þeir bílar sem menga minnst og draga lengst á rafmagn- inu einu saman. „Þarna er verið að beina stuðn- ingi að bílum með raunverulega rafmagnsdrægni sem tengiltvinn- bílar. Rafhlöður bílanna hafa stækkað í mörgum tegundum og orðið dýrari, og því hafa þessir bílar ekki lækkað í verði – þessi framlenging er því að mínu mati bæði skynsamleg og hjálpar til við að flýta orkuskiptum landsmanna,“ segir Jón Trausti. Niðurfellingu frestað  Verð tengiltvinnbíla hefði hækkað um áramót Ívilnun getur numið að hámarki 960 þúsund krónum Gildir aðeins fyrir umhverfisvænstu tengiltvinnbílana Morgunblaðið/Hari Miklabraut Ákvörðunin á að hjálpa til við að flýta fyrir orkuskiptum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.