Morgunblaðið - 17.12.2020, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020
„Komdu í Bílanaust þar færð þú allt fyrir bílinn og meira til“
rafgeymar olíurvarahlutir vetrarvörur
3
7 verslanir um land allt
Hafnargötu 52Vatnagörðum 12
104 Reykjavík
S. 535 9000
Talsverð úrkoma var í gær á Seyð-
isfirði og var því ekki talið óhætt að
fara inn á það svæði, sem rýmt var í
fyrradag vegna aurskriðanna. Metið
verður aftur í dag
hvort íbúar þeirra
50 húsa sem voru
rýmd megi snúa
aftur til síns
heima. Þá hafa
íbúar á Eskifirði á
ákveðnum svæð-
um nærri Lamb-
eyrará og Grjótá
verið beðnir um
að fara að öllu
með gát og
fylgjast með aðstæðum. Engar nýj-
ar skriður hafa fallið, eftir þær sem
komu í fyrrakvöld. Vegna þeirra
þurftu íbúar við göturnar Botnahlíð
og svo úr nokkrum húsum við Aust-
urveg og Hafnargötu að heiman. Það
fólk gistir hjá vinum og ættingjum
eða á gististöðum í bænum.
Appelsínugul úrkomuviðvörun
Veðurstofu fyrir Seyðisfjörð tók gildi
síðdegis í gær og átti að gilda nú fram
í morgunsárið, þegar staðan verður
metin heildstætt.
Mannskapur úr Ísólfi, björgunar-
sveitinni á Seyðisfirði, hafði í nægu að
snúast í gær. Stóð vaktina við lokun-
arpósta við götur í bænum og hélt
skráningu yfir þá sem fengu að fara
inn á lokað svæði til að vitja um eigur
sínar. „Hér er bæði rigning og rok,
skítaveður eins og slíkt er kallað,“
sagði Pétur Kristjánsson, fréttaritari
Morgunblaðsins á Seyðisfirði, í sam-
tali. „Fólk er auðvitað alveg viðbúið
frekari hamförum, en þá líka stólum
við á björgunarsveitina en án hennar
væri ekki byggilegt hér.“
Ekki hefur verið lagt mat á hve
miklar skemmdir hafa orðið á Seyð-
isfirði, eða hvernig þær skuli meta.
Ljóst er þó að hreinsunarstarf vegna
aurs sem borist hefur fram á götur og
lóðir verður umfangsmikið. Gert er
svo ráð fyrir að matsfólk frá Náttúru-
vártryggingum Íslands fari austur á
morgun, til að kanna aðstæður.
„Byggðin er í hættu,“ sagði Þor-
valdur Jóhannsson íbúi við Bröttuhlíð
og fyrrum bæjarstjóri á Seyðisfirði.
„Hættusvæðið er hér undir Botna-
brún og milli Nautaklaufar og Dag-
málalækjar. Hér hefur rignt afar mik-
ið síðustu daga og fjallshlíðin hér fyrir
ofan er alveg gegnsósa af vatni. Við
slíkar aðstæður eru alltaf líkur á því
að skriður fari af stað eins og nú hefur
gerst. Þetta er um margt sambæri-
legt því sem gerðist 8. ágúst 1989 þeg-
ar hér féllu skriður í kjölfar mikilla
rigninga, nema þær voru aðeins utar
hér í sunnanverðum firði.“ sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Flóð Eðja liggur yfir götum undir hlíðarrótum innst í bænum og ljóst er að mikil vinna er fram undan við hreinsun.
Byggðin er í hættu
Viðsjár á Seyðisfirði Skriður falla og appelsínugul við-
vörun vegna úrkomu er í gildi Fjallshlíðin er gegnsósa
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Hamfarir Aurskriðan er eins og taumur sem liggur niður hlíðina.
Þorvaldur
Jóhannsson
Þrátt fyrir að
Brexit-stunda-
glasið sé við það
að renna út,
þykja líkur hafa
aukist á því að
Bretar gangi úr
Evrópusamband-
inu um áramótin
án verulegrar
röskunar.
Það á raunar
einnig við mögulegar afleiðingar
fyrir Íslendinga, en Guðlaugur Þór
Þórðarson utanríkisráðherra und-
irritaði í gær loftferðasamning
milli Íslands og Bretlands, þar sem
flugsamgöngur milli landanna eru
tryggðar til framtíðar.
Samningaviðræður milli Breta
og Evrópusambandsins (ESB) hafa
gengið mun stirðlegar, en í gær
virtist rofa til, þegar Ursula von
der Leyen, forseti framkvæmda-
stjórnar ESB, gaf til kynna að for-
sendur væru fundnar til þess að
gera viðskiptasamning við Breta,
sem tæki gildi við úrgönguna um
áramót. „Það er leið til samninga
núna,“ sagði hún á fundi með Evr-
ópuþingmönnum í Brussel.
Boris Johnson forsætisráðherra
Breta tók í sama streng, en sagði þó
að enn bæri á milli í sumum veiga-
miklum málum. Gengi sterlings-
pundsins hækkaði mikið í gær og
hefur ekki verið hærra í tvö ár, sem
rakið er til þessara orða og hins, að
kvisast hefur út að þinglokum fyrir
jól verði frestað fram á þriðjudag,
en það þarf að samþykkja mögu-
legan viðskiptasamning.
Vonir glæðast um
friðsamlegt Brexit
Ursula
von der Leyen
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Samkvæmt niðurstöðum loðnumæl-
inga í síðustu viku hefur veiðiráðgjöf í
loðnu í vetur verið endurskoðuð. Mæl-
ingin leiðir til veiðiráðgjafar upp á
21.800 tonn og kemur í stað ráðgjafar
frá því í október um engan afla. Haust-
ið 2019 var gefið út upphafsaflamark á
vertíðinni í vetur upp á 170 þúsund
tonn, en það var dregið til baka í haust.
Ráðgjöfin verður endurmetin þegar
niðurstöður mælinga í byrjun árs 2021
á stærð veiðistofnsins liggja fyrir. Eng-
ar loðnuveiðar voru við landið á þessu
ári og því síðasta, en árið 2018 voru
veidd alls 287 þúsund tonn af loðnu við
landið.
Niðurstöður leiðangursins byggja á
umfangsmikilli yfirferð í Grænlands-
sundi og norður af Íslandi. Hafís í
Grænlandssundi hefti yfirferð þar
verulega en loðnu var að finna í ná-
munda við hafísinn. Því gæti verið um
að ræða vanmat á stærð veiðistofns.
Kynþroska loðnu var að finna skammt
austan við Kolbeinseyjarhrygg sem er
austlægari útbreiðsla en undanfarin
ár, segir í skýrslu um ráðgjöfina á
heimasíðu Hafrannsóknastofnunar.
Fjögur veiðiskip
Mælingarnar voru gerðar á upp-
sjávarveiðiskipunum Kap VE, Jónu
Eðvaldsdóttur SF, Ásgrími Halldórs-
syni SF og grænlenska skipinu Iivid.
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi kost-
uðu verkefnið, en það var skipulagt af
Hafrannsóknastofnun.
Stærð hrygningarstofnsins mældist
rúmlega 487 þúsund tonn. Ráðgjöf um
aflamark byggist á því að 95% líkur séu
á að hrygningarstofninn í mars verði
yfir 150 000 tonnum að teknu tilliti til
afráns. Það leiðir til veiðiráðgjafar upp
á tæplega 22 þúsund tonn í vetur, eins
og áður sagði.
Morgunblaðið/Börkur Kjartansson
Vertíð Beitir NK og Venus NS að veiðum 2016. Enn er óvissa með veturinn.
Ráðgjöf í loðnu upp
á 22 þúsund tonn
Hafís í Grænlandssundi hefti yfirferð