Morgunblaðið - 17.12.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Höfðabakka 9, 110 Rvk | www.runehf.is
• Verslun Guðsteins Eyjólfssonar
– Laugavegi 34 og Ármúli 11
• Hagkaup – Reykjavík, Garðabær,
Selfoss og Akureyri
• Fjarðarkaup – Hafnarfirði
• Herrahúsið – Ármúli 27
• Karlmenn – Laugavegi 87
• Vinnufatabúðin – Laugavegi 76
• JMJ – Akureyri
• Bjarg – Akranesi
• Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstangi
• Skóbúð Húsavíkur
• Efnalaug Suðurlands – Selfossi
• Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki
• Verslun Haraldar Júlíussonar – Sauðárkróki
• Efnalaug Vopnafjarðar
• Sigló Sport – Siglufirði
• Blossi – Grundarfirði
• Verslun Bjarna Eiríkssonar – Bolungarvík
• Verslun Grétars Þórarinssonar – Vestmannaeyjum
• Sentrum - Egilsstöðum
Útsölustaðir:
Tilvalin
jólagjöf
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ekki hefur tekist að finna út hver er
ástæða tjörublæðinga í klæðingum
vega hér á landi og í fleiri löndum. Við
skoðun á fréttum Morgunblaðsins síð-
ustu fimmtán ár
sést að fjallað hef-
ur verið um níu
blæðingar á þess-
um tíma. Framan
af voru þær á
sumrin en seinni
árin á vetrum.
Blæðingar
verða þegar bikið
úr klæðingu vega
mýkist og klístr-
ast. Ekki er einfalt
mál að færa þær aðstæður sem leiða
til þess ástands inn á rannsóknarstofu
og þess vegna hefur ekki tekist að fá
niðurstöðu um það hvað veldur þess-
um blæðingum.
Efnahvörf í mýkingarefni
Við klæðingu vega er notað mýk-
ingarefni, lífolía sem er blanda úr fitu-
sýru og etanóli. Birkir Hrafn Jóakims-
son, verkfræðingur og sérfræðingur í
slitlögum hjá Vegagerðinni, segir að
kenningin sé sú að í hitasveiflum og
mikilli þungaumferð slitni tenging á
milli fitusýrunnar og etanólsins og et-
anólið virki eins og leysir á bikið. Þun-
gaumferðin pressi hann upp á yfirborð
vegarins.
Tekur Birkir fram að vandamálið sé
þekkt erlendis, til dæmis hafi slíkt mál
komið upp í Svíþjóð í síðasta mánuði
og valdið skemmdum á fjölda bíla. Þar
hafi ekki fundist skýring, ekki frekar
er hér.
Sömu efni eru notuð í klæðingar hér
og víða annars staðar. Mýkingarefnið
er keypt frá viðurkenndum framleið-
endum. Steinefnin eru að vísu önnur
hér því Ísland er yngra en önnur Evr-
ópulönd og jarðvegurinn basískari.
Blæðingar að vetri og sumri
Kaflarnir á Norðurlandsvegi frá
Bifröst í Borgarfirði og í Skagafjörð
sem blætt hafa frá því síðdegis á
sunnudag eru misjafnir. Þetta eru
eins til fjögurra ára gamlar klæðingar
með efni úr mismunandi námum og
íblöndunarefni frá þremur mismun-
andi fyrirtækjum. Segir Birkir að ekki
sé hægt að benda á einhvern ábyrgð-
araðila við verkið.
Þá bendir hann á að sömu efni og
aðferðir við klæðingar séu notaðar á
Suðurlandi og Norðurlandi og um-
ferðin svipuð. Eina sem skilur á milli
er veðurfarið.
Vetrarblæðingarnar síðustu ár
hafa verið bundnar við Norðurlands-
veg. Hins vegar varð vart við sumar-
blæðingar á Suðurlandi á meðan not-
að var White spirit í mýkingarefnið.
Ekki mynduðust eins miklir kögglar
við sumarblæðingar og þekkt er úr
vetrarblæðingum en sami óþrifnaður
og vegurinn hefur ekki gott að því, að
sögn Birkis. Þetta er þekkt vandamál
í hitum víða um heim. Skipt var yfir í
lífolíu fyrir tæpum áratug.
Repjuolían hentaði ekki
Raunar var um tíma notuð repju-
olía og fiskiolía en síðarnefnda olían
var hvergi annars staðar notuð í klæð-
ingu, að því er fram kom við rannsókn
á blæðingunum í janúar 2013. Rann-
sóknir sýndu að repjuolían var gölluð
og hentaði ekki í þessa notkun. Fleiri
ástæður kunnu að vera fyrir blæðing-
unum. Vegagerðin hætti að nota
repjuolíu árið 2011.
Miklar blæðingar eins og nú eru á
Norðurlandsvegi og urðu einnig í jan-
úar 2013 valda skemmdum á bílum,
ekki síst flutningabílum, þegar bikið
hleðst á dekkin og slæst út í bretti og
þvælist víðar um innyfli bílanna. Að-
stæðurnar geta skapað hættu fyrir
vegfarendur. Fólk getur misst vald á
bílum sínum og tjöruklessur spýst
undan dekkjum flutningabíla. Ekki er
þó vitað um slys á fólki af þessum
ástæðum. Vegagerðin reynir að vara
fólk við og biður ökumenn um að fara
varlega. Óraunhæft er að ætla að
hægt sé að loka tímabundið svo mikil-
vægum samgönguæðum. Þá hafa
blæðingakaflar stundum verið sand-
aðir og tjöruklessur skafnar af með
tækjum og handafli.
Ný aðferð prófuð
Spurður um möguleika á að koma í
veg fyrir slíkar blæðingar nefnir
Birkir fyrst að hægt sé að hætta
klæðingum umferðarmikilla vega og
malbika þá í staðinn. Það er raunar
gert þegar umferðin nær ákveðnu
marki. Búið er að malbika veginn frá
Reykjavík til Borgarness og frá
Reykjavík langleiðina að Þjórsá,
einnig hluta af Biskupstungnavegi.
Malbikun er hins vegar margfalt dýr-
ari en klæðning.
Gerðar hafa verið tilraunir með
aðra aðferð við klæðingu, svokallaða
bikþeytu. Þá er vatn notað í staðinn
fyrir lífolíu til mýkingar. Vatnið gufar
að mestu upp. Birkir segir að önnur
vandamál séu við þessa aðferð. Klæða
þurfi vegina við að minnsta kosti 8 til
10 stiga hita. Ekki sé hægt að gera
það hér á landi eftir 15. júlí og helst
þurfi að gera það nokkru fyrr. Þá
þurfi sumarið að vera gott. Í köldu
sumri geti steinar losnað úr klæðing-
unni þegar frystir að hausti. „Við höf-
um verið að leggja þetta á kafla á
undanförnum árum en förum varlega
í að skipta yfir. Fyrst þurfum við að
ná utan um verklag og ganga úr
skugga um að við séum með réttar
aðferðir og laga að okkur að aðstæð-
um,“ segir Birkir.
Verstu vetrarblæðingarnar eru á Norðurlandsvegi
Blæðingar úr klæðingum 2007-2020
Borgarnes
Staðarskáli
Blönduós
Akureyri
Varmahlíð
Desember 2020 Borgarfjörður-Skagafjörður
Febrúar 2020 Borgarnes-Blönduós
Júlí 2017 Norðurárdalur í Borgarfi rði
Nóvember 2016 Holtavörðuheiði
Júní 2015 Sunnan við Borgarfjarðarbrú
Janúar 2013 Norðurland, Vesturland, Vestfi rðir
Júlí 2012 Norðurland og víðar
Júní 2007 Þelamörk-Akureyri
Júlí 2007 Þingvallavegur
Ástæður vetrarblæð-
inga hafa ekki fundist
Níu tilvik á fimmtán árum og þar af tvö til þrjú alvarleg
Tjara Bikið límist við dekkið og getur það skapað hættu í umferðinni.
Birkir Hrafn
Jóakimsson
Tjörukögglar Blæðingar í klæð-
ingum hafa lengi verið vandamál.
Þarftu að láta
gera við?
FINNA.is