Morgunblaðið - 17.12.2020, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Huldufólkssögur eruskemmtilegur hluti afmenningu okkar og hafafylgt okkur frá upphafi,
þær eru meira að segja til í Íslend-
ingasögunum. Þetta er því rótgró-
inn menningararfur sem hefur fylgt
okkur í þúsund ár. Mér finnst
merkilegt hversu stutt er í þessa
trú enn í dag, fólk er enn að segja
mér huldufólkssögur sem gerast
nánast í nútímanum. Þetta lifir og
stór hópur fólks vill ekki neita því
að huldufólk sé til. Ég er alinn upp í
Eyjafirði og bæði móðir mín og
amma töluðu um huldufólk eins og
hluta af náttúrunni, það var ljóslif-
andi trú hjá þeim að huldufólk gæti
verið til staðar,“ segir Símon Jón
Jóhannsson þjóðfræðingur þegar
hann er spurður hvers vegna hon-
um finnist skipta máli að varðveita
og vekja athygli á gömlum huldu-
fólkssögum. Símon sendi nýlega frá
sér bókin Hulduheima, sem geymir
sögur af 100 huldufólksbyggðum í
öllum landshornum.
„Huldufólkssögur eru til úti um
allt land og miklu fleiri en þær sem
ég er með í þessari bók. Ég hafði að
leiðarljósi að fara hringinn um land-
ið og finna góðar sögur á sem flest-
um stöðum og þá sögur þar sem
voru nafngreindir staðir, hólar,
klettar eða annað, til að geta tekið
ljósmyndir af þeim og haft með í
bókinni við hverja sögu. Auk þess
erum við með staðbundin kort, enda
er bókin meðal annars hugsuð til að
fólk geti haft hana með sér í bílnum
þegar það fer á flakk út á land,“
segir Símon og bætir við að sér og
Ívari Gissurarsyni, sem vann með
honum bókina og gefur hana út, hafi
yfirleitt alltaf verið tekið mjög vel
þegar þeir fóru á huldustaðina til að
ljósmynda.
„Fólk vissi um staðina og gat
bent okkur nákvæmlega á þá. Sög-
urnar eru að þessu leyti lifandi
ennþá.“
Ástin fór ekki alltaf vel
Símon segir að helsti munurinn
á mannfólki og huldufólki sé sá að
huldufólk sé yfirleitt betur stætt en
mannfólkið.
„Huldufólkið býr betur og á fal-
legri og betri búpening, það klæðist
fallegri fötum og maturinn þeirra er
ríkulegur. Þetta er einhvers konar
mynd af því sem fólk á öldum áður
vildi hafa en hafði ekki, einhvers
konar hliðarveruleiki sem fólk
dreymdi um. Huldufólk er annars
heims verur sem tilheyra ekki
mannheimum, og flest býr það í
klettum, hólum og steinum. Í Hafn-
arfirði er til dæmis Hamarinn stórt
huldufólkssvæði,“ segir Símon og
bætir við að samskipti mannfólks
við huldufólk séu oftast með svip-
uðum hætti.
„Til dæmis eru til margar sög-
ur af ástum milli huldufólks og
mannfólks en það fer yfirleitt illa.
Annaðhvort voru konur píndar til að
ganga í hólana til hulduástmanna
sinna, eða öfugt, huldukonur lokk-
uðu líka til sín mennska menn.
Margar sögur eru um að þessi sam-
skipti hafi leitt til barneigna og þá
hefur huldufólkið oft viljað koma
með börnin og skilja þau eftir í
mannheimum, en hinir mennsku
pabbar hafa yfirleitt neitað að þeir
eigi þessi börn. Þá hefnist þeim fyr-
ir.“
Hjálpsamt huldufólk
Símon segir að sögur af huldu-
fólki gegni líka hlutverki sem ákveð-
in kennsla í því hvernig fólki beri að
hegða sér.
„Til dæmis er framkoma huldu-
manna við sínar konur miklu betri
en framkoma mennskra eiginmanna
þessa fyrri tíma. Huldumenn eru
miklu tillitssamari og hjálpsamari,
þeir hjálpa við húshald og barna-
uppeldi, nokkuð sem karlar gerðu
ekki hér áður fyrr. Huldumenn voru
því draumaeiginmenn fyrir óánægð-
ar konur í mannheimum sem voru
illa giftar,“ segir Símon og bætir við
að yfirleitt séu samskipti milli
mannfólks og huldufólks góð.
„Huldufólk er mjög hjálpsamt,
nema ef mannfólkið gerir eitthvað á
hlut þess, þá hefnir það sín grimmi-
lega. Margar sögur eru til um hjálp
sem er sótt til huldufólks þegar
kona er í barnsnauð, því það kunni
mikið fyrir sér í fæðingarhjálp. Kon-
ur úr mannheimum fóru líka oft í
hóla til að hjálpa við að taka á móti
börnum sem fæddust þar. Einnig
eru mörg dæmi um karla úr mann-
heimum sem gerðu slíkt hið sama,
ljósfeður eins og þeir voru kallaðir.“
Nykur til að forða frá hættu
Símon segir að fólk hafi óttast
að styggja huldufólk.
„Eldri kynslóðir kenndu þeim
yngri að fara varlega í kringum
huldufólksstaði. Í raun kemur mikil
virðing fyrir náttúrunni fram í þess-
um sögum, því þær segja að við
megum ekki ganga á náttúruna og
hirða allt af henni, heldur eigum við
að skilja eitthvað eftir. Til dæmis
sögur um álfhóla sem ekki mátti slá.
Þetta var óttablandin virðing við
náttúruna og um leið kennsla í um-
gengni við hana, sem mannfólk hefði
betur hlustað á, þá værum við ekki í
þeirri stöðu sem við erum í í dag,
þar sem mannfólk hefur gengið svo
á auðlindir náttúrunnar að við erum
að tortíma okkur. Sögurnar hafa
líka forvarnargildi, eins og til dæmis
sögur af nykrum í vötnum, þær eru
til að forða börnum frá því að leika
sér á hættulegum stöðum. Þar fyrir
utan geyma huldufólkssögur líka
miklar heimildir um fyrri tíma að-
stæður, þjóðhætti og fleira.“
Álfar með skráð heimilisfang
Símon segist ekki taka afstöðu
til þess hvort huldufólk sé til eða
ekki, en sögurnar séu til og þær séu
merkilegar. „Ég held svolítið upp á
söguna sem tengist Álfhólsveginum
í Kópavogi, hún er ein af mörgum
sem tengjast því að illa gangi að
leggja veg þar sem huldufólk býr.
Vegagerðarmenn gáfust hreinlega
upp þegar þeir ætluðu að ryðja
þekktum álfhól burt, því vélar
biluðu og allt gekk á afturfótunum.
Talið var að huldufólk og álfar sem
bjuggu í hólnum hefðu þar átt hlut
að máli. Vegurinn var því látinn
beygja fram hjá álfhólnum, frekar
en raska honum meira. Seinna þeg-
ar til stóð að endurbæta veginn og
fjarlægja hluta af honum var það
sama sagan og endaði á að menn
neituðu að koma nálægt Álfhóli með
vélar eða tæki. Þegar lóðinni sem
steinninn er á var úthlutað, þá skil-
aði sá sem fékk lóðina henni, því
hann treysti sér ekki til að byggja
þar. Bæjaryfirvöld í Kópavogi út-
hlutuðu lóðinni aldrei aftur og
þarna býr enginn nema álfarnir.
Álfarnir í þessum hóli búa því við
Álfhólsveg 102. Ég hugsa að þetta
sé eina álfabyggðin í heiminum þar
sem álfarnir eru með skráð heim-
ilisfang. Önnur vegagerðarsaga sem
tengist álfum er frá því fyrir örfáum
árum, þegar verið var að leggja veg
út á Álftanesið. Þá voru fram-
kvæmdir stoppaðar á meðan 70
tonna steinn, sem talinn var vera
álfakirkja, var hífður upp og honum
komið fyrir á nýjum stað utan veg-
ar. Friðmælst var við huldufólkið og
fenginn til verksins milliliður. Mér
finnst gott að enn sé tillit tekið til
náttúrunnar og ekki vaðið yfir allt,
eins og huldufólkið er alltaf að
reyna að kenna okkur mannfólk-
inu.“
Stutt í þessa trú enn í dag
„Móðir mín og amma töluðu um huldufólk eins og
hluta af náttúrunni,“ segir Símon Jón sem sendi ný-
lega frá sér bókina Hulduheima, en hún geymir sögur
af 100 huldufólksbyggðum í öllum landshornum.
Morgunblaðið/Eggert
Þjóðfræðingur Símon við Álfhól í Kópavogi, þar sem vegur var látinn sveigja fram hjá hólnum.
Mörgum sögum hefur farið af
huldufólki í Þykkvabæ í Rangár-
þingi. Hábær stendur á hæsta
hólnum í þorpinu. Rétt við bæinn
er þúfa hæst á hólnum og er kölluð
Háaþúfa. Hana á huldufólkið og
við henni má ekki hrófla. Einu
sinni stakk drengur í óvitaskap
sínum staf djúpt ofan í þúfuna.
Húsbónda drengsins dreymdi
nóttina eftir að til sín kæmi maður
sem sagðist eiga heima þar í
brekkunni. Sagði hann piltinn hafa
handleggsbrotið barn sitt með
stafnum en hann vildi þó hlífa
drengnum vegna óvitaskapar.
Hefndin þyrfti hins vegar að koma
einhvers staðar fram. Morguninn
eftir lá besta kýr bóndans dauð á
básnum.
Austast í Þykkvabæjarbyggðinni
stendur bærinn Unhóll og er hóll-
inn einna hæstur austan við bæ-
inn. Hvorki má raska við hólnum
né slá hann. Pálmar Jónsson
(1899-1971) bóndi á Unhóli sagði
foreldra sína hafa brýnt fyrir sér
að hrófla ekki við hólnum eftir að
hann tók við búi. Lengi vel virti
hann það. Svo þurfti að grafa fyrir
súrheysgryfju og var hóllinn ákjós-
anlegur fyrir það. Pálmar sagðist
hafa hunsað alla huldufólkstrú,
talið hana vitleysislega hjátrú og
grafið fyrir súrheysgryfjunni.
Veturinn eftir missti hann níu kýr
sem drápust með ýmsu móti. Eftir
þennan vetur notaði Pálmar aldrei
súrheysgryfjuna aftur.
Grenshóll við bæinn Vesturholt
er einnig sagður vera huldufólks-
bústaður.
Huldufólk í Þykkvabæ
SÖGUR AF HÁUÞÚFU OG UNHÓLI, ÚR BÓKINNI HULDUHEIMAR
Ljósmynd/Ívar Gissurarson
Háaþúfa Hér má sjá huldufólksþúfuna á hólnum við Hábæ í Þykkvabæ.
Vinnur gegn
Laktósaóþoli
Fæst í næsta apóteki
Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur
saman, sýnir stuðning og samhug
eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
JÓLASÖFNUN