Morgunblaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020 mælalaust að vera í miðborginni gætu verið mikil lyftistöng fyrir ein- mitt þetta svæði, eins og Trygg- ingastofnun ríkisins og sýslumað- urinn á höfuðborgarsvæðinu. Þær gætu verið í nýju Landsbankabygg- ingunni, sem er þegar í eigu ríkisins, það myndi styrkja svæðið og strax breyta viðhorfi fólks til þess. Það þarf að vera eitthvað sem maður á erindi í án þess að kaupa neitt. Þetta er mið- borg höfuðborgarinnar þar sem stjórnsýslan, Þjóðleikhús, Harpa, Al- þingi, ráðhús, borgardómur, Hæsti- réttur og fleira slíkt á helst að vera.“ Dauðadæmt frá upphafi Páll Líndal, sem hefur rannsakað hönnun borgarumhverfis með tilliti til sálfræðilegra þarfa fólks, segir að þeir þættir sem Hilmar og Einar hafa nefnt séu það sem veldur því á end- anum að borgarbúar hafni torginu. „Við þurfum að spyrja: Hverju ætl- uðu menn að ná fram og hverju eru þeir að ná fram? Þetta er varla það sem var stefnt að,“ segir Páll. Í kynningarefni frá arkítektastof- unni PKdM, sem hafði umsjón með Hafnartorgi sagði á sínum tíma: „Við erum sannfærð um að þegar svæðið tekur á sig lokamynd og göngugatan opnar í vetur muni borgarbúar upp- lifa iðandi mannlíf og fjölbreytileika sem bætir manngert umhverfi borg- arinnar. [...] Hafnartorg verður allt í senn verslunarhverfi, íbúðahverfi, skrifstofuhverfi, veitingahúsahverfi og samverustaður með opinni og lif- andi götumynd.“ Páll segir að veðrið hafi sett sitt mark á þessa framtíðarsýn: „Því það sem gerist hér er að allur grundvöllur fyrir mannlífi hverfur. Ef við værum á Ítalíu væri þetta allt annað, því þá væri þetta heitur vindur, en hérna er þetta bara kalt. Hér á norðlægum slóðum erum við að sækjast eftir sól og skjóli fyrir vindi. Þannig að það að ætla sér að skapa mannlíf á stað þar sem þú ert um leið að búa til vind- göng er einfaldlega dauðadæmt frá upphafi, því miður.“ Páll segir að miðbæjarlíf byggist á því að fólk staldri við án þess að þurfa endilega að staldra við, að það komi án þess að þurfa nauðsynlega að koma. „Þannig virkar til dæmis Aust- urvöllur. Þangað fer maður án þess að eiga nauðsynlega erindi og dvelur. En hérna seturðu bara hausinn undir þig, ferð úr bílnum og inn í búð, og aftur heim. Þar með er snertipunkt- urinn við annað fólk orðinn mjög lítill. Þess vegna gerir þetta svæði ekkert fyrir samfélagið eða miðbæinn, ekki á neinn hátt.“ Þar telur hann að efna- hagslegar orsakir hafi ráðið för: „Þetta snýst á endanum um krónur og aura. Sá þáttur skiptir auðvitað miklu máli en hann má ekki yfirtaka allt hitt, eins og þetta svæði er mjög skýr birtingarmynd um.“ Páll bætir við ofan á allt að svæðið skírskoti ekki nægilega vel til annars umhverfis í kring og að þar með sé samhengið við gamla miðbæinn rofið. Hilmar tekur undir þetta og segir enga leið að bera kennsl á sér- einkenni Reykjavíkur þegar svipast er um eftir þeim. „Maður myndi frek- ar vilja færa hingað reykvískan stað- aranda og þá væri það þannig að þeg- ar ferðamenn birtu myndir af sér hér sæju aðrir strax að þetta væri í Reykjavík. Ef mynd er tekin hérna gæti hún alveg eins verið tekin bara í hverfi tvö í Lyon í Frakklandi þess vegna. Það er engin leið að vita það, og búðirnar eru allar útlendar,“ segir Hilmar. Sá hópur sem Hilmar ræðir þar mun að líkindum skipta miklu máli fyrir þróun svæðisins á komandi ár- um, ferðamennirnir með sinn gjald- eyri. Þegar þokunni léttir og þeir fara að streyma til landsins á ný má ætla að það hleypi lífi í Hafnartorgið, en Hilmar og Páll eru báðir sann- færðir um að eins og þjónustu- framboðið lítur út á staðnum núna geti það ekki unnið sér sess meðal borgarbúa. Þar gæti komið að versl- ununum verði hólfað niður í smærri einingar og í versta falli að byggja þurfi yfir göngusvæðið svo að þar sé vært í öllum veðrum. Loks þarf hugs- anlega bara tíma, áður en torgið kemur í örugga höfn í hjarta Reyk- víkinga. Samkvæmt þessu er þó langt í land. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hafnartorg Verslanakeðjurnar H&M og COS, sem eru í eigu sama risa, blasa við austan megin torgsins. Hinum megin er m.a. að finna tvo matsölustaði og fleiri fataverslanir. Þá er Bláa lónið með rými á leigu í Reykjastræti. Vindar blása um Hafnartorg Á aldarafmæli fullveldisins 2018 flutti Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra ávarp við Stjórn- arráðið að viðstöddum ekki minni mönnum en Margréti II. Dana- drottningu og forsætisráðherra Dana. Í Morgunblaðinu mánudag- inn eftir sagði: „Setti veðurfarið nokkurt strik í reikninginn við há- tíðahöld þau sem fram fóru við stjórnarráðið. Þrátt fyrir það var nokkur hópur fólks sem lét kuld- ann og trekkinn ekki á sig fá og fylgdist með hátíðahöldunum.“ Einar Sveinbjörnsson veður- fræðingur var á meðal þeirra sem „lét kuldann og trekkinn ekki á sig fá“ og fór í kjölfarið að hug- leiða þá miklu vinda sem blésu þennan dag við Lækjargötuna. „Ég var hérna 1. desember, þegar norðanáttin beit í kinnarnar á dönsku drottningunni, og þá kom upp þessi spurning hvort þessar nýju byggingar hérna væru að magna upp vindinn. Ég sagði bara já, það er það sem er að gerast. Við erum að búa til vind hérna,“ segir Einar. Hann taldi á sínum tíma ekki fjarri lagi að ætla að um 10-15% vindmögnun á norður- og norðaustanátt ætti sér stað í Lækjargötu og á Kalk- ofnsvegi vegna nýrra og sífellt hærri bygginga sem þrengja að götunni. Þegar drottningin fékk að kenna á norðanáttinni Á MÓTI BLÆS AF MANNAVÖLDUM Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Forsætisráðherra Magnaður vindur við Lækjargötu gerir hvorki mannamun né daga. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Norðanátt Guðni forseti hjálpaði Margréti Danadrottningu auðvitað um teppi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.