Morgunblaðið - 17.12.2020, Page 32
SVIÐSLJÓS
Guðrún Vala Elísdóttir
Borgarnesi
Á tímum Covid hafa flestir þurft að
breyta viðteknum venjum og er Tón-
listarskóli Borgarfjarðar ekki undan-
skilinn. Í ár var gripið til nýstárlegra
aðferða og varð árviss söngleikur að
kvikmynd í stað hefðbundins flutn-
ings. Unnið er að því að kvikmyndin
verði tilbúin fyrir jól.
„Við höfðum verið að vinna að
söngleikjasýningu með söngleikja-
deildinni síðan í byrjun hausts og
smátt og smátt fór að koma í ljós að
vegna ástandsins myndum við ekki
geta boðið aðstandendum barnanna
að koma á sýningu“ segir Theodóra
Þorsteinsdóttir, skólastjóri tónlistar-
skólans, við Morgunblaðið.
Það var Sigríður Ásta Olgeirs-
dóttir, dóttir Theódóru, sem fékk
hugmyndina að þessari útfærslu.
Sigríður stundaði leiklistarnám í
Danmörku og útskrifaðist með
bachelorgráðu í júní sl. Hún var því á
lokaönninni sinni þegar fyrsta bylgja
Covid-19 reið yfir Evrópu og notaði
bekkurinn hennar myndmiðilinn
mikið í öllum lokaverkefnum. Áhugi
Sigríðar jókst enn frekar á þessum
miðli og hún öðlaðist mikla reynslu
sem nýtist nú í tónlistarskólanum.
Hún bar hugmyndina um að gera
söngleikinn að kvikmynd undir Theo-
dóru, sem tók vel í það.
Alltaf til í að prófa eitthvað nýtt
„Mig langaði líka að nýta tækifær-
ið þar sem ljóst var að söngleikurinn
yrði hvort eð er tekinn upp á ein-
hvern hátt og sendur til aðstandenda
í stað sýningar, að taka verkefnið
skrefi lengra og aðlaga sýninguna
þeim miðli sem notaður yrði. Þannig
fengju börnin einnig færi á að prufa
aðra hlið sviðslistar í leiðinni,“ segir
Sigríður sem þessa dagana situr við
og klippir saman atriði.
Theodóra segir að reglulega hafi
verið sett upp atriði úr söngleikjum í
gegnum tíðina. Á 50 ára afmæli skól-
ans var settur upp söngleikurinn
Móglí. Í kjölfar þeirrar sýningar var
mikill áhugi fyrir því að halda áfram
með söngleiki og frá haustinu 2018
hefur verið starfandi söngleikjadeild
þar sem söngur og leiklist eru kennd
jöfnum höndum.
„Í upphafi annar er ákveðinn söng-
leikur tekinn fyrir, unnið með hann
og flutt atriði í lok annar. Í deildinni
eru núna 17 krakkar á aldrinum 6-12
ára og allir taka þátt. Þau og for-
eldrar þeirra voru einnig spennt fyrir
nýju formi leiklistar og annarskonar
vinnu sem allt hjálpar til við gerð
kvikmyndarinnar.“
Theódóra segir hópinn hafa staðið
sig mjög vel, þau hafi mætt 100% og
sinnt því sem þau voru beðin um.
„Þetta er alveg frábær hópur sem
við erum með og þau koma bæði úr
Borgarnesi og dreifbýlinu. Gaman er
að fylgjast með því hvað þau eru
skapandi og margar hugmyndir í
lokaútkomunni koma frá þeim sjálf-
um. Þeim fannst þetta mjög gaman
og ég er ekki frá því að þeim hafi
fundist þetta meira spennandi. Þau
voru svo „pró“ og alltaf til í að prófa
eitthvað nýtt í hverri töku og voru
ekki síður með smáatriðin á hreinu
en við stjórnendurnir,“ segir Theo-
dóra sem er tónlistarstjóri sýning-
arinnar. „Við byrjuðum á því að taka
upp öll sönglögin í Stúdíói Gott hljóð
hjá Sigurþóri Kristjánssyni og síðan
hófust kvikmyndatökurnar sem við
náðum að klára á rúmri viku. Þetta
gekk allt saman upp vegna þess að
allir stóðu saman og börnin voru svo
samviskusöm, áhugasöm, stundvís og
brilljant í alla staði.“
Senur voru teknar upp á ýmsum
stöðum í og við Borgarnes, bæði ut-
andyra sem og inni, m.a. í Land-
námssetri Íslands, Borgarneskirkju
og félagsmiðstöðinni Óðali. Þær segj-
ast hafa verið lánsamar með hvað
fólk í sveitarfélaginu hefur verið já-
kvætt fyrir verkefninu.
Býður upp á meiri nánd
Söngleikurinn heitir Grenitréð en
þær vita ekki hver er höfundur.
„Sagan hefst á því að dularfull sögu-
kona býður okkur velkomin í skóginn
og kallar til sín allskyns kynjaverur.
Hún opnar svo þykka sögubók og fer
að segja sögu af litlu grenitré sem á
sér þann draum heitastan að fá að
verða jólatré í stofu. Á vegi þess
verða allskyns persónur en sagan
gerist í raun í tveimur heimum, heimi
sögukonunnar og kynjaveranna ann-
arsvegar og heimi trésins hins vegar.
Heimarnir byrja svo smátt og smátt
að skarast, draumur verður að veru-
leika og veruleiki að draumi. Spenn-
an er svo hvernig þetta endar allt
saman fyrir grenitréð. Er virkilega
eftirsóknarvert að vera höggvið nið-
ur, skreytt ein jól og enda sem eldi-
viður eða er fýsilegra að fá að vaxa og
dafna í skóginum um ókomin ár?
Sagan um grenitréð barst skólanum í
hendur fyrir mörgum árum. Við
ákváðum að setja saman leiktexta úr
sögunni, bæta inn lögum sem okkur
þótti passa sögunni svo úr yrði jóla-
söngleikur,“ segir Theodóra.
Tónlistin í verkinu er eftir ýmsa
lagahöfunda og samdi Birna Þor-
steinsdóttir, sem sér um allan hljóð-
færaleik, m.a. tvö lög í söngleiknum.
Um leikrænar áherslur segir Sigríð-
ur að myndmiðillinn bjóði upp á mun
meiri nánd og að hægt sé að vinna
öðruvísi með taktinn.
„Við upptökur er hægt að taka
meiri tíma í hverja senu og taka hana
upp aftur og aftur og leikararnir fá
alltaf að halda áfram að prófa sig
áfram með eitthvað nýtt.“
Þarf að vera tilbúin fyrir jól
Sigríður Ásta hefur lagt mikla
vinnu í þetta, bæði í undirbúning,
tökur og alla eftirvinnu. „Ég sæki
innblástur aftur í tímann, eins og í
Chaplin-myndirnar, gamlar skandin-
avískar leiknar barnamyndir eins og
myndirnar um Emil í Kattholti og
Línu Langsokk. Rytminn í þessum
myndum er svo skemmtilegur. Eins
vildi ég halda aðeins í sviðstilfinningu
verksins með ýktum búningum, and-
litsmálningu og með því að láta sum-
ar persónur tala beint í myndavélina,
og brjóta þannig „fjórða vegginn“
eins og oft er sagt þegar persónur
tala beint til áhorfenda.“
Þar sem kvikmyndin var ákveðin
með stuttum fyrirvara þurfti að taka
ákvarðanir með hraði og skipuleggja
tökur vel. Jólamynd þarf auðvitað að
vera tilbúin fyrir jól. Myndin í heild
sinni verður ekki sýnd á opinberum
vettvangi. Áhugasamir geta haft
samband við tónlistarskólann á net-
fangið tonlistarskoli@borgar-
byggd.is eða í síma 433 7190.
Eftir áramótin stefnir söngleikja-
deildin á að vinna með Mjallhvíti og
dvergana sjö.
Grenitréð verður að kvikmynd
Nemendur Tónlistarskóla Borgarfjarðar ætluðu að setja upp söngleik Létu faraldurinn ekki
stöðva sig og breyttu uppfærslu á söngleik í kvikmynd Jólamynd sem þarf að klára fyrir jólin
Ljósmynd/Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
Jólamyndin Leikkonur uppáklæddar sem tröll, Eyja Dröfn Svölu- og Pét-
ursdóttir, Bergdís Ingunn Einarsdóttir og Heiðrún Inga Jóngeirsdóttir.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Tónlistarmæðgur Sigríður Ásta og Theodóra Þorsteinsdóttir, skólastjóri
Tónlistarskóla Borgarfjarðar, hafa ásamt fleirum unnið að kvikmyndinni.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Klippari Sigríður Ásta Olgeirsdóttir vinnur hörðum höndum að því að
klippa myndina, áður en hún verður tilbúin til sýninga fyrir jólin.
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020
JÓLASÝNING
K
arólína
Lárusd
óttir
Fjölbreytt úrval listaverka eftir listamenn Gallerís Foldar
Jólaopnunartími
Föstudagur kl. 10 - 20, laugardagur kl. 11 - 17
Sunnudagur kl. 12 – 16