Morgunblaðið - 17.12.2020, Side 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020
Þú finnur fallegar og
vandaðar jólagjafir
hjá Eirvík
Hvort sem þú leitar að fallega hönnuðum smátækjum í
eldhúsið, sterkbyggðri matvinnsluvél sem er afkastamikill
hjálparkokkur við eldamennskuna, endingargóðri ryksugu
gæddri nýjustu tækninýjungum eða glæsilegri kaffivél sem
hellir upp á nýmalað og dásamlegt kaffi, þá erum við með
frábæra valkosti fyrir þig. Vöruúrval Eirvíkur er afar fjölbreytt
og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Hvar eru lög um menning-
arminjar?“ spyr Minjastofnun á
heimasíðu sinni, en stofnunin gerir
athugasemdir er varða frumvarp um
fyrirhugaðan Hálendisþjóðgarð.
Segir þar að horft sé fram hjá lögum
um menningarminjar og ekki vísað
til þeirra í frumvarpinu á sama hátt
og vísað sé til laga um náttúruvernd.
„Vegna áforma um stofnun Há-
lendisþjóðgarðs er vert að benda á
að innan þess svæðis sem þjóðgarð-
urinn nær yfir er fjöldi friðaðra og
friðlýstra fornleifa sem heyra undir
stjórnsýslu Minjastofnunar Íslands.
Þrátt fyrir það var ekkert rætt við
Minjastofnun um undirbúning að
stofnun þjóðgarðsins né stofnunin
höfð með í gerð frumvarps. Ekki
hefur enn verið tekið tillit til um-
sagna Minjastofnunar sem varða
stjórnun menningarminja á svæð-
inu,“ segir á heimasíðunni.
Með lögum um menningarminjar
hafi málaflokkurinn verið lagður til
Minjastofnunar Íslands sem hefur
m.a. það hlutverk að vernda og við-
halda jarðföstum menningarminj-
um, ákvarða um aðgengi á minja-
stöðum og veita leyfi vegna fram-
kvæmda sem geta haft áhrif á þá.
„Með lagafrumvarpinu er sköpuð
óvissa um túlkun laga og fram-
kvæmd þeirra og þar með stjórn-
sýslulegt hlutverk Minjastofnunar
innan þjóðgarða. Orðalag þarf að
vera skýrt svo ekki skapist vafi um
ákvarðanir er varða menningar-
minjar. Nauðsynlegt er að eyða
þeirri óvissu með því að taka það
fram í frumvarpinu að lög um menn-
ingarminjar gildi um menningar-
minjar sem eru innan fyrirhugaðs
Hálendisþjóðgarðs,“ segir Minja-
stofnun.
Goðaland í umsjá
Skógræktarinnar í 100 ár
Skógræktin leggur áherslu á að
samráð verði haft við stofnunina um
málefni Þórsmerkur og Goðalands,
að því er fram kemur í umögn um
frumvarp um hálendisþjóðgarð.
Ekkert liggi fyrir um hver aðkoma
Skógræktarinnar verði að málefnum
Þórsmerkur og Goðalands eftir
stofnun þjóðgarðsins eða hvort hún
verði nokkur.
Í umsögn Skógræktarinnar kem-
ur fram að miðað við lýsingu á mörk-
um þjóðgarðsins lendi Þórsmörk og
Goðaland innan hans. Þórsmörk hef-
ur verið í umsjá Skógræktarinnar
samkvæmt samningi í 100 ár og
Goðaland síðan árið 1927.
„Meðal efnis samninganna er að
svæðin skuli vera friðuð fyrir beit og
er það afstaða Skógræktarinnar að
svo skuli vera áfram, en það brýtur
reyndar í bága við almennt ákvæði í
22. gr. frumvarpsins um að búfjár-
beit sé heimil innan þjóðgarðsins. Þá
hefur Skógræktin gert samninga við
ferðafélög sem byggt hafa upp að-
stöðu á svæðinu og hefð er fyrir að
séu þar,“ segir í umsögninni.
Tekið er fram að Skógræktin geri
ekki efnislegar athugasemdir við
texta frumvarpsins.
Minjastofnun
minnir á sig
Athugaemdir vegna hálendisþjóðgarðs
Goðaland og Þórsmörk innan hans
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Langidalur skógi vaxinn Eftirlit og uppbygging á Þórsmerkursvæðinu hef-
ur verið í samvinnu Skógræktarinnar, ferðafélaga og fleiri aðila.
Stefnt er að því að Icelandair hefji
flug til Vestmannaeyja í næstu viku.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðu-
neytið mun semja við fyrirtækið um
lágmarksflug milli Reykjavíkur og
Eyja til 1. maí á næsta ári, segir í
frétt frá ráðuneytinu. Farnar verða
tvær ferðir í viku, fram og til baka.
Áætlunarflug á markaðslegum
forsendum milli Reykjavíkur og
Vestmannaeyja lagðist af í sept-
ember vegna minni eftirspurnar sem
rekja mátti til kórónufaraldursins,
segir í fréttinni. Gerð var verðkönn-
un hjá þremur flugrekendum, en það
voru Flugfélagið Ernir, Icelandair
og Norlandair. Öll félögin bjóða þeg-
ar upp á áætlunarflug og nota bók-
unarkerfi með tengingu við Loftbrú,
sem veitir íbúum landsbyggðarinnar
40% afslátt á flugfargjöldum. Allar
tekjur Icelandair af miðasölu og
fraktflutningum á flugleiðinni munu
lækka greiðslur vegna samningsins.
„Það er afar þýðingarmikið að
tryggja lágmarksþjónustu á þessari
flugleið á meðan ekki eru markaðs-
legar forsendur í flugi. Við vonum að
með vorinu taki ferðaþjónusta við
sér að nýju og aftur verði hægt að
fljúga með reglubundnum hætti til
Eyja,“ er haft eftir Sigurði Inga Jó-
hannssyni, samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra.
Flogið á
ný til Eyja
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Eyjar Flogið verður tvisvar í viku.