Morgunblaðið - 17.12.2020, Síða 40

Morgunblaðið - 17.12.2020, Síða 40
40 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020 Þótt bókstafstrúargyðingar láti yfir- leitt bólusetja sig er óvíst að þeir muni taka þátt í yfirvofandi bólu- setningunni gegn kórónuveirunni. Að sögn blaðsins Jerusalem Post er samþykkis heilbrigðisráðuneytisins fyrir notkun Pfizer-bóluefnisins senn að vænta, en að sögn blaðsins hefur stór hluti svonefndra ofur- bókstafstrúarmanna skirrst við að fara að leiðbeiningum yfirvalda um varnir gegn kórónuveirunni. Bókstafstrúarmenn bíða yfirleitt samþykkis rabbína áður en þeir temja sér nýja siði. Það sem af er hefur enginn rabbíni látið neitt frá sér fara um bóluefni Pfizer. Jerusalem Post spurði nána sam- starfsmenn rabbínanna Chaim Kan- ievsky og Gershon Edelstein, tveggja æðstu rabbína samfélagsins Ashkenazi, hvort þeir hefðu sam- þykkt bóluefnið. Hvorugur þeirra hafði látið sig málið varða til þessa. Betzalel Cohen hjá fræðastofnun gyðinga telur samþykki fyrir bólu- efninu ekki gefið. Hann sagði við- brögð helstu rabbína ofurbókstafs- trúaðra fara eftir kalli fólksins. Léti stór hluti samfélags þeirra bólusetja sig án þess að bíða fyrirmæla brygð- ust rabbínarnir ólíklega við. Óvíst hvernig gyðingar sem fylgja bókstafstrú muni taka í bólusetningar Beðið eftir samþykki rabbína AFP Ljósahátíðin Gyðingar mæta á árlegu ljósahátíðina, öðru nafni Hanukkah, í Washington, sem haldin er til minningar um endurvígslu musterisins í Jerúsal- em eftir sigur Júdasar Makkabeusar á Sýrlendingum árið 165 eftir Krist. Hófst hátíðin að þessu sinni þann 10. desember og lýkur henni á föstudaginn. Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Evrópusambandið (ESB) hefur birt drög að ströngum reglum sem beint er gegn netrisum á borð við Google, Amazon og Facebook. Ráðamenn í Brussel sjá í þeim ógn, ekki bara við samkeppni heldur og einnig við sjálft lýð- ræðið. Tímamótatillögurnar gætu hrist upp í því hvernig netrisar stunda viðskipti á netinu með því að beina spjótum ofurskattlagningar að höfðum þeirra og jafnvel bannfæra þau af Evrópumarkaðinum. Á sama tíma og þetta gerist sæta tæknifyrirtæki í Kísildal í Kali- forníu vaxandi og harðnandi alþjóðlegri eft- irliti. Eigi að koma reglu á markaðinn Yfirmaður samkeppnismála hjá ESB, Margrethe Vestager, segir að frumvörpin hafi það að markmiði að koma böndum á netrisana; koma reglu á rugling markaðarins sem „hliðverðir“ hans drottna á. „„Lögin um stafræna þjónustu“ og „lögin um stafræna markaðinn“ eiga að tryggja trú- verðuga þjónustu og vernda tjáningarfrelsið um leið,“ sagði Vestager á blaðamannafundi. ESB segir að með lögunum langþráðu horfist markaðsferlíkin í augu við sektir allt að 10% veltunnar fyrir að brjóta samkeppnisreglur og jafnvel að verða leyst upp. Í þeim er einn- ig lagt til að netrisarnir ofurstóru verði sekt- aðir um 6% veltunnar eða vísað tímabundið af markaðinum fyrir „alvarleg og ítrekuð laga- brot sem ógni öryggi Evrópubúa“. Lögin kveða á um ströng skilyrði fyrir að fá aðgang að hinum sameiginlega markaði ríkjanna 27 sem mynda ESB, enda freista yf- irvöld þess að koma beisliskeðjum á villandi upplýsingagjöf og haturspósta auk þess að draga úr drottnun risastóru tæknifyrirtækj- anna. Heimildarmaður tengdur innsta hring framkvæmdastjórnar ESB sagði að fyrir- tækin gætu fengið á sig stimpilinn „hliðverð- ir“ markaðarins undir samkeppnisreglunum og þar með virkjuðust sértæk lög sem tak- marka myndu styrk þeirra til markaðsdrottn- unar. Spjótum beint að netrisum Fyrirtæki sem undir ströngu sértæku lögin féllu væru bandarísku risarnir Facebook, Go- ogle, Amazon, Apple, Microsoft og SnapChat, kínversku risarnir Alibaba og Bytedance, Samsung hinn suðurkóreski og hollenska fyrirtækið Booking.com. Leitarvélin Google sagðist myndu grann- skoða lögin en kvartaði undan því að sér virtist sem þeim væri sér í lagi beint gegn „hnefafylli af tilteknum“ fyr- irtækjum. Það á fyrir lagafrumvörpunum að liggja að þurfa fara gegnum langt og flókið staðfest- ingarferli, þar á meðal þurfa þjóðþing ESB- landanna 27 að staðfesta þau og einnig Evr- ópuþingið. Þá þykir sýnt að fyrirtæki og hagsmunasamtök og þrýstihópar leggi í her- ferð í staðfestingarferlinu í þeim tilgangi að reyna hafa áhrif á lögin í endanlegri mynd. Knýja fyrirtækin til gagnsæi Lögunum um stafræna þjónustu er hampað sem tóli er veitir framkvæmdastjórn ESB stærri og beittari vígtennur en áður til að kljást við fyrirtæki er hleypa ólöglegu efni inn á netið, svo sem öfgafullum áróðri, hat- ursræðu, villandi upplýsingum og barnaníði. Í lögunum um stafræna markaðinn er þess freistað að leggja sambandinu til ný vopn til að framfylgja samkeppnislögunum hraðar og til að knýja fyrirtækin til gagnsæi í algríms- notkun sinni og notkun persónuupplýsinga. Þar er verið að uppfæra lög frá 2004 en þá voru margir netrisanna ekki enn orðnir til eða í bernsku. Talsmaður Facebook sagði ákvæðin í frum- varpinu í rétta átt þegar um væri að ræða að vernda það góða við internetið. Kvað hann fyrirtækið tilbúið að eiga í skoðanaskiptum um lögin við þingmenn ESB. Þingmaðurinn David Cormand, sem situr í nefnd um innri markað ESB, sagði frumvörpin skref í rétta átt. Þó væri sá galli á þeim að þar skorti all- an metnað til að ná yfirráðum stafrænni þjónustu sambandslandanna 27. Vilja beisliskeðjur á netrisana  ESB fær stærri og beittari vígtennur en áður til að kljást við fyrirtæki er hleypa ólöglegu efni inn á netið  Háar sektir fyrir að brjóta gegn samkeppnisreglum  Langt staðfestingarferli fram undan AFP Berlaymont Málefni netrisa eru nú til um- ræðu í höfuðstöðvum ESB í Brussel. Erupters III Verð: 8.995.- Stærðir 27- 35 Vortex Flash Verð: 7.995.- /St.27- 35 Solar Fuse Verð: 9.995.- Stærðir 27- 35 Mjúkir skór i harða pakka Arch Fit Verð: 14.995.- Stærðir 41- 47,5 Breath Easy Verð: 14.995.- Stærðir 36 - 41 SKECHERS SMÁRALIND - KRINGLAN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.