Morgunblaðið - 17.12.2020, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 17.12.2020, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020 tímabili hefur snjóhula nær allan tímann verið metin kl. 9 að morgni. Vor og haust verður stundum alhvítt um stund yfir blánóttina – við miss- um af slíku, segir Trausti. Dagurinn telst verða alhvítur ef tún Veðurstof- unnar við Bústaðaveg er alhvítt. Snjódýptin hefur lengst af verið mæld líka kl. 9, en á fyrri árum var það þó ekki alltaf regla. Að sjálfsögðu er það svo að at- hugunar- og mæliraðir þessara veð- urþátta geta engan veginn talist gallalausar, segir Trausti. Mismunandi reglur um mat „Gallarnir eru af ýmsu tagi, mælingarnar hafa verið fram- kvæmdar á mismunandi stöðum í bænum, við mismunandi mengunar- og traðkskilyrði auk þess sem reglur um mat á snjóhulu hafa ekki verið nákvæmlega þær sömu allan tímann – og eru þar að auki nægilega óljósar til þess að athugunarmenn eru ekki alveg samstiga í matinu.“ Sá dagur ársins sem er lík- legastur til að vera alhvítur í Reykjavík er 18. janúar (55 prósent líkur), hann er síst lík- legur til að vera alveg auður (ásamt 6. janúar og 27. desem- ber), segir Trausti. Alhvít jörð var 23 daga á Akureyri í desember í fyrra, þremur fleiri en í meðalári. Það sem af er desember nú hafa alhvítir dagar á Akureyri verið sex. Einn alhvítur dagur í höfuðborginni í vetur Hlýtt hefur verið síðustu daga og er meðalhiti fyrstu 15 daga desember 2,6 stig í Reykjavík. Er þetta +1,6 stigum ofan með- allags fyrri hluta desember 1991 til 2020, en +2,4 stigum ofan meðallags síðustu 10 ára og í 5. hlýjasta sæti (af 20) á öldinni, langt þó neðan við þau hlýjustu. Þetta kemur fram á Mogga- bloggi Trausta Jónssonar, Hungurdiskum. Hlýjast var árið 2016, meðal- hiti þá 6,2 stig, en kaldastir voru dagarnir 15 árið 2011, meðalhiti þá -3,4 stig. Á langa listanum er hiti nú í 20. sæti (af 145 mæl- ingum). Hlýjast var 2016, en kaldast 1893, meðal- hiti þá -5,9 stig. Á Akureyri stendur meðalhiti nú í -0,3 stigum. Er það í með- allagi áranna 1991 til 2020, en +1,2 stigum ofan meðallags síð- ustu tíu ára. Hlýr desem- bermánuður HLÝINDIN Á LANDINU Trausti Jónsson Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Auð jörð Aðstæður til útivistar hafa verið einstaklega góðar í vetur og hefur fólk nýtt sér þær vel á Covid-tímum. BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Afar snjólétt hefur verið íReykjavík það sem af ervetri. Aðeins hefur komiðeinn dagur þar sem jörð hefur verið alhvít. Það var 27. nóv- ember. Það sem af er desember hef- ur enginn alhvítur dagur komið og í veðurkortunum fyrir allra næstu daga er ekki að sjá snjókomu í höfuðborginni. „Reykvíkingar hafa sloppið fremur vel í vetur en þetta er samt ekki sérlega óvenjulegt enn, ára- skipti eru töluverð,“ segir Trausti Jónsson veðurfræðingur. Meðalfjöldi alhvítra daga í Reykjavík í nóvember er 7 og 13 í desember svo staðan í ár er að mörgu leyti óvenjuleg. Aftur á móti var t.d. aðeins einn alhvítur dagur í nóvember í fyrra (sá 18.) og sömu- leiðis einn líka 2018 – aftur á móti 17 árið 2017, bendir Trausti á. Það fór að snjóa 4. desember í fyrra og urðu alhvítu dagarnir í desember þá 21. „Snjóleysi nú fer fyrst að verða óvenjulegt ef enginn alhvítur dagur kemur í desember, það gerðist síðast árið 2002,“ segir Trausti. Á næsta ári, 2021, verða 100 ár frá því að snjóhula var fyrst metin og snjódýpt mæld við Veðurstofuna, segir Trausti í pistli sem hann birti á Moggablogginu 2019. Á þessu langa Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Veitur sendufrá sér ákalltil notenda heitavatns í upphafi mánaðar og fóru þess á leit að þeir færu sparlega með vatnið vegna þess að yfirvofandi væri kuldakast. Vegagerðin hefði ef til vill betur sent frá sér tilkynningu til að vara við blæðingum í slitlagi leiðinni milli Borgarness og Ak- ureyrar sem urðu til þess að margir urðu fyrir verulegu tjóni. Veitur og Vegagerðin eru lykilstofnanir. Þær eru með skýrt, vel skilgreint og afmark- að hlutverk og það er mikilvægt að þær skili því með sóma. Ekkert bar út af hjá Veitum vegna kuldakastsins. Það gæti verið vegna þess að almenningur fór sparlega með vatnið, en ekki hefur síður skipt máli að ekki varð jafn kalt og spáð hafði verið. Þessi tilkynning varð hins vegar til þess að margir fóru að velta því fyrir sér hvort eitthvað væri að hjá Veitum. Það er í verkahring fyrirtækisins að sjá borgarbúum fyrir heitu vatni. Það ætti ekki að koma á óvart að kólni í veðri og gæti orðið kalt í nokkra daga. Það ætti því ekki að teljast mikil tilætlunar- semi að gera ráð fyrir að Veitur séu undir slíkt búnar. Í frétt um helgina kom fram að spurn eftir heitu vatni hefði farið vaxandi og við það hefði vatnsborð á jarðhitasvæðum farið lækkandi. Slík þróun á ekki að koma aftan að hitaveitu. Innan fyrirtækisins er enginn skortur á þekkingu og því vakn- ar sú spurning hvað valdi því að þegar spáð er köldu veðri þurfi það að senda út slíkt ákall til viðskiptavina sinna. Sú spurning vaknar hvort lykilástæða fyrir því sé sú að slíkt kapp sé á að ná peningum út úr fyrirtækinu vegna bágrar fjár- hagstöðu Reykjavíkur að Veitur hafi ekki nægilegt fé til nauð- synlegra rannsókna og þróunar. Bikblæðingarnar á hringveg- inum eru óforsvaranlegar. Myndir af því hvernig bikið hleðst upp á hjólbörðum og eyðileggur út frá sér eru með ólíkindum. Þetta ástand á veg- unum hefur verið rakið til hita- sveiflu. Hitasveiflur eru ekki nýlunda á Íslandi og reyndar þekktar út um allan heim, jafnt í heitum löndum sem köldum þar sem þær eru iðulega öfga- kenndari en hér. Þekking og kunnátta á því hvernig eigi að leggja vegi við aðstæður eins og á Íslandi hlýtur að liggja fyrir. Ef vafi er á því að efnin, sem notuð eru, þoli aðstæður hér á landi er rétt að vara við. Þá er líka rétt að leggja allt kapp á að finna þá blöndu eða samsetn- ingu sem þolir íslenskar að- stæður sem fyrst. Vegir geta vissulega lokast vegna snjóa og óveðurs, en ekki er gott að hætta sé á að hringvegurinn lokist vegna þess að hann þoli ekki að hlýni í veðri. Okkur finnst sjálfsagt að heitt vatn buni úr krönum og vegir séu greiðfærir og góðir. Heitt vatn og góðir vegir teljast til grunnþjónustu og krafan er sú að hún skili sér hnökralaust. Til að hún bregðist þarf mikið að ganga á, eitthvað meira en hitasveiflur, sem vart eru óeðli- legar. Er eðlilegt að heitt vatn sé í voða þegar kólnar og vegir verði viðsjárverðir þegar hlýnar? } Gallar á grunnþjónustu Nicola Stur-geonheima- stjórnarráðherra Skotlands telur sig vaskan baráttu- mann viðskilnaðar við Bretland. En það er þó bersýnilega ekki fullveldið sem knýr hana áfram því hún vill með hraði undir pilsfaldinn í Brussel! Hún vill ganga í ESB en jafn- framt fá að halda breska pundinu sem Englandsbanki mun halda utan um eins og hann hefur gert um aldir. En slík innganga er ekki heimil í samþykktum sambandsins. Ekki eru miklir kærleikar milli Johnson forsætisráð- herra og Sturgeon. Í stemn- ingu jólaaðventu var Boris spurður hvað hann gæti hugs- að sér að gefa Sturgeon í jóla- gjöf. Boris svaraði að bragði að svo vildi til að hann væri með Brexit að gefa henni og Skotum hundruð þúsunda tonna af fiski um áramótin og árlega eftir það. Hann vissi ekki hvort Sturgeon væri áköf fiskæta en þótt hún væri það, þá fengi hún meira í sinn hlut en hún myndi nokkru sinni torga. Með brottför úr ESB yrði Bretland sjálfstætt full- valda strandríki á ný og fengi því aftur ráðið hverjir veiði í breskri lögsögu og hversu mikið þeir mættu veiða. Stutt er síðan flokkslegir sérvitringar klufu sig úr Sjálf- stæðisflokki til að berjast fyrir því að koma slíkum rétti af Ís- lendingum og til annarra. Að hugsa sér. Þær eru ekki ónýtar jólagjafirnar sem breska þjóðin hafði kjark til að gefa sjálfri sér} Stórbrotin jólagjöf H eimsfaraldur Covid-19 hefur geisað hérlendis í um það bil tíu mánuði. Í fyrsta sinn í sögunni höfum við þurft að grípa til víð- tækra sóttvarnaráðstafana til að hamla útbreiðslu veiru sem veldur lífshættu- legum sjúkdómi. Sóttvarnaaðgerðir hafa haft miklar afleiðingar á samfélagið og það er áskor- un fyrir okkur öll að takmarka útbreiðslu veir- unnar en á sama tíma lágmarka þann sam- félagslega skaða sem sóttvarnaaðgerðir geta valdið. Í lok október hertum við sóttvarnaráðstaf- anir vegna uppgangs Covid-19 í samfélaginu. Það var erfitt en nauðsynlegt skref. Aðgerð- irnar sem gripið var til báru árangur og sam- félagssmitum fækkaði. Nú greinast sem betur fer ekki mörg smit daglega hérlendis og flest þeirra sem greinast eru í sóttkví. Okkur gengur vel í baráttunni við Covid-19 eins og stendur en til þess að viðhalda þeim ár- angri sem náðst hefur þurfum að halda áfram að fara var- lega. Forsenda þess hversu vel okkur hefur gengið hérlendis að stemma stigu við útbreiðslu veirunnar er einmitt sú að við höfum farið varlega. Almenningur hefur fylgt reglum um sóttvarnir vel, sýnt ábyrgð og mikla og góða samstöðu í þessum erfiðu aðstæðum. Það er nefnilega gott að muna að við erum gæfusöm, og það er almenningi í landinu að þakka. Samanborið við önnur Evrópulönd er staðan hérlendis mjög góð. Samkvæmt gögnum Sóttvarnastofn- unar Evrópu frá 14. desember um nýgengi smita síðustu 14 daga á hverja 100.000 íbúa er næstlægsta nýgengið á Íslandi, en aðeins í Liechtenstein eru færri smit á þeim mæli- kvarða. Nýgengið er því miður mun hærra hjá mörgum nágrannalöndum okkar og fréttir ber- ast af gildistöku strangra sóttvarnaáðstafana víða í Evrópu um þessar mundir. Margir Evr- ópubúar sjá fram á jólaundirbúning og jól undir sérstökum kringumstæðum, þar sem lokanir á atvinnustarfsemi og ýmiss konar þjónustu eru miklar og víðtækar. Ég vona sannarlega að vel gangi að ná tökum á útbreiðslu faraldursins í öðrum löndum og hugsa hlýtt til þeirra sem bú- settir eru í löndum þar sem útbreiðsla veir- unnar er mikil. Líða fer að jólum. Vegna gildandi samkomutakmarkana verða jólin í ár öðruvísi en við erum vön, en við getum samt notið hátíðanna í hópi okkar nánustu. Við þurfum að halda áfram að gera okkar allra besta. Hvert og eitt þarf að huga áfram að einstaklingsbundnum sóttvörnum, passa upp á viðkvæma hópa og halda hittingum í lágmarki. Al- mannavarnir hafa gefið út leiðbeiningar um jólahald sem nálgast má á vefsíðunni www.covid.is sem ég hvet alla til að kynna sér og fylgja. Von mín er að við fáum öll notið gleðilegra jóla og áramóta og að við njótum hátíðanna á ábyrgan hátt. Við getum það, saman. Gleðileg jól! Svandís Svavarsdóttir Pistill Gleðileg og ábyrg jól Höfundur er heilbrigðisráðherra STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.