Morgunblaðið - 17.12.2020, Síða 50

Morgunblaðið - 17.12.2020, Síða 50
50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020 ✝ Guðrún Helga-dóttir fæddist í Kollsvík í Rauða- sandshreppi 10. október 1919. Hún lést á Hrafnistu Reykjavík 6. des- ember 2020. Foreldrar Guð- rúnar voru Ás- björn Helgi Árna- son, f. 13. apríl 1889, d. 1965, og Sigrún Össurardóttir, f. 6. maí 1898, d. 1977. Guðrún var elst af sex systkinum, hin voru: Árni, f. 1922, d. 2011, Anna Marta, f. 1924, d. 2012, Ólafur Helgi, f. 1925, d. 1986, Hall- dóra, f. 1930, d. 2019, og Krist- rún Björt, f. 1939, d. 2019. Guðrún giftist 31. desember 1948 Helga Guðmundssyni skipstjóra frá Patreksfirði, f. 1. júlí 1912, d. 13. ágúst 1985. Foreldrar hans voru Guð- mundur Ólafur Þórðarson, f. 18. september 1876, d. 14. nóv- ember 1946, og Anna Helga- dóttir, f. 9. maí 1885, d. 18. ágúst 1929. Guðrún og Helgi eignuðust fimm börn en áður átti Guðrún eina dóttur með unnusta sínum Guðmundi Elentínusi Guðmundssyni, f. var Guðrúnu snemma falið að passa yngri systkini og sinna ýmsum störfum. Á fyrri hluta síðustu aldar var ekki boðið upp á skólagöngu í Kollsvík ut- an farkennslu og heimalesturs. Guðrún náði snemma tökum á handavinnu og lærði kjóla- saum á saumastofu Kötu og Dísu við Amtmannsstíg í Reykjavík. Áður var Guðrún í húsmæðraskólanum á Laug- arvatni. Guðrún og Helgi hófu bú- skap á Patreksfirði en fluttu til Reykjavíkur 1951 og bjuggu þar upp frá því, lengst af í Ljósheimum 8 sem þau byggðu í samvinnu við aðra íbúa. 2006 flutti Guðrún að Brúnavegi 9, en síðustu mánuðina dvaldi hún á Hrafnistu Laugarási. Meðfram uppeldi barnahóps- ins og heimilisstörfum stund- aði Guðrún ýmis störf, að- allega tengd saumaskap, bæði innan og utan heimilis. Guðrún tók einnig virkan þátt í fé- lagsstörfum, aðallega í Lang- holtssókn og hjá átthagafélagi Barðstrendinga. Útförin verður í Langholts- kirkju í dag, 17. desember 2020, klukkan 15. Að ósk hinn- ar látnu verða einungis nán- ustu aðstandendur viðstaddir. Streymi verður frá útförinni á slóðinni: https://youtu.be/ B2sRNeDWa0c/. Virkan hlekk á streymið má nálgast á: https://www.mbl.is/ andlat/. 16. mars 1916, d. 2. nóvember 1938. Dóttir þeirra er Elín Guðmunda, f. 1939, maki Bjarni Benedikt Ásgeirs- son, f. 1937, d. 2009. Börn Guðrúnar og Helga eru: Anna f. 1947, maki Egon Th. Marcher, f. 1945; Sigrún Sjöfn, f. 1948, maki Helgi Sig- urður Guðmundsson, f. 1948, d. 2013, í sambúð með Óla M. Lúðvíkssyni, f. 1943; Hafdís, f. 1949, maki Björgvin Andersen, f. 1959; Kjartan Hrafn, f. 1957, maki Ástríður Ólöf Gunn- arsdóttir, f. 1956; Helgi, f. 1959, maki María Bald- ursdóttir, f. 1956. Barnabörnin eru 21, lang- ömmubörnin 55 og langalang- ömmubörnin 16. Guðrún ólst upp í Kollsvík í faðmi fjölskyldunnar, fyrstu tvö árin bjuggu þau hjá móð- urforeldrum á Láganúpi, en fluttust þá í Tröðina. Móar, klettabelti, tún og hvít fjaran fyrir opnu hafi voru leiksviðið. Sjóróðrar og bústörf voru lífs- viðurværið og sem elstu systur Jæja ertu þá loksins komin Gunna mín. Ég hef verið að dytta að bátnum, við þurfum að fara hérna yfir fljótið. Seglin koma reyndar ekki að miklum notum, það er alltaf logn hérna. Einhvern veginn svona var sviðsmyndin sem kom upp í hug- ann þegar ég sat hjá mömmu síð- ustu nóttina hennar. Já það urðu rúm 35 ár á milli hjá mömmu og pabba. Reyndar hafa margir spáð að mamma mundi ná háum aldri. Og með heilsusamlegu líf- erni og sérstaklega jákvæðu hug- arfari náði hún að njóta áranna. Að lifa síðustu öld frá einangraðri Kollsvíkinni án rennandi krana- vatns eða rafmagns en upplifa líka allsnægtir á erlendri grund eru mikil viðbrigði. En einhvern veginn tók mamma öllu með jafn- aðargeði og jákvæðni að leiðar- ljósi. Á bernskuárum mínum var mamma eins og alltaf til staðar með hlýju og nægan tíma. Leið- beinandi með fasi sínu og fáum orðum sem sögðu þó allt sem þurfti. Ég minnist þess ekki að boð og bönn hafi verið mikið not- uð í uppeldinu. Í Vogunum var alltaf nóg að stússa, húsmæðurn- ar höfðu auga með krakkahópn- um sem gekk frekar sjálfala. Það var yndislegt en ekki sjálf- gefið að þú náðir að fylgjast með börnunum okkar vaxa úr grasi og afastelpan fékk líka að kynnast langömmu fyrstu árin sín. Þær minningar eru ómetanlegar. Og ekki má gleyma Nökkva, þið náðuð sérstökum tengslum og alltaf sat hann við stólinn og beið eftir harðfiskroðinu. Þrír bitar, það var skammturinn. Við kveðjum þig með söknuði mamma og tengdamamma. Þótt móðir mín sé nú aðeins minningin ein mun ég ávallt minnast hennar með glöðu geði og dýpstu virðingu, hugheilu þakklæti og hjartans hlýju, fyrir allt og allt. (Sigurbjörn Þorkelsson) Kjartan og Ásta. Í 72 ár hefur hún mamma mín verið til staðar fyrir mig en nú er hún búin að kveðja þessa jarðvist hundrað og eins árs að aldri. Mikill söknuður helltist yfir mig þegar þessi klettur sem hún mamma var var horfinn. Mamma virkaði sem eins kon- ar fjölskyldulím hjá okkur systk- inum og barnabörnum því hjá henni hitti maður alltaf eitthvert systkina sinna, tengdasystkina eða aðra afkomendur hennar og ættingja. Það var alltaf gestkvæmt hjá henni í Ljósheimunum og ekki síður á Brúnaveginum. Síðar fannst mér alltaf eitt- hvað vanta ef ég heyrði ekki í henni daglega og sérstaklega eft- ir að hún fór að eldast. Þegar ég bjó í foreldrahúsum og pabbi var mikið að heiman til sjós var fótfestan í lífinu sú að hún mamma væri alltaf til staðar og man ég alltaf að ef hún þurfti að bregða sér í bæinn eða eitt- hvað annað þegar ferðamátinn var oftast með strætisvagninum þá sat ég oft langtímum saman við gluggann heima, þar sem sjá mátti út á stoppistöð, og beið eftir að hún kæmi út úr vagninum og fyrst þá gat ég slappað af og farið að læra eða að leika mér, því þá var örygginu fullnægt. Mamma var eins og alfræði- orðabók, sérstaklega þegar kom að því sem löngu var liðið og gat maður flett upp í henni um menn og málefni liðinna tíma, að ég tali nú ekki um vísurnar og ljóðin sem hún gat þulið og sungið. Hún sagði stundum seinni árin að hún væri orðin svo gleymin en staðreyndin var sú að hún mundi oft atburði og hluti sem við systk- inin gátum alls ekki munað og þá var flett upp í mömmu. Elsku mamma mín, hjartans þakkir fyrir allt sem þú hefur verið mér gegnum árin, ég sakna þín mikið en er að sama skapi glöð yfir að þú skulir vera búin að fá hvíld frá þeim þrautum sem þú þurftir að líða síðustu mánuðina þína. Þakka þér fyrir þann andlega stuðning sem þú veittir mér þeg- ar ég missti hann Helga minn og einnig fyrir hversu vel þú tókst því þegar ég fann hann Óla minn, nýjan samferðamann og félaga, og sagðir að það hlyti að vera í lagi með hann því hann væri að vestan. Megi Drottinn leiða þig inn í ljósið elsku mamma mín. Hvíldu í friði. Þín dóttir, Sigrún Sjöfn. Elsku amma okkar er fallin frá eftir langt og farsælt líf. Amma var alger hetja sem lifði ótrúlega löngu, stundum erfiðu en ákaf- lega innihaldsríku lífi. Hún amma var ættmóðirin sem tók þátt í flestu sem okkar samrýmda fjöl- skylda hefur tekið sér fyrir hend- ur. Hún mætti í allar sameigin- legar veislur sem stórfjölskyldan hélt, allt frá jólaböllum í kringum hver einustu jól og hið geysi- skemmtilega árlega ættarmót sem haldið er á hverju sumri ein- hvers staðar í nágrenni Reykja- víkur. Þó með undantekningu á fimm ára fresti þegar stórfjöl- skyldan keyrir alla leið vestur í Kollsvík eða Breiðuvík þaðan sem amma er ættuð. Við gerðum það einmitt fyrir um ellefu árum þegar amma varð 90 ára. Þá hélt þessi magnaða kona upp á afmæl- ið sitt með miklum glæsibrag. Hún vakti meira að segja manna lengst. Á þessum árlegu ættar- mótum höfum við fjölskyldan kynnst ákaflega vel og er það svo dýrmætt. Amma var auðvitað sameiningartáknið í fjölskyld- unni þó allir hafi og muni hjálpast að við að halda í þessa hefð. Það var svo gaman að ræða við ömmu um líf hennar fyrir vestan og bara lífið almennt. Hún var svo minnug um alveg ótrúlegustu hluti. Alveg fram á síðustu vikur var amma alveg skýr í höfðinu. Hún mundi nöfn okkar allra sem er af- rek út af fyrir sig þar sem beinir afkomendur hennar eru hátt í hundrað og svo við tölum nú ekki um alla makana. Amma var heilsuhraust næstum fram á síð- asta dag og það er magnað þegar maður er orðinn 101. Mikið von- um við að við erfum góða heilsu ömmu. Vonum að þetta sé eitt- hvað í genunum. Megi minningin um magnaða konu lifa. Við systkinin sendum okkar allra hlýjustu samúðarkveðjur til mömmu Sjöbbu, Ellýjar, Önnu, Hafdísar, Kjartans, Helga og að sjálfsögðu allrar stórfjölskyld- unnar. Samúðarkveðjur frá Önnu Maríu, Evu og Guðmundi (Gumma). Þá er komið að kveðjustund elsku amma mín. Ég kveð þig með miklum söknuði en enn meira þakklæti. Þakklæti fyrir að hafa fengið það hlutverk að vera ömmustelpan þín. Þakklæti fyrir að hafa átt þig sem mína stærstu fyrirmynd og bestu vinkonu. Þakklæti fyrir allar góðu stund- irnar. Minningarnar um magnaða konu með ótrúlegt hugarfar og fallega sýn á lífið munu lifa áfram. Samband okkar ömmu var einstakt. Frá því að ég var lítil stelpa höfum við verið nánar. Ég sótti mikið til hennar sem barn. Tók strætó svo ég gæti eytt deg- inum í að spila við ömmu. Þegar ég varð eldri héldu spiladagarnir áfram og búðarferðir og kaffi- húsastundir bættust við. Hlýjar hendur hennar tóku alltaf vel á móti mér, sama hvað bjátaði á. Til hennar gat ég nefni- lega alltaf leitað. Hún hefur glaðst með mér á mínum stærstu stundum og haldið í höndina mína og leyft mér að gráta á mín- um erfiðustu augnablikum. Alltaf var hún til staðar. Ég er þakklát fyrir að við átt- um góðar stundir saman í sumar. Rakel Dögg kynntist langömmu sinni vel eftir tæplega árs dvöl í London. Þessar stundir skipta hana miklu máli. Hún talar mikið um þig, lyktar af töskunni þinni og segist sakna langömmu. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að vera hjá þér síðustu dagana. Gista hjá þér og halda í höndina á þér alla nóttina. Náð að tala við þig og kveðja þig. Takk fyrir allt, elsku amma mín. Sofðu rótt. Þín Herdís. Elsku amma mín. Þrátt fyrir að nú sé komið að kveðjustund og söknuður og sorg sé það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar ég skrifa þessi orð, þá er það fyrst og fremst gleði sem ég ætla að taka með mér inn í framtíðina. Gleði yfir því að hafa fengið að eiga þig fyrir ömmu, gleði yfir öll- um dásamlegu augnablikunum sem ég átti með þér. Ég man fyrst eftir þér í Ljós- heimunum, þegar ég var svona 5 ára, það að fara til ömmu ljósu var alltaf spennandi og gaman. En ég kynntist þér þó best þegar ég bjó í húsvarðaríbúðinni í Ljós- heimunum á námsárunum. Svo spiluðum við brids seinni partinn á virkum dögum 2-3 skipti í viku allan veturinn í eldhúsinu hjá ykkur afa, með Ástu Hrönn á gólfinu að leika sér með dót úr dótaskúffunni og borðuðum svo næstum alltaf kvöldmat með ykk- ur á eftir. Amma, þú átt svo mikla arf- leifð, þú varst mér og okkur öll- um afkomendum þínum svo mikil fyrirmynd, jákvæðasta mann- eskja sem ég hef kynnst á ævinni og svo uppfull af visku hvort sem það var um hvernig ég átti að ala upp börnin mín eða bara bera mig að í lífinu. Það var líka ein- staklega gaman að ganga með þér á Patró og heyra sögurnar af langafa og ömmu, eða sitja við Tröðina í Kollsvík og læra um hvernig hlutirnir gengu fyrir sig þar, eða þegar þú last upp úr „Púkunum frá Patró“ á Úlfljóts- vatni í einni af Hrugan-útilegu- num, útilegum fjölskyldunnar, sem vinir mínir skilja ekki, ha eru þið 5 ættliðir að hittast á hverju sumri, þekkist þið öll!? Já við þekkjumst og það er allt vegna þín, amma. Amma mín, ég náði að spjalla við þig í síma stuttu áður en þú kvaddir, þessir skrítnu tímar að geta ekki heimsótt þig vegna Co- vid gerðu síðustu mánuðina erf- iða en þú varst samt jákvæð, þú varst svo skýr, fylgdist svo vel með og hafðir svo mikinn áhuga á að vita allt um mig og mína, spurðir um hvernig mér liði og hvað væri að frétta af börnunum og barnabörnunum mínum, en kvartaðir ekki yfir einangrun- inni, því amma þú varst svo mikil hetja og lést okkur öllum alltaf líða svo vel. Ég ætla að kveðja þig með textanum úr ljóðin sem þú söngst fyrir okkur og Hafdís móðursyst- ir mín tók upp og deildi með okk- ur nú fyrir skemmstu það er svo dásamlegt að hlusta á þennan söng þinn. Í heiðardalnum er byggðin mín þar hef ég lifað glaðar stundir. Og hvergi vorsólin heitar skín en hamrabeltunum undir. Og fólkið þar er svo frjálst og hraust svo falslaust viðmót þess og ástin traust. Já þar er glatt, það segi ég satt hve sælt er að eiga þar heima. Góða ferð og Guð geymi þig, yndislega amma mín. Ásgeir Guðmundur Bjarnason. Hún elsku amma ljós er nú horfin á braut. Viðurnefnið ljós fékk hún af því að hún átti lengst af heima í Ljósheimum, þó svo að hún væri löngu flutt þaðan var hún alltaf amma ljós hjá mér og mun alltaf vera. Ég er svo þakk- lát fyrir að hafa fengið að hafa ömmu í lífi mínu í öll mín 48 ár, en nú er kominn tími til að kveðja. Því miður hafa samverustund- irnar á þessu ári ekki verið marg- ar. En ég er svo glöð að hafa hringt í hana tveimur vikum áður en hún kvaddi. Það lá svo vel á henni og við spjölluðum heilmik- ið, hún spurði frétta af dóttur minni því hún fylgdist vel með öll- um afkomendum sínum. Þó að kroppurinn væri aðeins farinn að gefa sig eins og eðlilegt er fyrir 101 árs gamlan kropp var koll- urinn alltaf skýr. Amma kallaði nú ekki allt ömmu sína, hún var úrræðagóð, sterk og ákveðin. Við sem á eftir henni komum horfum á hana sem einstaka fyrirmynd og hún mun alltaf verða sveipuð dýrðarljóma. Það eru til margar frægðarsögur af henni. Eins og þegar hún var 75 ára gömul og fór með afkom- endur sína í fjallgöngu, við geng- um þá frá Breiðuvík yfir í Kolls- vík. Þetta er leið sem hún gekk alltaf með pabba sínum þegar hún var lítil stelpa á leið til kirkju, en langafi var organisti í Breiðuvíkurkirkju í um 30 ár. Sælustu æskuminningarnar eru þegar ég fékk að fara ein til ömmu og afa í Ljósheimana og gista þar. Ég er alin upp á stóru heimili og mér þótti svo afskap- lega gott að fá að koma til ömmu og afa, þar fékk ég athygli og tíma, nýsteiktar kleinur og hveitikökur, og svo var alltaf svo rólegt hjá þeim. Ég man sérstaklega eftir því hvað mér þótti gott að sitja til fóta hjá ömmu þegar hún sat í stólnum sínum. Það var eitthvað við hljóðið í nælonsokkunum þeg- ar hún nuddaði saman fótunum, tifið í prjónunum og sláttinn í veggklukkunni sem hafði svo góð áhrif á mig. Í dag er svo gaman að upplifa það að dóttir mín sækir í ömmu og afa eins og ég gerði. Það var alltaf notalegt að heimsækja hana ömmu. Hún hafði alltaf frá einhverju skemmtilegu að segja, sögur frá því að hún var ung stúlka og bjó í Breiðuvík, og eftir að hún flutt- ist á mölina. Hún fylgdist vel með öllum afkomendunum sín- um og var alltaf með á nótunum hvað þeir væru að bardúsa. Það er stórt skarð í hjarta mínu og okkar allra, ég sakna þín. Hvíl í friði elsku besta amma mín og ég bið að heilsa afa. Olga Eleonora. Guðrún Helgadóttir Þegar ég kom fyrst á Alþingi, sem varamaður, vorið 1979 voru litríkir og eftirminni- legir menn á þingi. Páll Péturs- son tilheyrði þeim hópi. Hann stjórnaði þingflokki Framsókn- arflokksins og var áhrifamikill í þingstörfum. Ég þekkti Pál þá ekki nema af afspurn, en fjölskylda mín í Skagafirði þekkti hann og hann var þeirra maður. Við Páll áttum löng kynni á Al- þingi, og undantekningarlítð góða samvinnu og samveru þar. Hann var eins og áður er sagt litríkur maður. Hann gat verið harðskeyttur í málflutningi og þungur á bárunni, en hann var samningamaður og dæmi veit ég um að hann gat liðkað fyrir mál- um þegar allt var komið í hnút. Hann var mikill málafylgjumaður í þeim málum sem hann bar fyrir brjósi, eins og landbúnaðarmál- um og málefnum landsbyggðar- Páll Pétursson ✝ Páll Pétursson,bóndi, fyrrver- andi alþingismaður og ráðherra, fædd- ist 17. mars 1937. Hann lést 23. nóv- ember 2020. Páll var jarðsunginn 5. desember 2020. innar, en hann átti fleiri hliðar. Þegar hann var orðinn félagsmálaráðherra kom hann miklum umbótum fram í fæðingarorlofi og stuðlaði að aukinni þátttöku feðra í þeim miklu tíma- mótum sem verða í lífi hverrar fjöl- skyldu þegar nýr einstaklingur kemur í heiminn. Einnig kom hann í gegn á sinni tíð breytingum í vinnulöggjöfinni sem er ofurviðkvæm löggjöf. Þar þurfti hann á sinni samninga- tækni að halda. Páll var á góðum stundum bráðskemmtilegur, orðheppinn og ágætur hagyrðingur. Hann var ekki einn af þeim sem alltaf voru með ferskeytlur á vörunum, en vísurnar komu með réttum tímasetningum og gátu verið hár- beittar, og kom broddurinn í þeim í lokin, eins og títt er um góðar vísur. Hann var hestamaður ágætur og minnist ég þess að hafa séð þátt í sjónvarpi þar sem hann var í göngum á heiðum Húnaþings á hestbaki. Þá var hann í essinu sínu, og var höfðingsbragur á honum í þessu ríki sínu. Páll var kvæntur Helgu Ólafs- dóttur frá Siglufirði og bjuggu þau á Höllustöðum, og hann hafði þar heimili og keyrði tíðum á milli Reykjavíkur og Höllustaða um þingtímann. Hann varð fyrir því mikla áfalli að missa konu sína, en Helga lést langt um aldur fram. Hins vegar var það svo að lánið hafði ekki yfirgefið Pál, því nokkru seinna tóku hann og Sig- rún Magnúsdóttir, þá borgar- fulltrúi, upp sambúð og gengu síðan í hjónaband. Sigrún lifir mann sinn og var honum einstök stoð og stytta alla tíð, ekki síst þegar hann varð fyrir því áfalli að missa heilsuna. Dugnaður henn- ar er ótrúlegur og afköst í há- skólanámi og ráðherradómi og þingmennsku og sem borgar- fulltrúi. Páll kom víða við þegar hann var á þingi, bæði hér heima og er- lendis. Hann var fulltrúi í Norð- urlandaráði og formaður þess um tíma. Hann var í stjórn Lands- virkjunar og gegndi ýmsum trún- aðarstörfum fyrir bændastéttina, auk þess að vera þingmaður og ráðherra. Hann sleit aldrei tengslin við sveitina og reisti hús á Höllustöðum þar sem hann og Sigrún voru tíðum nú seinni árin, meðan heilsa Páls entist. En nú er komið að leiðarlok- um. Við Margrét vottum Sigrúnu og fjölskyldunni hans innilega samúð. Minningin um þennan lit- ríka samstarfsmann er ljóslif- andi. Jón Kristjánsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.