Morgunblaðið - 17.12.2020, Page 51

Morgunblaðið - 17.12.2020, Page 51
MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020 Elsku besti vinur. Ég gleymi aldrei fyrsta skipti sem ég hitti þig. Ég lá á sóf- anum í Skálholti í MS á leiðinni í skíðaferð og þú og Jói bróðir kom- uð saman inn. Þú labbaðir beint til mín og spurðir mig: „Spilar þú á gítar?“ Þar með hófst ein dýrmæt- asta og besta vinátta ævi minnar. Já tónlistin tengdi okkur um leið og var alltaf stór hluti af okkar vin- áttu. Hvort sem það var að spila saman á gítar dag og nótt, nágrönnum okkar til mismikillar gleði; að ræða tónlist og kynna nýjungar fyrir hvor öðrum; eða þú, verandi minn stærsti aðdáandi, að hvetja mig áfram í námi mínu í gegnum súrt og sætt. Mér finnst því ansi viðeigandi að það síðasta sem þú sagðir við mig var: „Malú, þú verður að lofa mér að byrja að hlusta á Nick Drake.“ Já Gunni minn, ég er sko byrjaður á því. Minningarnar frá árum okkar í MS eru margar og æ fleiri eftir því sem árin liðu. Ein sem lýsir þér ansi vel var þegar við vorum að steggja þig. Við höfðum bara eitt ákveðið plan og það var að láta þig stilla þér nöktum upp fyrir mynda- töku á steininum hjá litlu hafmeyj- unni, sem var einmitt í heimsókn í Kína á þeim tíma. En hvernig átt- um við að fá þig til að samþykkja að hoppa nakinn upp á stein, um miðjan dag, fyrir framan hóp af kínverskum túristum með mynda- vélar? Við ræddum mikið um hvort við gætum náð því að hella þig nógu fullan á hálftíma til þess að þú værir til í að gera það. En svo Gunnar Örn Heim- isson Maríuson ✝ Gunnar ÖrnHeimisson Maríuson fæddist 22. maí 1982. Hann lést 21. nóvember 2020. Útförin fór fram 10. desember 2020. þegar við vorum á leiðinni þangað fatt- aðir þú strax hvað var í gangi. Það þurfti sko ekki dropa af áfengi til. Þú hoppaðir strax úr fötunum, beint upp á stein og stilltir þér í stellingar sem líkt- ust henni svo mikið að greyið Kínverj- arnir efuðust um hvort þarna væri ekki bara alvör- ustyttan komin aftur frá Kína! Því þannig varstu. Þér var svo alveg sama um hvað öllum öðrum fannst. Eftir að ég fékk fréttirnar sat ég lengi og reyndi að laða fram einmitt þessar minningar frá okk- ar samverustundum. Það var ansi erfitt því þær eru svo margar og heldur ekki allaf alveg skýrar. Þegar við bjuggum á sófanum hjá Gogga, bæði skiptin á Øresunds- kollegíinu eða í Høje Tåstrup, var til að mynda tími fullur af skemmtilegum upplifunum og minningum. En ég fann að það eru ekki einhverjar ákveðnar minn- ingar sem mér þykir vænst um, nú þegar þær verða ekki fleiri. Held- ur er það einmitt tíminn sem við áttum saman. Tíminn þar sem við vorum bara að vera til. Að lifa líf- inu, búandi saman og eyðandi tíma hvor með öðrum. Því það er það sem vinir gera. Vinir sem hafa bundist böndum sem eru kannski sterkari en venjuleg vinátta. Því eftir að hafa búið saman í Dan- mörku, svo langt frá fjölskyldu og öðrum vinum, þá vorum við á margan hátt eins og fjölskylda hvor annars. Elsku Gunni minn. Ég er þér svo óendanlega þakklátur fyrir vináttuna og allan þann tíma sem við áttum saman. Þinn vinur, Magnús Þór Ólafsson (Malú). Byrjum á að raula gegnum fyrstu línurnar úr Röskvulaginu 2005. Lagið er „Hjálpum þeim“ og textinn byrjar svona: Gleymd’ ekki þínum besta skóla, þó fjárhagsvandi steðji að. Á Röskvu vel er hægt að stóla, í hjarta þínu veistu það. Við úr gamla Röskvuhópnum munum ljóslega eftir Gunna sitj- andi inni á kosningaskrifstofu á Laugaveginum að semja þennan texta – og svo auðvitað með gít- arinn í hönd að flytja lagið með til- þrifum. Allur hópurinn saman uppi á sviði á Grand Rokk á Svita- balli Röskvu að syngja – jafnvel öskursyngja nýja Röskvulagið. Sungið var um „von og trú um betri menntun“ og að standa vörð um réttinn til náms og það sam- einaði okkur öll. Þessar minningar eru meðal þeirra sem við höfum yljað okkur við eftir fregnina um að Gunni sé farinn. Fráfall Gunna hefur verið mörgum harmdauði eins og við- brögð á samfélagsmiðlum bera vott um. Og það kemur ekkert á óvart af því að Gunni snerti svo marga, svo djúpt. Gunni átti ekki bara marga vini, heldur hafði hann mikla réttlæt- iskennd, brennandi áhuga á fólki og öllu samfélaginu. Hann var brosmildur, einlægur og mikill stemmningsmaður. Sama hvað gekk á og hvað hann þurfti að tak- ast á við var Gunni alltaf heill í sínu og tilbúinn að gefa af sér á öll- um stundum. Um leið og við kveðjum Gunna okkar sendum við fjölskyldu og ástvinum innilegustu samúðar- kveðjur. Helga, Agnar Freyr, Eva, Hrafn, Inga Guðrún, Pétur, Valgerður, Grétar Halldór, Magnús Már og Anna Pála. Gunnar Örn, eða Gunni eins og við kölluðum hann alltaf, var falleg sál. Við kynntumst honum á menntaskólaárunum og áttum all- ar okkar vinskap við hann. Gunni var bæði góðhjartaður og glæsi- legur, vildi öllum vel og snerti hjörtu okkar sem kynntumst hon- um. Hann var gáfaður, vel máli far- inn og það var endalaust hægt að eiga í samræðum við hann um alla heima og geima. Mörg samtalanna við Gunna voru hápólitísk og krefjandi en um leið virkilega gefandi, fræðandi og skemmtileg. Gunni var hrókur alls fagnaðar í partíum og gítarinn var aldrei langt undan, og stundum líka munnharpan. Hann fangaði þann- ig alla með sér í söng og gleði. Verkamannavísur, Bob Dylan, Villi Vill og ótal fleiri tónlistar- minningar koma upp í hugann tengdar Gunna. Það er eiginlega ekki hægt að minnast Gunna án þess að hugsa um tónlist. Fleiri góðar minningar koma upp og má þá t.d. nefna allar skálaferðirnar og leiklistarferð- irnar á menntaskólaárunum þar sem sungið var fram undir morg- un og spjallað, og Gunni þar fremstur í flokki. Fallega minningu eigum við um Gunna undir stjörnubjörtum himni úti í sveit að syngja Villa Vill. Það var líka gaman í næturfót- boltanum um árið, í bjartri sum- arnóttinni með misvel klæddum sumarbústaðagestum. Eftir því sem árin liðu hittum við Gunna æ sjaldnar. Að miklu leyti vegna þess að hann bjó er- lendis en við reyndum þó að hitt- ast þegar hann kom til landsins eða þegar einhver okkar fór til Danmerkur. Eftir því sem árin liðu fundum við hvernig veikindi Gunna urðu honum þungbærari og stundum var erfitt að skilja þau. Gunni var alla tíð einlægur og hreinskilinn, góður við aðra og hreyfði við fólki. Hann var á sinn dásamlega hátt að einhverju leyti á skjön við heiminn en hafði þann- ig líka fallega sýn á hann. Við munum allar geyma hlýjar minningar um elsku Gunna í hjarta okkar um ókomna tíð. Þínar vinkonur, Brynja, Sveinlaug, Hildur Vala og Inga. ✝ GuðfinnaThorlacius fæddist 10. mars 1938 í Reykjavík. Hún lést á Sjúkra- húsinu á Akureyri sunnudaginn 22. nóvember 2020. Foreldrar hennar voru hjónin Guðni Thorlacius, f. 25.10. 1908, d. 22.5. 1975, skipstjóri í Reykja- vík, og Margrét Ó. Thorlacius, f. 8.4. 1909, d. 15.9. 2005, húsmóðir í Reykjavík. Systkini Guðfinnu eru: Ólafur Þór Thorlacius, f. 21.10. 1936 og Margrét G. Thorlacius, f. 28.5. 1940. Guð- finna giftist Aðalgeiri Pálssyni, f. 18.10. 1934, d. 11.2. 2016, 17. ágúst 1968. Aðalgeir var raf- magnsverkfræðingur og kennari. Hann var skólastjóri Iðnskólans á Akureyri og síðar kennari við Verkmenntaskólann á Akureyri. Aðalgeir er sonur hjónanna Páls Bjarnasonar, f. 10.11. 1908, d. 12.7. 1973, símaverkstjóra á Ak- ureyri, og Aðalbjargar Jóns- dóttur, f. 11.3. 1915, d. 11.10. 1986, húsmóður á Akureyri. Dætur Guðfinnu og Aðalgeirs eru: 1) Kristjana, f. 19. apríl 1969 vík. Þaðan lauk hún stúdents- prófi af stærðfræðideild, 1958. Hún lauk námi sem hjúkr- unarfræðingur við Hjúkr- unarskóla Íslands 1961. Guð- finna fór í framhaldsnám í kennslufræði hjúkrunar til Ár- ósa og lauk kennaraprófi árið 1964. Hún vann sem hjúkr- unarfræðingur á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri frá 1961, hjúkrunarframkvæmda- stjóri 1965-1969 og sá jafnframt um kennslu hjúkrunar- og sjúkraliðanema. Kennari við heilsugæslubraut Gagnfræða- skólans á Akureyri 1969-1984 og kennari við Verkmenntaskólann á sama sviði 1984-1986. Starfs- maður þjónustuhóps aldraðra á Akureyri frá 1988. Sat í stjórn Norðurlandsdeildar Hjúkr- unarfélags Íslands 1986-1988, í bæjarstjórn Akureyrar 1986- 1990 og í ýmsum nefndum á veg- um bæjarins. Guðfinna hefur alla tíð sinnt félagsstörfum. Hún starfaði í St. Georgsgildinu á Ak- ureyri, félagsskap eldri skáta. Hún starfaði einnig um árabil í Zontaklúbbi Akureyrar og Ferðafélagi Akureyrar. Þau hjónin ferðuðust mikið, bæði innanlands og erlendis. Guð- finna hafði unun af ýmiskonar handverki, lærði m.a. útskurð og skrautskrift. Prjónaskapur var hennar helsta áhugamál. Guðfinna var jarðsungin frá Akureyrarkirkju 27. nóvember 2020. á Akureyri, arki- tekt, búsett í Finn- landi. Maður henn- ar er Jari Mikael Turunen, f. 2. okt. 1964, hljóðhönn- uður. Börn þeirra eru Petra Kolbrún, f. 5. febrúar 1998 og Hannes Breki, f. 28. apríl 2001. 2) Guðfinna, f. 20. mars 1972 á Ak- ureyri, prófessor við Jarðvís- indadeild HÍ, búsett í Reykjavík. 3) Margrét, f. 20. júlí 1975 á Ak- ureyri, kennari, búsett á Ak- ureyri. Maður hennar er Ari Gunnar Óskarsson, f. 20. nóv. 1972, rekstrarstjóri. Börn þeirra eru Gunnar Aðalgeir, f. 15. mars 2001 og Inga Rakel, f. 16. maí 2005. Guðfinna ólst upp í Vestur- bænum í Reykjavík. Hún gekk í Miðbæjarskólann og síðar Gagn- fræðaskólann við Hringbraut. Á sumrin var hún í sveit á Varma- læk í Borgarfirði hjá hjónunum Jarþrúði Grétu Jónsdóttur og Jakobi Jónssyni. Þangað fór hún fyrst 7 ára gömul og var þar í 14 sumur. Lauk landsprófi og hóf nám í Menntaskólanum í Reykja- Kveðja frá Zontaklúbbi Akureyrar Guðfinna Thorlacius var góður og gegn félagi í Zontaklúbbi Ak- ureyrar í fjóra áratugi. Við Guð- finna vorum lengi samtíða í klúbbnum. Hún var ein af virðu- legum, vingjarnlegum, reyndum félögum í hópnum þegar ég gekk inn í febrúar 1975. Andrúmsloftið var notalegt og reynsla og þekk- ing lágu í loftinu. Þær voru svo áhugaverðar þessar konur, Guð- finna og stöllur hennar, og eru mér svo eftirminnilegar hver fyr- ir sig. Það var gott fyrir nýjan íbúa í bænum eins og mig að koma inn í þennan klúbb. Mark- mið klúbbsins voru svo áhuga- verð og miðuðu að því að efla stöðu kvenna. Fundir voru haldn- ir á Hótel KEA og það var mikil tilbreyting í þá daga að að snæða á hóteli, ekki síst á virkum degi. Síðar voru fundir haldnir í Zonta- húsi og nóvemberfundir voru stundum haldnir í Nonnahúsi en 16. nóvember var afmælisdagur Nonna. Eitt stórt mál var alltaf í deiglunni en það var Nonnahús, rekstur þess og staða. Sómakon- an Ragnheiður O. Björnsson var fyrsti formaður klúbbsins og setti mikinn svip á starfið og það var hugmynd hennar að klúbburinn heiðraði minningu Nonna og segja má að það hafi tekist vel. Zontaklúbbar eru starfsgreina- klúbbar og það var haft á orði að í klúbbnum væru ótrúlega margir hjúkrunarfræðingar og kennar- ar. Guðfinna átti vel heima í klúbbnum og átti þar margar vin- konur. Hún tók að sér fjölbreytt störf fyrir klúbbinn. Hún var for- maður og starfaði líka mikið í Nonnanefnd sem sá um Nonna- hús. Hún mætti vel á fundi og lagði gott til málanna. Guðfinna starfaði sem hjúkr- unarfræðingur og hjúkrunar- kennari og átti stóran þátt í að skipuleggja nám og kennslu sjúkraliða ásamt Ingibjörgu R Magnúsdóttur. Síðustu starfsár- in vann hún að öldrunarmálum. Guðfinna giftist Aðalgeiri Pálssyni rafmagnsverkfræðingi og þau byggðu sér hús í Háagerði 4 og bjuggu þar alla tíð, síðustu árin í skjóli Margrétar yngstu dóttur sinnar. Aðalgeir lést í febrúar 2016 og nú eru þau hjónin bæði horfin úr þessum heimi. Heimilið var það mikilvægasta í lífi Guðfinnu og eiginmaður og dæturnar þrjár skipuðu fyrsta sæti í lífi hennar, enda var heim- ilið fullt af gleði og hlýju. Það var gefandi að kynnast Guðfinnu og mannkostum hennar og starfa með henni. Zontaklúbb- ur Akureyrar þakkar Guðfinnu liðnar samverustundir og biður henni blessunar og vottar fjöl- skyldu hennar einlæga samúð. Ragnheiður Hansdóttir. Guðfinna Thorlacius Elsku hjartans frænka okkar, GUÐRÚN S. KRISTJÁNSDÓTTIR frá Skuld, Eskifirði, lést mánudaginn 7. desember á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 21. desember klukkan 15. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Þeim sem vilja minnast Guðrúnar er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Vala Ólafsdóttir Jenný B. Ingólfsdóttir Jóhanna Eiríksdóttir Svavar Kristinsson Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, tengdafaðir, afi og bróðir, ÓLAFUR ÞÓR JÓNSSON pípulagningameistari, lést á heimili sínu 10. desember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 28. desember klukkan 13. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Útförinni verður streymt á slóðinni https;www.facebook.com/groups/390725862179919 Guðrún Guðmundsdóttir Arndís Helga Ólafsdóttir Gunnbjörn Viðar Sigþórsson Magnús Einar Ólafsson Helga Guðmundsdóttir Jón Berg Halldórsson Helga Sigurgeirsdóttir barnabörn, systkini og fjölskyldur Elskulegur bróðir minn, mágur og frændi, ARNAR KLEMENSSON, Ólafsvegi 7, Ólafsfirði, lést á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri 11. desember. Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn 18. desember klukkan 14. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Streymt verður beint frá athöfninni á slóðinni https://youtu.be/N_Nvm7QnfJE Jón Ævar Klemensson Helga Jónsdóttir Guðrún Jónsdóttir Árni Jónsson Klemenz Jónsson María Magnúsdóttir Rósa Jónsdóttir Sigurbjörn Þorgeirsson og frændsystkini Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, Kópavogstúni 4, áður Bræðratungu 1, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð sunnudaginn 13. desember. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 29. desember klukkan 15. Vegna sóttvarnareglna verður jarðarförin aðeins fyrir nánustu aðstandendur en streymt verður frá athöfninni á slóðinni utfor-kristinar-jonsdóttur.is. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningargjafasjóð Sunnuhlíðar (www.sunnuhlid.is). Gunnar Smári Þorsteinsson Jón Bjarni Gunnarsson Elín Björt Grímsdóttir Hrefna Gunnarsdóttir Kristján Björgvinsson Ella Björg Rögnvaldsdóttir Arndís Pétursdóttir Björgvin Smári Kristjánsson Iðunn Elva Ingibergsdóttir Kristín Jónsdóttir Sverrir Már Bjarnason Hrefna Björk Jónsdóttir Barði Freyr Þorsteinsson Bryndís Helga Jónsdóttir Bjarki Steinn Aðalsteinsson Gunnhildur Kristjánsdóttir og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GRÓA MAGNÚSDÓTTIR, Bústaðabletti 10, Reykjavík, lést á dvalarheimilinu Mörk 8. desember. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánasta fjölskylda og ættingjar viðstödd útför. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á dvalarheimilinu Mörk, 2. hæð miðju, fyrir hlýja og einstaka umönnun. Jón Trausti, Katrín, Soffía, Jóhann, Hjalti, Anna og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.