Morgunblaðið - 17.12.2020, Page 52
52 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020
✝ Guðrún Fann-dal Kristins-
dóttir fæddist 13.
apríl 1945. Hún
lést á Landspítala
28. nóvember 2020.
Guðrún ólst upp
í Kálfshamarsvík
A-Hún. Árið 1963
kynnist hún eft-
irlifandi eigin-
manni, Jóni Óskari
Ágústssyni sjó-
manni, f. 6.10. 1932. Þau hafa
búið á Víðimel 78, Reykjavík.
Börn þeirra: 1) Margrét Ósk,
matráður, f. 8.3. 1964. Eiginm.
Jón Hermann Ingimundarson, f.
14.7. 1974. Börn hennar Enok
Óskar, f. 29.8. 1981, eigink.
Kristín Marín Holm, f. 16.11.
1983. Börn Unnar: Ernir, f. 5.2.
2001, Jóhanna Bára, f. 3.3.
2007, og Sóldís Harpa, f. 29.12.
2009. Erlendur Jón, f. 9.8. 1990,
sambýlisk. Sunna Kristín Gunn-
laugsdóttir, f. 20.12. 1992, börn
Enika Hildur, f. 11.6. 2015, og
Erik Freyr, f. 18.2. 2018. Helga
Rut, f. 28.7. 1992, börn Kristín
Júlía, f. 20.12. 2011, og Guð-
mundur Liljar, f. 2.9. 2013. 2)
Ágúst Sigurður, ráðgjafi, f.
26.5. 1966. Eigink. Júdit Alma
Hjálmarsdóttir, f. 12.9. 1964.
Börn Guðrún Helga, f. 19.7.
oría Fanney, f. 2.7. 1993, börn
Haukur Snær, f. 19.6. 2016, og
Olavia Eir, f. 21.11. 2018. 6)
Sverrir, félagsráðgjafi, f. 18.5.
1971. Eigink. Ingunn Vattnes
Jónasdóttir, f. 1.6. 1974. Börn
Jónas Helgi, f. 23.6. 1997, sam-
býlisk. Katla Sigríður Magn-
úsdóttir, f. 24.2. 1993. Klara Sif,
f. 16.12. 2000, og Elín Eyþóra,
f. 10.8. 2006. 7) Sigrún, við-
skiptafræðingur, f. 17.5. 1972.
Eiginm. Ásmundur Einar Ás-
mundsson, f. 30.10. 1963. Synir
Ásmundur Óskar, f. 31.10.
1998, og Loftur, f. 10.2. 2002. 8)
Óskírð, f. og d. 28.11. 1973. 9)
Sigursteinn, rafvirkjam., f.
17.8. 1975, eigink. María Gunn-
arsdóttir, f. 31.12. 1971. Dætur
Sóley, f. 5.12. 2009, og Birta, f.
12.2. 2011. Dóttir hans Katrín
Þöll, f. 31.10. 2000. Sonur Mar-
íu: d) Svavar Örn Höskuldsson,
f. 31.7. 1990, sambýlisk. Silvía
Rán Ásgeirsdóttir, f. 7.11. 1990,
börn Telma Ósk, f. 16.4. 2012,
og Ares Örn, f. 29.6. 2017. 10)
Þráinn, múraram., f. 22.8. 1976,
sambýlisk. Elma Atladóttir, f.
30.4. 1970. Sonur Atli, f. 18.10.
2005.
Guðrún var móðir 10 barna,
útivinnandi verkakona frá unga
aldri. Síðustu starfsárin við
umönnun á Hjúkrunarheimilinu
Grund í Reykjavík.
Útför hennar fer fram frá
Lindakirkju í Kópavogi í dag,
17. desember 2020, klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna verða aðeins
fjölskylda og nánustu aðstand-
endur viðstaddir.
1990, sambýlism.
Guðmundur Frið-
bjarnarson, f.
28.11. 1990. Dætur
Anna Lísa, f. 20.5.
2013, og Alma Þór-
unn, f. 8.10. 2019.
Anna Halldóra, f.
7.6. 1994. Jón Ósk-
ar, f. 26.6. 1996,
sambýlisk. Sunna
Rae George, f.
15.5. 1995. 3) Stef-
án Páll, pípulagningam., f. 24.6.
1967. Fv. sambýlisk. Sigríður
Þorbjörg Ragnarsdóttir, f.
23.11. 1966. Börn Guðrún
Berta, f. 10.12. 1989, og Ragnar
Páll, f. 6.7. 1998. 4) Haukur,
byggingatæknifr., f. 19.2. 1969.
Sambýlisk. Ásta D. Bald-
ursdóttir, f. 23.6. 1968. Synir
Hákon, f. og d. 25.8. 2005, Ísak,
f. og d. 26.8. 2005, og Gabríel, f.
1.6. 2007. 5) Magnús, vörubíl-
stjóri, f. 13.4. 1970. Sambýlisk.
Erla Guðrún Guðbjartsdóttir, f.
17.8. 1965. Börn hans Benedikt
Snær, f. 25.5. 1990, sambýlisk.
Sonja Kristín Guðmundsdóttir,
f. 7.4. 1994, sonur Hafþór Orri,
f. 24.3. 2017. Svala Dís, f. 7.1.
1992, sambýlism. Dardi Rapaj,
f. 27.7. 1998, börn hennar Ísa-
bella Sif, f. 28.11. 2009, og Ey-
þór Krummi, f. 24.8. 2013. Vikt-
Guðrún móðir mín eignaðist 10
börn á 12 árum og ól upp níu. Ég
er elst af hópnum og 17 ára eign-
aðist ég son sem mamma tók með
í hópinn og hana munaði ekki um
að hjálpa mér að ala hann upp.
Það var fjör á heimilinu og alltaf
máttum við koma með vini okkar
inn á heimilið líka. Mamma átti
systur, hana Sigurlaugu, sem á
tvær dætur og voru systurnar
mjög háðar hvor annarri þótt þær
hittust ekki oft í seinni tíð vegna
veikinda hjá báðum.
Rannveig og Jón voru bestu fé-
lagar mömmu og pabba og alltaf
fóru þau út að dansa á 17. júní ár
hvert. Jólin voru mömmu tími og
hún passaði að allir fengju ný föt
fyrir jólin og bakaði mikið og safn-
aði nammi svo allir fengju nóg.
Þegar ég var að verða sjö ára
brann heimilið okkar og misstum
við allt. Þá var mamma ófrísk að
sjötta barninu og þurfti að koma
okkur öllum fyrir í mánuð meðan
þau pabbi voru að finna hús og
búa til nýtt heimili fyrir okkur.
Hún talaði alla tíð um það hvað
henni þótti leitt að hafa sett okkur
í burtu þennan mánuð en við vor-
um samt hjá vinum og frændfólki
sem sameinuðust um að hjálpa
okkur yfir þessa erfiðleika.
Þegar ég fór að heiman og hin
systkini mín þá var hún alltaf að
fylgjast með okkur með sínum
kærleika og vildi að við kæmum
heim að gista eða borða og eftir að
við systkinin urðum eldri var hún
svo ánægð að fá okkur heim með
öll börnin okkar, þá bakaði hún
kleinuhringi handa öllum og hafði
góðan mat.
Mamma hafði svo gaman af að
ferðast og fara í útilegur. Henni
fannst gaman að smyrna og
sauma í og gaman að eiga eftir
hana púða.
Mamma vann alltaf mikið og
flatti fisk í höndunum og gaf
sterkum karlmönnum ekkert eftir
og svo saltaði hún síld með börnin
með sér að setja í tunnur.
Í gegnum tíðina hefur mamma
fylgt okkur í gegnum súrt og sætt,
vá hvað það verður erfitt að fá
ekki símtal og geta ekki hringt; …
„mamma, hvernig á ég að gera
rækjuréttinn?“ Við mamma fór-
um á ball saman í Þórskaffi, ég 19
ára og hún 38 ára. Og vá hvað það
var gaman þegar við mæðgurnar
fórum í húsmæðraorlof til Halifax.
Þá fór hún í fyrsta skiptið til út-
landa og ekki keypti hún mikið
handa sér því hún hafði svo gaman
af að gefa gjafir og gleðja börnin
sín og barnabörn og tengdadætur
sínar.
Ef eitthvað af okkur systkinun-
um veiktist eða eitthvað var þá
var hún mætt til að hjálpa til.
Núna í haust sagði ég henni að við
Jón minn værum að fara að gifta
okkur og hún var svo spennt og
ánægð fyrir mína hönd að fá svona
indælan mann fyrir mig. Það var
leitt að hún dó áður en ég gifti
mig. Vá hvað ég er þakklát fyrir
allt sem mamma gerði fyrir mig
og börnin mín Enok, Erlend og
Helgu Rut og barnabörnin mín
sjö. Góði guð, geymdu minningu
um góða konu, hún var límið í fjöl-
skyldunni.
Blessuð vertu baugalín.
Blíður Jesú gæti þín,
elskulega móðir mín;
mælir það hún dóttir þín.
(Ágústína J. Eyjólfsdóttir)
Margrét Óskarsdóttir.
Árið 2020 verður lengi í minn-
um haft. Heimsfaraldur geisaði og
hafði og hefur enn víðtæk áhrif á
okkur öll. Ekki síst ömmu þar sem
hún veiktist af Covid-19 á Landa-
koti í fyrstu bylgju faraldursins en
náði þó bata. Þrátt fyrir það er
runninn upp sá dagur að við
kveðjum góða konu, ömmu okkar
hana Guðrúnu sem lést laugar-
daginn 28. nóvember 2020. Fráfall
hennar er okkur sem og fjölskyld-
unni allri afar þungbært. Guðrún
var umhyggjusöm og hjartahlý en
það kom vel í ljós í hlutverki henn-
ar sem ömmu okkar systkinanna
sem og í starfi hennar á Grund,
hjúkrunarheimilinu þar sem hún
vann við umönnun.
Það eru margar minningar sem
koma upp í hugann þegar maður
horfir yfir farinn veg og margt
sem við systkinin erum afar þakk-
lát fyrir í gegnum tíðina með
ömmu.
Hún var virkilega góð kona og
ávallt gott að fara í heimsókn til
hennar.
Þar sem við systkinin erum alin
upp á Húsavík og amma búsett á
höfuðborgarsvæðinu var það okk-
ur systkinunum mikið tilhlökkun-
arefni þegar Reykjavíkurferð var
í kortunum.
Í þeim fjölmörgu ferðum sem
voru farnar þá komum við oftast
suður seinnipartinn þar sem
amma beið með bakkelsi af bestu
gerð, appelsín, kökur og kruðerí
sem var síðan toppað með mack-
intosh konfekti sem við systkinin
héldum mikið upp á. Þegar búið
var að gæða sér á góðgæti var far-
ið í að koma sér fyrir í stofunni þar
sem við gistum og amma búin að
búa um okkur fjölskylduna. Síðan
var venjan að allri ættinni var
boðið í kvöldmat af bestu gerð,
sem var síðan toppað með ferð í ís-
búðina þar sem amma var vel
meðvituð um það að flestir í fjöl-
skyldunni héldu mikið upp á ís.
Enda var keypt nóg af ís fyrir alla
og vel af afgangi fyrir okkur
systkinin daginn eftir þar sem við
gistum hjá ömmu og afa.
Það er Guðrúnu, sem var skírð í
höfuðið á ömmu sinni afar minn-
isstætt þegar amma og afi héldu
fyrir hana 5 ára afmælisveislu þar
sem boðið var upp á þvílíkar
kræsingar og var þar á meðal
kaka sem mun aldrei gleymast.
Auk þess þegar að Guðrún eign-
aðist síðan sitt fyrsta barn þá var
hún með fyrstu gestum á spítal-
ann að skoða nýjustu viðbótina í
fjölskylduna.
Amma hitti alltaf naglann á
höfuðið í gjafavali og er þar af
miklu að taka. Það má t.d. nefna
Spiderman-sundskýlu handa Jóni
Óskari, ótal ilmvatnsöskjur sem
við systur fengum, góð handklæði
og rúmföt.
Einnig prjónaði hún fallega ull-
arsokka á alla fjölskylduna í stíl
sem voru fallega skreyttir og mát-
um við það mikils og gerum enn
þann dag í dag.
Það eru þó engar veraldlegar
gjafir sem geta toppað það besta
sem hún gaf okkur sem var um-
hyggja og stuðningur en það er nú
ekki sjálfsagt þegar maður á 9
börn og nóg af barnabörnum og
barnabarnabörnum.
Það eru engin orð sem fá lýst
þeim söknuði sem við finnum í
garð þinn elsku amma. Minning
þín mun vera sem ljós í lífi okkar
og þér munum við aldrei gleyma.
Þín barnabörn og makar
Guðrún Helga og
Guðmundur,
Anna Halldóra,
Jón Óskar og Sunna Rae.
Guðrún Fanndal
Kristinsdóttir
Harpa Heimisdóttir
s. 842 0204
Brynja Gunnarsdóttir
s. 821 2045
Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær
s. 842 0204 | www.harpautfor.is
Okkar ástkæri sambýlismaður, faðir,
stjúpfaðir, sonur, barnabarn og bróðir,
ELVAR ÖRN HJALTALÍN EINARSSON,
Vættagili 22, Akureyri,
lést á Sjúkahúsinu á Akureyri þriðjudaginn
8. desember. Útförin fer fram frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 18. desember klukkan 13:30.
Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur og vinir
viðstaddir. Útförinni verður streymt á facebooksíðunni
Jarðarfarir í Akureyrarkirkju.
Ingibjörg Jóhannsdóttir
Emelía H. Hjaltalín Elvarsd. Margrét Fjóla Stefánsdóttir
Þórlaug Einarsdóttir
Sigurður Magnússon Aníta Jónsdóttir
Einar Þ. Hjaltalín Árnason
Sandra, Borgþór, Gabríel og Starkaður
Elsku hjartans móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
VALGERÐUR EINARSDÓTTIR,
Gæja,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Hrafnistu
9. desember.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn
18. desember og hefst athöfnin klukkan 11.
Vegna aðstæðna munu eingöngu nánustu ættingjar verða
viðstaddir. Athöfninni verður streymt á facebooksíðunni
Jarðarför Valgerðar Einarsdóttur.
Bára Jensdóttir
Einar Valdimar Arnarsson Helen Everett
Ingibjörg Þóra Arnarsdóttir Jón Sigurðsson
Soffía Helga Magnúsdóttir Sigurður Stefánsson
Gunnfríður Magnúsdóttir Sophus Magnússon
Sigríður Rósa Magnúsdóttir Richard Hansen
Örn Guðmundsson Hafdís Valdimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
AUÐUR MAGNEA JÓNSDÓTTIR,
Austurbyggð 17, Akureyri,
lést 10. desember.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 21. desember klukkan 13:30. Vegna aðstæðna í
þjóðfélaginu verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir
en athöfninni verður streymt á facebooksíðunni Jarðarfarir í
Akureyrarkirkju – beinar útsendingar.
Anna Lúthersdóttir
Guðný Pálsdóttir
Þórunn Pálsdóttir Páll Sigurðsson
Unnur Björk Pálsdóttir Jakob Jónasson
Magnús Pálsson Lára M. Sigurðardóttir
og fjölskyldur
Ástkær sonur, bróðir, barnabarn og frændi,
GUNNAR MÁR VILBERTSSON,
Reykjanesbæ,
lést sunnudaginn 22. nóvember og fór útför
hans fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn
8. desember að viðstöddum nánustu
aðstandendum og vinum.
Vilbert Gústafsson
Birta Rós og Harpa Sóley
Sara Margrét og Viktoría Lynn Frederick
Fríða Felixdóttir Rúnar Lúðvíksson
Guðríður Vilbertsdóttir
Gústaf Ólafsson
og aðrir aðstandendur
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
HJÖRDÍS GUÐBJÖRG
STEFÁNSDÓTTIR
frá Hóli á Stöðvarfirði,
lést laugardaginn 5. desember á
hjúkrunarheimilinu Eir. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju
þriðjudaginn 22. desember klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna verður útförin aðeins fyrir nánustu fjölskyldu.
Rafn Svan Svansson Jóhanna Baldursdóttir
Nanna Stefanía Svansdóttir Baldur Björgvinsson
Hafdís Svansdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn
Sálm. 16.11
biblian.is
Kunnan gerðir þú
mér veg lífsins,
gleðignótt er fyrir
augliti þínu, yndi í
hægri hendi þinni
að eilífu.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
SANDRA FORBERG SKÚLASON,
Reno, Nevada, U.S.A.,
lést miðvikudaginn 9. desember á spítala
í Reno.
Elfar Skúlason
Sandur Þór Skúlason Týna Skúlason
og fjölskyldur