Morgunblaðið - 17.12.2020, Side 53
MINNINGAR 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020
✝ RagnhildurÁrnadóttir
fæddist 22. maí
1920 á Njálsgötu
43a í Reykjavík og
ólst þar upp til 12
ára aldurs. Hún
lést á Hrafnistu í
Reykjavík 5. des-
ember 2020 á 101.
aldursári. Af Njáls-
götunni flutti
Ragnhildur með
foreldrum sínum og systrum að
Þverholti 3.
Foreldrar hennar voru Árni
Jónsson frá Varmá í Mosfells-
sveit, f. 1876, d. 1971, og kona
hans Branddís Guðmundsdóttir
frá Litla-Holti í Saurbæ í Dala-
sýslu, f. 1875, d. 1975.
Systur Ragnhildar voru
tannlækningar, fyrst í Berkley í
Kaliforníu og síðan í Portland í
Oregon. Að loknu námi í
Bandaríkjunum komu þau heim
árið 1950 og settust að í Kefla-
vík, þar sem þau bjuggu til árs-
ins 1978 er Garðar lést. Þá
flutti hún á heimili tengda-
móður sinnar Hólmfríðar Odds-
dóttur á Barónsstígnum þar
sem hún bjó þar til hún fór á
Hrafnistu árið 2017. Ragnhildi
og Garðari varð ekki barna
auðið en þau tóku að sér dreng,
Odd, fæddan 1952, sem þau ætt-
leiddu og gengu í foreldrastað.
Oddur er kvæntur Racel Eiríks-
son, f. 1954.
Útför Ragnhildar fer fram
frá Bústaðakirkju í dag, 17.
desember 2020, klukkan 13.
Vegna aðstæðna geta aðeins
nánustu aðstandendur og vinir
verið viðstaddir. Athöfninni
verður streymt á slóðinni
https://promynd.is/ragnhildur
Virkan hlekk á slóð má nálg-
ast á:
https://www.mbl.is/andlat
Anna, f. 1907, d.
2001, Unnur, f.
1908, d. 1972, og
Hlíf, f. 1912, d.
1936.
Ragnhildur gift-
ist árið 1942
Garðari Ólafssyni,
síðar tannlækni, f.
1914, d. 1978.
Ragnhildur gekk
í Austurbæj-
arskóla. Að loknum
grunnskóla vann hún við af-
greiðslustörf í Reykjavík.
Fyrstu búskaparárin bjuggu
Ragnhildur og Garðar í húsi
móður Garðars á Barónsstíg 33.
Hún flutti til vesturstrandar
Bandaríkjanna árið 1944 með
manni sínum og lagði stund á
tannfræðinám er Garðar lærði
Ragnhildur Árnadóttir móður-
systir mín, alltaf kölluð Ragna, er
fallin frá l00 ára að aldri. Hún ætl-
aði svo sannarlega að halda upp á
þann stóra viðburð, en Covid-
veiran kom í veg fyrir að svo yrði.
Fjölskyldan og vinir náðu þó að
hylla hana á afmælisdaginn, þar
sem hún stóð á svölum 4. hæðar á
Hrafnistu í sínu fínasta pússi, en
við sungum og spiluðum í garð-
inum og veifuðum til hennar.
Ragna var yngst fjögurra
systra sem ólust upp í Reykjavík
en eru nú allar látnar. Þær voru
samrýndar systurnar og Árni
Jónsson afi minn orti um þær:
Anna heitir ágætt víf,
Unnur laus við tildur.
Beggja systir brosleit Hlíf,
blíð og góð Ragnhildur.
Ragna giftist Garðari Ólafssyni
og bjuggu þau nokkur ár á vest-
urströnd Ameríku, þar sem Garð-
ar lærði tannlækningar. Ragna
dreif sig í tannfræðinám og einnig
píanónám, en hún var mjög söng-
elsk og músíkölsk. Heimkomin
fluttu þau ásamt syni sínum Oddi
til Keflavíkur, en þar rak Garðar
tannlæknastofu til margra ára.
Sunnudagsbíltúrar fjölskyldunn-
ar lágu því oft til Keflavíkur í kaffi
og spjall um heima og geima – og
svo var sungið og spilað. Þessar
heimsóknir til Keflavíkur voru
okkur systurbörnunum mikið æv-
intýri. Þau hjón voru gestrisin og
glaðlynd og höfðingjar heim að
sækja. Því miður lést Garðar á
miðjum aldri en Ragna og Oddur,
sem er flugvirki að mennt, fluttu
aftur til Reykjavíkur í húsið sitt á
Barónsstíg 33, og bjó Ragna þar
ásamt þeim Oddi og Racel Eiríks-
son konu hans þar til hún fluttist á
Hrafnistu, þá komin hátt á tíræð-
isaldur.
Rögnu leið vel á Hrafnistu, en
fannst vistmenn þar vera dálítið
gamlir, þótt hún væri oft miklu
eldri en margir þeirra. Við systra-
börnin og niðjar heimsóttum hana
oft, drukkum með henni kaffi í
matsalnum á Hrafnistu og minnt-
umst gamalla daga. Þá var Ragna
í essinu sínu og mundi oft ýmsa
atburði miklu betur en við sem
yngri vorum. Þessar heimsóknir
voru hennar gleðistundir og því
hrapallegt að Covid-veiran skyldi
takmarka heimsóknir okkar til
hennar svo lengi. Við kveðjum
Rögnu okkar með söknuði en vit-
um að hennar bíða vinir í varpa.
Hlíf Samúelsdóttir.
Sagt er að hláturinn lengi lífið
og það á vel við þegar hugsað er
um Rögnu „töntu“ sem náði þeim
merka áfanga að verða 100½ árs
gömul. Hún var skemmtilegasta
manneskja sem ég veit um, alltaf
svo kát og lífsglöð.
Með Rögnu genginni skilur við
heil kynslóð í fjölskyldunni. Hún
var yngst fjögurra systra þar sem
amma mín Anna var elst. Ragna
mundi tímana tvenna og kunni
ógrynni af skemmtilegum sögum,
t.d. af því er rafmagnið kom til
Reykjavíkur og var leitt í hús
þeirra á Njálsgötu. Þá stóð hún
við slökkvarann og fiktaði upp og
niður, upp og niður, þvílíkir
galdrar – þangað til hún var
skömmuð! Og sagan þegar ná-
grannarnir voru allt í einu komnir
með heilan karlakór í heimsókn
og hún lagðist forviða að veggn-
um til að hlusta. Nágrannarnir
höfðu keypt sér útvarp en hún
hafði aldrei heyrt slíkan grip!
Ragna varð heimsborgari ung
að árum og sumt úr lífshlaupi
hennar var eins og í bíómynd.
Hún flaug t.d. með herflugvél frá
Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni,
fyrst til New York og svo eftir
krókaflugleiðum yfir Bandaríkin
til San Francisco, þar sem maður
hennar, Garðar, stundaði nám í
tannlækningum. San Francisco
er mjög hæðótt borg og gatan
sem þau bjuggu við var svo brött
að tanta varð að fara úr háhæluðu
skónum til að geta gengið hana
upp og niður.
Mínar fyrstu minningar um
Rögnu tengjast ævintýralegu
húsi þeirra hjóna í Keflavík, með
stærstu stofu sem ég hafði séð.
Þar var stór arinn og físibelgur,
bob-spil, eldhús með skínandi
litlum koparpottum, þjóðbún-
ingadúkkur frá Spáni og Andrés-
blöð í hundraðavís undir stigan-
um. Í minningum mínum var
þetta hús alltaf fullt af fólki og
gleðin við völd, hlátur og tónlist.
Ekki skemmdi fyrir að í þessum
veislum hitti ég líka Elísabetu
frænku og við tvær borðuðum
bara súkkulaði og fullt af því.
Tanta kallaði okkur alltaf súkku-
laðipíurnar upp frá því.
Eftir að Ragna flutti á Baróns-
stíginn var fátt betra en fá að fara
í heimsókn, sem ég gerði oft á
föstudögum. Fyrst fékk ég eitt-
hvað gott í eldhúsinu hjá töntu og
kók í gleri, svo mátti ég horfa á
vídeómynd, en í þá daga áttu ekki
allir vídeótæki. Tanta var alltaf
með fullt af bíómyndum frá Árna
frænda og ég vissi ekkert
skemmtilegra en eyða deginum
hjá henni. Oft sungum við líka og
spiluðum saman en Ragna hafði
ofsalega gaman af tónlist og spil-
aði sjálf á gítar og píanó og söng
með.
Samverustundirnar með
Rögnu frænku voru öllum í fjöl-
skyldunni dýrmætar. Börnin mín
elskuðu að hitta hana enda ekki
annað hægt, hún var yndisleg
manneskja og þvílík fyrirmynd
okkur öllum. Það sást glöggt í vor
hversu margir elskuðu Rögnu
þegar fjöldinn allur af fjölskyldu
og vinum safnaðist saman í garð-
inum á Hrafnistu og hélt henni
100 ára afmælisveislu þar sem
söngur og gleði var í fyrirrúmi og
hún dansandi 100 ára á svölunum
fyrir ofan okkur.
Mikið held ég að það sé
skemmtilegra í himnaríki núna
þegar Ragna tanta er mætt spil-
andi og syngjandi Tondeleyó!
Eftir sitjum við og yljum okkur
við glettna brosið og allar minn-
ingarnar. Blessuð sé minning
bestu töntu í heimi.
Anna Rún Atladóttir.
Ragnhildur Árnadóttir er látin,
Hún andaðist að Hrafnistu Laug-
arás laugardaginn 5. desember sl.
Ragna „tanta“ eins og hún var
oft kölluð fæddist 22. maí 1920,
þannig að hún var rúmlega 100
ára þegar kallið kom. Ég sagði oft
við hana Ragna þú verður 100 ára,
þetta sagði ég í mörg ár, en alltaf
kom svarið frá henni nei, nei ég er
farin að gleyma og er oft svo lasin.
Árin liðu og það varð úr að
Ragna varð 100 ára 20. maí sl. Ég
sagði við hana deginum áður en
stóri dagurinn rann upp, þarna
sérðu nú ert þú búin að ná þessum
merka áfanga sem ég hef alltaf
verið að tala um að þú myndir ná,
en þá sagðir þú mér „dagurinn
minn er nú ekki kominn“. En
hann kom daginn eftir.
Ragna frænka mín var dóttir
Branddísar Guðmundsdóttur og
Árna Jónssonar, sem bjuggu
fyrst að Njálsgötu 45 og lengi svo
að Þverholti 3, Ragna var yngst
fjögurra systra sinna. Elst var
Anna sem lést 93 ára, Hlíf sem
lést ung að árum, móðir mín Unn-
ur sem lést 64 ára og svo Ragna
sem lést 100 ára eins og fyrr seg-
ir.
Ragna vann ýmis störf í
Reykjavík á sínum yngri árum, en
hún hitti svo verðandi eiginmann
sinn, Garðar Ólafsson, ung eða
um tvítugt. Garðar ákvað að læra
til tannlæknis og fór utan í nám til
San Francisco og síðan til Port-
lands í Kaliforníu. Ári seinna
ákvað Ragna að fara til hans og
flaug utan með herflugvél frá
Reykjavík til New York. Man að
hún talaði um að flugið hefði verið
ansi langt eða um 15 tímar. Þetta
var í lok stríðsins 1945. Síðan var
annað eins eftir til Kaliforníu.
Að námi loknu var ferðast um
Bandaríkin og ekið um mörg ríki,
en flogið svo heim til Íslands. Það
varð úr að Garðar fékk úthlutun
til að opna tannlæknastofu í
Keflavík eftir heimkomuna. Þau
voru mjög ánægð í Keflavík og
kynntust fljótt mörgu fólki, þar á
meðal tengdaforeldrum mínum,
Elísabetu Ásberg og Birni Snæ-
björnssyni. Einnig móður Elísa-
betar, Guðnýju Ásberg, og Eyjólfi
Ásberg, miklum athafnamanni í
Keflavik. Oft fóru mínir foreldrar,
Unnur Árnadóttir og Samúel
Torfason, ásamt okkur systkinin-
um í heimsókn til Keflavíkur og
þar hitti ég fyrst í boði hjá Rögnu
og Garðari Guðnýju Ásberg yngri
sem varð svo konan mín seinna
meir. En svona eiga hlutirnir að
gerast. Ragna og Garðar áttu
einn son, Odd Garðarsson, sem
hefur aldeilis verið mömmu sinni
mikill styrkur í gegnum árin og
sérstaklega eftir að Garðar lést
17. febrúar 1978. Hann var boðinn
og búinn að gera allt sem þurfti á
heimilinu.
Síðar kynntist Oddur sinni
konu, Racel Eiríksson, sem hefur
staðið eins og klettur við hlið
hans. Racel var dóttir Ólafs Ei-
ríkssonar sem einnig var á Hrafn-
istu og lést 20 dögum á undan
Rögnu.
Við Guðný og okkar fjölskylda
viljum að lokum þakka Rögnu alla
samleiðina í gegnum öll árin en
hún var mikið með okkur og sér-
staklega með Guðnýju, bæði í
Keflavik og erlendis, bæði á Spáni
og Los Angeles.
Við fjölskyldan viljum senda til
Odds og Racelar okkar dýpstu
samúðarkveðjur, Ragna „tanta“
var sérstök kona og mikill vinur
vina sinna. Guð blessi þig, elsku
Ragna mín.
Árni og Guðný Ásberg.
Í dag kveð ég elskulegu
frænku mína, hana Töntu eins og
við fjölskyldan kölluðum hana
alltaf. Mörg tár hafa runnið niður
kinnarnar seinustu daga en eftir
sitja allar fallegu minningarnar
sem mér þykir óendanlega vænt
um. Daginn sem ég fæddist var
Árni bróðir í pössun hjá Töntu
frænku og var því fyrsta húsið
sem ég fór nýfædd í húsið hennar
Töntu. Við töluðum oft um að það
var hennar hús sem ég fór allra
fyrst í og eftir það urðu heimsókn-
irnar margar til Töntu minnar á
Barónsstígnum. Þegar ég var á
barnsaldri fannst mér ekkert
skemmtilegra en að fara til henn-
ar Töntu minnar og tók hún alltaf
á móti mér með bjartasta brosinu
sínu og það var ekki sjaldan sem
Tanta dansaði. Hún gaf mér Góu-
kúlur og perubrjóstsykur sem ég
vissi af í kommóðunni í herberg-
inu hjá henni, hún var alltaf með
nammi þar. Það er svo yndislegt
að hugsa til baka þegar ég var í
heimsóknum hjá henni og sér-
staklega þegar við spiluðum á pí-
anóið hennar og ekki má gleyma
hennar heimsins bestu pönnukök-
um. Tanta frænka var einstök og
hef ég oft talað um frænku mína
sem bjó ein á Barónsstíg ekki
nema 98 ára gömul. Ég er mjög
þakklát að hafa fengið að halda
upp á 100 ára afmælið með henni í
maí síðastliðnum. En nú er frekar
skrítin tilhugsun að geta ekki kíkt
í heimsókn til hennar, fengið að
knúsa hana og sjá mögulega
nokkur dansspor. Mér finnst erf-
itt og sárt að kveðja þig, elsku
Tanta mín, en ég er þakklát fyrir
þann tíma sem við fengum saman
og allar minningarnar. Allar
skemmtilegu og dásamlegu minn-
ingarnar munu lifa í hjarta mínu
alltaf.
Þín frænka,
Guðný Ásberg Alfreðsdóttir.
Í dag kveðjum við elsku Töntu
okkar.
Ég man eftir jólaboðunum hjá
Töntu og Garðari. Þau voru nokk-
ur og það var sungið við píanóið
og arineldurinn í stofunni er
sterkur í minningunni. Tanta
gekk mér í ömmustað en ég var of
ungur þegar ömmur mínar
kvöddu til að muna eftir þeim.
Tanta var alltaf hress og
skemmtileg og sendi frá sér já-
kvæða strauma með lífsgleði
sinni.
Tanta passaði alltaf upp á að ég
fengi minn part af lagtertunni frá
tengdamóður sinni Hólmfríði sem
sá um baksturinn á þeim tíma.
Hún bakaði líka alltaf pönnu-
kökur fyrir Árna son okkar og eft-
ir að Árni kvaddi okkur hélt hún
hefðinni áfram og bakaði fyrir
okkur á afmælisdegi hans og þótti
okkur alltaf mjög vænt um það.
Tanta kom með í margar Spán-
arferðir með okkur fjölskyldunni.
Hún hjálpaði mér að læra þeg-
ar ég var strákur og kenndi mér
mikið.
Í seinni tíð var Tanta alltaf stór
partur af okkar lífi og var
langamma barna okkar. Hún
Tanta passaði Árna son okkar á
meðan Guðný dóttir okkar fædd-
ist og var fyrsta stoppið með ný-
fædda Guðnýju auðvitað hjá
Töntu.
Hún var alltaf stór hluti af okk-
ar fjölskyldu og kom í mörg boðin.
Tanta hélt góðum tengslum við
fólk og þótti almennt vænt um
fólk.
Það er mér minnisstætt þegar
við kíktum í eitt skipti í heimsókn
til hennar á Barónsstíginn að
stofuborðið var uppdekkað með
fínasta matarstellinu þar sem
börn vinafólks Töntu og Garðars
voru væntanleg í matarboð frá
Ameríku.
Þrátt fyrir háan aldur var koll-
urinn ávallt í toppstandi og var
hún mjög minnisgóð. Ég held að
það hafi verið vegna þess að hún
ræktaði hugann með krossgátum
en ég á ófáar minningar af henni
vera að ráða krossgátur.
Jesús góði Guð var orðatiltæki
sem hún notaði þegar hún var
hissa og gerðist það oft.
Elsku Tanta, við munum sakna
þín og við biðjum algóðan Guð að
geyma þig.
Alfreð Ásberg
og Magnea.
Ragnhildur
Árnadóttir
Innilegar þakkir fyrir ómetanlegan stuðning
og hlýju við andlát og útför ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
HALLDÓRS ÞÓRS GRÖNVOLD,
aðstoðarframkvæmdastjóra ASÍ
Greta Baldursdóttir
Eva Halldórsdóttir Björgvin Ingi Ólafsson
Arnar Halldórsson
og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HELENA BJARGEY
SIGTRYGGSDÓTTIR,
Hull, Englandi,
lést 26. október á Hull Royal Infirmary Hospital.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 18.
desember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna geta aðeins nánustu
aðstandendur verið viðstaddir.
Athöfninni verður streymt á slóðinni https://www.youtube.com/
watch?v=FEaUDuHNKKM&feature;=youtu.be
Hlekkinn má einnig nálgast á
https://www.mbl.is/andlat/minningar/
utfarastreymi/
Baldvin Gíslason
Gísli Baldvinsson Ragnheiður Ævarsdóttir
Helena Líndal Baldvinsdóttir Björn Guðmundsson
Hlynur Baldvinsson
barnabörn og langömmubarn
Hugheilar þakkir til allra sem sýndu
fjölskyldunni hlýhug og samkennd við
andlát okkar ástkæra
PÁLMARS VÍGMUNDSSONAR
verkstjóra,
Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ,
áður Árholti.
Sérstakar þakkir til þeirra sem önnuðust Pálmar
í veikindum hans.
Guð blessi ykkur öll.
Ragnheiður Jónasdóttir
Ingi Ragnar Pálmarsson Guðrún Ólafsdóttir
Vígmundur Pálmarsson Anna Hansdóttir
Sigrún Pálmarsdóttir Þröstur Þorgeirsson
og barnabörn
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744