Morgunblaðið - 17.12.2020, Page 67

Morgunblaðið - 17.12.2020, Page 67
DÆGRADVÖL 67 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020 og stofnandi Skólahreysti í Reykja- vík, gift Andrési Guðmundssyni, smið og stofnanda Skólahreysti. 4) Guðmunda Valdís, f. 6.7. 1973, leik- skólaleiðbeinandi í Mosfellsbæ, gift Hreini Smára Sveinssyni rútubíl- stjóra. 5) Helga, f. 23.1. 1978, kenn- ari í Reykjavík, gift Gunnari Jarli Jónssyni kennara. 6) Guðrún, f. 30.12. 1979, bókari í Mosfellsbæ, gift Gunnari Má Gíslasyni prentsmið. Barnabörn Helga eru orðin 21 og barnabarnabörn eru sjö. Systkini Helga eru Axel, f. 8.6. 1922, d. 31.8. 1985, alþingismaður og framkvæmdastjóri í Kópavogi; Guð- rún Helga, f. 14.5. 1921, d. 25.9. 1974, húsfreyja í Reykjavík; Sig- urjón Marteinn, f. 4.12. 1922, d. 25.9. 1974, bílstjóri í Reykjavík; Herdís, f. 29.5. 1937, húsfreyja á Bíldudal og í Hveragerði; Björg, f. 18.9. 1938, d. 10.2. 2014, húsfreyja í Bandaríkjunum og Þóra, f. 18.9. 1938, húsfreyja í Reykjanesbæ. Foreldrar Helga eru hjónin Lára Sigmunda Þórhannesdóttir, f. 30.10. 1897, d. 11.4. 1978, húsfreyja og Jón Helgason, f. 29.11. 1896, d. 31.10. 1974, bóndi. Þau bjuggu í Blöndu- holti í Kjós. Helgi Jónsson Ingibjörg Rósinkranzdóttir Jón Bjarnason prestur, Skarðsþingum á Vogi á Fellsströnd Þóra Benónía Jónsdóttir húsfreyja, Folafæti við Skötufjörð í Ísafj.djúpi Þórhannes Gíslason bóndi, Folafæti við Skötufjörð í Ísafj.djúpi Lára Sigmunda Þórhannesdóttir húsfreyja,Blönduholti Jóhanna Ólafsdóttir húsfreyja, Kirkjuskógi í Miðdölum Gísli Márusson bóndi, Kirkjuskógi í Miðdölum Guðrún Hannesdóttir húsfreyja, Hóli Jón Erlendsson bóndi og vefari á Svarfhóli/ Hóli Guðleif Jónsdóttir húsfreyja, Þyrli og Litla-Sandi Helgi Jónsson bóndi, Þyrli og Litla-Sandi Valgerður Árnadóttir húsfreyja, Sviðsholti á Álftanesi Jón „eldri“ Árnason bóndi og smiður, Sviðsholti á Álftanesi Úr frændgarði Helga Jónssonar Jón Helgason bóndi,Blönduholti Hvítanes Helgi með barnabörnum sínum Bríeti og Hrafni að skoða æskuslóðirnar inná Hvítanesi 2016. „ÉG SKIL… SVO ÞAU FÁ ALLT FLOTTA DÓTIÐ EN ÞÚ FERÐ TÓMHENTUR HEIM.” „ÁTTU HERBERGI MEÐ GÓÐU ÚTSÝNI YFIR BORGINA?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að venjast því að hafa hann heima á daginn. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann LÍSA, ÉG SAMDI LJÓÐ FYRIR ÞIG „50 pund af beikoni ”? „þú ert súrefni lífs míns”? þetta er ekki innkaupalistinn minn ÞÚ HEFUR EKKI GERT ANNAÐ EN AÐ PRJÓNA Í HLJÓÐI SÍÐAN ÉG KOM FRÁ FRAKKLANDI! ERTU REIÐ? EIGUM VIÐ AÐ SPJALLA SAMAN Í NÆÐI? HVERNIG VAR NÆTUR- LÍFIÐ Í PARÍS? EN ÞAÐ MÁ SAMT EKKI VANMETA FRIÐ OG RÓ! Hallmundur Guðmundsson yrkirá Boðnarmiði og kallar „Inn- viðsástandsgreiníngu“: Nú rætt er með heift og hita af helstu miðlafræðíngum. Samkvæmt því vísast þeir vita; er vegakerfið á blæðíngum. Magnús Halldórsson bætti við: Er það gleði allra síst, illa verkuð hjólin. Túrhillurnar tel ég víst, að tæmist fyrir jólin. Helgi Ingólfsson yrkir á Fésbók um ástand hringvegarins: Um landið má geysast á gæðingum, en gerð voru mistök af fræðingum Hér von rís um störf. Já, viðgerða’ er þörf því vegirnir hafa á blæðingum Hallmundur Kristinsson veitti andsvar eins og títt er í þingsölum: „Ég legg það nú ekki í vana minn að skipta mér mikið af annarra kveð- skap, en ég kannast ekki við orða- lagið að hafa á blæðingum. Ég legg þess vegna fram fullfjármagnaða breytingatillögu og vænti þess að hún fái þinglega meðferð“: Á sparnaði gjarnan við græðum, og góða hluti við ræðum. Hér von rís um störf. Já, viðgerða’ er þörf því vegirnir hafa á klæðum. Helgi tók þessum athugasemdum vel og kvað létt að breyta síðustu hendingunni: „því vegirnir þjást nú af blæðingum“ og birti vísuna þann- ig á Boðnarmiði. Ég er gamall orðhákur á Alþingi og vanur andsvörum. Mér finnst það vel standast að segja „að veg- irnir hafi á blæðingum“. Í því er viss skírskotun og léttleiki. Hólmfríður Bjartmarsdóttir á Sandi rifjar upp, að fyrir nokkrum árum „var það atvinna okkar á bænum að safna jurtum til sölu. Eft- irfarandi er síðan“. – „Grös. 1991“: Ef á er svona aðeins blautt út mig gjarna langar Að tína blóðberg bleikt og rautt sem best í rekju angar. Skíni sól á fjörð og fjall ég finn mér gjarna lautu Þá er valið vallhumall sem vont er að tína í blautu. Er gulvíðirinn gulna fer og grös eru úr sér sprottin Ég fer í heiði að finna mér fjallagrös í pottinn Um skilnað Símonar Dalaskálds og Margrétar konu hans orti Jón Jónsson á Gilsbakka: Aldrei betur brugðið var brandi laga skírum en höggva í sundur hneykslunar haft af villidýrum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Það blæðir úr hringveginum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.