Morgunblaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 68
68 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020 England Leicester – Everton................................. 0:2  Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn með Everton. Arsenal – Southampton .......................... 1:1  Rúnar Alex Rúnarsson var varamark- vörður Arsenal. Leeds – Newcastle ................................... 5:2 Liverpool – Tottenham ......................... (1:1) Fulham – Brighton ................................ (0:0) West Ham – Crystal Palace.................. (1:1)  Þremur síðasttöldu leikjunum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. Þýskaland Arminia Bielefeld – Augsburg............... 0:1  Alfreð Finnbogason kom inn á hjá Augs- burg á 59. mínútu. Danmörk Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: SönderjyskE – Lyngby ........................... 2:1  Ísak Óli Ólafsson var ekki í leikmanna- hópi SönderjyskE.  Frederik Schram lék allan leikinn með Lyngby. AGF – Horsens......................................... 1:0  Jón Dagur Þorsteinsson kom inn á sem varamaður hjá AGF á 80. mínútu.  Kjartan Henry Finnbogason lék allan leikinn með Horsens og Ágúst Eðvald Hlynsson lék fyrstu 75 mínúturnar. Meistaradeild kvenna 32ja liða úrslit, seinni leikir: Rosengård – Guria Lanchkhuti........... 10:0  Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik- inn með Rosengård.  Rosengård áfram, 17:0 samanlagt. Chelsea – SL Benfica .............................. 3:0  María Þórisdóttir var varamaður hjá Chelsea og Cloé Lacasse lék allan leikinn með Benfica.  Chelsea áfram, 8:0 samanlagt. Kazygurt – Kharkiv ................................. 1:0  Kazygurt áfram, 2:2 samanlagt. Slavia Prag – Fiorentina.......................... 0:1  Fiorentina áfram, 3:2 samanlagt. París SG – Górnik Leczna ....................... 6:1  PSG áfram, 8:1 samanlagt. Manchester City – Gautaborg ................ 3:0  Manchester City áfram, 5:1 samanlagt. Barcelona – PSV Eindhoven................... 4:1  Barcelona áfram, 8:2 samanlagt. Bayern München – Ajax .......................... 3:0  Bayern áfram, 6:1 samanlagt. Wolfsburg – Spartak Subotica................ 2:0  Wolfsburg áfram, 7:0 samanlagt. Lilleström – Minsk................................... 0:1  Lilleström áfram, 2:1 samanlagt. Fortuna – Pomurje................................... 3:2  Fortuna Hjörring áfram, 6:2 samanlagt. Glasgow City – Sparta Prag.................... 0:1  Sparta áfram, 1:3 samanlagt.  Báðum viðureignum Vålerenga og Bröndby var frestað fram í febrúar. Grikkland AEK Aþena – Olympiacos ...................... 1:1  Ögmundur Kristinsson var varamaður hjá Olympiacos.  Evrópudeildin Olympiacos – Valencia ....................... 85:96  Martin Hermannsson skoraði 7 stig fyrir Valencia og gaf 2 stoðsendingar. Evrópubikarinn Lietkabelis – Andorra......................... 77:69  Haukur Helgi Pálsson skoraði 12 stig, tók 3 fráköst og gaf 1 stoðsendingu fyrir Andorra. Meistaradeild Evrópu Zaragoza – Szombathely.................... 85:76  Tryggvi Snær Hlinason skoraði 12 stig og tók 2 fráköst fyrir Zaragoza.   Knattspyrnudeild Fram hefur áfrýjað til dómstóls ÍSÍ þeim úr- skurði áfrýjunardómstóls KSÍ að vísa frá máli félagsins gegn stjórn KSÍ. Framarar kærðu þá ákvörðun stjórnar KSÍ að láta markatölu skera úr um röð liða eftir að keppni var hætt á Íslandsmótinu 2020 í lok október. Aga- og úr- skurðarnefnd KSÍ vísaði máli Fram frá 16. nóvember en áfrýj- unardómstólinn vísaði því aftur til nefndarinnar til efnislegrar með- ferðar. Nefndin tók málið fyrir 25. nóvember og hafnaði kröfum Fram. Þá fór það aftur fyrir áfrýj- unardómstólinn sem vísaði því frá 9. desember. Yfirlýsingar frá Fram og KSÍ vegna málsins má sjá á mbl.is. Mál Fram til dómstóls ÍSÍ Sundkonan Snæfríður Sól Jórunn- ardóttir tvíbætti í gær Íslandsmet sitt í 200 metra skriðsundi á danska meistaramótinu í 25 metra laug sem fram fer í Helsingör í Dan- mörku. Snæfríður synti á tímanum 1:57,47 mínúta í undanrásum og bætti sitt gamla Íslandsmet um tæpa sekúndu. Í úrslitasundinu kom hún svo í mark á tímanum 1:56,51 mínúta og bætti metið aftur um tæpa sekúndu. Snæfríður varð önnur í 200 metra skriðsundi en hún keppir í 100 metra skriðsundi síðar í dag. Tvíbætti Íslandsmetið Ljósmynd/Simone Castrovillari Skriðsund Snæfríður Sól hefur staðið sig frábærlega í Danmörku. Ómar Ingi Magnússon var óstöðv- andi hjá Magdeburg þegar liðið fékk Erlangen í heimsókn í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Leiknum lauk með tíu marka sigri Magdeburg, 36:26 og skoraði Ómar Ingi ellefu mörk og var markahæsti leikmaður vallarins. Var hann með frábæra skotnýtingu en Ómar átti þrettán skot og gaf auk þess fimm stoðsendingar. Gísli Þorgeir Krist- jánsson, liðsfélagi hans í Magde- burg, skoraði eitt mark og gaf tvær stoðsendingar í leiknum. Magde- burg er með 14 stig í áttunda sæti. Ómar Ingi var óstöðvandi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Markahæstur Ómar Ingi átti bein- an þátt í sextán mörkum. KÖRFUBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Kári Jónsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, gekk á dögunum í raðir spænska félagsins Girona frá uppeldisfélagi sínu Haukum. Dvölin hjá Kára byrjar ekki skemmtilega en kórónuveirunni tókst að skjóta sér niður í leikmannahópi liðsins. „Á mánudaginn fékk ég jákvæða niðurstöðu úr kórónuveiruprófi. Síð- asta laugardag kom í ljós að einn úr liðinu var smitaður og við leikmenn- irnir fórum þá allir í próf á sunnu- daginn. Við vorum þrír sem reynd- umst einnig smitaðir. Við erum því í einangrun og aðrir í liðinu í sóttkví. Þetta er því brösug byrjun en fyrir utan hana líst mér vel á að vera kom- inn aftur út,“ sagði Kári og hljóðið í honum var ágætt þrátt fyrir þessi tíðindi. „Ég var með einkenni í gær og fyrradag [mánudag og þriðjudag] en er betri í dag [í gær]. Bara slappleiki og ekkert alvarleiki. Ég vona að það sé bara búið og mér fannst þetta nokkuð svipað því að fá flensu eins og þetta var í mínu tilfelli,“ útskýrði Kári og næstu leikjum liðsins hefur verið frestað. „Ég fer í annað próf í næstu viku. Væntanlega fljótlega eftir helgi. Ef við fáum allir nei- kvæða niðurstöðu út úr því þá getur liðið farið að æfa saman aftur. Við áttum að spila þrjá leiki á liðlega viku og þeim var öllum frestað. Næsti leikur hjá okkur verður því ekki fyrr en 3. janúar. En það er væntanlega ágætt fyrir okkur því við fáum þá smá tíma til að koma okkur í gírinn.“ Kári er 23 ára gamall og hefur áð- ur reynt fyrir sér í atvinnumennsku. Eftir að Ísland komst í 8-liða úrslit á EM U19 ára liða fékk Kári tækifæri til að fara til Barcelona og leika með varaliði félagsins. Erfið hásin- armeiðsli gerðu það að verkum að Kári fór í aðgerðir á báðum fótum og lék lítið tímabilið 2018-2019. Hann fékk samning haustið 2019 hjá finnska liðinu Helsinki Seagulls en kom heim þegar ljóst var að hann væri ekki orðinn leikfær eftir að- gerðirnar. Tækifæri í allri óvissunni Kári lék síðasta vetur með Hauk- um og var samningsbundinn félag- inu en samkomulag var á milli hans og Hauka að Kári gæti rift samningi ef tilboð bærist að utan. Nýtti hann sér það og var tilkynnt um fé- lagaskiptin 4. desember. „Liðið er virkilega spennandi og er staðsett í skemmtilegri borg. Mér líst einnig vel á leikmannahópinn. Áður en ég tók þessa ákvörðun þá hafði maður ekki gert neitt með liði í langan tíma enda hafði þá verið æf- ingabann á Íslandi í tvo mánuði. Maður vissi heldur ekkert hvað væri framundan á Íslandsmótinu. Svo komu tveir landsleikir um daginn og það verkefni gekk vel. Eftir það fékk ég tilboð og get verið ánægður með það. Þetta var fínt tilboð og ákvað að stökkva á það enda mikil óvissa heima um hvenær deildin hefst á nýjan leik. Ég samdi bara út þetta tímabil en er virkilega spenntur að fá að sýna mig og sanna,“ sagði Kári og hann kannast við leikmenn í lið- inu hjá Girona. Bandaríkjamaðurinn Antonio Hester, sem skoraði 23 stig að meðaltali fyrir Tindastól veturinn 2016-2017, hefur spilað með liðinu. „Í liðinu er leikmaður sem ég spil- aði með hjá Barcelona. Annar sem var hjá Barcelona spilaði með Gi- rona á síðasta tímabili og þá var Ant- onio Hester líka í liðinu. Vel er hald- ið utan um liðið og ég sá ekkert nema jákvætt við þetta. Þegar ég kom út þá sá ég líka að þetta er góð- ur kostur.“ Nafntogaður forseti Forseti félagsins Marc Gasol er einn frægasti íþróttamaður Spánar. Hann lék með Girona á árunum 2006-2008 en hefur allar götur síðan verið í NBA-deildinni. Varð hann meistari með Toronto Raptors 2019 og samdi á dögunum við meist- araliðið Los Angeles Lakers. Marc er bróðir Pau Gasol og þeir bræður hafa orðið heims- og Evrópumeist- arar með spænska landsliðinu. Félagið var endurreist af Marc Gasol og fleirum árið 2014 en eldra félagið hafði verið stofnað árið 1962. Hét það CB Girona en félagið heitir nú Basquet Girona. Mikil hefð er því fyrir íþróttinni í borginni en eldra félagið dró verulega úr starfssem- inni eftir að hafa lent í fjárhagserf- iðleikum árið 2008. „Liðið er ekki nýtt þannig séð og var á sínum tíma alltaf í efstu deild. Marc Gasol kom fyrst hingað sem unglingur og liðið var mjög gott á þeim tíma. Síðustu ár hefur liðið ver- ið að vinna sig upp og vann c- deildina á síðasta tímabili. Hann hef- ur verið að leggja svolítið í þetta og menn eru að gera spennandi hluti hérna. Liðið spilar í 5 þúsund manna höll og vonandi verður hægt að hleypa fólki á leiki á ný þegar líður á veturinn.“ Ferðabann um helgar Kári reiknar með að spila ýmist sem skotbakvörður eða leikstjórn- andi hjá liðinu. „Ég náði bara þrem- ur til fjórum æfingum áður en ég fór í einangrun og á því eftir að komast betur inn í hlutina. Miðað við sam- tökin við þjálfarann þá mun ég spila sem ás eða tvistur. Leikstjórnandinn er hörkugóður og hefur mikla reynslu úr efstu deild á Spáni. Hann er að eldast og ég gæti þá mögulega verið í þeirri stöðu þegar hann er hvíldur. Ég gæti því kannski átt eftir að spila báðar stöðurnar í vetur.“ Spurður um hvort möguleikar Kára í atvinnumennskunni aukist við það að að hann sé skotbakvörður sem geti komið fram með boltann þegar á þarf að halda segir hann að það geti hjálpað mönnum þegar þeir geta spiilað fleiri en eina stöðu. „Já í rauninni og ég er farinn að sjá það fyrir mér en svo er auðvitað spurning um hvað vantar hverju sinni. Fyrir mér er gott vopn í vopnabúrinu að vera ekki of einhæf- ur leikmaður og geta tekið að sér mismunandi hlutverk. Ég held að það muni bara hjálpa mér.“ Girona er 100 þúsund manna borg í norðurhluta Katalóníu. Kári segir ástandið vegna veirunnar vera nokk- uð erfitt á svæðinu en þó ekki eins og verst gerist á Spáni. „Menn passa sig hérna og allir eru með grímur. Útgöngubann gildir eftir klukkan 22 og ekki er heldur leyfilegt að fara á milli borga um helgar. Þetta hefur ekki mikil áhrif á mig enda fer mað- ur bara í búðina og íþróttahúsið. Leikmenn í liðinu eru skimaðir í hverri viku og stundum oftar,“ sagði Kári Jónsson þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í gær. Brösug byrjun en líst vel á aðstæður hjá Girona  Kári Jónsson er í einangrun á Spáni  Smitaðist af kórónuveirunni Ljósmynd/FIBA Landsleikur Leikirnir í Slóvakíu um daginn reyndust fín auglýsing fyrir Kára sem fékk tilboð í kjölfarið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.