Morgunblaðið - 17.12.2020, Qupperneq 71
MENNING 71
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020
Danska verðlaunakvikmyndinDrykkja hefst á tilvitnun í heim-spekinginn Søren Kierkegaard úrriti hans Annaðhvort – eða: „Hvad
er ungdommen? En drøm … Hvad er kær-
ligheden? Drømmens indhold.“ Við tekur
ærslafullt atriði þar sem danskir táningar
drekka sig fulla og fremja heimskupör undir
taktföstu partípoppi. Norsku unglingaþætt-
irnir Skömm koma upp í hugann, ef þeir
væru Tuborg-auglýsing. Samspil háleitrar til-
vitnunar og unglingsasa er nokkuð lýsandi
fyrir frásögnina sem á eftir fylgir – en hún
færir grunnhyggin viðhorf höfunda sinna eft-
ir fremsta megni inn í menningarlega um-
gjörð.
Drykkja er svolítið eins og sjálfstætt fram-
hald Hangover-myndanna, sett á svið í sögu-
heimi sem á að heita félagslega raunsær.
Fjórir grunnskólakennarar ákveða, í fertugs-
afmæli eins þeirra, að framkvæma „félags-
lega rannsókn“ sem felst í því að hafa ætíð
hálft prómill af vínanda í blóðrásinni.
Prinsippið er sem sé að vera alltaf „léttur“,
drekka aldrei eftir átta á kvöldin og aldrei
um helgar. Þetta byggist á forskrift norska
geðlæknisins Finns Skårderuds og á að veita
mönnum aukið sjálfstraust og næmni í mann-
legum samskiptum. Framgangur tilraunar-
innar er nokkuð augljós – prómillið hækkar
úr hálfu í eitt allt þar til skorður verða loks
engar og markið sett á algleymi. Gott og vel –
ef Drykkja ætti bara að heita barnaleg
gauramynd fyrir fólk sem hefur gaman af
slíku – en verkið biður áhorfandann að taka
sig og hlutskipti persóna sinna alvarlega og
verður fyrir vikið einkar fráhrindandi. Varúð
– spilliefni væntanleg!
Reynt er að ljá kennurunum fjórum sál-
fræðilega dýpt með svipmyndum úr einkalífi
og starfi. Atburðarásin er þó afar ósannfær-
andi og lýsir ekki nokkru sem gæti talist
raunsæislegt og líkist fremur hugarórum
miðaldra manna í forréttindastöðu. Einblínt
er á sögukennarann Martin sem Mads Mikk-
elsen leikur. Martin er ekta karlmaður í krísu
og kunnuglegur úr mörgum íslenskum og
norrænum kvikmyndum. Ungur að árum
þótti hann efnilegur en á lífsleiðinni hefur
hann glatað neistanum – hjónaband hans er
ófarsælt og nemendum þykir hann leiðin-
legur. Tilraunin hefst er hann staupar sig af
Smirnoff-pela á salernisbás skólans, daginn
eftir fertugsafmælið afdrifaríka. Kennslu-
stundirnar upptendrast allar og Martin held-
ur í gríð og erg gátleiki fyrir nemendurna
sem ganga einatt út á þjóðarleiðtoga og
drykkjuvenjur þeirra. „Lífið er ekki allt sem
sýnist krakkar – Hitler var grænmetisæta og
Churchill stútaði koníaksskáp daglega,“ og
fleira gáfulegt í þeim dúr. Tónlistarkennarinn
Peter fær nemendurna til að syngja ætt-
jarðarlög af innlifun með því að láta þau leið-
ast og slökkva ljósin. Íþróttakennarinn
Tommy er með vodka í vatnsbrúsa þegar
hann kennir litlum strákum fótbolta. Nýfeng-
ið hugarástand íþróttakennarans gerir hon-
um kleift að veita dreng sem er gjarnan út
undan eftirtekt (en Tommy kallar hann gler-
augnaglám). Á endanum fer drykkjan úr
böndunum og jafnvel samstarfsfólk þeirra
tekur eftir annarlegu ástandinu. Tilneyddir
sýna handritshöfundar fram á skaðsemi
áfengisneyslu með því kasta Tommy karlin-
um fyrir guðina. Mads okkar Mikkelsen
beygir þó á beinu brautina með viljastyrkinn
að vopni, því hraustir menn hlýða hreystikall-
inu enn.
Enn á ný: miðaldra karlmenn bregðast við
erfiðleikum og/eða leiðindum í lífi sínu með
því að vera fullir. Vera fullir í vinnunni. Vera
fullir með börnum. Peter hvetur kvíðinn nem-
anda til að drekka og útvegar honum vín fyrir
próf – og nemandinn útskrifast. Litli gler-
augnaglámurinn setur rós á kistu Tommys og
fótboltadrengirnir syngja honum ættjarðar-
lag til heiðurs. Þetta var þá ekki svo galið hjá
strákunum eftir allt saman? Að minnsta kosti
voru þeir ekki leiðinlegir. Í raunheimum fara
áfengi og uppeldi ekki saman en handritshöf-
undar Drykkju vilja mála grátt það sem er
svart. Mads fær svo gelluna aftur að lokum
og allir eru glaðir.
Brenglaða orðræðu persónanna um stór-
menni sögunnar og sköpunarkraft vímunnar
er að finna í ranghugmyndum alkóhólistans
101 en hið fáránlega er að höfundarafstaða
Drykkju er samdauna vitleysunni. Með vísun-
um í I Denmark er jeg født og Kierkegaard
telur myndin sér hins vegar trú um að hún sé
margslungin hugleiðing um drykkjumenn-
ingu og þjóðarsál Dana. Þetta gerir hún m.a.
með natúralískri frammistöðu leikaraliðs sem
vinnur að því að vekja samlíðun áhorfenda. Í
raun er líklegt að kveikjan að myndinni hafi
verið leiklistarleg áskorun – áhugi leikstjór-
ans á að sýna leikarana ölvaða á sannfærandi
máta – og sem slík tækniæfing gengur hún
upp. Önnur tæknileg atriði myndarinnar eru
vel útfærð og er unnt að hrósa hljóðblöndun
og notkun grunnrar skerpu í kvikmyndatöku
Grøvlens sem gefur sterka tilfinningu fyrir
sjónarhorni og einangrun persónanna. Verk-
um sem hafa tæknilega burði en eru siðferði-
lega rotin getur verið verst að sitja undir.
Á leikstjóraferli Thomas Vinterbergs hefur
honum farnast best þegar hann velur stuð-
andi umfjöllunarefni, en himinn og haf eru á
milli hinnar sígildu Veislu og umræddrar
kvikmyndar. Stuðið er innantómt – og er
írónískt (og svo danskt) að svolítið hetjuleg
frásögn um strákana „að fá sér“ komi úr
þessu fjárhúsi. Það stingur óneitanlega að
Drykkja er framleidd af Zentropa, stærsta
framleiðslufyrirtæki Norðurlanda, en
hneykslismál varðandi drykkju og kynferðis-
lega áreitni innan vinnustaðarins eru á allra
vitorði. Því þykir mér skortur aðstandenda á
sjálfsvitund yfirþyrmandi en það undraverða
er að umheimurinn gleypir við görótta seiðn-
um. Það hlýtur þó umfram allt að vera til
marks um stjörnukrafta Mikkelsens – að
nokkur danspor nægi til að leiða alþjóðlega
áhorfendur í halarófu niður að Carlsberg-
verksmiðjunni.
Eitthvað er rotið innan Danaveldis
Drykkja Skorturinn á sjálfsvitund er yfirþyrmandi en það „undraverða er að umheimurinn gleypir við þessu,“ skrifar gagnrýnandi meðal annars
um dönsku kvikmyndina Druk sem hreppti Evrópsku kvikmyndaverðlaunin á laugardaginn var sem besta evrópska kvikmyndin.
Bíó Paradís og Laugarásbíó
Drykkja/Druk bmnnn
Leikstjórn: Thomas Vinterberg. Handrit: Thomas
Vinterberg, Tobias Lindholm. Kvikmyndataka:
Sturla Brandth Grøvlen. Aðalleikarar: Mads Mikk-
elsen, Thomas Bo Larsen, Lars Ranthe, Magnus
Millang, Maria Bonnevie, Susse Wold. Danmörk,
Holland, Svíþjóð, 2020.
GUNNAR
RAGNARSSON
KVIKMYNDIR
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FRÁBÆR NÝ JÓLA TEIKNIMYND
JÓLAMYNDIN 2020