Morgunblaðið - 17.12.2020, Síða 72

Morgunblaðið - 17.12.2020, Síða 72
72 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020 FRÍ HEIMSENDING ECCO ELAINE 22.995.- / ST. 36-42 S K Ó V E R S L U N STEINAR WAAGE KRINGLAN - SMÁRALIND VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Staða hans í menningarsögu lands- ins er einstök. Hann tókst á hendur að gefa helstu stofnunum samfélags- ins form á mikilvægum mótunartíma þjóðarinnar í aðdraganda lýðveldis- stofnunarinnar. Það verður aldrei neinn annar sem kemst í sömu spor,“ segir Pétur H. Ármannsson arkitekt um Guðjón Samúelsson sem gegndi stöðu húsameistara ríkisins frá 1920 til dauðadags árið 1950. Pétur er höfundur veglegrar bókar um líf og list Guðjóns sem Hið íslenska bókmenntafélag gefur út. Aðspurður segir Pétur röð atvika hafa orðið til þess að hann réðst í að skrifa bókina sem er rétt tæplega 450 blaðsíður í stóru broti og prýdd fjölda teikninga eftir Guðjón og ljós- mynda eftir ýmsa höfunda, en flest- ar tók Guðmundur Ingólfsson. „Þegar forsvarsmenn hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi viðruðu þá hugmynd við mig fyrir um fimm árum hvort ég væri fáanlegur til að skrifa bók um Guðjón fannst mér það eiginlega vera skylda mín af því að ég hafði þá yfir langt tímabil öðl- ast góða yfirsýn yfir verk hans,“ segir Pétur og bætir við að sér hafi líka þótt bagalegt að ekki væri til aðgengilegt alþýðlegt fræðirit um þennan mikilvæga mann í íslenskri menningar- og þjóðarsögu. Pétur rifjar upp að áhugi hans á Guðjóni hafi kviknað fyrir alvöru árið 1987 í aðdraganda þess að Arki- tektafélagið efndi til sýningar um Guðjón í tilefni þess að öld var liðin frá fæðingu hans. „Ég var í undir- búningshópi fyrir þá sýningu,“ segir Pétur og rifjar upp að í aðdraganda hennar hafi skólaverkefni Guðjóns fundist í kjallara hússins sem hann bjó í við Skólavörðustíg. „Teikning- arnar voru að vísu illa farnar, en varðveita merkilega heimild um handbragð hans og kveiktu fyrst forvitni mína um verk þessa manns,“ segir Pétur og rifjar upp að þegar embætti húsameistara ríkisins var lagt niður 1997 hafi hann tekið þátt í því að flokka teikningasafn embætt- isins fyrir Þjóðskjalasafnið. „Nokkrum árum seinna fékk ég styrk til að vinna skrá yfir verk Guð- jóns út frá þessum teikningunum, sem var ekki áhlaupaverk,“ segir Pétur, en aftast í nýju bókinni má sjá yfirlit yfir 400 byggingar sem vit- að er að hafi verið reistar eftir teikn- ingum Guðjóns, en sjálfur sagðist hann hafa gert uppdrætti að um 800- 900 húsum og má ætla að rúmur helmingur þeirra hafi verið byggður. Vildi verða myndhöggvari Fram kemur í bók Péturs að Guð- jón hafi lifað fyrir starf sitt. Fremur lítið er vitað um persónulegt líf hans þar sem heimildir eru þar af mjög skornum skammti. „Þegar verið er að fjalla um látna einstaklinga mót- ast umfjöllunin eðlilega af þeim heimildum sem til eru,“ segir Pétur og bendir til samanburðar á að for- veri Guðjóns í starfi, Rögnvaldur Ólafsson sem kallaður hefur verið fyrsti íslenski arkitektinn, skildi eft- ir sig mjög mikið af persónulegum bréfum. „Þegar maður les þau fær maður mjög sterka tilfinningu fyrir manninum. Engin slík bréf hafa hins vegar varðveist frá Guðjóni og fyrir vikið er hann fjarlægari. Ég hef hitt fólk sem á minningar um hann. Það lýsir honum sem barngóðum manni með hlýlegt augnaráð sem gaf af sér góða nærveru,“ segir Pétur og tekur fram að það hefði verið fengur að því að hafa aðgang að bréfum frá Guð- jóni meðan hann var við nám í Kaup- mannahöfn og á ferðalögum um heiminn síðar á ferlinum. „Fólk sem þekkti til hans hefur nefnt að hann hafi lifað spennandi lífi og farið víða á ferðalögum sínum erlendis vinnu sinnar vegna. Þar upplifði hann ýmis ævintýri, lenti meðal annars í sjávarháska og var með fyrstu Ís- lendingunum sem fóru í farþega- flugvél. Það hafa hins vegar engar skriflegar heimildir varðveist um þetta.“ Guðjón var fyrstur Íslendinga á 20. öld til að ljúka háskólaprófi í byggingarlist. „Guðjón fluttist með foreldrum sínum til Eyrarbakka þriggja ára gamall þar sem hann bjó fram yfir fermingu og hafði góða möguleika á að þroska námshæfi- leika sína í barnaskólanum á staðn- um sem þótti mjög góður. Hann komst ungur í kynni við listir og lærði að spila á hljóðfæri,“ segir Pét- ur og bendir á að faðir Guðjóns hafi verið fjölhæfur smiður sem smíðaði meðal annars hljóðfæri. „Í viðtali á sextugsafmæli sínu talaði Guðjón um að sig hefði dreymt um að verða myndhöggvari, en foreldrar hans töldu ekki mikla framtíð í því. En af því að faðir hans var byggingar- meistari fannst þeim koma til greina að Guðjón lærði húsagerðarlist. Í Reykjavík lærði hann bæði mynd- skurð og húsasmíði hjá föður sín- um,“ segir Pétur og rifjar upp að Guðjón hafi lokið prófi frá gagn- fræðadeild Menntaskólans í Reykja- vík 1907 og ári síðar haldið til Kaup- mannahafnar til náms í arkitektúr. Settur í alþjóðlegt samhengi „Sama haust og Guðjón fór utan til náms var gerð breyting á skipu- lagi arkitektanáms við Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn, en fram að þeim tíma hafði verið skil- yrði að nemendur hefðu lokið for- námi við danskan tækniskóla. Þann- ig opnaðist fyrir Guðjóni farvegur sem var ekki fyrir hendi þegar Rögnvaldur Ólafsson, forveri hans í starfi, var í sínu námi nokkrum ár- um fyrr. Í náminu fór Guðjón í gegn- um stífa þjálfun í klassískri bygging- arlist, sem enginn Íslendingur hafði gert fyrir hans tíð,“ segir Pétur og rifjar upp að Guðjón hafi staðið sig mjög vel í námi og klárað stóran áfanga vorið 1915. „Þá ákvað hann, eins og alvanalegt var á þessum tíma, að gera tímabundið hlé á námi,“ segir Pétur og rifjar upp að þegar Guðjón sneri heim til Íslands hafi Reykjavíkurbruninn mikli verið nýafstaðinn og Guðjón strax fengið það verkefni að teikna fyrstu húsin sem byggð voru á brunalóðum. Pétur bendir á að Guðjón hafi haft þá sérstöðu umfram aðra tækni- menn, sem lært höfðu húsateikn- ingar fram að þessu, að hann lærði í námi sínu um borgarskipulag. „Hann kynntist þannig nýjustu straumum og stefnum í skipulagi borga,“ segir Pétur og vísar þar til garðbæjarhreyfingarinnar. „Hann er þannig fyrsti fagmaðurinn sem skrifar um borgarskipulag hér- lendis,“ segir Pétur og vísar þar til greinar Guðjóns sem birtist 1912. Pétur bendir á að Guðjón hafi í námi sínu kynnst ýmsum straumum þó áherslan hafi alltaf verið á klass- íska byggingarlist. „Kennarar hans voru fulltrúar fyrir það sem kallað er þjóðleg rómantík í danskri bygg- ingarlist. Utan skólans kynnti hann sér líka það sem var að gerast í evr- ópsku samhengi þar sem Jugend- stíllinn var áberandi. Þetta voru nýir framsæknir straumar,“ segir Pétur og bendir á að Guðjón hafi orðið fyr- ir miklum áhrifum frá finnska arki- tektinum Eliel Saarinen, sem var bæði áhrifamikill og hæfileikaríkur arkitekt. „Eitt af því sem ég er að leitast við í bókinni er að setja Guð- jón í alþjóðlegt samhengi og sýna fram á að hann var ekki bara maður þjóðlegra viðhorfa. Hann var ekki síður maðurinn sem kom með nýjar alþjóðlegar hugmyndir til landsins,“ segir Pétur og bendir á að Guðjón hafi verið samtíðarmaður þeirra arkitekta sem lögðu grunn að hinni módernísku stefnu í sjónlistum, byggingarlist og borgarskipulagi, en þar vísar hann til þeirra Walters Gropius, Ludwigs Mies van der Rohe og Le Corbusier. „Þeir lögðu grunninn að fúnksjón- alismanum, en Guðjón var alla tíð að reyna að sætta nýja strauma við eldri hugmyndir. Öfugt við þá leit hann alla tíð á skreyti sem eðlilegan hluta af byggingarlist og fyrir vikið fékk hann á sig ákveðinn íhalds- stimpil,“ segir Pétur og tekur fram að þó Guðjón hafi verið mótaður af klassísku hefðinni hafi hann engu að síður þróast á mjög skemmtilegan hátt innan hennar og ávallt reynt að sætta ólík sjónarmið. „Hann leit svo á að hið endanlega markmið bygg- ingarlistar væri listrænt. Þó hann hefði fullkomið vald á tækninni og væri mjög hagsýnn og gjarn á að finna nýjar leiðir og aðferðir sem falla undir byggingartækni, var list- in alltaf markmiðið hjá honum. Hann einskorðaði sýn sína ekki við einstaka byggingar heldur sá þær alltaf í samhengi við umhverfi sitt og sem leiðarljós um það hvernig hægt væri að halda áfram og skipuleggja borgina til framtíðar,“ segir Pétur og bendir sem dæmi á að staðarval bygginga hafi ávallt verið mikilvægt í huga Guðjóns. „Hann vildi setja byggingar sínar þannig að þær yrðu kennileiti í borginni og að þær væru á þannig stöðum að þær nytu sín og fegruðu borgina. Þegar hann fékk tækifæri til þess varð það mjög áhrifamikið,“ segir Pétur og bendir í því samhengi á staðsetningu Krists- kirkju á Landakoti fyrir endanum á Ægisgötu, Hallgrímskirkju fyrir endanum á Skólavörðustíg og Akur- eyrarkirkju fyrir ofan kirkjutröpp- urnar sem tengi saman gamla og nýja bæinn. Naut ekki alltaf sannmælis „Guðjón var ekki 19. aldar maður í skipulagsfræðum. Hann er 20. aldar maður að því leyti að hann kynntist í námi sínu þessum framsæknu hug- myndum garðbæjarhreyfingarinnar sem einmitt var andsvarið við hinni óhóflegu þéttbýlismyndun iðnaðar- borganna á 19. öld.“ Aðspurður segist Pétur ekki þekkja dæmi þess frá nágrannalönd- um okkar að einn og sami maður hafi haft jafn afgerandi áhrif á upp- byggingu heils samfélags, en að það eigi sér auðvitað sögulegar skýr- ingar. „Flestar þjóðir eiga sér op- inberar, sögulegar byggingar frá fyrri öldum. Því var ekki til að dreifa á Íslandi og fyrir því eru margar ástæður, þeirra á meðal efna- hagsþróun samfélagsins og erfið- leikar með byggingarefni. Þjóðin hafði ekki burði eða fagþekkingu til að reisa varanlegar byggingar fyrr en um og upp úr aldamótunum 1900,“ segir Pétur og bendir á að það hafi ekki verið fyrr en með til- komu steinsteypunnar sem Íslend- ingar hafi getað byggt varanlegar byggingar á sæmilega hagkvæman hátt. „Að því leyti var Guðjón ein- staklega heppinn,“ segir Pétur og bætir við að þó Guðjón hafi verið heppinn um margt í lífinu hafi það verið ógæfa hans sem listamanns að verk hans hafi verið dregin inn í póli- tíska flokkadrætti. „Guðjóni var mjög vel tekið þegar hann kom heim úr námi. Á hápunkti ferilsins birtist við hann viðtal þar sem farið er um hann mjög lofsam- legum orðum. Menn fögnuðu til- lögum hans að Landspítalanum og teikningar hans voru á sýningum með málverkum Kjarvals og Ás- gríms,“ segir Pétur og rifjar upp að breyting hafi orðið þar á við ríkis- Einstakt og ómetanlegt framlag  Guðjón Samúelsson húsameistari mikilvægur maður í íslenskri sögu Morgunblaðið/Eggert Einstakur „Staða hans í menningarsögu landsins er einstök,“ segir Pétur H. Ármannsson um Guðjón Samúelsson, sem hann hefur ritað veglega bók um. Ljósmynd/Guðmundur Ingólfsson, Ímynd Hátindur Guðjón fann upp hrafntinnu- og silfurbergssteininguna sem notuð var utan á Þjóðleikhúsinu. Hann lést fimm dögum eftir vígslu hússins 1950. Ljósmynd/Guðmundur Ingólfsson, Ímynd Akureyrarkirkja Þótti full-framúr- stefnuleg á sinni tíð. Var vígð 1940. Ljósmynd/Jón Kaldal Klassískur Guðjón Samúelsson var, að sögn Péturs, mótaður af klass- ísku hefðinni, en þróaðist á mjög skemmtilegan hátt innan hennar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.