Morgunblaðið - 17.12.2020, Síða 74

Morgunblaðið - 17.12.2020, Síða 74
74 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2020 Ljósaskiptin eru töfrandistund sem kemur tvisvará sólarhring. Þá tekurmyrkur við af ljósi eða ljós við af myrkri og litur himins- ins er gjarnan blár og bleikur. Ég gekk um iðnaðarsvæði á mörkum borgar og út- hverfis einn dag í desember. Þar voru fáir á ferli nema vinnuvélar og stórir flutn- ingabílar, enda klukkan orðin fjögur eftir hádegi. Þetta var fjórða hlustun mín á plötu sem ég hafði haft í jafnmarga daga til hlustunar. Fyrri hlustanir höfðu átt sér stað í löngu baði, við tiltekt og árla dags með kertaljós og morgunmat. En í þetta sinn kallaði tónlistin á gönguferð og ég hlýddi henni. Það var logn og kalt, pollar frosnir en snjóa hafði leyst. Ég ákvað að stilla gönguferðinni í hóf og ganga nákvæmlega jafnlengi og platan myndi endast í heyrnartól- unum. Ég hafði reyndar ekki hug- mynd um hvort það var hálftími eða tæpir tveir tímar, því fyrri hlustanir höfðu allar haft sömu undarlegu áhrifin á mig. Mér fannst eins og tíminn bæði hægði og hraðaði á sér og áður en ég vissi voru lögin upp urin og þögnin ein eftir. Það eru andstæður sem ríkja og takast á á þessari göróttu plötu, sem er samvinnuverkefni nokkurra töfra- og galdramanna. Hilmar Örn hefur galdrað fram tónseið á fjölda útgefinna platna, fyrir kvik- myndir og fyrir heiðinn sið hjá Ásatrúarfélaginu í gegn um tíðina, og ég vissi fyrir víst að hann myndi setja mark sitt á þessa plötu. Steindór Andersen kvæða- maður er í sínum heimi þarna; heimi hins óræða og ósnertanlega og það er rödd hans og túlkun sem gefur hinn rammíslenska tón. María Huld Markan Sigfúsdóttir er ein af liðsmönnum Amiinu og hefur svo sannarlega galdrað þar, ásamt því að hafa sent frá sér dul- arfulla tónlist um árabil. Það eru svo meðlimir Sigur Rósar sem eru líklega þekktustu seiðmenn Ís- lands á síðari árum, þótt hér stígi þeir stórt skref inn í veröld þess sem er hulið og birtist, eða er til staðar og hverfur. Það eru mótsagnir og átök í öll- um lögunum átta sem finna má á Hrafnagaldri Óðins. Í inngangslag- inu „Prologus“ er enginn söngur og þar er verið að laða hlustendur og lokka inn í heim sem verður til á milli tóna og skynfæra. Í „Alföð- ur orkar“ byrjar Steindór að kveða og tónn hans er dulur og kynngi- magnaður. Þá birtist Jón Þór Birgisson söngvari Sigur Rósar í „Stendur æva“ með sína háu, tæru og björtu röddu sem er full af von, og enn er stillt upp andstæðum. Nær öll lögin notast við stein- hörpu Páls Guðmundssonar með sínum hola en bjarta tóni. Tromm- ur gefa rytma sem hjálpa til við að koma hlustendum í transkennt ástand þegar á það kallar. Strengjasveit, lúðrar, kór, allt er hárnákvæmt og vel valið, og þegar það dugar ekki er seiðurinn færð- ur í tilraunakennda tölvutakta sem einmitt er hin mesta andstæða sem hægt væri að velja mót lífrænum röddum, blæstri, strokum og högg- um. Andstæðukenndar mótsagnir, og mótsagnakenndar andstæður. Ljós sem vinnur myrkur og myrk- ur sem vinnur ljós. Pollar sem frjósa og þiðna. Stúlka sem grætur og hlær. Þegar öllu er lokið, á eftir hinum tæplega 12 mínútna lágstemmda hápunkti „Dagrenningu“, heyrist dynjandi lófaklapp og hlustandinn áttar sig á því að öll platan var tekin upp á tónleikum fyrir fullum sal af áhorfendum. Það virðist næstum óhugsandi að slíkan seið sé hægt að spila bara sísvona og útkoman sé svo hrein og tær, svo drungaleg og dularfull. Þetta eru galdrar, eins og galdrar eiga að vera. Þeir skilja mann eftir með vissu um að maður viti ekki neitt. Sextán árum eftir að þessi galdur var fluttur á sviði er hann svo þrykktur á vínilplötur og hann er hægt að leika í sinni eigin stofu. Svona plötur koma sjaldan út. Galdraseiður ljósaskiptanna Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Seiður Á plötunni sem hér er fjallað um eru upptökur frá flutningi Hrafna- galdurs í París haustið 2004. Flytjendum var vel fagnað í lok tónleikanna. Tilraunakennd klassísk þjóðlagatónlist Sigur Rós/Hilmar Örn Hilmarsson/ María Huld Markan Sigfúsdóttir/ Steindór Andersen – Hrafnagaldur Óðins bbbbb Upptaka af tónleikum sem haldnir voru árið 2004 í París. Aðrir flytjendur eru Páll Guðmundsson, Conservatoire de Paris Orchestra og Schola Cantorum- kórinn. Tónlist eftir Jónsa, Kjartan Sveinsson, Orra Dýrason, Georg Holm, Steindór Andersen, Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur og Hilmar Örn Hilmarsson. Hljómsveitarstjórn í höndum Árna Harðarsonar. Upptöku stjórnaði Kjartan Sveinsson. Útgáfudagur 4. desember 2020. RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR TÓNLIST Jarðskjálftar skekja Reykja-nesskaga og eldfjallafræð-ingurinn Anna Arnarsdóttirstendur í stórræðum við stjórn almannavarna þegar hætta á náttúruhamförum vofir yfir. Auk ólgu í iðrum jarð- ar er einhver innri ólga hjá Önnu og full- komið fjöl- skyldulíf hennar virðist á svipaðri leið og Reykja- nesskaginn; það stefnir í hamfarir. Þannig mætti á afar einfaldan hátt lýsa bókinni Eld- arnir – ástin og aðrar hamfarir eftir Sigríði Hagalín. Sigríður, sem er landsmönnum líklega kunnust fyrir fréttir og fréttalestur, er að gefa út þriðju bók sína og ef fram heldur sem horfir hlýtur hún að hverfa af skjám landsmanna. Ekki það að hún sé slæm í starfi þar, heldur er þessi bók í það minnsta það góð, jafnvel frábær, að meira hlýtur að sjást frá henni á ritvellinum og þar af leiðandi minna á skjánum. Sigríði tekst einstaklega vel að tvinna saman æsispennandi jarðvís- indasöguna og ástarsögu Önnu sem virðist, eftir rúmlega 20 ára samband með sama manninum, loks ástfangin og það af öðrum manni. Á sama tíma og Anna situr fundi almannavarna um jarðskjálfta og eldgos á Reykja- nesi leikur hún tveimur skjöldum í einkalífinu. Annars vegar er það hús- móðirin sem sinnir börnum og manni og hins vegar konan sem upplifir eld- heita ást í fyrsta skipti. Hamfarirnar í vinnunni og einka- lífinu tvinnast saman á einkar áhuga- verðan hátt svo úr verður sprenging á báðum stöðum. Anna reynir sitt besta til að berjast gegn ástinni en rökfesta hennar virðist mega sín lít- ils gegn bálinu sem kviknað hefur. Fróðlegt er að fylgjast með starfi almannavarna í bókinni en oft þurfa vísindamennirnir, Anna þeirra á meðal, að standa í stappi við hags- munaaðila sem hafa annað sjónar- horn á það sem rætt er. Persónusköpun og heimspekilegar pælingar höfundar eru gríðarlega sterkar. Öll púslin virðast falla á rétta staði í skrifum Sigríðar en sag- an sjálf er þannig að ekki er hægt að leggja bókina frá sér en samt vill maður á sama tíma stundum ekki lesa lengra því ljóst er að ekki mun allt enda vel. Eldarnir er spennusaga, ástarsaga og harmsaga. Hún er algjörlega frá- bær þótt óskandi sé að Reykjanesið fari ekki að hristast og skjálfa af jafn miklum krafti og í bókinni. Oft er sagt „þessa bók ættirðu ekki að láta framhjá þér fara“ og þá fussar und- irritaður en þarf nú að éta ofan í sig allt fuss því það má nánast segja að Eldarnir séu skyldulesning. Nema kannski fyrir þá sem eru mjög jarð- hræringahræddir. Ólga í einkalífi og iðrum jarðar Skáldsaga Eldarnir bbbbb Eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur. Benedikt 2020. Innb., 288 bls. JÓHANN ÓLAFSSON BÆKUR Höfundurinn „Eldarnir er spennusaga, ástarsaga og harmsaga. Hún er algjörlega frábær,“ skrifar gagnrýnandi um skáld- sögu Sigríðar Hagalín Björnsdóttur. Engin jogging jól í ár STOFNAÐ 1953 Við hreinsum sparifötin Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380 Hin árlegu bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana voru af- hent í Kiljunni á RÚV í gærkvöldi. Íslensk skáldverk 1. Snerting eftir Ólaf Jóhann Ólafss. 2. Herbergi í öðrum heimi eftir Maríu Elísabetu Bragadóttur 3. Dauði skógar eftir Jónas Reyni Gunnarsson Ljóðabækur 1. Sonur grafarans eftir Brynjólf Þorsteinsson 2. Taugaboð á háspennulínu eftir Arndísi Lóu Magnúsdóttur 3. Við skjótum títuprjónum eftir Hallgrím Helgason Ævisögur 1. Berskjaldaður eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur 2. Herra Hnetusmjör eftir Sóla Hólm 3. Káinn eftir Jón Hjaltason Íslenskar ungmennabækur 1. Skógurinn eftir Hildi Knútsdóttur 2. Vampírur, vesen og annað tilfall- andi eftir Rut Guðnadóttur 3. Dóttir hafsins eftir Kristínu Björgu Sigurvinsdóttur Íslenskar barnabækur 1. Grísafjörður eftir Lóu Hlín Hjálm- týsdóttur 2. Íslandsdætur eftir Nínu Björk Jónsdóttur 3. Herra Bóbó, Amelía og ættbrókin eftir Yrsu Sigurðardóttur Fræðibækur/Handbækur 1. Konur sem kjósa eftir Erlu Huldu Halldórsdóttur, Kristínu Svövu Tóm- asdóttur, Ragnheiði Kristjánsdóttur og Þorgerði H. Þorvaldsdóttur 2. Spænska veikin eftir Gunnar Þór Bjarnason 3. Fuglinn sem gat ekki flogið eftir Gísla Pálsson Þýdd skáldverk 1. Beðið eftir barbörum eftir J.M. Coetzee 2. Litla land eftir Gäel Faye 3. Sumarbókin eftir Tove Jansson Þýddar barnabækur 1. Múmínálfarnir stórbók 3 eftir Tove Jansson 2. Ísskrímslið eftir David Walliams 3. Þar sem óhemjurnar eru eftir Maurice Sendak Besta bókarkápan 1. Blóðberg eftir Alexöndru Buhl 2. Konur sem kjósa eftir Snæfríði Þorsteins 3. Herbergi í öðrum heimi eftir Halla Civelek Snerting besta íslenska skáldverkið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.