Morgunblaðið - 17.12.2020, Qupperneq 84
go
crazy
Fimmtudag - mánudags
17.-21. desember
aföllumvörum*
25%
Sparadu-
*20% afsláttur af sérpöntunum.
Gildir ekki um vörur á áður niðursettu verði.
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
Breyttur afgreiðslutími í desember.
Virkir dagar 11-20, Helgar 12-20
40%
af jólavörum til jóla
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Raufarhöfn á Melrakkasléttu er
nyrsta kauptún landsins, var annar
helsti síldveiðibærinn á eftir Siglu-
firði fyrir miðja 20. öld og einn mik-
ilvægasti söltunarstaðurinn á sjö-
unda áratugnum. Þar á Hólmsteinn
Björnsson rætur, sem hann vill hlúa
að. „Við höfum tekið að okkur nokk-
ur samfélagsverkefni í skjóli þess að
okkur hefur gengið vel,“ segir hann
lítillátur.
Hólmsteinn Helgason, heiðurs-
borgari Raufarhafnar og afi nafna
síns, stofnaði samnefnt útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtæki á sjötta ára-
tugnum og er það grunnur rekstrar
afabarnanna fimm og tveggja dætra
látinnar systur. „Við erum með
þokkalegar aflaheimildir og gerum
út tvær trillur, vorum líka í fisk-
verkun um tíma en seljum nú fiskinn
að mestu leyti slægðan og flokkaðan
frá okkur,“ segir Hólmsteinn, fram-
kvæmdastjóri HH ehf. og stýrimað-
ur. Hann rak frystihús útgerðar-
félagsins Jökuls í sjö ár og í 20 ár var
hann framkvæmdastjóri Ísfells, sem
er eitt stærsta fyrirtæki í sölu veið-
arfæra á Íslandi, en bræðurnir
stofnuðu það 1992. Hólmsteinn lét af
störfum sem framkvæmdastjóri Ís-
fells í lok árs 2011 og seldi jafnframt
Pétri, bróður sínum, sinn hlut, en
hefur sinnt málefnum fjölskyldu-
fyrirtækisins Hólmsteins Helgason-
ar ehf. frá þeim tíma.
Uppbygging
Eina fjölbýlishúsið á Raufarhöfn
var illa farið þegar eigendur HH
keyptu það 2016 og byrjuðu að gera
það upp. „Allar 11 íbúðirnar eru til-
búnar og sumar hafa reyndar verið í
leigu á þriðja ár, en ætli við ljúkum
ekki lóðarframkvæmdum í vor.“
Hótel Norðurljós við höfnina er jafn-
framt í eigu fyrirtækisins, en það var
byggt sem verbúð fyrir stúlkur í
síldarsöltun hjá stöðinni Óðni á
Óðinsplani fyrir yfir 60 árum. „Við
urðum meðeigendur fyrir um fjórum
árum og eigum það nú alfarið.“ Lítið
líf hafi verið þar í ár vegna kórónu-
veirufaraldursins, en tíminn hafi
verið nýttur til þess að laga og bæta
innviðina. Jafnframt hafi verið boðið
upp á heimsendingarþjónustu á mat
og skotið skjólshúsi yfir menn sem
þjónusta ýmis rekstrarfyrirtæki í
bænum. „Í raun er lokað enda engir
ferðamenn, en við sinnum heima-
fólkinu eftir þörfum.“
Raufarhöfn hefur verið í hópi
„brothættra“ byggða, en Hólm-
steinn vill snúa vörn í sókn og með
það í huga hafi þau keypt blokkina
og hótelið. Útgerð hefur verið und-
irstaða atvinnu á staðnum og hann
segir mikilvægt að halda í horfinu í
sjávarútveginum en annað þurfi að
koma til. Sjávarútvegsfyrirtækið
GPG Seafood sé stærsta fyrirtækið í
bænum og með myndarlegan rekst-
ur, en vöxturinn í plássinu verði að
byggjast á ferðamennsku. „Heim-
skautsgerðið er algjör galdur og
með hótelinu og blokkinni viljum við
tryggja ákveðið framboð á íbúðum
og gistimöguleikum.“ Hólmsteinn
segist hafa trú á því að ferðamenn
sæki í auknum mæli á afskekktari
staði. „Þetta er mitt líf og yndi
ásamt fjölskyldunni og ég held að
ónumin lönd í þessu samhengi séu
framtíðin fyrir okkar stað.“
Raufarhöfn á kortinu
Ljósmyndir/Gunnar Páll Baldursson
Veiðar Hólmsteinn Björnsson er á heimavelli í sjávarútvegi.
Hólmsteinn Björnsson telur að ferðamenn sæki í auknum
mæli á afskekktari staði og vöxtur byggist á ferðamennsku
Uppbygging Eigendur HH hafa gert upp eina fjölbýlishúsið á Raufarhöfn.
Jólaævintýri Þorra
og Þuru nefnist
jólasýning fyrir
fjölskyldur sem
sýnd verður í
Tjarnarbíói um
komandi helgi kl.
13 og 15 bæði
laugardag og
sunnudag.
Í sýningunni eru
Þorra og Þura beð-
in að passa mikil-
vægan jólakristal,
sem er uppspretta
allrar jólagleði í
öllum heiminum. Þau lenda í ákveðnum hremmingum,
en allt fer þó vel að lokum. Sýningin er um 45 mínútur
að lengd. Vegna samkomutakmarkana er aðeins rúm
fyrir 50 fullorðna áhorfendur og 100 börn í salnum.
Jólaþætti Þorra og Þuru frá 2018 og 2019 má sjá í Sarpi
RÚV, en von er á nýjum þáttum á RÚV í vor.
Þorri og Þura sýna í Tjarnarbíói
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 352. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Á mánudaginn fékk ég jákvæða niðurstöðu úr kór-
ónuveiruprófi. Síðasta laugardag kom í ljós að einn úr
liðinu var smitaður og við leikmennirnir fórum þá allir í
próf á sunnudaginn. Við vorum þrír sem reyndumst
einnig smitaðir. Við erum því í einangrun og aðrir í lið-
inu í sóttkví. Þetta er því brösug byrjun en fyrir utan
hana líst mér vel á að vera kominn aftur út,“ segir Kári
Jónsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, meðal ann-
ars í samtali við Morgunblaðið í dag. Í byrjun desember
samdi hann við spænska liðið Girona. »69
Kórónuveiran setur strik í reikning-
inn hjá Kára Jónssyni á Spáni
ÍÞRÓTTIR MENNING