Morgunblaðið - 18.12.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.12.2020, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2020 Íslensk hönnun í aldanna rás Sjón er sögu ríkari Gullkistan Frakkastíg 10/ sími 551-3160 www.thjodbuningasilfur.is Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Skruðningar í fjallshlíðum gefa góða mynd af þeirri ógn sem íbúum Seyðisfjarðar stafar af frekari skriðuföllum á svæðinu. Ekki kom til frekari rýmingar á svæðinu í gær en rigning var látlaus allan daginn. Úr hlíðum ofan við byggð mátti sjá sístreymandi vatnsflauminn skríða niður fjallið og voru vinnuvélar að störfum í allan gærdag til þess að beina vatninu í nýja farvegi. Á bilinu 120-130 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Guðjón Már Jónsson, fulltrúi almannavarna hjá björg- unarsveitinni Ísólfi, segir að fátt sé að gera annað en að bíða og vona að rigningunni linni. „Það er ekki oft sem maður vonast eftir því að það fari að snjóa. En það er núna,“ segir Guðjón. Dælt tíu sinnum úr kjallaranum Nokkuð tjón hefur orðið á húseignum en þeir sem Morgunblaðið ræddi við í gær létu engan bilbug á sér finna. Sá sem varð fyrir hvað mesta tjóninu var Davíð Kristinsson, björgunarsveitarmaður og hóteleigandi. Skriða staðnæmdist við hús hans og fjölskyldunnar í hlíð- inni og hefur hann þurft að dæla tíu sinnum úr kjallara húsnæðisins. Spurður út í tjónið segist hann ekki vera kominn með yfirsýn yfir það. „Ég er enginn bygginga- verkfræðingur, ég er bara maður í stígvélum og geng um og reyni að hjálpa. Veit ekkert um hvað er skemmt og hvað er hægt að þurrka og redda.“ Spurður út í tjónið segist hann ekki vera kominn með yf- irsýn yfir það. „Ég er enginn byggingaverkfræðingur, ég er bara maður í stígvélum og geng um og reyni að hjálpa. Veit ekkert um hvað er skemmt og hvað er hægt að þurrka og redda,“ segir Davíð. Bubbasafnið ónýtt Hann nefnir þó vínilplöturnar sínar, sem hafi farið illa út úr lekanum. „Þær virðast vera látnar. Þó að það væri búið að gefa út að vínilplötur væru ennþá á lífi, þá eru þær orðn- ar blautar og ógeðslegar. Þegar ég horfi á þær eru þær all- ar ónýtar. Ég sé til dæmis Bubbasafnið mitt hérna. Það er allt áritað frá vini mínum. Ég á eftir að gráta það lengi.“ Ógn stafar af frekari skriðuföllum  Á bilinu 120-130 manns hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín á Seyðisfirði  Vonast eftir snjókomu Morgunblaðið/Eggert Seyðisfjörður Ástandið hefur haft gríðarleg áhrif á mannlífið á Seyðisfirði en nokkurt tjón hefur orðið á eignum vegna aurskriða. Aurskriður á Seyðisfirði Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Jens Hilmarsson, varðstjóri hjá lög- reglunni á Austurlandi, hefur áhyggjur af því að upp komi kór- ónuveirusmit á Seyðisfirði á sama tíma og bæjarbúar takast á við vandamál tengd aurskriðunum sem hafa fallið í bænum. Í tilkynningu í gær var fólk ein- mitt beðið að gæta að sér. „Við höfum verið rosalega heppin hér á Austurlandi að vera smitlág,“ segir Jens og bætir við að íbúar hafi passað sig mjög vel í faraldrinum. Núna reyni aftur á móti enn frekar á að fólk fari varlega þegar fólk er í nánari samskiptum, fari inn á hjálp- armiðstöðvar og snerti jafnvel sömu kaffikönnurnar. „Einn smitaður í svona umhverfi getur sett allt á hliðina,“ segir hann. Bæjarbragurinn hefur riðlast Jens hvetur fólk sem býr ekki á svæðinu og á ekki brýnt erindi þangað að fresta því einhverja daga að heimsækja bæinn „og gefa okkur séns á að komast í gegnum þetta erfiða verkefni og ná aftur áttum“. Hann heldur áfram og segir bæj- arbraginn hafa riðlast mikið. „Ég veit að það er fullt af fólki sem á hér húseignir sem ekki býr hérna, sem hefur áhyggjur af sínum hús- eignum, sem er mjög skiljanlegt.“ Lögreglan ætlar að bregðast við þeim fyrirspurnum sem hafa komið og kanna eignirnar. Eigendurnir eru beðnir að vera í sambandi við 112 eða björgunarsveitina Ísólf og láta vita af eignum sínum. „Við för- um og skoðum þær fyrir viðkom- andi einstaklinga miklu frekar en að fá fólk austur ofan í erfiðar að- stæður hérna á Seyðisfirði. Þær verða erfiðar á meðan þetta rign- ingartímabil stendur yfir,“ segir varðstjórinn. Fólk sem býr á rýmingarsvæðinu í bænum hefur aftur á móti fengið grænt ljós á að huga að húsum sín- um og eigum. Morgunblaðið/Eggert Seyðisfjörður Jens Hilmarsson varðstjóri hefur áhyggjur af gestakomum í bænum og heimsóknum fjölmiðla. Fólk fari ekki austur í erf- iðar aðstæður á Seyðisfirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.