Morgunblaðið - 18.12.2020, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2020
Jónína Benedikts-
dóttir íþróttafræð-
ingur og frumkvöðull
varð bráðkvödd á
heimili sínu í Hvera-
gerði sl. miðvikudag,
63 ára að aldri.
Jónína fæddist á
Akureyri 26. mars
1957. Foreldrar henn-
ar voru Ásta Þorkels-
dóttir Ottesen sjúkra-
liði og Benedikt
Ingvar Helgason tón-
menntakennari.
Jónína lauk prófi í
íþróttafræði frá
McGill-háskóla í Kanada og þegar
heim var komið stofnaði hún eina
fyrstu líkamsræktarstöðina á Ís-
landi. Jónína var auk þess búsett í
Svíþjóð til margra ára. Þar rak hún
líkamsræktarstöðvar og hlaut fjöl-
margar viðurkenningar fyrir frum-
kvöðulsstarfsemi sína í líkamsrækt.
Þá rak hún um nokkurra ára skeið
líkamsræktarstöðina
Planet Pulse.
Jónína var áhuga-
söm að kynna lands-
mönnum mikilvægi
líkamsræktar og stóð
meðal annars fyrir
morgunleikfimi á Rás
1. Síðustu ár hefur
hún staðið fyrir lífs-
bætandi heilsu-
meðferðum í Póllandi
og nú síðast á Hótel
Örk í Hveragerði.
Jónína var þekkt fyr-
ir brautryðjandastarf
á sviði heilsuræktar
og flutti fyrirlestra um heilsutengd
málefni víða um heim.
Jónína lætur eftir sig þrjú upp-
komin börn, Jóhönnu Klöru, Tómas
Helga og Matthías, sem eru öll börn
Stefáns Einars Matthíassonar.
Barnabörnin eru fjögur, Stefán
Kári, Kristín Embla, Ásdís Þóra og
Matthías Þór.
Andlát
Jónína Benediktsdóttir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Starfsemi hefst á nýjan leik í
minkahúsunum í Héraðsdal II í
Skagafirði í vetur. Urðarköttur
ehf. á Syðra-Skörðugili hefur tekið
húsin á leigu og hefur þar rekstur
með baktryggingu reyndra
danskra minkabænda.
Minkabú hefur verið rekið í Hér-
aðsdal II með hléum í allmörg ár
og þar eru stór minkahús og íbúð-
arhús. Síðast var þar minkabú í
eigu danskrar fjölskyldu sem hætti
rekstri í lok árs 2018 og íslenskt
félag hennar varð gjaldþrota. Ar-
ion-banki leysti til sín eignirnar og
seldi Kaupfélagi Skagfirðinga.
Selja skinnin fyrir fram
„Við rekum fóðurstöð og mikið
hráefni fellur til við matvælafram-
leiðslu hjá okkur. Við vorum að
skoða möguleika á að koma þessu í
gang aftur og ræddum möguleika
á samstarfi við Einar á Skörðugili.
Þá var kreppan að skella á og
hann treysti sér ekki í þetta. Hann
kom nú að máli við okkur um að
taka eignirnar á leigu, sér tækifæri
í þessu,“ segir Ágúst Andrésson,
forstöðumaður kjötafurðastöðvar
KS.
Kaupfélagið hefur áður haft til
skoðunar að hefja rekstur á stóru
loðdýrabúi til að nýta betur fóð-
urstöð og hráefni en ekki orðið úr.
Einar Eðvald Einarsson, loð-
dýrabóndi á Syðra-Skörðugili, seg-
ist vinna að þessu verkefni í sam-
starfi við danska minkabændur.
Þeir muni kaupa lífdýr af honum
og sunnlenskum loðdýrabændum,
alls um 1.500 dýr, og fjármagna
kostnað við fóðrun og umhirðu
dýranna. Segir Einar að í raun
kaupi Danirnir skinnin fyrir fram
fyrir ákveðið verð sem dugi fyrir
kostnaði. Hann þurfi því ekki að
leita eftir fjármögnun annars stað-
ar. Ef skinnin seljast við hærra
verði skiptist umframverðið á milli
þeirra.
Samningurinn er til þriggja ára.
Einar mun ráða tvo starfsmenn til
að sjá um minkana. Danirnir hafa
rekið stórt minkabú í tugi ára en
urðu fyrir því eins og allir danskir
minkabændur að þeir urðu að
farga dýrunum samkvæmt fyrir-
mælum yfirvalda sem voru hrædd
við stökkbreytt afbrigði kórónu-
veirunnar. „Þeir hafa trú á minka-
rækt til framtíðar, eru sannfærðir
um að það verði markaður fyrir
skinn á komandi árum, og vilja
taka þátt í þessari atvinnugrein
áfram,“ segir Einar. Hann getur
þess að danskir minkabændur séu
að leita að tækifærum til minka-
ræktar víða um Evrópu og Kan-
ada, meðal annars á Nýfundna-
landi, Úkraínu og Litháen.
Vísbendingar um betri tíð
Minkaskinnamarkaðurinn hefur
verið í lægð síðustu árin og kór-
ónuveirufaraldurinn dýpkað lægð-
ina mjög. Framboð af skinnum er
hins vegar að minnka, vegna lágs
verðs og niðurskurðar í Danmörku
og fleiri löndum.
Einar telur allar líkur á því að
verðið fari að hækka og segir að
vísbendingar um það hafi komið
fram á litlu netuppboði í Finnlandi
í þessari viku. Skinn frá Íslandi
verða seld á uppboði í Kaupmanna-
höfn í febrúar á næsta ári.
Minkar aftur aldir í Héraðsdalsbúinu
Skagfirskur bóndi tekur húsin á leigu af Kaupfélagi Skagfirðinga og hefur framleiðslu í samvinnu
við danska minkabændur Selur skinnin fyrir fram Kaupfélagið framleiðir minkafóðrið
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Minkaskáli Nýjasta minkahúsið í Héraðsdal II var byggt 2006, alls liðlega 3.300 fermetrar að gólfflatarmáli.
Á jörðinni eru þrjú eldri minkahús, auk íbúðarhúss. Búið hefur verið í rekstri með hléum í allmörg ár.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Klæðing á Bíldudalsvegi á Mikladal
og í botni Tálknafjarðar er illa farin á
löngum köflum. Vegurinn liggur á
milli Patreksfjarðar, Tálknafjarðar
og Bíldudals og mátu sérfræðingar
Vegagerðarinnar hann ónýtan í
skýrslu sem gerð var fyrir tveimur
árum.
Verstu skemmdirnar nú eru á 6-8
km kafla á Mikladal, skammt ofan
Patreksfjarðar. Klæðingin er mikið
sprungin og alveg farin á köflum.
Styttri kafli er líka illa farinn í botni
Tálknafjarðar.
Gert við til bráðabirgða
Vegagerðarfólk frá Patreksfirði
er að gera við klæðinguna á Mikladal
til bráðabirgða, að sögn Bríetar Arn-
ardóttur yfirverkstjóra, en varan-
legri viðgerðir standa yfir í Tálkna-
firði. Bríet segir að viðgerðirnar á
Mikladal komi ekki í veg fyrir frek-
ari skemmdir. Hún hvetur vegfar-
endur til að gæta varúðar.
Vegagerðin lét kanna ástand
klæðinga á Bíldudalsvegi og víðar á
Vestfjörðum sumarið 2019. Niður-
staða skýrslu sérfræðinganna var að
fimmtán kílómetra kafli á Bíldudals-
vegi væri ónýtur en það er um helm-
ingur vegalengdarinnar á milli þorp-
anna Patreksfjarðar og Bíldudals.
Ástæðan var talin sú að klæðingar
voru lagðar á illa farinn veg. Töldu
þeir að vegurinn þarfnaðist endur-
byggingar í heild og styrkingar.
Flutningar hafa vaxið mjög á
þessari leið, meðal annars með laxa-
afurðir. Bríet segir að vegurinn hafi
ekki verið byggður fyrir þá flutninga
sem fara um hann. „Við gerum það
sem í okkar valdi stendur en það þarf
meira til að koma. Fjárveitingar-
valdið þarf að koma að úrbótum,“
segir Bríet.
Göt komin í klæðingu
Skemmdir á veginum á Mikladal Bíldudalsvegur úr-
skurðaður ónýtur á köflum þar sem lagt var á lélegan veg
Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson
Á Mikladal Slitlagið er illa sprungið
og jafnvel horfið á nokkrum stöðum.