Morgunblaðið - 18.12.2020, Síða 8

Morgunblaðið - 18.12.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2020 INXX II Glæsilegasta lína okkar til þessa. INXX II BLÖNDUNARTÆKI Brushed brass Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is Kjartan Valgarðsson, fram-kvæmdastjóri Geðverndar- félags Íslands og formaður fram- kvæmdastjórnar Samfylkingar- innar, segir á vef félagsins frá könnun sem það fékk Gallup til að gera fyrir sig um af- stöðu til fæðing- arorlofs. Í frum- varpi sem nú er tekist á um á Al- þingi er gert ráð fyrir að fæðingar- orlofið lengist úr níu mánuðum í 12 og að foreldrar skipti þessum mánuðum jafnt á milli sín, hvort foreldri taki sex mánuði.    Þó er gert ráð fyrir að annað for-eldri geti framselt hinu einn mánuð þannig að skiptingin geti orðið fimm og sjö mánuðir.    Geðverndarfélagið hefur, ásamtmörgum öðrum, gagnrýnt þennan ósveigjanleika og lýst þeirri skoðun sinni, eins og Kjartan ritar, „að vegna hagsmuna barnsins eigi foreldrar að ráða því sjálfir hvernig þeir skipti þessum 12 mánuðum milli sín, þannig að það sé ávallt tryggt að barnið fái 12 mánuði. Fleiri hafa gagnrýnt þennan þátt frumvarpsins, nægir þar að nefna Landlæknisembættið, Ljósmæðra- félagið og Barnaheill.“    Könnun Gallups leiðir í ljós aðnær tveir af hverjum þremur telja að heimild til framsals eins mánaðar sé of skammur eða allt of skammur tími. Athygli vekur að nokkur munur er á afstöðu kynjanna, 71% kvenna telur þetta of ósveigjanlegt en 60% karla.    Þessi könnun er enn ein vísbend-ingin um að of langt er gengið í fyrirliggjandi frumvarpi og hlýtur þingið að taka tillit til þeirra sjónarmiða. Kjartan Valgarðsson Of langt gengið STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Salan hefur verið kröftug frá fyrsta degi en við finnum fyrir vaxandi hita nú á lokametrunum. Á miðvikudag seldust til að mynda um 1.000 mið- ar,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu Live. Jólagestir Björgvins verða sendir út í beinni útsendingu frá Borgar- leikhúsinu annað kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem ráðist er í slíka út- sendingu á tónleikum hér á landi en fólk kaupir sér aðgang í gegnum sjónvarpsveitur eða í streymi. Mikill áhugi er á Jólagestum þetta árið og hafa um níu þúsund miðar þegar selst. Síðustu ár hefur Björgvin jafn- an fyllt Laugardalshöll í tvígang en það þýðir um það bil sex þúsund gesti. Ljóst virðist að áhorfendur verði margfalt fleiri í ár því gera má ráð fyrir því að fleiri en einn verði að baki hverjum miða. Ekki er ólíklegt að tugir þúsunda verði við viðtækin. Og þeir verða um allan heim því mið- ar hafa selst í minnst 15 löndum. „Á bak við hvern miða er heilt heimili. Það er gríðarlegur fjöldi bú- inn að ákveða að horfa á laugardag- inn,“ segir Ísleifur. Hann lýsir þess- ari beinu útsend- ingu sem „risa- tilraun“ og hún virðist ætla að ganga upp. Þann- ig samþykktu all- ir listamenn og starfsfólk að það fengi aðeins 50% laun en bónusar bættust við ef fleiri en sex þús- und miðar seldust. Áhorfendur fá líka að taka þátt á gagnvirkan hátt. Um 500 manns geta verið með á Zoom og mun Björgvin spjalla við einhverja þeirra. Þá verður hægt að kjósa um það hver af söngvurunum mun enda kvöldið á að syngja lagið Ef ég nenni. Fleiri listamenn hafa ákveðið að feta í fótspor Björgvins og senda tónleika út með þessum hætti, til að mynda Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Bubbi Morthens. Hefur miðasala á þá tónleika gengið vel að sögn Ís- leifs. Ísleifur segir að búast megi við því að hér eftir verði alltaf boðið upp á streymi frá stórum tónleikum sem þessum. Níu þúsund miðar seldir á Jólagesti  Tugir þúsunda verða við viðtækin Björgvin Halldórsson ÍL-sjóður, sem áður var Íbúðalánasjóður, var í gær dæmdur til að greiða pari sem greiddi uppgreiðslugjald á láni það til baka ásamt dráttavöxtum og málskostnaði. Lánið var 40 ára húsnæðislán tekið hjá Íbúðalánasjóði árið 2008. Í dómnum er fallist á þau sjónarmið að lána- skilmálar Íbúðalánasjóðs hafi verið andstæðir lögum um neytendalán. Að sú skylda hafi hvílt á Íbúðalánasjóði eftir lagabreytingu árið 2008 að tiltaka með skýrum hætti í lánaskilmálum hvernig uppgreiðslugjaldið skyldi reiknað út og við hvaða aðstæður það yrði innheimt. Þeirri skyldu hafi ekki verið fylgt eftir. Í dómnum segir m.a.: „Stefndi hefur sem op- inber lánastofnun ríkar skyldur til þess að skuldarskjöl og upplýsingagjöf sé skýr og ótví- ræð. [...] Strangar kröfur gilda því um starf- semi hans og framgöngu gagnvart lántökum. Í þessu sambandi vekur sérstaka athygli að af því sem fram er komið í málinu verður ráðið að nokkur losarabragur hafi verið í frágangi skuldaskjala stefnda. Þannig er að sjá að til- viljun hafi ráðið að nokkru ráðið hvaða texti stóð inni í stöðluðum skuldabréfaskilmálum stefnda.“ Ekki er vitað að svo stöddu hversu mörg dæmi eru til um lántöku að þessu tagi. Auk þess er einnig vísað til nýlegs dóms sem féll í héraði í Reykjavík þar sem uppgreiðslu- gjald lántakenda að lánum sem tekin voru hjá Íbúðalánasjóði á árunum 2005-2013 voru dæmd ólögleg. Fá uppgreiðslugjald til baka  ÍL-sjóður tapaði dómsmáli gegn pari sem greiddi upp húsnæðislán árið 2008

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.