Morgunblaðið - 18.12.2020, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2020
✝ Herdís Hólm-steinsdóttir
geðhjúkrunarfræð-
ingur fæddist 16.
júní árið 1954. Hún
lést í faðmi fjöl-
skyldunnar á
kvennadeild Land-
spítalans 2. desem-
ber sl.
Foreldrar henn-
ar eru Hólmsteinn
Steingrímsson, f. 4.
desember 1923 og Ása Sigríður
Einarsdóttir, f. 12. maí 1925, d.
5. nóvember 2011.
Systkini Herdísar eru Helga
Hólmsteinsdóttir, f. 24. febrúar
1956 og Steingrímur Einar
Hólmsteinsson, f. 18. september
1957. Barn Helgu og Sigurðar
Jakobs Jónssonar er Guðný Lilja
Sigurðardóttir, f. 29. júní 1982,
d. 30. september 1982. Börn
Steingríms og Margrétar Júlíu
Rafnsdóttur eru: a) óskírður
drengur, f. 25. september 1980,
d. 30. september 1980. b) Harpa
Steinunn Steingrímsdóttir, f.
1981, maki Unnar Örn Unn-
arsson, f. 1979. Börn þeirra eru
Selma Katrín, f. 2011, Viktor
Már, f. 2014 og Sara Margrét, f.
2017. c. Rafn, f. 1987, maki Nic
Bizub. d. Orri Steinar Stein-
grímsson, f. 1992, maki Sandra
lækninga, hagnýtt nám í klín-
ískri dáleiðslu, framhaldsnám í
dáleiðslu, nám í hópmeðferð
o.fl.
Á starfsferlinum kom hún
víða við en Herdís var m.a.
deildarstjóri geðdeildar Land-
spítala 33C á árunum 1989-1997.
Þá varð hún forstöðumaður
sambýlis fyrir geðfatlaða á
Hringbraut 8 og sinnti þeirri
forstöðu í um áratug, ásamt því
að sinna faglegum störfum hjá
Geðhjálp. Árið 2008 tók hún að
sér stöðu sem verkefnastjóri
vegna yfirfærslu geðvængs SSR
frá ríki til borgar.
Á árunum 2003-2009 og 2011-
2015 rak hún stofuna Ráð & Dáð
sf. í samstarfi við Halldór Kr.
Júlíusson sálfræðing þar sem
hún veitti handleiðslu, stuðn-
ingsviðtöl og dáleiðslumeðferð.
Síðustu tíu æviárin var Her-
dís forstöðumaður og teym-
isstjóri Vettvangsgeðteymis
Reykjavíkur sem hlaut Hvatn-
ingarverðlaun velferðarráðs
Reykjavíkur árið 2014. Þar
störfuðu sérfræðingar í þver-
faglegu teymi undir stjórn Her-
dísar.
Herdís verður lögð til hinstu
hvílu í dag, 18. desember 2020,
frá Kópavogskirkju klukkan 15
að viðstöddum nánustu ætt-
ingjum, vinum og samstarfs-
félögum. Streymt verður frá at-
höfninni á slóðinni:
https://youtu.be/3fgC8K3AIXU/.
Virkan hlekk á streymið má
finna á: https://www.mbl.is/
andlat/.
Blöndal. Barn
þeirra er Apríl
Orradóttir, f. 2016.
Herdís hóf sam-
búð snemma árs ár-
ið 1980 með Baldri
Garðarssyni, f. 13.
nóvember 1950.
Foreldrar Baldurs
voru Garðar Lofts-
son, f. 23. sept.
1920, d. 31. jan.
1999 og Erna Sig-
urjónsdóttir, f. 8. mars 1928, d.
22. jan. 1998. Herdís eignaðist
þar með stjúpsoninn Gest Bald-
ursson sem fæddur er þann 18.
ágúst 1974. Börn hans eru: a) El-
ísabet Lilja, f. 2003, b) Maríana
Mist, f. 2007 og c. Konráð Vikt-
or, f. 2014.
Árið 1981 eignuðust þau dótt-
urina Ásu Baldursdóttur, f. 16.
október 1981, maki Pétur Gunn-
arsson, f. 1983. Börn þeirra eru
Hólmsteinn, f. 2018 og Ada
María, f. 2020. Nokkru síðar
fæddist sonur þeirra Davíð Arn-
ar Baldursson, f. 6. maí 1987.
Herdís á yfirgripsmikinn feril
að baki á sviði geðheilbrigð-
ismála sem geðhjúkrunarfræð-
ingur og hjúkrunarfræðingur
frá Hjúkrunarskóla Íslands árið
1977. Hún stundaði fjölbreytt
nám, m.a. um kenningar sál-
Við Herdís vorum í sambúð í
40 ár. Þegar ég kynntist henni
fékk ég í kaupbæti stóran hóp
vinkvenna hennar og reyndar
ennþá stærri hóp af frænkum úr
föðurætt hennar. Allt mjög
skemmtilegt og hjálplegt fólk.
Við fyrstu kynni okkar bjó hún
með Arnheiði hjúkrunarfræðingi
vinkonu sinni og Heiðrúnu dóttur
hennar á Bergstaðastræti. Þær
voru fjölskylda. Arnheiður var
jafnaldra mín og mikil sómakona,
hún lést árið 2006 og olli fráfall
hennar okkur Herdísi mikilli
sorg. En sem betur fer hefur
Heiðrún litla spjarað sig vel og á
mörg mannvænleg börn.
Sambúð okkar Herdísar
reyndist almennt farsæl. Tvennt
vil ég nefna sem einkenndi hana.
Hið fyrra er hjálpsemi Herdísar
við vinkonur og vini. Um tíma var
t.d. íbúð okkar í Daltúni orðin að
einhvers konar sjúkrahóteli, en
Herdís var hjúkrunarfræðingur
og tók það hlutverk mjög alvar-
lega. Einhverju sinni glímdi
barnung dóttir einnar vinkonu
hennar við heilsubrest um tíma
og þá var innréttað sérherbergi
fyrir hana inni á heimili okkar og
henni hjúkrað þar þangað til full-
um bata var náð. Amma mín
gömul fékk einnig athvarf og að-
hlynningu þarna um tíma. Í ann-
að skipti var vinkona Herdísar
húsnæðislaus og þá var rokið í að
aðstoða hana við að kaupa íbúð.
Herdís þoldi ekki hangs og gekk
einfaldlega í málið af fullri ein-
urð. Mér er það minnisstætt að
hún kom þá heim úr vinnu einn
daginn og tilkynnti mér og
krökkunum að við yrðum að
bjarga okkur sjálf varðandi
kvöldmat því hún þyrfti að hitta
einhverja fasteignasala í hvelli og
tala við þá með tveimur hrúts-
hornum. Það gekk eftir og vin-
konan býr enn í íbúðinni sem var
keypt. Herdís var mjög áreiðan-
leg í viðskiptum, vildi alltaf ljúka
málum sem fyrst og að allir væru
sáttir.
Ég vil þakka Herdísi fyrir
ánægjuleg 40 ár og vil nefna í
annan stað uppruna okkar. Við
erum bæði ættuð að norðan. Her-
dís var ættuð úr Húnavatnssýsl-
um og Skagafirði, ég úr Eyjafirði
og Þingeyjarsýslum. Við fórum
alltaf norður þegar við gátum í
fríum, þá var í raun allt Norður-
land undir. Dvöldum oft í sum-
arhúsum á Blönduósi, á Sauðár-
króki, á Hólum í Hjaltadal, á
Hauganesi, á Akureyri, í Eyja-
firði, í Fnjóskadal og víðar. Siglu-
fjörður var reyndar uppáhalds-
staður Herdísar, en þar hafði hún
verið á sumrin sem barn hjá
ömmu sinni og afa. Hún var mjög
sátt við að fá jarðgöng til og frá
Sigló, eftir að þau komu fórum
við alltaf þar um á ferðum okkar
nyrðra. Ég vil að lokum nefna
Gunnfríðarstaði í Húnaþingi. Þar
á föðurfjölskylda Herdísar erfða-
land og er með skógrækt á bökk-
um Blöndu. Þar var alltaf komið
við, en af ýmsum orsökum auðn-
aðist Herdísi ekki að reisa þar
sumarhús, þó oft hafi verið rætt
um slíkar hugmyndir. Vona ég að
börn hennar eða barnabörn geri
eitthvað í því í framtíðinni. Gunn-
fríðarstaðir komast næst Paradís
í minningunni, trjálundir, grænt
gras, fuglasöngur og alltaf gott
veður.
En harmur er nú að oss kveð-
inn. Ég lýk þessum fátæklegu
orðum með tilvitnun í Ovid:
Leika landmunir
lýða sonum,
hveim er fúss er fara,
Römm er sú taug,
er rekka dregur
föður túna til.
(Publius Ovidius (Ovid) (43 f.Kr. – 17
e.Kr.), þýðing: Sveinbjörn Egilsson
(1791 – 1852)).
Baldur Garðarsson.
Elsku mamma mín. Alltaf svo
góð og yndisleg, fyndin og
skemmtileg. Fjölskyldan var þér
allt og þú varst svo ánægð með
okkur og það góða og ástríka
samband sem við eigum öll. Þú
sagðir að áttatíu prósent af
áhyggjum væru óþörf og að mað-
ur ætti að reyna að njóta lífsins
sem mest. Þú hvattir mig enda-
laust til að fara mínar eigin leiðir,
nýta hæfileika mína og fá sem
mest út úr lífinu. Húmor þínum
og fatastíl deili ég að einhverju
leyti. Þú hafðir unun af metnað-
arfullum hátíðlegum lögum, helst
sungnum af karlakórum. Þú elsk-
aðir að lesa bækur, þá sérstak-
lega spennandi söguþræði.
Þú varst kærleiksrík, hlý, for-
ystumanneskja, hvort sem var í
einkalífi eða á fagsviði. Þú varst
alltaf hugulsöm og ástrík amma
barnanna hans Gests og varðst
himinlifandi þegar ég varð svo
ólétt að honum Hólmsteini litla,
þar sem þú naust þess að fylgjast
með honum vaxa og dafna. Önnur
dásemd bættist svo í líf þitt þegar
Ada María dóttir okkar fæddist á
þessu ári og alltaf þegar ég horfi
á hana núna sé ég þig elsku
mamma mín. Hún er líka með
tærnar þínar, skuldlaust.
Barnabörnin voru augasteinar
þínir, líf þitt og yndi. Ó, hvað ég
hefði viljað að þú hefðir getað far-
ið á eftirlaun og notið lífsins með
okkur og barnabörnunum. Þú
hafðir lítinn áhuga á að ræða það
sem leiðinlegt þykir, veikindi þín
og allar þær hindranir sem þeim
fylgdu í heimsfaraldri sem nú
geisar. Á starfsvettvangi þínum
varstu svo sannarlega frum-
kvöðull, þar sem þú varst dáð af
samstarfsfélögum og fagaðilum í
stéttinni.
Mannvinur sem breytti kerf-
um í þágu fólksins. Ég er svo
stolt af því að vera dóttir þín. Þú
varst mín besta vinkona, fyrir-
mynd og einstök manneskja.
Ég mun alltaf sakna þín.
Ása Baldursdóttir.
Elsku mamma mín. Undan-
farna daga hef ég heyrt svo
margar sögur frá fólki sem þú
hjálpaðir, frá samstarfsfólki, ætt-
ingjum, vinum og skjólstæðing-
um. Það fyllir mig gleði á þessum
sorgartímum að heyra hvað þú
hafðir áhrif á líf margra.
Þú varst alltaf svo fljót að
greina aðalatriðin frá aukaatrið-
unum og hafðir einstakan hæfi-
leika í því að leiða mann að lausn
vandans í stað þess að mata hana
ofan í mann. Þú vissir nákvæm-
lega hvenær maður þurfti bara
að láta hlusta á sig og hvenær
maður þurfti að sitja og hlusta á
þig. Einu sinni þegar ég var í
menntaskóla kom ég til þín að
kvöldi með svakalegar áhyggjur
af prófi sem ég átti að fara í
morguninn eftir. Ég man ekki
hvað þú sagðir en ég man hvernig
þér tókst að fá mig til þess að sjá
aðstæðurnar í réttu ljósi, og
áhyggjurnar hurfu. Svona var
samband okkar, og ég á mjög erf-
itt með að sætta mig við það að
geta ekki leitað til þín aftur.
Þú sagðir stundum: „Þetta
grær áður en þú giftir þig!“ Nú er
hjartað mitt brotið og söknuður-
inn mikill. Þér fannst fátt
skemmtilegra en að eyða tíma
með börnunum þínum og barna-
börnum. Veikindin voru þér erfið
en þú lést þau aldrei stoppa þig í
því að njóta lífsins með fjölskyld-
unni. Nú þegar þú ert farin mun
ég reyna að muna eftir þeim góðu
stundum sem við fjölskyldan átt-
um saman. Ég held að þú myndir
segja mér að gefa þessu tíma, og
ég er viss um að hjarta mitt grær
áður en ég gifti mig.
Davíð Arnar Baldursson.
Það er með sorg í hjarta sem
ég set á blað nokkrar línur um
Herdísi frænku mína. Við vorum
jafnaldra bræðradætur, aðeins
sex dagar á milli okkar. Feður
okkar voru úr tólf systkina hópi
sem ólst upp í litlu húsi á Blöndu-
ósi þar sem nú er snoturt kaffi-
hús, „Ömmukaffi“. Það má því
segja að það hafi verið við hæfi að
síðasta ættarmótið sem við
frænkur skipulögðum var einmitt
á Blönduósi, fyrir tveimur árum.
Samskiptin voru ekki mikil í
bernsku þar sem við systkinin
bjuggum ellefu ár í Svíþjóð ásamt
foreldrum okkar. Við höfðum þó
kynnst í heimsóknum fjölskyld-
unnar til Íslands.
En sl. 30 ár höfum við nokkrar
elstu frænkurnar komið reglu-
lega saman. Herdís eða Dísa eins
og hún var jafnan kölluð var drif-
fjöðrin í þessum félagsskap og sú
sem stofnaði til hans ásamt
Helgu systur sinni með þeim orð-
um að við gætum ekki bara hist í
jarðarförum! Herdís var í eðli
sínu félagslynd, létt í skapi, úr-
ræðagóð og umhyggjusöm.
Henni var það kappsmál að ættin
stóra héldi saman. Við hittumst
að jafnaði einu sinni til tvisvar á
ári hver hjá annarri yfir góðri
máltíð og ræddum saman um allt
milli himins og jarðar og sögðum
fréttir af fjölskyldunni stóru. Þar
var mikið talað, eins og tíðkast í
stórfjölskyldunni frá Blönduósi,
og mikið hlegið.
Við skipulögðum einnig all-
mörg ættarmót þar sem vel á
annað hundrað manns komu jafn-
an saman, þrír til fjórir ættliðir,
niðjar Steingríms Davíðssonar
skólastjóra og Helgu Jónsdóttur.
Af tólf börnum þeirra hjóna lifa
nú þrír bræður.
Blessuð sé minning Herdísar
frænku minnar. Innilegar samúð-
arkveðjur til Baldurs manns
hennar og fjölskyldunnar allrar.
Guðrún Helga
Brynleifsdóttir.
Við Dísa ólumst upp í Kópa-
vogi og vorum saman í skóla,
seinna kynntist ég henni betur í
gegnum fjölskyldutengsl og átt-
um við saman margar góðar
stundir, ég man sérstaklega að
henni þóttu listamenn skrítnar
skrúfur. Jú það er óhætt að segja
að við veldum okkur ólíkar leiðir í
lífinu, en það segir manni alltaf
mikið um fólk hvað það velur sér
að starfa við og þeir sem vinna
við að hjúkra samborgurum sín-
um finnst mér sérstaklega virð-
ingarverðir. Til gamans rifja ég
hér upp að ég hitti Dísu einu sinni
en hún hafði miklar áhyggjur af
því að Ása dóttir hennar var byrj-
uð í námi í háskólanum sem
tengdist menningu! Mér tókst þó
held ég að að róa hana með því að
það væru margir að vinna í
menningarstofnunum og ef hún
líktist foreldrum sínum myndi
hún örugglega fá vinnu.
Ég sendi aðstandendum sam-
úðarkveðjur á þessari sorgar-
stundu.
Daði Guðbjörnsson.
„Yes!“ Ég sé þig fyrir mér
elsku Herdís þar sem þú sýnir
með hvetjandi handahreyfingum
ánægju þína og segir þessi orð í
sömu andrá. Þessa hvatningu tók
ég upp og hef haldið áfram að
nota í meðferðarvinnu þegar ég
vil hvetja mitt fólk alveg sérstak-
lega áfram. Ég sé líka fyrir mér
glettnisleg augun og brosið sem
umlykur allt andlitið og fyllir mig
ánægju, gleði og öryggi.
Þú varst minn klettur elsku
vinkona og hafðir svo mikil áhrif
á líf mitt að það er ekki hægt að
hripa það niður í nokkur orð.
Áhrifin eru óumdeild og áþreif-
anleg. Þegar ég lít um öxl þá birt-
ist þú mér eins og guðmóðir. Þú
komst inn í líf mitt nokkrum ár-
um eftir að móðir mín lést, tókst
utan um mig og handleiddir mig
áfram. Þeirri handleiðslu lauk
aldrei og mun ekki ljúka í minni
tíð. Þú varst fyrsta og eina mann-
eskjan sem hjálpaðir mér með
ýmis flókin úrlausnarefni sem
sneru að mínu lífi og þér gat ég
trúað fyrir öllu. Á þinn einstaka
hátt veittirðu mikið traust og
þéttan ramma.
Ég gekk nokkuð hart eftir því
að komast til þín í handleiðslu á
sínum tíma og mikið er ég þakk-
lát fyrir að hafa gert það. Án þín
hefði líf mitt ekki orðið það sem
það er í dag. Í dag er ég orðin sál-
fræðingur og það var fyrir þitt
tilstilli að ég fór í framhaldsnám
þegar þú spurðir mig á þinn
glettnislega hátt hvort ég hefði
nú ekki ætlað mér að verða sál-
fræðingur. Það hafði þau áhrif að
ég sagði upp starfinu, dreif mig
utan í framhaldsnám og lauk
námi. Við ræddum einnig reglu-
lega stjórnmálin og ýmsar flækj-
ur varðandi þau. Þú studdir mig í
því eins og öllu öðru. Ástamálin
voru reglulega rædd enda voru
þau stundum snúin hjá ungri
konu sem vissi ekki alveg hverju
hún væri að leita að. Þú vissir að
mig langaði að eignast fjölskyldu
og þú átt stóran þátt í því að ég
eignaðist hana. Ég hlakkaði mik-
ið til að fá þig í brúðkaupið og
geta fagnað með þér. Mér þótti
dýrmætt að geta sýnt þér Baldur
minn og til stóð að sýna þér
Eygló líka.
Þegar ég rita þessi minning-
arorð þá koma í huga mér orðin
þakklæti og manneskja. Ég er
svo þakklát fyrir að lífið skyldi
leiða mig til þín. Þú varst ein
fárra sem sáu mig í djúpum skiln-
ingi þess orðs og ég gat opnað
mig alveg fyrir. Það er mikill auð-
ur. Þú varst einstök manneskja
sem kunnir sérlega vel á lífið og
hvað skipti máli í því. Ég mun
taka þá visku með mér. Mikil-
vægi þess að geta slakað á, bros-
að og notið lífsins.
Ég verð að viðurkenna að ég
trúi því eiginlega ekki að ég sitji
hér og skrifi minningarorð um
þig elsku Herdís mín því í mínum
huga ertu ódauðleg. Þú ert ein-
hvern veginn þannig að það er
bara ekki hægt að hugsa sér
heiminn án þín. Ég ætla heldur
ekkert að gera það því þú munt
fylgja mér mína ævi á enda. Sam-
bandið verður við þær minningar
og þau skref sem þú markaðir í
mitt líf.
Elsku Herdís, nú eru ákveðin
tímamót. Þakklæti og hreinn
kærleikur eru mér efst í huga.
Kæru Baldur, Ása, fjölskylda og
vinir. Ég votta ykkur djúpa sam-
úð á þessum erfiðu tímum.
Kristbjörg Þórisdóttir.
Vort líf sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir,
en upphiminn fegri en augað sér,
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Benediktsson)
Þessi orð komu upp í huga
okkar þegar við spurðum hið
ótímabæra andlát okkar kæru
Herdísar Hólmsteinsdóttur hinn
2. desember sl.
Dísa, eins og hún ávallt var
kölluð, var okkur kær. Margar
samverustundir áttum við gegn-
um tíðina, gestrisni hennar og
góðrar nærveru minnumst við
með miklu þakklæti.
Dísa var hrókur alls fagnaðar í
góðum félagsskap og skemmti-
legur ferðafélagi þegar fólk brá
sér af bæ. Hún talaði vel til barna
og unglinga og hafði áhuga á
þeim og þeirra viðfangsefnum.
Þá var hún dugleg við að drífa
hlutina áfram og ekki var logn-
mollan á heimili þeirra Baldurs.
Við skynjuðum hrakandi
heilsu Dísu hin síðari ár, en hún
gerði lítið úr alvarleikanum og
var jafnan hress og bjartsýn þeg-
ar slíkir hlutir bárust í tal. Sam-
komutakmarkanir og fjarlægð
settu síðan strik í reikninginn í
seinni tíð, og undanfarna mánuði
vildum við ekki íþyngja henni um
of með áhyggjum okkar af heilsu
hennar. Við leiðarlok erum við
sorgmædd vegna þessa en velj-
um að muna Dísu okkar eins og
hún var á meðan heilsa hennar
var góð.
Dísa var heilsteypt og sjálfri
sér samkvæm, fylgin sér og lá
ekki á skoðunum sínum. Umönn-
un hennar fyrir þeim sem höllum
fæti standa í samfélaginu átti hug
hennar allan, hún ól önn fyrir
skjólstæðingum sínum í orðanna
eiginlegri merkingu.
Sem geðhjúkrunarfræðingur
tók Dísa þátt í starfi sem sjaldn-
ast hefur notið sannmælis, vegna
fordóma og vankunnáttu margra
varðandi geðheilbrigðismál og af-
stöðu til þeirra bræðra okkar og
systra sem erfitt eiga með að fóta
sig á hálum brautum lífsgöng-
unnar.
Dísa sá börn sín vaxa úr grasi
og barnabörnin urðu henni kærir
gimsteinar, sem hún þó svo sann-
arlega hefði átt skilið að fá að
fylgjast með lengur, en þau
yngstu eru enn barnung.
Dísa kvaddi okkur í aðdrag-
anda jólanna, aðventan nýgengin
í garð. Í stað jarðneskrar jólahá-
tíðar mun Dísa nú taka þátt í
hinni himnesku hátíð, fyrirheit er
gefið: „Sjá, ég gjöri alla hluti
nýja.“
Hinstu kveðjur frá okkur og
fjölskyldum okkar, bæði hér
heima og í Noregi, og við þökkum
öll fyrir samfylgdina og góðu
stundirnar sem við áttum saman.
Að hryggjast og gleðjast, hér um fáa
daga,
að heilsast og kveðjast, það er lífsins
saga.
(Páll J. Árdal)
Baldri bróður og mági, börn-
um þeirra Dísu og afkomendum,
svo og fjölskyldu Dísu allri, vott-
um við innilega samúð okkar og
biðjum þeim Guðsblessunar.
Skírnir Garðarsson og
Sigrún Davíðs.
Skarð er fyrir skildi. Fallin er
frá langt um aldur fram Herdís
Hólmsteinsdóttir, svilkona mín
og besta vinkona.
Herdís var einstök. Það var
ekki vegna þess að hún væri sí-
fellt að veita manni hrós eða
segja hvað henni þætti vænt um
mann, heldur vegna þess að hún
sagði alltaf það sem hún meinti
og ekki annað. Að þykjast vera
einhver önnur var ekki til í henn-
ar ranni. „Ef þú vilt ekki fá hrein-
skilið svar þá skaltu ekki spyrja“
sagði hún stundum. Við vorum
ekkert alltaf sammála. Tókum
stundum rökræður sem viðstadd-
ir voru ekki alveg rólegir með, en
á okkar vináttu bar aldrei
skugga. Það var alltaf hægt að
leita til hennar með hvaðeina sem
maður velktist í vafa um. Alltaf
hreinskilið svar. Ekki endilega að
koma með lausnir, heldur réttu
spurningarnar til að manni fynd-
ist sem lausn væri fram undan.
Að sakna er fallegt. Því það
sem maður saknar er eitthvað
sem maður elskar. Við náðum að
bralla margt saman, ávallt farið
alla leið í þeim dellum sem voru
teknar fyrir. Fyrir nokkrum ár-
um voru það fjallgöngur sem áttu
hug okkar allan. Ég náði ekki að
fara á öll þau fjöll sem hún gekk
á, t.d. Móskarðshnjúka sem
henni fannst einstakir – ég vona
að ég nái að ganga á þá einn dag-
inn í hennar minningu. Við fórum
eitt sinn á Ingólfsfjall frá Alviðru,
sem er frekar erfið leið – mjög
brött, en útsýnið maður minn.
Eitt sinn þegar við vorum á leið
heim að norðan tókum við viðr-
ingarpásu á leiðinni út Norður-
árdalinn og gengum inn Kotagil –
sem ein fallegasta gönguleið sem
ég hef séð.
Nú síðast var það golf sem átti
hug hennar allan, það besta sem
hún vissi var að fara út á golfvöll
Herdís
Hólmsteinsdóttir