Morgunblaðið - 18.12.2020, Síða 40
Múlakvintettinn kemur fram á tónleikum Jazzklúbbsins
Múlans í Flóa í Hörpu í kvöld, föstudagskvöld, og hefjast
tónleikarnir klukkan 20. Múlakvintettinn hefur starfað
um árabil og eru forsprakkar hans saxófónleikararnir
Haukur Gröndal og
Ólafur Jónsson. Sam-
starf þeirra nær aftur
til ársins 1994 þegar
þeir léku saman í Stór-
sveit Reykjavíkur og
síðan þá hafa þeir unn-
ið saman í fjölbreyttum
hljómsveitum. Ásamt
þeim koma fram Ásgeir
Ásgeirsson, Þorgrímur
Jónsson og Erik Qvick.
Á tónleikunum verður
talið í nokkur uppá-
haldslög í nýjum og ný-
legum útsetningum
hljómsveitarinnar.
Múlakvintettinn telur í nokkur
uppáhaldslög í Múlanum í kvöld
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 353. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Knattspyrnukonan Berglind Rós Ágústsdóttir skrifaði
undir tveggja ára samning við sænska úrvalsdeild-
arfélagið Örebro í vikunni. Berglind, sem er 25 ára
gömul, hefur verið fyrirliði Fylkis í úrvalsdeild kvenna,
Pepsi Max-deildinni, undanfarin tvö tímabil, en hún
gekk til liðs við Árbæinga haustið 2017 frá uppeldis-
félagi sínu Val. Berglind lék sinn fyrsta A-landsleik
gegn Skotlandi í Pinatar-bikarnum á Spáni í mars á
þessu ári en það hefur lengi verið draumur hjá henni að
reyna fyrir sér í atvinnumennsku.
Langþráður draumur rættist þegar
Berglind skrifaði undir í Svíþjóð
ÍÞRÓTTIR MENNING
lengi vel hafi þrenndartaugarverkur
verið einn af þessum földu sjúkdóm-
um. „Engin ráð voru til að kljást við
hann, menn gáfust bara upp og því
var hann ekki kallaður sjálfsvígs-
sjúkdómurinn að ástæðulausu.“
Bárðarsaga Snæfellsáss er hug-
leikin höfundi. Hann áréttar að sagan
og umhverfið hafi haft djúp áhrif á sig
þegar hann hafi verið í sveit á Arn-
arstapa og fylgt sér síðan enda eigi
fjölskyldan hús á Hellnum og hafi
verið þar reglulega undanfarna tvo
áratugi. „Maður verður fljótt hand-
genginn þessu umhverfi, því það er
svo yfirgengilega stórbrotið.“
Í bókinni vekur Ólafur Haukur at-
hygli á því að Bárðarsaga njóti ekki
sannmælis „enda hafa bókmennta-
snobbarar landsins haldið því að fólki
að sagan væri „veigalítil““. Þvert á
móti segir hann hana vera merkilega
og saga Helgu, dóttur Bárðar, og
bróðurbarna sé mikil harmsaga.
„Hún er öðruvísi en allar svokallaðar
Íslendingasögur.“
Ólafur Haukur fékk meðferð, sem
hafði góð áhrif, en hann segist enn
búa við ýmsar aukaverkanir. Þær
komi samt ekki enn í veg fyrir að
hann haldi áfram að skrifa. Þriðja
bókin um fólkið í blokkinni, Gleðiloft
og glópalán, ber þess merki og í lið-
inni viku var hann spurður í símtali
frá Sviss hvenær bók númer fjögur
kæmi út. „Þetta er allt annað líf og á
meðan ég hef gaman af þessu held ég
áfram.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ólafur Haukur Símonarson hefur ver-
ið afkastamikill rithöfundur undan-
farna áratugi og sendi nýlega frá sér
tvær bækur sem Sögur útgáfa gefur
út.
Fyrir ríflega tveimur árum var
Ólafur Haukur sárþjáður vegna
þrenndartaugarverks í höfði. Varla
mönnum sinnandi kom hann sér fyrir
í hálfgerðri einangrun á Hellnum á
Snæfellsnesi, skrifaði út frá verknum
og úr varð Höfuðbók, bráðskemmti-
leg, fyndin og fróðleg saga, þar sem
höfundur fer um víðan völl og blandar
saman staðreyndum og skáldskap af
mikilli list.
„Þetta er makalaust svæði,“ segir
Ólafur Haukur um suðurhluta Snæ-
fellsness og vísar til sögunnar frá
landnámi og náttúrufegurðarinnar.
Umhverfið hafi fyllt í eyðurnar og
bókin orðið til jafnt og þétt. „Ég vildi
skrifa mig frá þessum leiðindum sem
voru í gangi í hausnum á mér.“
Margar persónur koma við sögu, en
vinirnir Ólafur Haukur og Njáll Tóm-
asson eru eðlilega í sviðsljósinu. „Ég
hef skrifað aðra bók um þennan
ágæta heimilislækni,“ minnir Ólafur
Haukur á. Hann segist hafa kynnst
fjölda lækna og þeir séu eins misjafnir
og þeir séu margir. „Það er því vel
hægt að gera grín að læknum.“ Upp-
lýsir jafnframt að flestar persónurnar
séu byggðar á einstaklingum sem
hann hafi séð út undan sér og jafnvel
kynnst. „Fólk er svolítið skemmtilegt,
þegar maður leyfir því að vera það.“
Lengi falinn sjúkdómur
Þrenndartaugarverkur er ekkert
grín og „kveikja að verkjakasti getur
verið snerting, rakstur, andlits-
þvottur, förðun, tannburstun,
tygging, tal eða vindblástur á andlit-
ið“, eins og fram kemur í bókinni.
Ólafur Haukur segir að verkirnir séu
misjafnir hjá fólki, allt frá því að vera
vægir og endrum og sinnum upp í
óbærilega, stöðuga verki, sem geri
viðkomandi óhæfa til allra verka.
„Þannig var það orðið hjá mér þegar
ástandið var sem verst.“
Örðugt getur reynst að finna orsök
verkjarins, að sögn Ólafs Hauks.
„Lyfjahringekjan virkaði ekki baun á
mig,“ útskýrir hann og bætir við að
Skrifaði sig frá leiðindum
Höfuðbók Ólafs Hauks út frá þrenndartaugaverk
Rithöfundurinn slær á létta strengi í tveimur nýjum bókum
Öflugur Ólafur Haukur Símonarson lætur ekkert stöðva sig.