Morgunblaðið - 21.12.2020, Síða 27
HANDBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þórir Hergeirsson er kominn með norska kvenna-
landsliðið í handknattleik aftur á efsta þrep verð-
launapallsins. Eftir tvö stórmót í röð þar sem
Norðmenn urðu að sætta sig við fjórða og fimmta
sæti er lið Þóris aftur orðið það besta í Evrópu.
Noregur vann Frakkland, 22:20, í hörkuspenn-
andi úrslitaleik í Herning í Danmörku í gær og
nýtti sér reynsluna á lokakaflanum með því að
skora fjögur mörk gegn einu eftir að Frakkar
höfðu komist í 19:18.
Nora Mörk hefur farið á kostum á mótinu og
hún skoraði tvö af þessum mörkum undir lokin og
fjögur mörk alls. Nora endaði sem lang-
markahæsti leikmaður mótsins með 52 mörk.
Stine Skogrand skoraði einnig fjögur mörk og
Silje Solberg átti stórleik í markinu en hún varði
16 skot og var með 46 prósent markvörslu. Tví-
burasystir hennar, Sanna Solberg-Isaksen, skor-
aði 22. markið og gulltryggði sigurinn.
Þar með hefur Þórir unnið sjö stóra titla frá því
hann tók við þjálfun norska liðsins árið 2009.
Þetta er fjórði Evrópumeistaratitillinn hans,
tvisvar hefur norska liðið orðið heimsmeistari og
einu sinni ólympíumeistari. Til viðbótar á Þórir
tvo silfurpeninga og tvo bronspeninga frá þessum
stórmótum og hefur því farið með lið sitt á verð-
launapall í ellefu skipti af fjórtán.
Alls hafa Norðmenn unnið Evrópumótið í átta
skipti af þeim fjórtán sem það hefur farið fram frá
árinu 1994.
Í heildina var sigur Noregs á mótinu gríðarlega
sannfærandi. Liðið vann alla átta leiki sína, að
meðaltali með tæplega tólf marka mun.
Frakkar áttu þó besta leikmann mótsins en
þann titil hlaut skyttan Estelle Nze Minko.
Króatísku konurnar komu mest allra á óvart
á mótinu en þær lögðu Dani að velli á sannfærandi
hátt í leiknum um bronsverðlaunin í gær, 25:19.
Þetta er besti árangur Króata á stórmóti kvenna
frá upphafi.
Sjö stórir titlar Þóris
Noregur Evrópumeistari í áttunda sinn eftir sigur á Frakklandi í úrslitaleik
Fjórði Evróputitill Þóris sem hefur 11 sinnum farið á verðlaunapall á stórmóti
AFP
Evrópumeistarar Þórir Hergeirsson fagnar í miðjum hópi norska liðsins eftir að það tók við verðlaunum sínum að loknum leiknum við Frakka í Herning.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 2020
Barcelona skýrði frá því á heima-
síðu sinni í gær að Aron Pálm-
arsson hefði meiðst á hné í sig-
urleik liðsins gegn Bidasoa, 37:27, í
spænsku 1. deildinni í handknatt-
leik. Sagt var að sin í hné hefði
tognað og þar með væri óvíst að Ar-
on gæti tekið þátt í úrslitakeppni
Meistaradeildar Evrópu í Köln á
milli jóla og nýárs. Barcelona mæt-
ir París SG þar í undanúrslitum 28.
desember. Þá er stutt í leiki ís-
lenska landsliðsins í undankeppni
EM og á HM í Egyptalandi í jan-
úarmánuði.
Óvissa með Aron
vegna meiðsla
Barcelona
Meiddur Aron Pálmarsson gæti
misst af mikilvægum leikjum.
Jón Dagur Þorsteinsson, fyrirliði
21-árs landsliðsins í knattspyrnu,
var valinn maður leiksins í gær
þegar lið hans AGF frá Árósum
vann sannfærandi sigur á AaB frá
Álaborg, 3:0, í dönsku úrvalsdeild-
inni.
Óhætt er að segja að Jón Dagur
hafi gert út um leikinn á fyrstu 34
mínútunum. AGF komst yfir þegar
Jón átti hörkuskot sem markvörður
AaB varði en Gift Links fylgdi á eft-
ir og skoraði. Jón gerði síðan tvö
mörk á átta mínútna kafla, bæði
eftir fyrirgjafir, og Árósaliðið var
með leikinn í hendi sér eftir það.
AGF var á toppi deildarinnar í
nokkra klukkutíma en Hjörtur Her-
mannsson og félagar í Bröndby
náðu forystunni í deildinni á ný í
gærkvöld með því að vinna Horsens
2:1 á útivelli. Þar skoraði Kjartan
Henry Finnbogason mark Horsens í
uppbótartíma.
Bröndby er með 27 stig á toppn-
um, AGF 24 og Midtjylland 24 en
síðastnefnda liðið getur náð efsta
sætinu á ný í kvöld þegar það mætir
Nordsjælland í síðasta leik ársins í
deildinni.
Jón maður leiksins
Morgunblaðið/Eggert
Tvenna Jón Dagur Þorsteinsson átti
mjög góðan leik með AGF í gær.
Spánn
Obradorio – Zaragoza ...................... 102:91
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 4 stig
fyrir Zaragoza, tók 5 fráköst og átti eina
stoðsendingu á 23 mínútum.
Valencia – Murcia................................ 89:78
Martin Hermannsson skoraði 5 stig fyrir
Valencia, átti 4 stoðsendingar og tók eitt
frákast á 13 mínútum.
Andorra – Estudiantes ....................... 81:73
Haukur Helgi Pálsson skoraði eitt stig
og tók 3 fráköst fyrir Andorra á 14 mín-
útum.
Þýskaland
Fraport Skyliners – Bayreuth ......... 104:86
Jón Axel Guðmundsson skoraði 25 stig
fyrir Fraport, átti 8 stoðsendingar og tók 2
fráköst á 31 mínútu.
Bretland
Nottingham – Leicester Riders ......... 64:69
Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 12 stig
fyrir Leicester, tók 8 fráköst og átti eina
stoðsendingu á 32 mínútum.
Þýskaland
RN Löwen – Bergischer ..................... 24:23
Alexander Petersson skoraði 3 mörk fyr-
ir Löwen en Ýmir Örn Gíslason ekkert.
Arnór Þór Gunnarsson skoraði eitt mark
fyrir Bergischer en Ragnar Jóhannsson
ekkert.
Magdeburg – Nordhorn ..................... 28:20
Ómar Ingi Magnússon skoraði 3mörk
fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist-
jánsson 3.
Göppingen – Melsungen ..................... 23:30
Janus Daði Smárason skoraði eitt mark
fyrir Göppingen.
Arnar Freyr Arnarsson skoraði ekki fyr-
ir Melsungen. Guðmundur Þ. Guðmunds-
son er þjálfari liðsins.
Balingen – Füchse Berlín ................... 19:28
Oddur Gretarsson skoraði 2 mörk fyrir
Balingen.
Stuttgart – Kiel.................................... 27:34
Viggó Kristjánsson skoraði 6 mörk fyrir
Stuttgart en Elvar Ásgeirsson ekkert.
Efstu lið:
Flensburg 21, Rhein-Neckar Löwen 21,
Kiel 20, Füchse Berlín 19, Leipzig 17,
Magdeburg 16, Göppingen 15, Lemgo 15,
Stuttgart 15, Wetzlar 14, Melsungen 13.
B-deild:
Gummersbach – Bietigheim .............. 31:17
Elliði Snær Viðarsson skoraði 3 mörk
fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs-
son þjálfar liðið.
Aron Rafn Eðvarðsson varði 5 skot í
marki Bietigheim, 20%. Hannes Jón Jóns-
son þjálfar liðið.
Lübeck-Schwartau – Aue................... 34:25
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði eitt
mark fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson
varði 4 skot, 21%, í marki liðsins. Rúnar
Sigtryggsson þjálfar Aue.
Spánn
Bidasoa – Barcelona ........................... 27:37
Aron Pálmarsson skoraði 2 mörk fyrir
Barcelona.
Danmörk
GOG – Skjern ....................................... 30:25
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 11 skot í
marki GOG, 34%, og skoraði eitt mark.
Elvar Örn Jónsson skoraði 5 mörk fyrir
Skjern.
SönderjyskE – Kolding....................... 29:26
Sveinn Jóhannsson skoraði ekki fyrir
SönderjyskE en Ágúst Elí Björgvinsson
varði eitt skot, 25%, í marki Kolding.
Frakkland
Aix – Tremblay .................................... 32:27
Kristján Örn Kristjánsson skoraði 8
mörk fyrir Aix.
Sviss
Kadetten – Bern .................................. 25:24
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.
„Þetta er mögnuð upplifun og eitthvað sem okkur dreym-
ir um alla daga. Að vinna gull er það besta sem hægt er að
gera í handbolta,“ sagði kampakátur Þórir Hergeirsson
landsliðsþjálfari Noregs í samtali við TV3 í Noregi eftir að
hann stýrði liðinu til sigurs á Evrópumóti kvenna í hand-
bolta í fjórða skipti í gær.
„Ég er mjög stoltur af þessu liði sem hefur unnið vel
saman síðustu ár,“ sagði Þórir. Hann var sérstaklega sátt-
ur með mótshaldarana, en allt mótið fór fram í Danmörku
eftir að Noregur hætti við mótshald vegna kórónuveir-
unnar. „Ég vil þakka skipuleggjendum mótsins fyrir þá
vinnu sem þeir lögðu á sig.“
Selfyssingurinn hrósaði Noru Mørk sérstaklega en hún lék frábærlega fyr-
ir Noreg á mótinu eftir að hafa hrist af sér mikið mótlæti síðustu ár. „Þetta
hefur verið erfitt ferðalag fyrir hana og ég er kátur með hennar framlag.
Hún er okkur gríðarlega mikilvæg og algjör sigurvegari,“ sagði Þórir.
Mjög stoltur af þessu liði
Þórir
Hergeirsson
Landsliðsmiðvörðurinn Sverrir Ingi
Ingason skoraði sigurmark PAOK
frá Þessalóníku gegn Panathinaikos
frá Aþenu í stórleik helgarinnar í
gríska fótboltanum. Markið gerði
hann með skalla um miðjan síðari
hálfleik og lokatölur urðu 2:1.
PAOK lýkur þar með árinu í
þriðja sæti eftir tólf umferðir með 27
stig en Olympiacos er með 32 stig og
Aris 29 í tveimur efstu sætunum.
Þetta var fyrsta mark Sverris á
tímabilinu en hann hefur spilað tíu
af tólf leikjum liðsins.
Sverrir skor-
aði sigurmark
AFP
Mark Sverrir Ingi Ingason tryggði
PAOK sigur á Panathinaikos.