Morgunblaðið - 23.12.2020, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 3. D E S E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 302. tölublað 108. árgangur
Kertasníkir kemur í kvöld
1dagurtil jóla
jolamjolk.is
NÝR ÞJÁLF-
ARI LANDS-
LIÐSINS
BESTU
KVIKMYNDIR
ÁRSINS
FÆRRI GESTA-
KOMUR EN
MEIRI VELTA
LOGANDI STÚLKA 29 VIÐSKIPTAMOGGINNARNAR ÞÓR 26
Vísitala þorsks lækkar þriðja árið í
röð samkvæmt haustmælingu Haf-
rannsóknastofnunar Íslands.
Hún leiðir í ljós að stofnvísitala
þorsks hefur lækkað töluvert frá
árinu 2017 þegar hún mældist sú
hæsta frá upphafi haustmæling-
arinnar. Nú er vísitalan svipuð því
sem hún var árin 2008-2009.
Lækkunina í ár má rekja til þess
að fjöldavísitala 40-80 cm fisks var
undir meðaltali rannsóknar-
tímabilsins. Stofnvísitala ýsu hefur
haldist svipuð frá árinu 2017.
Árgangur þorsks frá 2019 mæld-
ist vel yfir meðalstærð og fyrsta
mæling á yngsta árgangi þorsksins
er sú hæsta frá upphafi mælinga
1996. Árgangur ýsu frá 2019 mæld-
ist yfir meðalstærð og fyrstu vís-
bendingar um árganginn frá 2020
gefa til kynna að hann sé einn af
þeim stærstu síðan mælingar hóf-
ust 1996. Nýliðun gullkarfa, djúp-
karfa og blálöngu hefur verið mjög
léleg undanfarin ár. Vísitala nýlið-
unar hjá grálúðu, sem hefur lækk-
að hratt frá hámarkinu árin 2009-
2013, sýndi merki um jákvæða þró-
un í ár.
Magn flestra brjóskfiska jókst
eða hélst í stað frá fyrra ári. Stofn
geirnytar hefur ekki mælst jafn
stór frá upphafi mælinga 1996.
Morgunblaðið/Eggert
Þorskur Árgangur þorsks frá 2019
mældist vel yfir meðalstærð.
Vísitala
þorsks
lækkar
Skipverji á Sigurði VE slasaðist
talsvert á hendi þegar hann var bit-
inn af hámeri á kolmunnamiðum
suður af Færeyjum í lok nóvember.
Siglt var með manninn til Þórs-
hafnar í Færeyjum þar sem gert
var að sárum hans á sjúkrahúsi. Að-
gerðin gekk vel og er maðurinn á
batavegi, en er enn óvinnufær.
Samkvæmt upplýsingum frá Ís-
félaginu, útgerð Sigurðar VE, kom
hámerin upp með trollinu og var
búið að losa hana úr veiðarfærinu.
Ekki virtist lífsmark með fiskinum
og hugðist skipverjinn koma hon-
um fyrir borð. Hámerin reyndist
hins vegar á lífi og beit skipverjann
í vinstri hendi svo mikið blæddi og
sinar og vöðvar sködduðust.
Líklegt er að hámerin hafi verið
hálfur annar metri á lengd, en há-
meri er af ætt háfiska eins og há-
karlar og háfar, sem tilheyra flokki
brjóskfiska.
„Hámerin telst ekki hættuleg
fólki og eru sárafá þekkt tilvik þar
sem hámeri hefur ráðist á menn.
Þau tilvik sem þó eru þekkt hafa
flest orðið um borð í bátum þegar
fiskar voru komnir upp á þilfar og
bitu frá sér,“ segir meðal annars á
Vísindavefnum. aij@mbl.is
Sjómaður bitinn af hámeri
Háfiskar Hámeri er skyld hákarli
og háfi, allt vel tenntir fiskar.
Voru á kolmunnaveiðum Hélt að fiskurinn væri dauður
Allar umsagnir um nýja reglu-
gerð heilbrigðisráðherra um lyfja-
verð, sem gildi á að taka um ára-
mót, vara við því að hún ógni
lyfjaöryggi í landinu. Ný ákvæði
um verðviðmið, andstæð nýjum
lyfjalögum, muni óhjákvæmilega
minnka lyfjaframboð og torvelda
markaðssetningu nýrra lyfja.
Þrjú norræn lyfjafyrirtæki sendu
inn umsagnir á sömu leið og vara
við því að þau kunni að hætta að
selja lyf hingað.
Rúna Hauksdóttir, forstjóri
Lyfjastofnunar, vildi í samtali við
Morgunblaðið ekki leggja mat á að-
finnslurnar í umsögnunum, en
sagði að þessi fyrirtæki þekktu
markaðinn auðvitað best. »8, 10
Ný reglugerðardrög
minnka lyfjaöryggi
Viðar Guðjónsson
Oddur Þórðarson
Skriðan sem féll utan Búðarár á
Seyðisfirði á föstudag er sú stærsta
sem fallið hefur í þéttbýli hér á landi.
Ríkisstjórnin ætlar að gera ráðstaf-
anir til að verja íbúa Seyðisfjarðar
„til framtíðar“, að sögn fjármála- og
efnahagsráðherra.
Aðstæður í Botnabrún voru skoð-
aðar sérstaklega í gær og er það mat
Veðurstofunnar að óverulegar líkur
séu á skriðu sem skapað geti hættu
neðan Múlavegar. Fólki er því heim-
ilt að snúa aftur heim í þau hús. Enn
er rýming í gildi á öðru svæði, að
minnsta kosti til 27. desember.
Harpa Grímsdóttir, hópstjóri
ofanflóðavöktunar Veðurstofu Ís-
lands, sagði í tilkynningu sem Veð-
urstofan birti í gær að sérfræðingar
hefðu ekki búist við skriðu af þessari
stærðargráðu. Þeir hefðu vanmetið
aðstæður utan Búðarár.
Fjórir ráðherrar ríkisstjórnarinn-
ar heimsóttu Seyðisfjörð í gær. Þeir
voru slegnir yfir aðkomunni. Bjarni
Benediktsson, fjármála- og efna-
hagsráðherra sagði að þeir væru
komnir á staðinn til að sýna íbúum
samstöðu.
„Mér finnst það skipta máli, að við
ætlum að standa með [Seyðfirðing-
um] og gera ráðstafanir til að verja
[þá] til framtíðar,“ sagði Bjarni.
Sigurður Ingi sagði að enginn vafi
væri á því að ríkisstjórnin ætlaði sér
að taka þátt í uppbyggingarstarfi á
Seyðisfirði en í það minnsta ellefu
hús skemmdust vegna skriðnanna
sem féllu í síðustu viku.
Þóra Guðmundsdóttir, arkitekt og
hótelhaldari á Seyðisfirði, sést hér í
forgrunni myndarinnar en hún gaf
ráðherrunum bók sem hún skrifaði
um byggingarsögu Seyðisfjarðar.
„Þessi bók var endurútgefin í
sumar og mér þótti viðeigandi að
ráðherrarnir fengju bókina, Húsa-
sögu Seyðisfjarðarkaupstaðar. Þeir
geta þá glöggvað sig á þeim húsum
sem hér standa, hafa staðið og þeim
sem nú eru nær horfin,“ sagði Þóra.
Sú stærsta sem fallið hefur
Aðstæður utan Búðarár voru vanmetnar Ríkisstjórnin ætlar að gera ráðstaf-
anir til að verja íbúa Seyðisfjarðar „til framtíðar“, að sögn Bjarna Benediktssonar
MAurskriður á Seyðisfirði »4
Morgunblaðið/Eggert
Samræður Þóra ásamt Pétri Kristjánssyni, fyrrverandi forstöðumanni Tækniminjasafns Austurlands, og Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra.