Morgunblaðið - 23.12.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2020
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell
gæða lofthreinsitæki
Góð jólagjöf
Verð kr.
37.560
handapabba ogmömmu
og afa og ömmu
er bæði spennandi
og ógnvekjandi
Bókin fæst í Eymundsson
UNGMENNABÓKIN
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Katrín hefur ekki tekið yfir
Svandís áfram í forystu hvað varðar bóluefni Málið á borði ríkisstjórnarinnar
Viðar Guðjónsson
Oddur Þórðarson
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að
hún sé ekki með neinu móti tekin við af Svandísi
Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra við að útvega
bóluefni við kórónuveirunni fyrir Íslendinga.
Undanfarið hefur hún átt samtöl við ýmsa hátt-
setta aðila til þess að tryggja aðgengi Íslands að
bóluefni. „Ég er bara að vinna vinnuna mína,“
segir Katrín í samtali við Morgunblaðið. „Þetta
verkefni er búið að vera á borði ríkisstjórn-
arinnar vikum og mánuðum saman og heilbrigð-
isráðherra hefur auðvitað haft forystu um þetta
mál og fer með þetta mál. Mitt hlutverk í þessu
er bara eins og allra annarra forsætisráðherra í
heiminum.“
Katrín segist hafa verið í sambandi við Ur-
sulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórn-
ar Evrópusambandsins, um stöðu á bóluefna-
markaði í Evrópu. Þá ræddi hún einnig við
yfirmann bóluefnasviðs lyfjarisans Pfizer. Með
því segist hún vera að verja hagsmuni Íslands
en ekki síður að taka púlsinn á hlutaðeigandi að-
ilum og kanna stöðuna. „Ég er náttúrlega búin
að vera í sambandi við til dæmis Ursulu von der
Leyen nokkrum sinnum út af þessum málum og
er auðvitað bara að sinna mínu hlutverki í því að
taka þátt í að verja hagsmuni Íslands.“
Samningur við Janssen í höfn
„Þannig að það skiptir máli bæði að minna á
sig og líka bara mikilvægt að glöggva sig betur
á stöðunni, sem er síbreytileg frá degi til dags.
Og ef það er eitthvað sem ég tek út úr mínum
símtölum við fólk þá er það í raun og veru bara
það að það hélt eiginlega enginn að við yrðum
komin á þennan stað í desember að vera að
byrja að bólusetja,“ segir Katrín.
Íslensk stjórnvöld undirrituðu í gær sam-
komulag við lyfjaframleiðandann Janssen um
kaup á bóluefni við Covid-19. Samningurinn við
Janssen tryggir bóluefni fyrir 235.000 einstak-
linga. Áður var búið að gera samning um bólu-
efni frá Pfizer fyrir 85.000 einstaklinga og Astra
Zeneca fyrir 115.000 einstaklinga. Bóluefni Ís-
lands er á sömu tímaáætlun og bóluefni allra
ríkja sem semja um það í gegnum ESB, segir
Róbert Marshall, upplýsingafulltrúi ríkisstjórn-
arinnar, spurður hversu fljótt bóluefnið muni
berast hingað til lands.
Yfirfasteignamatsnefnd hefur fellt
úr gildi ákvörðun Þjóðskrár Íslands
um endurmat fasteignamats vinnu-
búða Búrfellsvirkjunar, Skeljastöð-
um 11 í Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi. Nefndin lagði fyrir Þjóð-
skrá að taka málið til meðferðar að
nýju.
Landsvirkjun sætti sig ekki við
ákvörðun Þjóðskrár um að skrá og
meta vinnubúðirnar til fasteigna-
mats, enda væri ekki um fasteign
að ræða, og kærði ákvörðunina. Í
niðurstöðu yfirfasteignamats-
nefndar kemur m.a. fram að hún
telji að vinnubúðirnar séu ekki
fasteign samkvæmt lögum um
skráningu og mat fasteigna (6/
2001) og geti þar með „hvorki sætt
skráningu í fasteignaskrá né verið
metið til verðs samkvæmt fyrir-
mælum laganna“. gudni@mbl.is
Vinnubúðir
ekki fasteign
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Búrfellsvirkjun Deilan snerist um
færanlegar vinnubúðir.
Áætlunarflug til og frá Vestmannaeyjum hófst
að nýju í gær eftir nokkurra mánaða hlé, þegar
Air Iceland Connect fór fyrstu ferðina þangað.
Flugstjóri var Eyjamaðurinn Jónas Jónasson og
Arnar Þór Emilsson var í sæti flugmanns. Yfir
hátíðirnar er flugfélagið með ferðir 27. og 28.
desember og 3. janúar. Eftir það verður flogið
tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, og
næsta sumar verða ferðirnar tvisvar á dag fjóra
daga vikunnar.
Farþegar til Eyja voru m.a. fólk á leið heim í
jólafrí. „Flugið er okkur mikilvægt og að þessar
samgöngur séu komnar á að nýju þýðir að í dag
eru allir glaðir,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjar-
stjóri í Eyjum, við Morgunblaðið. sbs@mbl.is
Allir glaðir með að Eyjaflug sé hafið að nýju
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Jólaferð Air Iceland Connect til Vestmannaeyja og föst áætlun í framhaldinu
Sex greindust
með kórónu-
veirusmit í fyrra-
dag. Af þeim var
aðeins einn í
sóttkví við grein-
ingu.
Í gær voru 28 á
sjúkrahúsi með
Covid-19 og þar
af tveir á gjör-
gæslu.
Tekið var 2.461 sýni. Í gærmorg-
un voru 139 í einangrun og hafði
fækkað um tvo frá því daginn áður.
Í sóttkví voru 582 og hafði fjölgað
um 30. Ellefu smit greindust á
landamærunum.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir var ánægður með það að
kórónuveirusmitum fjölgaði ekki á
milli daga. Hann sagði að þeir smit-
uðu sem voru utan sóttkvíar tengd-
ust hópum í flestum tilvikum. Þór-
ólfur sagði mikilvægt fyrir fólk að
passa sig áfram og viðhafa sótt-
varnir. Það væri slæmt ef fólk
þyrfti að fara í einangrun um jólin.
Fimm ekki í sóttkví
Þórólfur
Guðnason
„Framtíðarsýn ríkissáttasemjara er
að meginreglan verði sú að nýr
samningur taki við áður en sá eldri
rennur út. Í nágrannalöndum okkar
á það við í um 90% tilvika að samn-
ingur taki við af samningi, en það er
nær óþekkt á Íslandi að nýr samn-
ingur sé undirritaður áður en sá
gamli rennur út. Mjög algengt er á
Íslandi að það líði hartnær ár frá því
að samningur rennur út áður en nýr
er undirritaður.“ Þetta segir Aðal-
steinn Leifsson ríkissáttasemjari. Á
árinu sem er að líða var unnið að
lausn 64 sáttamála hjá embættinu og
enn eru níu mál óleyst.
Hartnær 70 málum hefur verið
vísað til ríkissáttasemjara í samn-
ingalotunni, sem hófst í byrjun árs
2019. Alls hafa verið gerðir rúmlega
300 samningar á þeim tíma, yfir 450
formlegir sáttafundir hafa verið
haldnir og um 150 óformlegir samn-
inga- og undirbúningsfundir o.fl.
Stóð yfir í þrjá daga
Lengsti formlegi samningafund-
urinn á þessu ári stóð í þrjá daga
með hléum til hvíldar og næringar.
„Eitt meginverkefnið fram undan
er að styðja við vinnu samninga-
nefnda þannig að fleiri mál leysist
farsællega án formlegrar aðkomu
ríkissáttasemjara, til að mynda með
fyrirbyggjandi sáttamiðlun og aukn-
um undirbúningi. Einnig að stytta
þann tíma sem fer í samningavið-
ræðurnar, eftir því sem hægt er,“
segir Aðalsteinn. Sum mál hafa tekið
mikinn tíma, t.a.m. deila Flugfreyju-
félagsins og Icelandair, sem var vís-
að 2018 en lauk ekki fyrr en eftir að
haldnir höfðu verið 60 formlegir
samningafundir. omfr@mbl.is »12
Unnið að lausn 64
sáttamála á árinu