Morgunblaðið - 23.12.2020, Síða 8

Morgunblaðið - 23.12.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2020 og farsælt komandi ár Heilbrigðisráðherra birti drögað nýrri reglugerð um verð- lagningu og greiðsluþátttöku lyfja í samráðsgátt hinn áttunda þessa mánaðar, gaf fyrst tíu daga til um- sagnar en bætti svo tveimur við. Ætl- unin er að reglu- gerðin taki gildi um áramót.    Þessi tími erknappur, eink- um þegar horft er til þess að með reglugerðinni er ætlunin að gerbreyta fyrirkomu- lagi verðlagningar lyfja hér á landi, eins og nánar er fjallað um í fréttaskýringu á næstu opnu.    Vegna takmarkaðs tíma til aðgefa álit voru umsagnir færri en búast mætti við vegna svo veigamikillar breytingar. Fjórtán umsagnir bárust þó og vara nánast allar sterklega við breytingunni, sem felst í stuttu máli í að miða verð lyfja hér á landi við lægsta verð í Evrópu í stað meðalverðs á Norðurlöndunum. Erfitt er að sjá að þetta sé raunsæ krafa.    Athygli vekur að Lyfjastofnunveitir ekki umsögn og í fyrr- nefndri fréttaskýringu segir for- stjórinn að það hafi ekki þótt við hæfi. En um leið og hún segist ekki leggja dóm á aðfinnslur við reglu- gerðardrögin segir hún um fyrir- tækin sem þær bera fram að þau þekki „auðvitað þennan markað best og hafi mesta reynslu af þess- um málum“.    Tæki heilbrigðisráðherra ekkitillit til þeirra athugasemda sem fram eru komnar væri hún að taka mikla áhættu. Ekki aðeins pólitíska áhættu, heldur fyrst og fremst áhættu með heilsu sjúk- linga hér á landi. Það væri óverj- andi. Svandís Svavarsdóttir Gagnrýniverð reglugerðardrög STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Ekki eru gerðar skipulagslegar at- hugasemdir við að breyta Bænda- höllinni (Hótel Sögu) við Hagatorg í hjúkrunarheimili. Til að breyta hús- næðinu í íbúðir á efri hæðum þarf að koma til deiliskipulagsbreyting ef sýnt er fram á ásættanlega útfærslu íbúðagerða og lóðar. Þetta er niðurstaða skipulagsfull- trúa Reykjavíkurborgar, sem sam- þykkt var á fundi hans sl. föstudag. Hins vegar hefur engin ákvörðun verið tekin um framtíð hússins, að sögn Gunnars Þorgeirssonar, for- manns Bændasamtaka Íslands, eig- anda hússins. Hann segir að ýmsar fyrirspurnir hafi borist eftir að Hót- el Sögu var lokað 1. nóvember sl. frá aðilum sem hafa áhuga á því að vera með hótelrekstur í húsinu. Stjórn Bændasamtakanna kemur næst saman fljótlega á nýju ári og verða málin þá rædd, að sögn Gunnars. Bændasamtökin hafa undanfarið verið í viðræðum við fyrirtækið Heilsuvernd, sem er einkarekin heilsugæsla í Urðarhvarfi. Fulltrúi fyrirtækisins sendi fyrirspurn til skipulagsfulltrúa um það hvort breyta mætti Hótel Sögu í hjúkr- unarheimili eða íbúðir, og birtist frétt þess efnis í Morgunblaðinu. „Þessi frétt kom okkur talsvert á óvart sem eiganda hússins því við höfðum ekki vitneskju um fyrir- spurnina. Það hefði mögulega verið kurteisi að láta okkur vita um hana fyrirfram,“ segir Gunnar. Hann sagði að ekkert tilboð væri komið í eignina frá Heilsuvernd og líklega væri fyrirtækið að kanna málið frek- ar. sisi@mbl.is Breyta má Sögu í hjúkrunarheimili Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bændahöllin Húsið er um 20 þúsund fermetrar og í eigu bænda. Viðræður munu hefjast í janúar við fulltrúa Ármanns og Þróttar um upp- byggingu íþróttamannvirkja í Laug- ardal. Þetta sagði Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar, þegar leitað var viðbragða við gagn- rýni Finnboga Hilmarssonar, for- manns Þróttar, á borgaryfirvöld og sagt var frá í laugardagsblaðinu. Að sögn Bjarna er í framkvæmda- áætlun Reykjavíkurborgar fyrir næstu ár gert ráð fyrir fjármagni til endurnýjunar gervigrasvallar og gerðar nýrra gervigrasvalla í Laug- ardal. Einnig sé í áætluninni gert ráð fyrir fjárveitingum vegna íþróttahúss í Laugardal. Þá hafi verið skipaður starfshópur með Þrótti, Ármanni, ÍTR og ÍBR til að fara yfir þarfagreiningu um íþróttahús í Laugardal og einnig hef- ur verið skipaður starfshópur til að fara yfir heildarskipulag í Laugardal. Borgarráð hafi samþykkt tillögur þessa efnis á fundi sínum 19. nóv- ember 2020. Í fréttinni sl. laugardag var vitnað í grein sem Finnbogi ritaði í jólablað Þróttar. Þar sagði Finnbogi að ekki yrði betur séð en að verkefni 4 og 5 á forgangslista um uppbyggingu íþróttamannvirkja hefðu verið tekin fram fyrir verkefni 2 og 3 í fram- kvæmdaáætlun borgarinnar, en þau verkefni snúa að uppbyggingu í Laugardal, sem nýtast muni Þrótti og Ármanni. Bjarni hafnar því að þessi verkefni hafi verið tekin fram fyrir hjá borginni. Þróttarar búa að sögn Finnboga við óboðlegar aðstæður nú um stund- ir. Laugardalshöll er lokuð vegna vatnsleka og yfir 1.000 iðkendur deili einum útslitnum gervigrasvelli. sisi@mbl.is Ræða við Ármann og Þrótt fljótlega  Borgin segir að uppbygging í Laug- ardal sé á áætlun Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Laugardalur Nýir gervigrasvellir Þróttar eru á áætlun, segir borgin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.