Morgunblaðið - 23.12.2020, Qupperneq 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2020
✝ Ágústína Dag-björt Eggerts-
dóttir fæddist í
Reykjavík 11. ágúst
1931. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ 10. des-
ember 2020.
Foreldrar henn-
ar voru Eggert
Ólafsson og k.h.
Anna Sigurbrands-
dóttir. Yngri systir
Ágústínu var Eyrún Snót Egg-
ertsdóttir, f. 3. júlí 1934, d. 13.
nóvember 2012.
Þann 26. október 1954 giftist
Ágústína Gunnari Þóri Þjóðólfs-
syni, f. 13. nóvember 1932, d. 20.
júní 2012. Foreldrar hans voru
Þjóðólfur Guðmundsson og k.h.
Lovísa María Vigfúsdóttir.
Ágústína og Gunnar eignuðust
fimm börn. Þau eru:
1) Anna Bjargey, f. 5.1. 1955,
gift Ara Brimari Gústafssyni.
Dóttir þeirra: Berglind Anna,
gift Brynjólfi Péturssyni. Sonur
þeirra: Brimþór Valur.
2) Þjóðólfur, f. 6.6. 1956. Dótt-
ir hans með fyrri eiginkonu sinni
Þórdísi Ásgeirsdóttur: Dagbjört
Nína gift Ásgeiri Rafni Erlings-
syni. Börn þeirra: Aþena Þórdís,
Veronika Amý, Erling Aron og
Agla Guðbjörg. Dóttir Dag-
bjartar með Sigurði Ívari Sölva-
syni: Karlotta Sjöfn. Synir Þjóð-
ólfs með seinni eiginkonu hans,
Jóhönnu Helgu Haraldsdóttur:
Haraldur Ingi, kvæntur Ingi-
björgu Fanneyju Pálsdóttur.
Dóttir þeirra: Katrína Lilja. Daði
Þór í sambúð með Þorgerði Völu
Guðmundsdóttur. Þau eiga ný-
fæddan óskírðan son. Gunnar
Þórir í sambúð með Urði Örnu
Ómarsdóttur. Barn þeirra: Helga
Sóllilja.
3) Ragnar Guðmundur, f. 10.3.
1958, kvæntur Heiðrúnu Rósu
Sverrisdóttur. Börn
þeirra: Anna Guð-
rún gift Jack Barbo-
ur og Frosti Hlífar.
4) Eggert, f. 5.1.
1966. Börn hans
með Snæfríði Þór-
hallsdóttur: Brand-
dís Ásrún, Yrsa
Björt og Þórhallur
Ími.
5) Lovísa María,
f. 14.8. 1969. Dætur
hennar Unnur María og Fanney
Magnúsdætur.
Ágústína Dagbjört fæddist í
Vesturbænum í Reykjavík. Hún
dvaldi sem barn mörg sumur á
Hellissandi hjá frænku sinni
Andreu Kristjánsdóttur. Hún
gekk í Miðbæjarskólann í
Reykjavík og lauk þaðan barna-
skólaprófi. Þegar því lauk fór
hún í kvöldskóla KFUM og K.
Hana þyrsti alltaf í áframhald-
andi nám en það var ekki mögu-
legt þar sem hún þurfti að vinna
með náminu og brauðstritið náði
yfirhöndinni. Hún vann meðal
annars við fiskvinnslu og hjá
Orku við skrifstofustörf. Eftir að
hún giftist Gunnari var hún um
tíma heimavinnandi og sinnti
barnauppeldi. Á meðan börnin
uxu úr grasi vann hún við ræst-
ingar hjá Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Þegar þau yngstu uxu úr
grasi fór hún aftur út á vinnu-
markaðinn og vann um tíma hjá
Nóa Síríus. Á fullorðinsárum
stundaði hún málanám við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti. Í um
10 ár vann hún svo sem matráðs-
kona hjá mötuneyti RÚV. Þegar
Gunnar féll frá fluttist hún í íbúð-
ir fyrir aldraða, Eirborgir, við
Fróðengi.
Útför hennar fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík 22. desem-
ber. Í ljósi aðstæðna var útförin í
kyrrþey.
Móðir mín, Ágústína Eggerts-
dóttir, eða Gústa eins og hún vildi
láta kalla sig, er farin. Farin í síð-
ustu langferðina.
Þegar ég sat hjá mömmu síð-
asta kvöldið sem hún lifði upp-
götvaði ég að hún hafði verið til
staðar fyrir mig í 65 ár. Margs er
að minnast.
Mamma hugsaði vel um okkur
systkinin fimm, þótt oft hafi verið
þröngt í búi á fyrstu hjúskaparár-
um hennar og pabba. Þá var bara
reynt að gera það besta úr því
sem til var. Ég man þennan árs-
tíma, jólin að koma. Þá var bakað
og saumuð föt á okkur börnin,
jafnvel náttfötin voru heima-
saumuð. Hún og pabbi hugsuðu
bæði það sama, að búa okkur
börnin undir lífið, menntun okkur
til handa var þeirra aðalmarkmið,
en menntun var það sem þau bæði
þráðu, en brauðstritið varð að
vera í fyrirrúmi.
Handavinna var áhugamál
mömmu, alveg fram undir það
síðasta.
Hún var og mikið fyrir að
hreyfa sig, fimleikar og sund voru
hennar helsta uppáhald. Mamma
naut þess að ferðast erlendis og
fóru þau pabbi ótal ferðir til út-
landa. Mamma naut þess að skoða
sig um, og var forvitin um þá staði
sem þau heimsóttu.
Fyrir 46 árum kom maðurinn
minn til sögunnar, hún var nú
ekkert sérlega hress með ráða-
haginn, en það breyttist er frá leið
og urðu þau bestu mátar. Þau
fóru ófáar óvissuferðir hin síðustu
ár og oftast fékk hún að heyra
sögur um landið, landslagið og
jafnvel draugasögur. Oft enduðu
þessar ferðir á kaffi- eða veitinga-
húsi hvar boðið var upp á snæðing
að hætti staðarins. Stundum var
farið í ísbíltúr, og þá skoðuð hin
ýmsu nýju hverfi í nágrenni borg-
arinnar.
Dóttir okkar Berglind Anna
var heimagangur hjá ömmu sinni
og afa frá unga aldri, þess minnist
hún með þakklæti.
Elsku mamma, við eigum eftir
að sakna þín, en minningarnar
eiga eftir að ylja okkur um
ókomna tíð. Takk fyrir allt. Þú
trúðir því að pabbi, og allir sem á
undan eru farnir, muni bíða eftir
þér fyrir handan, komir þú fagn-
andi í þann hóp, far í friði.
Anna Bjargey.
Elsku amma. Ég sit hérna að
reyna að skrifa einhver orð til þín,
en ég er svo tóm.
Eitt get ég sagt: ég er mjög
þakklát fyrir að hafa átt þig sem
ömmu, þú varst yndislegasta og
þolinmóðasta amma sem barn
gæti óskað sér.
Takk fyrir að hafa verið alltaf
til staðar fyrir mig.
Minningarnar um þig verma
hjarta mitt og mér finnst ég svo
rík að hafa fengið þig sem ömmu
og afa sem afa.
Ég veit að hann hefur tekið vel
á móti þér.
Sakna þín/ykkar endalaust.
Ég enda þessi orð með þessu
ljóði:
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Ég elska þig alltaf.
Þín
Dagbjört Nína.
Ágústína Dagbjört
Eggertsdóttir
Fallinn er frá
sómamaðurinn Jón
H. Stefánsson. Lát
hans kom okkur
hjónunum á óvart. Kynni okkar
Jóns hófust fyrir réttum fimmtíu
árum þegar við urðum samstarfs-
félagar við Álverið í Straumsvík,
sú samvinna varði á þriðja ára-
tug.
Jón var skarpgreindur og dug-
legur starfsmaður, dagfarsprúð-
ur og hæglátur. Hann var afar
þægilegur í öllu samstarfi, vel lát-
inn og naut virðingar.
Árið 1971 kvæntist hann Birnu
Kjartansdóttur og saman eignuð-
ust þau þrjú börn. Fyrir alllöngu
kom í ljós að Birna var með MS-
sjúkdóm sem smám saman batt
hana við hjólastól. Jón reyndist
henni mikil stoð og stytta alla tíð.
Fötlun hennar kom ekki í veg
Jón Hjaltalín
Stefánsson
✝ Jón HjaltalínStefánsson
fæddist 5. janúar
1945. Hann lést 1.
desember 2020.
Jón var jarð-
sunginn 10. desem-
ber 2020.
fyrir að þau nytu
lífsins og m.a. ferð-
uðust þau víða. Sí-
gild tónlist höfðaði
mjög til þeirra. Þau
voru árum saman
fastagestir á sinfón-
íutónleikum í Hörp-
unni. Þar hittumst
við iðulega. Í upp-
hafi tónleikaárs nut-
um við oft ábend-
inga þeirra um
áhugaverð verk. Þau voru með-
limir í Wagner-félaginu og fóru
oftar en einu sinni til Bayreuth í
Þýskalandi. Einnig sóttu þau tón-
listarviðburði í óperuhúsunum
Scala og Metropolitan.
Vinátta okkar við þau hjón var
löng og gefandi. Samstarfsmenn
og makar hittust áður fyrr árlega
í heimahúsum og áttu ógleyman-
legar stundir.
Á sorgarstundu sendum við
hjónin Birnu og fjölskyldu henn-
ar innilegar samúðarkveðjur.
Megi almættið styðja hana og
styrkja um ókomin ár.
Blessuð sé minning góðs fé-
laga.
Ingvar Pálsson.
✝ Kristín ÞóraValdimars-
dóttir fæddist í
Reykjavík 7. sept-
ember 1944. Hún
lést á Heilbrigðis-
stofnun Suður-
nesja 6. desember
2020.
Foreldrar henn-
ar voru Valdimar
Anton Valdimars-
son og Anna Þór-
arinsdóttir. Áttu þau átta
börn, þau eru Ágústa Anna,
Jóna Guðríður, Valgerður, Ás-
geir, Gísli Kristinn, Valdimar
Anton, Aðalsteinn og Kristín
Þóra var næstyngst. Tvær
systranna eru látnar.
Árið 1963 giftist hún fyrri
manni sínum, Engilbert Kol-
beinssyni skipstjóra, og eign-
uðust þau þrjú
börn saman, þau
Sigurrós, Guð-
mund og Kolbein
Guðmund. Kristín
og Engilbert
skildu.
Árið 1974 giftist
hún seinni manni
sínum, Þórarni
Guðmundssyni
bónda, og eign-
uðust þær þrjár
dætur, Þórdísi Önnu, Valgerði
og Ögn. Þórarinn lést 2016.
Þau bjuggu á Valdalæk á
Vatnsnesi þangað til þau
brugðu búi og flutti fjöl-
skyldan til Grindavíkur 1988
og þar bjó Kristín til æviloka.
Útför Kristínar Þóru fór
fram í kyrrþey frá Grindavík-
urkirkju 14. desember 2020.
Okkur langar til þess að minn-
ast Kristínar frá Valdalæk í
nokkrum orðum.
Hún kom hingað í sveitina sem
ráðskona og kynntist þar seinni
manni sínum, Þórarni á Valda-
læk, og þau giftu sig og bjuggu
þar myndarbúi í mörg ár, uns þau
fluttu til Grindavíkur og voru þar
til loka, en komu alltaf norður á
vorin og dvöldu fram á haust. En
eftir að Þórarinn lést fyrir fjórum
árum kom hún ein, nema sl. sum-
ar.
Hún átti þrjú börn frá fyrra
hjónabandi, eina dóttur og tvo
drengi, sem ólust þar upp hjá
þeim, en saman áttu þau Þórar-
inn þrjár dætur, allt mesta fyr-
irmyndarfólk.
Þau hjón voru miklir vinir okk-
ar og góð og einlæg samskipti
alla tíð, voru á milli heimilanna og
söknum við þeirra sárlega. En líf-
ið hefur sinn gang og lítið sem
hægt er að gera við því.
Kristín var góð manneskja,
alltaf létt í lund og tók hlutina
með stöku æðruleysi. Hún var
einstök prjónakona og það eru
mörg hundruð lopapeysurnar í
ótal litum, ásamt sokkum, vett-
lingum, húfum, töskum og fleira,
sem henni datt í hug að gera úr
lopanum. Hún hafði þetta til sölu
til ferðamanna og var það fyrsta
verk hjá henni er hún kom, að
hengja þetta út til sýnis fyrir
framan bæinn, í allri sinni ótrú-
legu litadýrð, sem að gaman var
að sjá og var mikið skraut af. Var
það sérstakt hér um slóðir og sást
hvergi annars staðar.
Þegar komið var inn í bæinn
blöstu við á ganginum og víðar
ótal prjónavörur hengdar upp til
sýnis og var eins og að koma inn í
handverkshús og gamaldags
panilklæðningar á veggjum juku
enn á þau áhrif.
Síðasta hálfa árið glímdi hún
við ólæknandi sjúkdóm sem hafði
að venju betur og sl. sumar
treysti hún sér ekki til að koma
norður.
Við þökkum henni og þeim
báðum fyrir einstök og góð sam-
skipti og vináttu í gegnum árin og
biðjum þeim blessunar.
Vegna samskiptabanns út af
Covid-farsóttinni gátum við ekki
mætt við útförina, þó að við hefð-
um gjarnan viljað kveðja hana
þar.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um minn fer,
þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir,
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Sendum innilegar samúðar-
kveðjur til barna hennar og ann-
arra aðstandenda.
Hlíf og Agnar, Hrísakoti.
Kristín Þóra
Valdimarsdóttir
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæra föður,
tengdaföður, afa, langafa og langalangafa,
SIGURÐAR HAUKDAL,
sem lést föstudaginn 6. nóvember.
Hólmfríður Haukdal Eðvald Smári Ragnarsson
Benedikta Haukdal Runólfur Maack
Anna Björg Haukdal Gísli Gíslason
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs
bróður míns, mágs og frænda,
ARNARS KLEMENSSONAR,
Ólafsvegi 7,
Ólafsfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
gjörgæsludeildar Sjúkrahússins á Akureyri.
Jón Ævar Klemensson Helga Jónsdóttir
Guðrún Jónsdóttir Árni Jónsson
Klemenz Jónsson María Magnúsdóttir
Rósa Jónsdóttir Sigurbjörn Þorgeirsson
og frændsystkini
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
ELÍS JÓN SÆMUNDSSON,
Austurvegi 5, Grindavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
sunnudaginn 20. desember.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju
þriðjudaginn 5. janúar klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera
viðstaddir athöfnina.
Sólveig Árnadóttir
Ólafur Ragnar Elísson Hrafnhildur Bjarnadóttir
Sæmundur Bjarni Elísson Kristinn Sigurður Jónsson
Karen Mjöll Elísdóttir Rúnar Þór Björgvinsson
Vilborg Elísdóttir Ómar Björn Jensson
Árni Sigurðsson Guðrún Stefánsdóttir
Sigurlaug Sigurðardóttir Halldór Einarsson
Gunnar Sigurðsson Anna Guðmundsdóttir
Kristján Sigurðsson Rannveig Böðvarsdóttir
Viðar Smári Sigurðsson Sigurbjörg Erlingsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, afi og langafi,
GESTUR FINNSSON,
Droplaugarstöðum,
lést á Droplaugarstöðum í Reykjavík
þriðjudaginn 15. desember. Útförin fer fram
í Áskirkju þriðjudaginn 29. desember
klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu
aðstandendur viðstaddir. Útförinni verður streymt á vefslóðinni:
https://youtu.be/5nIGr4e0AoA
Sissa, Unnur
barnabörn og langafabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
RÓBERT ÓLAFUR GRÉTAR MCKEE
kennari,
Klukkubergi 18, Hafnarfirði,
andaðist fimmtudaginn 17. desember.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn
7. janúar klukkan 13. Vegna aðstæðna verður eingöngu nánasta
fjölskylda viðstödd.
Hægt verður að nálgast streymi á mbl.is/andlat.
Helga Margrét Sveinsdóttir
Anton Sveinn McKee
Karitas Irma McKee Högni Grétar Kristjánsson
Arnar Róbertsson Marín Ólafsdóttir
og barnabörn