Morgunblaðið - 23.12.2020, Síða 25

Morgunblaðið - 23.12.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2020 „AUÐVITAÐ LIFÐU ÞAU HAMINGJUSÖM TIL ÆVILOKA. ALLAR SÖGUR SEM ÞÚ LEST ERU LITAÐAR AF ÓSKHYGGJU.” „ÉG BAÐ UM KAFFI ÞEGAR ÉG KOM INN. GÆTIR ÞÚ LÁTIÐ MIG VITA ÞEGAR BAUNIRNAR VERÐA SENDAR FRÁ SUÐUR-AMERÍKU?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... það þegar það er hinn innri maður sem skiptir máli. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann KONAN MÍN ER AÐ NEYÐA MIG TIL AÐ GERAST GRÆNMETISÆTA Í GÆR BORÐUÐUM VIÐ TÓFÚFLUGU ÉG MYNDI KREMJA ÞIG EN ÞÚ HEFUR ÞJÁÐST NÓG SEGÐU VINUR HMM… KANNSKI HEF ÉG EKKI ELDAÐ ÞESSA ÁLA NÓGU VEL! þrjár eldri konur þar sem sáu um heimilismat sem seldur var í hádeg- inu. Þær buðu mér að hjálpa sér við hádegismatinn áður en vaktin á Holtinu byrjaði klukkan tíu. Þar fékk ég góða undirstöðu í að elda klassískan heimilismat og ég ætla að enda ferilinn eins og ég byrjaði. Núna er ég kominn á Mörk og ætla að vera þar eitthvað fram á vorið.“ Skúli er heiðursfélagi í Klúbbi matreiðslumanna og handhafi Cordon Bleu-orðunnar. Fjölskylda Eiginkona Skúla er Sigríður Stef- ánsdóttir, f. 30.4. 1955, þjónustu- fulltrúi. Foreldrar hennar eru Val- borg Sigurðardóttir, f. 1.5. 1922, d. 26.1. 2008, saumakona frá Akureyri en búsett í Reykjavík frá 1968 og Stefán Þórarinn Þorláksson, f. 28.9. 1930, d. 22.8. 2014, kennari og far- arstjóri, búsettur á Akureyri. Þau skildu 1955. Börn Skúla og Sigríðar eru 1) Skúli Hansen, f. 31.3. 1988, framkvæmdastjóri í Kópavogi og 2) Anna Vala Hansen, f. 17.7. 1990, sál- fræðingur í Reykjavík í sambúð með Daníel Gunnarssyni forritara. Barnabörnin eru Alexander Eggert Hansen, f. 2015, og Una Margrét Daníelsdóttir, f. 2017. Systkini Skúla eru 1) Jörmundur Ingi Hansen, f. 14.8. 1940, ásatrúar- goði í Reykjavík; 2) Eiríkur Hansen, f. 30.5. 1942, d. 30.1. 2012, mat- reiðslumaður, lengst af í Keflavík; 3) Geirlaug Helga Hansen, f. 11.8. 1947, skrifstofustarfsmaður í Dan- mörku; 4) Ingibjörg Dóra Hansen, f. 23.1. 1955, innanhússarkitekt í Hafn- arfirði og 5) Ragnheiður Regína Hansen, f. 4.7. 1963, optiker í Nor- egi. Foreldrar Skúla eru hjónin Jörg- en Ferdinand Frederik Hansen, f. 16.11. 1916, d. 31.1. 1992, versl- unarmaður í Reykjavík, og Helga Eiríksdóttir Hansen, f. 4.9. 1917, d. 4.4. 2008, húsmóðir. Þau bjuggu í Reykjavík. Skúli Hansen Þórunn Gísladóttir grasalæknir, ljósmóðir og húsfreyja í Brúnavík,N-Múl. Filippus Stefánsson bóndi í Brúnavík, Desjarmýrarsókn,N-Múl. Geirlaug Filippusdóttir húsfreyja á Ormsstöðum, síðast í Reykjavík Eiríkur Kristján Guðmundsson Breiðdal bóndi á Ormsstöðum í Breiðdalshreppi, S-Múl. Helga Eiríksdóttir Hansen húsfreyja í Reykjavík Helga Eiríksdóttir húsfreyja á Þverhamri í Breiðdal, S-Múl. Guðmundur Bjarnason bóndi á Þverhamri í Breiðdal, S-Múl. Guðrún Tómasdóttir húsfreyja á Ytra-Vatni á Efribyggð í Skagafirði Skúli Jónsson bóndi á Ytra-Vatni á Efribyggð í Skagafirði Inga Skúladóttir Hansen húsfreyja í Reykjavík Jörgen Elís Hansen skrifstofumaður og frkvstjóri í Reykjavík Henriette Adolphine Linnet Hansen húsfreyja í Hafnarfirði Jörgen Frederik Hansen f. í Danmörku, verslunarstjóri á Papósi og kaupmaður í Hafnarfirði Úr frændgarði Skúla Hansen Jörgen Ferdinand Frederik Hansen forstjóri í Reykjavík ÁBoðnarmiði yrkir Sigurlín Her-mannsdóttir „Vetrarsólhvörf (vikhenda)“ og er vel kveðið: Dimmt er æ í desember á Fróni. Löngum er sem líst mér kvöld þá líða fer að nóni. Fólkið dagsins dýrðarbirtu saknar. Myrkur fram á miðjan dag, margur seint þá vaknar. Loks í suðri sólin rís á fætur. Skelfing lágt á lofti er langar hennar nætur. Harla lítt sig hækkar yfir daginn hnikast nokkur hænufet hripar geisla á snæinn. Og í suðri sest hún fyrr en varir. Í fjórar stundir staldrar við, stutt sem birtan hjarir. Á þessum slóðum þegar dvelur sólin barnstrú veit að birtan eykst og bráðum koma jólin. Í „Sögu daganna“ segir Áni Björnsson að fyrr meir hafi skötuát verið eindregnast á Vestfjörðum, og þó öllu heldur skötustappa af kæstri skötu og mörfloti sem er bræddur hnoðmör. Dæmi er um að ríkis- mönnum finnist lítilfjörlegt að hafa skötuna stappaða í mörfloti og vilji hafa hana í smjöri. Hér er lýst heim- ilisbrag á stórbýli í Strandasýslu: Skötustappa skömmtuð var á Eyjum allir fengu innan ranns utan Bjarni og kona hans. Bóndinn sjálfur borðaði smér og köku en hans kona ystan graut iðra síðan kenndi þraut. Í dag er Þorláksmessa síðasti dag- ur jólaföstu en á henni skyldu menn neyta sem minnsts af kjöti. Þessi vísa úr Vopnafirði lýsir Þorláksmessu- mat langt utan skötusvæðisins: Á Þorláksdag í matinn minn morkinn fékk ég hákarlinn harðan fiskinn hálfbarinn og hákarlsgrútarbræðinginn. Eftir 1876 höfðu Íslendingar í Kaupmannahöfn samkomur á Þor- láksmessu. Þá orti Björn M. Olsen níu erinda borðsálm og er þetta ann- að erindið: Já – heitum á þann mæta mann sem mítur bar og fjölmörg undur áður vann um aldirnar. Hann benti forðum bljúgri sjót á betra heim og gladdi hugum hrellda snót og hryggan beim. Vér heitum á Þorlák hinn helga. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Á vetrarsólhvörfum og Þorláksmessu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.