Morgunblaðið - 23.12.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 23.12.2020, Síða 26
LANDSLIÐIÐ Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Arnar Þór Viðarsson fær það erfiða verkefni að stýra íslenska karla- landsliðinu í knattspyrnu næstu tvö árin en hann var kynntur til leiks sem þjálfari liðsins á blaðamanna- fundi KSÍ í höfuðstöðvum sam- bandsins í Laugardalnum í gær. Arnar Þór er 42 ára gamall, fædd- ur 15. mars 1978. Arnar er sonur hjónanna Viðars Halldórssonar og Guðrúnar Bjarneyjar Bjarnadóttur sem búsett eru í Hafnarfirði. Viðar faðir Arnars lék 139 leiki í efstu deild og fjölda leikja í B-deild með FH frá 1971 til 1987. Hann lék átta tímabil í B-deildinni og níu í efstu deild og þá á hann að baki 27 A- landsleiki fyrir Ísland. Arnar er elstur þriggja bræðra en yngri bræður hans, þeir Davíð Þór og Bjarni Þór, hafa báðir gert garð- inn frægan á knattspyrnuvellinum. Davíð Þór, 36 ára, á að baki 240 leiki í efstu deild með FH og þá hef- ur hann leikið níu landsleiki fyrir Ís- land, ásamt því að leika með Lille- ström, Lokeren, Öster og Vejle í atvinnumennsku. Davíð varð sjö sinnum Íslandsmeistari með FH en hann lagði skóna á hilluna eftir tíma- bilið 2019 og er í dag aðstoðarþjálf- ari FH. Bjarni Þór, 32 ára, hélt ungur að árum út í atvinnumennsku þegar hann gekk til liðs við Everton árið 2004. Hann hefur einnig leikið með Bournemouth, Twente, Roeselare, Mechelen og Silkeborg á atvinnu- mannsferli sínum. Árið 2015 gekk hann til liðs við uppeldisfélag sitt FH og lék 47 leiki með liðinu í efstu deild. Líkt og bræður hans hóf Arnar Þór knattspyrnuferil sinn með FH í Hafnarfirði. Hann lék sinn fyrsta leik með liðinu í efstu deild í júlí 1995, þá sautján ára gamall. Hann lék alls níu leiki með liðinu sumarið 1995 en FH hafnaði í níunda sæti efstu deildar og féll síðar um haust- ið. Hélt ungur í atvinnumennsku Arnar lék alla átján leiki FH sum- arið 1996 í 1. deildinni og skoraði tvö mörk í átján leikjum. Ári síðar gekk hann til liðs við belgíska knatt- spyrnufélagið Lokeren þar sem hann lék í átta ár samfleytt, ef frá eru taldar stuttar lánsdvalir hjá ann- ars vegar FH árið 1998 og hins veg- ar Lilleström árið 1998. Hjá Lokeren lék hann meðal ann- ars með Íslendingum á borð við Arn- ar Grétarsson, Marel Baldvinsson og Rúnar Kristinsson. Frá Belgíu lá leiðin til Twente í Hollandi árið 2005 en þar lék hann í tvö ár áður en hann gekk til liðs við Graafschap í Hollandi þar sem hann lék frá 2007 til 2008. Árið 2008 gekk Arnar svo til liðs við Cercle Brugge í Belgíu og þar lék hann 153 leiki frá 2008 til ársins 2014 þegar hann lagði skóna á hill- una. Eiður Smári Guðjohnsen og Arnar voru liðsfélagar hjá Cercle Brugge frá 2013 til 2014 en Eiður Smári verður aðstoðarþjálfari Arn- ars hjá íslenska karlalandsliðinu. Arnar lék sinn fyrsta A-landsleik árið 1998 í vináttulandsleik gegn Suður-Afríku, 6. júní í Freudenstadt í Þýskalandi, en leiknum lauk með 1:1-jafntefli. Alls lék Arnar 52 A- landsleiki þar sem hann skoraði tvö mörk. Fyrra landsliðsmarkið kom í 4:1-sigri Íslands gegn Suður-Afríku í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í ágúst 2005. Það síðara kom í 2:1-tapi gegn Svíþjóð á Laugardalsvelli í október 2006 í undankepnni EM 2008. Arnar lagði landsliðsskóna á hilluna í október 2007 eftir 3:0-tap gegn Liechtenstein í undankeppni EM 2008 á Rheinpark í Liechten- stein. Arnar Þór er sjöundi leikjahæsti Íslendingurinn í deildakeppni á ferl- inum með 465 leiki á bakinu, þar af 430 erlendis. Aðeins Arnór Guðjohn- sen, Ívar Ingimarsson, Hermann Hreiðarsson, Eiður Smári Guðjohn- sen, Heiðar Helguson og Ásgeir Sig- urvinsson hafa leikið fleiri leiki. Sneri sér beint að þjálfun Eftir að ferlinum lauk árið 2014 sneri Arnar sér að þjálfun og varð aðstoðarþjálfari Cercle Brugge árið 2014. Hann tók svo tímabundið við þjálfun liðsins tímabilið 2014-15. Ár- ið 2015 gekk hann til liðs við Lok- eren á nýjan leik og var meðal ann- ars aðstoðarþjálfari hjá Rúnari Kristinssyni þegar hann stýrði liðinu frá 2016 til 2017. Hann tók tímabundið við þjálfun liðsins árið 2018 eftir að Peter Maes var rekinn í lok október. Í janúar 2019 tók Arnar svo við þjálfun U21- árs landsliðs Íslands ásamt Eiði Smára Guðjohnsen og í apríl 2019 var hann ráðinn yfirmaður knatt- spyrnusviðs KSÍ en hann mun sinna því starfi áfram þangað til eftir- maður hans finnst. Arnar og Eiður náðu frábærum árangri með íslenska liðið, unnu sjö leiki og töpuðu aðeins þremur í und- ankeppni EM 2021 og enduðu með liðið í öðru sæti 1. riðils undan- keppninnar. Íslenska liðið komst í lokakeppni EM sem eitt fimm liða með bestan árangur í öðru sæti en mótið fer fram í Slóveníu og Ung- verjalandi á næsta ári. Þetta er í annað sinn sem íslenskt U21-árs landslið kemst í lokakeppni EM en það gerðist fyrst árið 2011 þegar mótið var haldið í Danmörku. Margir lykilmenn í íslenska landslið- inu í dag voru í U21-árs liðinu árið 2011 en þar ber hæst þá Aron Einar Gunnarsson, Gylfa Þór Sigurðsson, Jóhann Berg Guðmundsson og Birki Bjarnason. Arnar og Eiður Smári fá ekki tækifæri til þess að stýra liðinu á lokamótinu þar sem þeir verða upp- teknir með íslenska A-landsliðinu. Þeirra fyrsta verkefni með liðið verður þegar Ísland heimsækir Þýskaland í J-riðli undankeppni HM í mars á næsta ári. Nýr landsliðsþjálfari Íslands er af mikilli knattspyrnuætt Morgunblaðið/Eggert Þjálfarar Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen stýra íslenska karlalandsliðinu í undankeppni HM 2022.  Arnar Þór Viðarsson hóf ferilinn með FH og lauk honum hjá Cercle Brugge Arnar Þór Viðarsson Fæddist 15. mars 1978. Leikmannsferill: » 1995-97 ........................... FH » 1997-98..... Lokeren (Belgíu) » 1998................................. FH » 1998...... Lilleström (Noregi) » 1998-05 .... Lokeren (Belgíu) » 2005-07....Twente (Holland) » 2007-08 ............ Graafschap (Holland) » 2008-14 Cercle Brugge (Belg.) Þjálfaraferill: » 2014-15......... Cerlce Brugge » 2018........................ Lokeren » 2019-20............... Ísland U21 » 2020 .......................... Ísland 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2020 England Deildarbikarinn: Arsenal – Manchester City..................... 1:4  Rúnar Alex Rúnarsson lék allan leikinn með Arsenal. Brentford – Newcastle ............................ 1:0  Brentford og Manchester City eru komin áfram í undanúrslit keppninnar. Þýskaland Bikarkeppni: Augsburg – RB Leipzig .......................... 0:3  Alfreð Finnbogason var ekki í leik- mannahópi Augsburg. Dynamo Dresden – Darmstadt .............. 0:3  Guðlaugur Victor Pálsson var ekki í leik- mannahópi Darmstadt.  Leipzig og Darmstadt eru komin áfram í 16-liða úrslit keppninnar. Ítalía B-deild: Pescara – Brescia .................................... 1:1  Birkir Bjarnason lék fyrstu 58 mínút- urnar með Brescia, Hólmbert Aron Frið- jónsson er frá vegna meiðsla. Cosenza – Venezia................................... 0:0  Óttar Magnús Karlsson kom inn á sem varamaður á 90. mínútu hjá Venezia. Bjarki Steinn Bjarkason var allan tímann á bekknum. Noregur Brann – Odd ............................................. 2:1  Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með Brann. Mjöndalen – Aalesund............................. 3:0  Dagur Dan Þórhallsson var ekki í leik- mannahópi Mjöndalen.  Davíð Kristján Ólafsson lék fyrri hálf- leikinn hjá Aalesund. Vålerenga – Start .................................... 4:0  Viðar Örn Kjartansson lék fyrstu 64 mínúturnar með Vålerenga og skoraði. Matthías Vilhjálmsson leysti hann af hólmi.  Guðmundur Andri Tryggvason lék ekki með Start. Jóhannes Harðarson þjálfar lið- ið sem er fallið. Sandefjord – Rosenborg......................... 0:0  Viðar Ari Jónsson kom inn á sem vara- maður á 59. mínútu hjá Sandefjord, Emil Pálsson var ekki í leikmannahópnum.  Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn með Rosenborg. Strömsgodset – Stabæk .......................... 0:4  Ari Leifsson og Valdimar Þór Ingimund- arson léku allan leikinn með Strömsgodset. Lokastaðan: Bodö/Glimt 81, Molde 62, Vålerenga 55, Rosenborg 52, Kristiansund 48, Viking 44, Odd 43, Stabæk 39, Hauge- sund 39, Brann 36, Sandefjord 35, Sarps- borg 32, Strömsgodset 31, Mjöndalen 26, Start 27, Aalesund 11.  Þýskaland Wetzlar – Magdeburg ......................... 24:24  Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist- jánsson skoraði ekkert. Danmörk Aalborg – SönderjyskE ...................... 37:31  Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg.  Sveinn Jóhannsson skoraði fjögur mörk fyrir SönderjyskE. Kolding – Skanderborg ...................... 21:30  Ágúst Elí Björgvinsson varði eitt skot í marki Kolding. Ribe-Esbjerg – Mors ........................... 30:27  Rúnar Kárason og Gunnar Steinn Jóns- son skoruðu tvö mörk fyrir Ribe-Esbjerg og Daníel Þór Ingason eitt. Ringsted – GOG ................................... 31:33 Viktor Gísli Hallgrímsson varði sjö skot í marki GOG. Tvis Holstebro – Fredericia............... 29:32  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði ekki fyr- ir Tvis Holstebro.   Meistaradeild Evrópu Szombathely – Zaragoza.................... 94:86  Tryggvi Snær Hlinason skoraði tvö stig, tók eitt frákast og varði eitt skot hjá Zara- goza á sex mínútum. Evrópubikarinn Virtus Bologna – Andorra.................. 92:81  Haukur Helgi Pálsson lék ekki með And- orra. Þýskaland Crailsheim Merlin – Fraport.............. 76:64  Jón Axel Guðmundsson skoraði átta stig og tók fjögur fráköst hjá Fraport á 29 mín- útum.   Logi Ólafsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs FH í knattspyrnu og tekur hann við starfinu af Eiði Smára Guðjohnsen sem er orðinn aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins. Logi skrifaði undir tveggja ára samning við FH-inga en til stóð að hann yrði tæknilegur ráðgjafi þeirra Eiðs Smára og Davíðs Þórs Viðarssonar, sem var ráðinn að- stoðarþjálfari liðsins í nóvember. Logi stýrði FH ásamt Eiði síðasta sumar en hann er 66 ára gamall og einn reyndasti þjálfari landsins. Viðtal við Loga má nálgast á mbl.is. Logi orðinn þjálfari FH Morgunblaðið/Árni Sæberg Reynslubolti Logi Ólafsson er gríðarlega reynslumikill þjálfari. Lærisveinar Jóhannesar Harðar- sonar í Start féllu í gær úr norsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir 0:4- tap fyrir Vålerenga á útivelli. Viðar Örn Kjartansson skoraði fyrsta mark Vålerenga. Mjøndalen vann á sama tíma 3:0-sigur á þegar föllnu liði Aalesund og fór upp fyrir Start. Jóhannes kom Start upp í efstu deild á síðustu leiktíð og staldraði því stutt við á meðal þeirra bestu. Guðmundur Andri Tryggvason er leikmaður Start en lék ekkert á leiktíðinni vegna meiðsla. Ljósmynd/Ole Endre Kallhovd/Ik Fallinn Jóhannes Harðarson féll úr norsku úrvalsdeildinni í gær. Lærisveinar Jó- hannesar féllu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.