Lögmannablaðið - 2020, Blaðsíða 12

Lögmannablaðið - 2020, Blaðsíða 12
12 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/20 viti byggist fyrst og fremst bara á slöku taumhaldi. Svo ættu þeir nú að reyna að læra eitthvað á þessu og gæta kannski örlítið hófs núna. Ég vona það að niðurstaðan af þessu geti verið lærdómur. Ég held að fyrir Lögmannafélagið sé heilmikill lærdómur í þessu máli.“ Hressilegar umræður Jón Steinar Gunnlaugsson tók aftur til máls og sagði að það væri verið að gefa það í skyn að hann hefði átt upptökin í málinu. Upphafið hafi verið kæra stjórnar til úrskurðarnefndar og þegar hann hafi verið áminntur hefðu málaferlin verið liður í því að ómerkja ólögmæta gjörð: „Svo er það nú frekar þungbært að hlusta hér á fyrrverandi formanninn, kannski aðalþrjótinn í málinu, flytja málið aftur sem að var flutt í Hæstarétti,“ sagði hann og fór yfir upphaf samskipta sinna við dómstjórann í Reykjavík. Jón Magnússon tók því næst aftur til máls og benti á að verið væri að leggja til að hækka félagsgjöld vegna tapreksturs síðustu fjögurra ára, en það væri um það bil sama upphæð og herkostnaðurinn af þessu dómsmáli. Hjörtur Torfason sagðist hafa komið á fundinn til að fræðast um það hvort einhverjar hressilegar umræður væru í gangi og var alsæll með að vera kominn á þennan vettvang. Hann bað fundarmenn um að tala sem lengst. Hjörtur benti síðan á að Hæstiréttur hefði klofnað í málinu: „Ég fór nú og las þennan dóm og niðurstaða mín um hæstaréttardóminn er það sem minnihlutinn sagði, að það ætti að staðfesta héraðsdóm að öllu leyti,“ sagði hann. Hjörtur vitnaði að því búnu í fyrrverandi utanríkisráðherra sem sagði eitt sinn um dóm að minnihlutinn hefði oft rétt fyrir sér þótt að meirihlutinn fengi að ráða. Sævar Þór Jónsson var síðastur á mælendaskrá og sagði Lögmanna félagið hafa gert það sem þurfti til að eyða ákveðinni réttaróvissu í mikilvægu máli. „Ég tel það ekki heldur sæmandi að stilla þessu þannig upp að þetta sé einhver persónuleg óvild gagnvart mönnum. Það er nú svo hjá okkur í Lögmannafélaginu og þeir sem eru félagsmenn Lögmannafélagsins, við þurfum að hlíta eftirliti og sitja undir því að fylgst sé með okkar störfum. Það hefur ekkert með okkar persónulegu skoðanir að gera,“ sagði hann. Lauk þar með fjörugum umræðum um þetta mál á aðalfundi Lögmannafélagsins árið 2020. EI Hjörtur Torfason Sævar Þór Jónsson

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.