Lögmannablaðið - 2020, Qupperneq 15

Lögmannablaðið - 2020, Qupperneq 15
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/20 15 Konur nær helmingur nýliða Á síðastliðnum tíu árum hefur félagsmönnum Lögmanna- félagsins fjölgað um 27%, eða úr 826 félagsmönnum árið 2010 í 1.052 félagsmenn árið 2020. Árið 2010 voru konur í hópi félagsmanna 217 talsins, eða 25,2%, en árið 2020 voru þær 324, eða 30,8% félagsmanna. Á síðustu tíu árum hefur konum í félaginu því fjölgað um 108 og körlum um 118 sem þýðir að þær eru nær helmingur nýliða, eða 48%. Ef við gefum okkur þær forsendur að fjöldi félagsmanna verði áfram svipaður og nú er (þeim hefur ekki fjölgað svo að neinu nemi frá árinu 2014), konur verði áfram helmingur nýliða og að allir sem í dag eru 50 ára eða eldri verði hættir störfum árið 2040, má reikna með að það ár verði karlar 57,4% félagsmanna og konur 42,6%. Völva félagsins spáir því blákalt að hlutfall kvenna og karla verði ekki jafnt meðal félagsmanna fyrr en á seinni hluta 21. aldar. Aldursdreifing Þegar aldursdreifing félagsmanna Lögmannafélagins er skoðuð kemur í ljós að konur eru hlutfallslega mun fleiri í yngri aldursflokkum en karlar. Hlutfall kvenna sem eru undir 50 ára er 73,5% á móti 55,6% hjá körlum. Þess má geta að konur undir 50 ára eru 238 talsins og karlar eru alls 403. Hlutfall kvenna sem eru undir 40 ára er 41% á móti 28,5% hjá körlum. Konur undir 40 ára eru 133 talsins og karlar eru alls 202. Aldur og störf 39,8% kvenna starfa hjá fyrirtækjum og stofnunum á móti 20,5% karla. Þegar skyggst er bak við tölurnar kemur í ljós að 126 konur og 149 karlar starfa sem innanhússlögmenn en ef fram heldur sem horfir munu konur verða mun fleiri í þessari starfsgrein. Þær virðast sækja meira í að gegna lögmannsstörfum hjá öðrum. Hlutfallslega mun fleiri karlar eru aftur á móti sjálfstætt starfandi lögmenn, eða 61,1% á móti 36,1% kvenna. Þegar skyggst er bak við þær tölur kemur í ljós að 444 karlar og 117 konur eru sjálfstætt starfandi. Það er því ljóst að helsta karlavígi lögmennskunnar, að vera sjálfstætt starfandi lögmaður, verður seint fellt ef fram heldur sem hingað til. EI Á meðfylgjandi myndum eru upplýsingar um aldur karla og kvenna í LMFÍ eftir því hvar þau starfa. Þess má geta að einungis 20 félagsmenn, tíu karlar og tíu konur, eru 29 ára og yngri en þar af eru 17 þeirra fulltrúar lögmanna. 80 ára og eldri eru fjórir karlar ennþá sjálfstætt starfandi og einn er fulltrúi lögmanns.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.