Lögmannablaðið - 2020, Page 31

Lögmannablaðið - 2020, Page 31
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/20 31 We understand that the parties to the transaction will realize a tax benefit in Denmark which probably consists in a double refund of dividend witholding tax (but we have not seen a structure papaer). Maybe you are aware of these structures? Brot Bech­Bruun á siðareglum lögmanna í tengslum við stóra skattsvikamálið Í lok ársins 2015 fengu dönsk skattayfirvöld vitneskju um stóra skattsvikamálið og í kjölfar útboðs skattayfirvalda í ársbyrjun 2017 var Bech-Bruun falið að rannsaka skattsvikin. Rúmu ári síðar kærðu skattayfirvöld Bech-Bruun til úrskurðarnefndar lögmanna fyrir að hafa brotið siðareglur lögmanna með rannsókn skattsvikanna þar sem Bech-Bruun hafi gefið North Channel Bank ráð áður og á meðan rannsókn málsins stóð yfir. Úrskurðarnefnd lögmanna ákvað sumarið 2018 að Bech-Bruun þyrfti að endurgreiða þá þóknun sem lögmannsstofan hefði fengið greidda frá skattayfirvöldum að upphæð 3,5 milljónir danskra króna eða u.þ.b. 71 milljónir íslenskra króna. Þar að auki var fjórum lögmönnum Bech-Bruun, sem unnu við rannsóknina, gert að greiða fjársekt. Var það mat úrskurðarnefndarinnar að augljós hagmunaárekstur hafi verið til staðar enda geti aðilarnir ekki rannsakað meint skattabrot og á sama tíma veitt öðrum ráðgjöf varðandi sömu viðskipti. Bech-Bruun hefur kært báðar ákvarðanir úrskurðarnefndar til Austur Landsréttar (d. Østre Landsret), en það er ekki búið að dæma í málunum. Þá hefur málið fengið gagnrýni út frá samkeppnisréttarlegum sjónarmiðum og vegna mögulegra hagsmunaárekstra. Lögmannsstofan Kammeradvokaten, sem er og hefur verið lögmaður ríkisins til margra ára, hefur ráðlagt skattayfirvöldum að stefna Bech-Bruun vitandi að Kammer- advokaten muni flytja málið fyrir hönd ríkisins. Með málsókninni hafi því Kammeradvokaten möguleika á að fjarlægja einn helsta keppinaut sinn af markaði en miðað við hagnað síðasta árs myndi það taka Bech-Bruun heil 60 ár að safna nógu miklu fjármagni til að greiða skaðabæturnar. Gagnrýni lögmanna hefur verið sú að sami aðili og flytur mál fyrir hönd ríkisins í þessu sérstaka tilviki eigi ekki einnig að ákveða hvort mál verði höfðað, sem og að verkefnið eigi að fara í útboð. Samkeppniseftirlitið hefur sett á fót nefnd sem á að rannsaka lögmannsstéttina í heild sinni, þar á meðal hvort það sé í samræmi við lög að Kammeradvokaten flytji fyrir dómi að meginstefnu öll mál ríkisins.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.