Iðjuþjálfinn - 01.01.2019, Side 5
5
IÐJUÞJÁLFASTÉTTIN STÆKKAR
Þann 15. júní síðast liðinn útskrifuðust sjö
kandídatar úr iðjuþjálfunarfræði við Há-
skólann á Akureyri (HA). Það var hátíðleg
stund þegar verðandi iðjuþjálfar tóku við
skírteinum sínum. Við óskum þeim innilega
til hamingju og bjóðum þá velkomna í fé-
lagið. Innleiðing nýrrar námskrár við iðju-
þjálfunarfræðideildina er vel á veg komin
og hafa fyrstu tvö árin þegar verið kennd
samkvæmt henni. Nýja námsskráin skiptist
í þriggja ára BS nám í iðjuþjálfunarfræði og
eins árs starfsréttindanám í iðjuþjálfun á
meistarastigi. Fyrsti hópurinn lýkur slíkri BS
gráðu næsta vor.
Meginhluti vettvangsnámsins fer fram í
starfsréttindanáminu og spennandi hug-
myndir eru um fyrirkomulag þess. Þær fela
meðal annars í sér að tengja betur starfs-
vettvang iðjuþjálfa og skóla. Það er líka
gaman að segja frá því að nú í haust hófu 26
nemendur nám í iðjuþjálfunarfræði. En bet-
ur má ef duga skal og það er afar brýnt að
mennta fleiri iðjuþjálfa hér á landi. Mikil eft-
irspurn er eftir starfskröftum iðjuþjálfa og
skrifstofa félagsins er beðin um að koma á
framfæri atvinnuauglýsingum nánast í
hverri viku. Námsbrautin og félagið þurfa
að taka höndum saman og öflug samvinna
starfandi iðjuþjálfa, IÞÍ og HA skiptir afar
miklu til að hlúa að faggreininni, byggja
námið upp og þróa það áfram. Undanfarin
ár hefur tækninni fleygt hratt fram. Í HA er
til staðar mikil þekking á sveigjanlegu námi
(fjarnámi) og gott umhverfi meðal annars til
að bjóða upp á símenntun fyrir starfandi
iðjuþjálfa.
VIÐBURÐARÍKUR VETUR
Það verður nóg á dagskránni næstu miss-
erin. Fyrir utan það stóra verkefni að ná
kjarasamningum og sinna innra starfi fé-
lagsins er ýmislegt á döfinni. Nefna má
Evrópufund (COTEC) sem formaður mun
sækja í lok október, málþingið 1. nóvember
í tilefni af alþjóðlegum degi iðjuþjálfunar,
námskeið með erlendum fyrirlesara er á
teikniborðinu auk þess sem hádegisfyrir-
lestrar verða auglýstir þegar nær dregur.
Við hvetjum starfandi iðjuþjálfa til að halda
27. október hátíðlegan á sínum vinnustöð-
um og nýta tækifærið til að kynna fagið
okkar, skrifa pistla og greinar og nota það
markaðsefni sem IÞÍ hefur látið útbúa.
Þema dagsins í ár er „Improving world
health & wellbeing“ sem gæti útlagst á ís-
lensku „Bætt heilsa og vellíðan um heim
allan“. Kynningarmyndbönd sem félagið
hefur látið útbúa um iðjuþjálfun er að finna
á facebooksíðu félagsins og tilvalið að deila
þeim hægri vinstri á samfélagsmiðlum. Við
bendum einnig á heimasíðu félagsins
www.ii.is.
Góð kveðja,
Þóra Leósdóttir
4.6. Umfjöllun iðjuþjálfa um vörur og þjónustu skal vera fagleg og án þess að halda á lofti yfirburðum við
komandi vöru eða þjónustu.
Sðaregla 4.6 beinir sjónum að umfjöllun iðjuþjálfa um vörur og þjónustu. Þegar litið er til annarra heilbrigðis
stétta er ýmist vísað til læknalaga eða ekkert bann er að finna þegar kemur að auglýsingum. Siðareglur sumra
fagfélaga geta þó takmarkað auglýsingar. Samkvæmt lögum um iðjuþjálfun, nr. 75/1977 gilda reglur lækna
laga eftir því sem við á, ásamt því að fjallað er um þetta atriði í siðareglunum.
Lögð er áhersla á að umfjöllunin sé fagleg sem vísar til gagnsæis, góðs siðferðis og rýri ekki traust. Mikilvægt
er að huga að orðalagi og framsetningu og gæta málefnalegra sjónarmiða, fyllstu ábyrgðar, nákvæmni og
sanngirni. Einnig er gott að hafa í huga hvar umfjöllunin á að birtast og taka ákvörðun út frá sömu faglegu
sjónarmiðum.
Guðrún Áslaug Einarsdóttir,
formaður siðanefnar
UMFJÖLLUN
UM SIÐAREGLUR IÐJUÞJÁLFA