Iðjuþjálfinn - 01.01.2019, Síða 84
84
Guðrún Árnadóttir II-grein2019 Malþing: Box II
Húmor í íhlutun
Anna Þóra Þórhallsdóttir, Ásdís Ármannsdóttir, Edda Rán Jónasdóttir og Sesselja Rán
Hjartardóttir
Inngangur: Rannsóknir sýna að það að nýta húmor sem meðferðartæki getur ýtt undir bæði
andlegan og líkamlegan bata. Rannsóknum er ábótavant í geðendurhæfingu, en rannsóknir
meðal eldri borgara á hjúkrunarheimilum og félagsmiðstöðvum benda til að notkun húmors
hafi góð áhrif á einstaklinga sem glíma við þunglyndi og kvíða.
Markmið: Að kanna hvort iðjuþjálfar geðdeilda nýta húmor sem íhlutunar aðferð og hvort slík
íhlutun sé gagnreynd.
Aðferðir: Leitað var í fagritum heilbrigðisstétta, miðað var við að greinar væru ekki eldri en frá
árinu 2005. Þær rannsóknir sem notast var við komu úr fagritum heilbrigðistétta. Ekki fundust
greinar í fagritum iðjuþjálfa. Notast var við gagnasöfnin: Leitir, CINAHL, PubMed, OT-seeker,
Google scholar og leitarorðin: Humor, Humor therapy , Mental health, laughter therapy, latter
terapi.
Niðurstöður: Ekki fundust neinar greinar sem tengjast húmor og iðjuþjálfun beint, en þó
fundust nokkrar greinar um notkun húmors í hópmeðferðum heilbrigðisstarfsfólks. Niðurstöður
þeirra rannsókna sýndu að það að nota húmor í íhlutun skilaði bættum lífsskilyrðum, s.s.
bættum svefni og dró úr streitu og þunglyndiseinkennum.
Ályktun: Iðjuþjálfar geta nýtt húmor í íhlutun í geðendurhæfingu.