Iðjuþjálfinn - 01.01.2019, Blaðsíða 92
92
Guðrún Árnadóttir II-grein2019 Malþing: Box II
Líkanið um samskipti og eflandi tengsl:
The Intentional Relationship Model (IRM)
Ásgeir Már Ólafsson, Elín Margrét Erlingsdóttir, Katrín Auðbjörg Aðalsteinsdóttir, Ólafía Helga Arnardóttir og Sesselja Rán Hjartardóttir
Inngangur: Líkanið um samskipti og eflandi tengsl er hugmyndafræðilegt líkan sem dregur fram
hvernig fagaðili notar sjálfan sig sem verkfæri í starfi til að mynda og viðhalda jákvæðum
meðferðartengslum. Líkanið samanstendur af sex aðferðum sem iðjuþjálfar geta notast við í
vinnu sinni með skjólstæðingum. Áhugavert væri að kanna hvort það hefur notagildi fyrir
iðjuþjálfa sem starfa á geðendurhæfingardeild Lanspítala.
Markmið: Að skoða hvaða rannsóknir eru til um notkun líkansins og hvort það geti nýst
fagaðilum í klínisku starfi.
Aðferðir: Leitað var eftir rannsóknum frá árinu 2003 og síðar. Notast var við gagnagrunnana:
Leitir, CINAHL, PubMed og OTseeker. Leitarorð voru: Intentional realtionship model, IRM og
therapeutic relationship.
Niðurstöður: Skoðaðar voru 11 greinar úr fagritum iðjuþjálfa, með vísindastyrk I, II, III, IV og V.
Fram kom m.a. að gagnlegt sé að nota líkanið um samskipti og eflandi tengsl til að skoða
vinnulag og eigið innsæi. Engin hinna sex aðferða sem líkanið fjallar um reyndist betri en önnur.
Ályktun: Til að mynda og viðhalda eflandi tengslum þurfa fagaðilar að sýna sveigjanleika
gagnvart skjólstæðingum og nota rökleiðslu til að ákveða hvernig bregðast megi við
óhjákvæmilegum atburðum. Til að geta það þurfa fagaðilar að vera meðvitaðir um eðlislæga
hegðun sína og að geta lesið í aðstæður.