Málfríður - 15.12.1985, Side 8

Málfríður - 15.12.1985, Side 8
Myndbönd í tungumála- kennslu eftir Sigurlín Sveinbjarnardóttur Myndbönd veita stóraukna möguleika í tungumálakennslu. Þessi nýja tækni er sérstaklega góð sem áhugahvati fyrir nemendur okkar og til þess að tengja þau er- lendu tungumál, sem við kennum, við fólkið sem talar málin, kynna umhverfi þess, menningu og siði. Þar á ég einnig við svipbrigði, handahreyfingar og annað atferli sem notað er í tjáskiptum millí manna. Þessir þættir skipta ákaflega miklu máli í öllu tungumálanámi, ekki síst þegar læra á suður-evrópsk mál, en íbúar þar tala sem kunnugt er mjög mikið með höndunum. Nemendur verða að læra að skilja þessa hlið á tjáskiptum erlenda málsins og læra að nota viðeigandi handahreyfingar og svipbrigði. Því er mjög gott að sýna á myndböndum hvernig innfæddir fara að. Það spar- ar margar útskýringar að ',,sjá“ málið notað í réttu umhverfi, og nemendur geta náð betri árangri með því að herma eftir. Eins má geta þess að nemendur skilja tal áberandi betur þegar þeir hafa mynd til stuðnings. En ýmislegt ber að varast við notkun myndbanda í kennslu. Nem- endur eru vanir því að myndbönd veiti afþreyingu, skemmtun og spennu. Þeir eru vanir að sitja sem hlutlausir móttakendur—rabba ekki einu sinni við neinn um boðskap þeirra mynda sem þeir sjá. í skól- anum vilja nemendur endilega sjá mvndbönd. Þeir halda að þeir geti á þann hátt slappað af, skemmt sér og sloppið við að gera eitthvað. En við verðum að venja þá á að nota myndbönd, nota þá möguleika sem þessi nýi miðill veitir til þess að fá betri, skemmtilegri og árangursrík- ari kennslu. Jafnframt getum við vonast til að það góða uppeldi sem unglingarnir fá í skólanum, nái einnig út fyrir hann. Þannig getur verið að þeir sem hafa vanist því að nota myndbönd í skólanum fari líka að hugsa á annan hátt um þær myndir sem þeir sjá heima hjá sér, verði gagnrýnni á þær og fari að hugsa um boðskap þeirra. Síðast en ekki síst hvað varðar þá hlið sem snýr mest að tungumálakennslu, að þeir hlusti betur eftir tali fólks og taki eftir svipbrigðum og öðru atferli tengdu tjáskiptunum. Kennsluaðferðir við notkun myndbanda eru nær óþrjótandi. Kostir þeirra fram yfir kvikmyndir eru ótvíræðir. Þar á ég einkum við hversu handhægt er að sýna mynd- bönd í venjulegri skólastofu þar sem nemendur sitja við borð og geta jafnóðum skrifað og Ieyst verkefni. Það þarf ekki að vera dimmt í stof- unni, og hægt er að gera hlé hvar sem er og spóla til baka og áfram að vild. Skipulagning kennslunnar hlýtur alltaf að miðast við þá mis- munandi nemendahópa sem við höfum og þó enn frekar við það efni sem við höfum. Næstum allt er hægt að nota ef við höfum hugmyndaflug til að nýta okkur það, þar má t.d. nefna: stutta fræðsluþætti um ákveðin efni, fréttir, barnatíma og skemmtiþætti. Einnar mínútu kafli úr mynd getur verið nóg efni í viku kennslu eða ein bíómynd efni í 1 1/2 mánuð. Hér vil ég aðeins nefna nokkrar aðferðir sem hægt er að nota við næstum hvaða efni sem er. Þó má segja að sumar þessara að- ferða eigi aðeins við um Ieiknar myndir, en það er líka það efni sem við höfum greiðastan aðgang að: 1. Farið yfir orðaforðann, glós- að, þýtt. 2. Efnisspurningaráíslensku/er- lenda málinu t.d. í krossa- spurningaformi. 3. Munnlegar æfingar: Hvað sástu? Hvað heyrðirðu? 4. Lýsiðpersónum, umhverfi, at- burðum — munnlega/skrif- lega. 5. Skrúfaðfyrirhljóðiðíatburð- arríkum kafla eða samtali og nemendur látnir semja texta. 6. Hlustunaræfingar. Eyðufyll- ingarverkefni sem hefur ver- ið gert eftir texta mynd- bandsins. Nemendur hlusta eftir þeim orðum sem vanta og skrifa þau í eyðurnar (t.d. vantar sagnir sem þarf að beygja rétt, eða nafnorð í fleirtölu). 7. Paraður er saman fyrri og seinni hluti setningar eða spurningar og svör paraðar þannig að passi efnislega við myndbandið. 8. Hlutverkaleikir. Nemendur. tveir og tveir, semja samtal út frá þeim orðaforða sem þeir hafa lært af myndbandinu. 9. Framburðaræfingar. Einstök hljóð tekin fyrir, hlustað oft og nemendur herma eftir. 10. Itónun og hrynjandi málsins 8

x

Málfríður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.