Málfríður - 15.12.1985, Side 15

Málfríður - 15.12.1985, Side 15
myndbandaklúbbi A.F. finnast enn þá meiri möguleikar. Frönskukennarar sjá fram á bjart- ari tíma varðandi notkun mynd- banda í kennslu. Hvernig finnst þér að nota beri slík hjálpartœki? — Það að geta sýnt myndbönd í tungumálatímum er nauðsynlegt, - bæði fræðslu- og afþreyingarmynd- ir. Áhugaverðast við þessa tækni er þó, hvernig virkja má nemendur við gerð eigin mynda, þar sem saman fer hugvit þeirra sjálfra og tungumála- kunnáttan. — Þeir, sem notað hafa myndbönd kerfisbundið, hafa hins vegar rekið sig á ýmsa vankanta og telja, að hefðbundin fræðsla í mál- fræði, orðaforða og sagnbeygingum muni aldrei falla úr gildi. „Franskan meira en hástemmdar tilfinningar" Pá kemitr aðþessarisígildu spurn- ingu, sem lögð er fyrir hvern frönskukennara: Er eitthvert gagn af því fyrir ungan íslending að læra frönsku? — Ávinningurinn kemur ekki í Ijós við fyrstu kynni og námið ber ekki endilega ávöxt á menntaskólaárun- um. Það er oft eftir stúdentsprófið, sem frönskunemendur taka alvar- lega við sér og vilja fullnuma sig í tungumálinu með frekara nám í Frakklandi fyrir augum, — nú eða með ferðalög í huga. Gagnsemina koma menn fyrst auga á, þegar þeir hafa losað sig undan hefðbundum kreddum, sem gera frönskuna að ímynd tilfinninga og hástemmdrar „rómantíkur“. Franska er líka mál vísinda og tækni, en of oft hafa gæði franskra vísindarannsókna ekki ver- ið metin að verðleikum hér á Iandi. Það er hagnýtt fyrir þá, sem leggja stund á raungreinar að kunna frönsku, má þar með nefna geim- vísindi, rafeinda- og tölvufræði, svo og stærðfræði og læknisfræði. — í Iistum virðist Parísarborg vera að endurheimta alþjóðlegt mikilvægi sitt. Þetta vita ungir íslendingar, sem á hverju ári fara æ fleiri til Frakklands til náms í myndlist, arkitektúr, tónlist, kvikmynda- og mvndbandafræðum eða hönnun. Það að kunna rómanskt mál er menningarleg nauðsyn í Evrópu, vilji menn á annað borð geta lokið upp heimi, sem evrópsk menning byggist á, við hlið hins germanska og þess slavneska. Flvað frönskunni viðvíkur, spillir það ekki fyrir, að hún hefur unnið sér alþjóðlegan sess og er töluð í öllum heimsálfum. -FI ALLIANCE FRANQAISE VETRARDAGSKRÁ Kvikmyndaklúbbur er starfræktur í húsakynnum Regnbogans og eru myndirnar sýndar með enskum texta. Sýningar hefjast kl. 20:30. Félagsmenn í A.F. greiða 50 kr. fyrir hverja sýningu, en geta keypt kort á 100 kr. (3 sýningar) og 180 kr. (7 sýningar). Aðrir greiða 80 krónur í hvert skipti. Videóklúbbur (myndir með frönsku tali). Sýningar fara fram hjá Alliance Fran^aise á mánudögum og miðvikudögum, kl. 20:30. Fyrri myndin á hverri sýningu fjallar um sögu kvikmyndalistar í Frakklandi. Aðgangur fyrir félagsmenn: 25 kr. Aðrir greiða 60 kr. Nýjar bsekur: Bókasafnið hefur nýlega fengið sendingu af nýjum bókum, þ.á m.: Duras: „L’Amant“ / Brenner: ,,Les amis de jeunesse" — Le Clézio: „Désert“ / FI. Lévy: „Le diable en tete“. — Gougaud: „L’Inquisiteur" / J. Green: „Histoire de Vertige - Colette: „Chats“, „Chambre d’hotel". - Utlánsskírteini áskilin. Opnunartími bókasafnsins: Mán., þri., fim., fös.,: kl. 16- 19. Mið.: kl. 14-19. ALLIANCE FRANQAISE • Laufásvegi 12 15

x

Málfríður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.