Málfríður - 15.12.1994, Blaðsíða 29
FRA KENNSLURAÐGJAFA I
NORRÆNA HÚSINU
Brynhildur Anna Ragnarsdótt-
ir var ráðin kennsluráðgjafi í
Norræna húsinu 1. júlí sl.
Norrænn kennsluráðgjafi er
starfsmaður nefndar sem starfar
á vegum Norðurlandaráðs og
nefnist Ledningsgruppen for
nordisk skolesamarbejde. Með
kennsluráðgjafa starfar hópur
skipaður fulltrúum frá mennta-
málaráðuneyti, Félagi móður-
málskennara, Félagi dönskukenn-
ara, Félagi norsku- og sænsku-
kennara, Kennarasambandi ís-
lands og Hinu íslenska kennara-
félagi.
Sími kennsluráðgjafa er 91-
620167 og er hún við flesta daga
frá því klukkan 8:00. Einnig má
skilja eftir skilaboð á skrifstofu
Norræna hússins: 91-17030.
Starfsvettvangur kennsluráð-
gjafa er að styrkja og styðja við
kennslu norrænna tungumála og
hlúa að norrænni menningu í
skólum á íslandi.
Norræna húsið
Norræna húsið býður nem-
endahópum að koma í heimsókn
og kynna sér starfsemi hússins
og fræðast um norræna sam-
vinnu.
• Forstjóri Norræna hússins
heldur stuttan fyrirlestur
fyrir framhaldsskólanemend-
ur á dönsku um norrænt
samstarf og það starf sem
fram fer í húsinu. Ef kennarar
óska geta nemendur fengið
hlustunarverkefni í tengslum
við fyrirlestur forstjórans.
• Nemendum í eldri bekkjum
grunnskóla er boðið að sjá
kvikmynd á íslensku um
sama efni og fá leiðsögn um
húsið. Gert hefur verið verk-
efni við kvikmyndina.
• Nemendum í 6. og 7. bekk er
sagt frá Norðurlöndunum og
fá þeir í hendur verkefni til
að vinna og fara síðan í upp-
götvunarleiðangur um bóka-
safnið. Einnig stendur þeim
til boða að sjá kvikmynd úr
myndbandasafni hússins.
Kennarar sem vilja koma
með bekki í húsið eru beðnir
um að panta tíma, svo öruggt
sé að aðstaða sé til að taka á
móti nemendum.
Verið er að vinna skrá yfir
þau myndbönd sem til eru á nor-
rænu málunum. Myndböndin
eru til útláns hvert á land sem
er, skólum og kennurum að
kostnaðarlausu. Vert er að
minna á bókakost safnsins og
norrænu dagblöðin sem berast
húsinu daglega.
Greinar og bækur
Úr helgarútgáfum dagblað-
anna norrænu eru teknar grein-
ar sem hugsanlega henta sem
ítarefni við kennslu í norrænum
málum á framhaldsskólastigi og
í efri bekkjum grunnskóla. Kenn-
urum er velkomið að fá greinar
lánaðar og ljósrita eftir þeim.
Einnig liggja frammi á skrifstofu
kennsluráðgjafa upplýsingarit
danska menntamálaráðuneytis-
ins: Lœr og skriv, Skriveværksted
og Det skriftlige basiskursus, ásamt
miklum hluta þeirra kennslubóka
sem gefnar hafa verið út til
kennslu í norrænum málum á ís-
landi.
Nemenda- og kennaraskipti
Óski kennarar eftir samskipt-
um við skóla eða bekki á Norð-
urlöndunum verður reynt að
aðstoða þá við að koma á slíkum
tengslum. Á skrifstofu kennslu-
ráðgjafa liggja frammi upplýs-
ingar um heimilisföng skóla í
Danmörku. Jafnframt má benda
á möguleika á tölvusamskiptum
sem skapast hafa með tilkomu
ISMENNT og eru ýmsir skólar
sem eiga samskipti við og vinna
verkefni með skólum á Norður-
löndunum. Þetta er lítt plægður
akur, sem vert er að gefa gaum
að. Haft er á orði hversu stór-
stígum framförum nemendur
taki í ritun á móðurmáli og er-
lendum málum við það að eiga
samskipti við jafnaldra gegnum
tölvupóst.
Tölvupóstur
Til tals hefur komið að IS-
MENNT hafi sérstakt námskeið
fyrir dönskukennara annars veg-
ar og norsku- og sænskukennara
hins vegar í notkun tölvunets til
að nálgast gagnabanka í viðkom-
andi löndum. Þátttakendur á
slíku námskeiði þurfa að vera
minnst tuttugu.
Verkefni
Fyrir tilstilli fjárveitingar frá
menningarmálaráðherrum Norð-
urlanda hefur verið settur á
laggirnar starfshópur kennara til
að gera þemalýsingar undir
vinnuheitinu Norden i vores dag-
ligdag. Gengið verður út frá því
efni sem tiltækt er á söfnum hér-
lendis og í nánasta umhverfi
okkar. Markmiðið er að vekja
nemendur til umhugsunar um
hve stóran þátt Norðurlöndin
eiga í lífi okkar íslendinga. Gerð-
ar verða lýsingar sem henta til
notkunar í hverjum og einum
bekk grunnskólans og á fyrsta
ári framhaldsskólans.
Spurningalisti
Kennsluráðgjafi vill minna fé-
lagsmenn Félags dönskukennara
og Félags norsku- og sænsku-
kennara á að senda inn könnun
sem send var til þeirra í júlí í
sumar.
Jafnframt óskar kennsluráð-
gjafi eftir góðu samstarfi við
kennara í norrænum málum og
vonast eftir því að eiga sam-
skipti við sem flesta þeirra.
29