Málfríður - 15.05.1998, Blaðsíða 3

Málfríður - 15.05.1998, Blaðsíða 3
EFNISYFIRLIT Bls. Auður Torfadóttir: Orðaforði og tungumálanám. 5 Ása Kristín Jóhannsdóttir: Af tungumálinu má manninn kenna .................... 9 Wincie Jóhannsdóttir: International Baccalaureate Alþjóðleg námsbraut íMH..... 15 Edda Huld Sigurðardóttir og Sólveig Karvelsdóttir: Að kenna átta ára börnum ensku .................... 19 Halldóra Jónsdóttir: Um danskar unglingabókmenntir........ 21 Herdís Á. Sæmundardóttir: Lesskilningsuerkefni...... 24 HUGMYNDABANKINN............. 27 Kynning á nýjum formanni STÍL.............. 31 Málfríður Tímarit samtaka tungumála- kennara 1. tbl. 1998 Útgefandi: Samtök tungumála- kennara á Islandi Ábyrgðarmaður: Auður Torfadóttir Ritnefnd: Ásmundur Guðmundsson Guðbjörg Einarsdóttir Ingunn Garðarsdóttir Kristín Jóhannesdóttir Steinunn Einarsdóttir Prófarkalestur: Gunnar Skarphéðinsson Setning, prentun og bókband: Steindórsprent-Gutenberg hf. Heimilisfang Málfríðar: Pósthólf 8247 128 Reykjavík Ritstjórnarrabb Margar merkar greinar er að finna í Málfríði nú sem endra nær. Hæstvirtur menntamálaráðherra Björn Bjarnason ritar ávarpsorð til tungumála- kennara í tengslum við kynningu ráðuneytisins á nýrri skólastefnu. Þá birtist grein eftir Auði Torfa- dóttur, dósent við Kennaraháskóla íslands, um orðaforða og tungumálanám. Ása Kristín Jóhanns- dóttir ritar efnismikla grein um ýmsa þætti tungu- málakennslunnar og mikilvægi menningarmiðlunar í því sambandi. Á síðastliðnu ári hófst kennsla á alþjóðlegri námsbraut (International Baccalaureate) í Mennta- skólanum við Hamrahlíð. Wincie Jóhannsdóttir varð við beiðni ritstjórnar um að gera grein fyrir þessu brautryðjendastarfi. Edda Huld Sigurðardóttir og Sólveig Karvels- dóttir segja einnig frá brautryðjendastarfi sem þær unnu með átta ára börnum í enskunámi í Skóla ísaks Jónssonar. Danskar unglingabækur eru til umfjöllunar í grein Halldóru Jónsdóttur og Herdís Á. Sæmundardóttir kynnir lesskilningsverkefni sem byggir á umfjöllun um danska rithöfundinn Karen Blixen. í hugmyndabankanum eru tvær hugmyndir, ann- arsvegar ratleikur og hinsvegar sagnaspil (historie roulette). Loks er í blaðinu kynning á nýjum formanni STÍL, Jórunni Tómasdóttur. Viljum við nota tæki- færið og bjóða hana velkomna til starfa og jafn- framt þökkum við fráfarandi formanni, Kolbrúnu Valdimarsdóttur, vel unnin störf. Lorsíðumyndina á listakonan Moussa, Sigrún Gísladóttir sem er einnig þýskukennari við Ljöl- brautaskólann við Ármúla. Myndin er sérstaklega tileinkuð blaðinu og heitir Málfríður. Gleðilegt sumar.

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.