Málfríður - 15.05.1998, Blaðsíða 23

Málfríður - 15.05.1998, Blaðsíða 23
Er líftími unglingabóka 10 ár? Það virðist vera orðið inn- byggt í mann að unglingabækur hafi í mesta lagi 10 ára líftíma, og því hef ég spurt sjálfa mig nokkur undanfarin ár, hvort Min ven Thomas sé ekki að verða úrelt og gamaldags, því bókin kom út 1987. En svo virðist ekki vera og nemendur gleypa í sig sögu strákanna og gráta örlög Thomasar. Þess vegna varð ég ekki lítið spennt þegar Kirsten Holst sendi frá sér framhald bókarinnar árið 1996, Var det kœrlighed? Bókin olli mér reynd- ar vonbrigðum og stendur fyrri bókinni langt að baki. Hannah er aðalpersónan og fer hún á æsku- slóðir sínar á Indlandi með Ayah, sem hættir að vera dular- full og eksótísk vera. En sagan af ástarævintýri Hannah og Palest- ínumanns nokkurs er dramatísk, þó hún sé ekki mjög sannfær- andi, og við eru komin á kaf í alþjóðapólitík, í suðupott átak- anna fyrir botni Miðjarðarhafs. í stuttu máli sagt, ekki nógu brúk- leg í kennslu. Og þar höfum við sjónarmið mitt og kröfur til danskra ung- lingabókmennta í hnotskurn. Það er nú orðið frekar þröngt og eigingjarnt. Ég vil að það sé hægt að nota bækurnar til kennslu í íslenskum skólum. Það er ekki þar með sagt að þær kröfur falli alltaf að straumum og stefnum tímans og því heldur leitin stöðugt áfram, leitin að heppilegri bók, sem er bæði skemmtileg og góð, á vönduðu máli og flytur góðan boðskap. Greinin byggir á fyrirlestri sem fluttur var á fundi Félags dönskukenn- ara í Menntaskólanum í Kópavogi, 28. 2. 1998. Halldðra Jónsdóttir, dönsku- kennari við Flensborgarskólann í Hafnarfirði og orðabókaritstjóri. SOKRATES/LINGUA íþágu lungumálakennslu 1. júlí 1998 Styrkir eru veittir til námsefnisgerðar í tungumálakennslu. Samstarf a.m.k. tveggja stofnana frá EES/ESB löndum. Landsskrifstofa aðstoðar við gerð umsókna og við leit að samstarfsaðilum. LINGUA flokkur D 1. nóvember 1998 og 1. mars 1999 •Styrkir veittir til endurmenntunar tungumálakennara 2-4 vikna námskeið á erlendri grundu. LINGUA B •Samstarfsverkefni skóla í Evrópu, skipst á nemendaheimsóknum. Nemendur eru a.m.k. 10 í hóp og eldri en 14 ára. LINGUA E 1. febrúar 1999 • Styrkir eru veittir til samstarfsverkefna a.m.k. tveggja stofnana frá ESB/EES löndum til að koma á fót sérstökum endurmenntunarnámskeiðum fyrir tungumálakennara. LINGUA A SÓKRATES/Fullorðinsfræðsla Veittir eru styrkir til samstarfsverkefna a.m.k. þriggja stofnana til að efla fullorðinsfræðslu með áherslu á Evrópumálefni. SÓKRATES/Opið nám og fjarnám Veittir eru styrkir til samstarfsverkefna a.m.k. þriggja stofnana til eflingar fjarkennslu. Nánari upplýsingar og aðstoð við umsóknir: Landsskrifstofa SÓKRATESAR, Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins Neshaga 16, 107 Reykjavík, sími: 525 4311, bréfsimi: 525 5850 Netfang: rz@hi.is, http://www.rhi.hi.is/HI/Stofn/ASK/ 23

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.