Málfríður - 15.05.1998, Blaðsíða 21

Málfríður - 15.05.1998, Blaðsíða 21
Halldóra Jónsdóttir: Um danskar unglingabókmenntir Unglingabókmenntir er fyrir- bæri sem allir, sem kenna dönsku á íslandi þurfa að lifa sig inn í, hvort sem þeim líkar betur eða verr. En hefur það alltaf verið þannig? Án þess að ég hafi gert neina könnun á því, þá minnir mig að þegar ég lærði dönsku í menntaskóla hafi ekki verið kenndar unglingabókmenntir, kannski voru þær ekki einu sinni til þá. En svo fór ég að kenna dönsku árið 1977 í MS og þá eru komnar til skjalanna unglinga- bókmenntir, og mér er enn ákaf- lega minnisstætt þegar dönsku- tímarnir voru farnir að snúast upp í kynfræðslutíma vegna smá- sagnaheftisins Pigtrád, og fór mikill tími í að ræða þau við- kvæmu mál, þau áttu víst engan annan samastað í skólanum en einmitt í dönskutímum, og ég hef grun um að kynfræðslan sé enn á hrakhólum í framhalds- skólum, og að dönskukennarar taki hana ekki að sér eins og á áttunda áratugnum. Pigtrád var gefið út af Dansklærerforening- en árið 1977 og kom út í beinu framhaldi af tilurð svonefnds „brugslitteraturs“ („vandamála- bókmenntir“), þar sem það var álitin skylda bókmenntanna að fjalla fyrst og fremst um stöðu fólks í þjóðfélaginu og smásög- urnar í Pigtrád voru pantaðar sérstaklega hjá barna- og ung- lingabókahöfundum og átti þemað að vera „born i ekstrem- situationer“. Þjóðfélagslegt raunsæi Ég ætla að halda mig við árið 1977 og reyna að finna einhverja línu til að fara eftir þaðan - og þá veit maður að ekki er hægt að segja 1977 án þess að segja ‘68 fyrst, því hvaða fólk hafði einmitt tekið sér stöðu innan menntunar- og menningargeir- ans áriðl977? Auðvitað fulltrúar 68-kynslóðarinnar. Og hvað var að gerast í bókaútgáfunni á þessum tíma? Þetta var þegar barnabækur máttu ekki sýna dýr í fötum sem gátu talað sam- an um daginn og veginn eins og mannfólkið. Það gaf ranga mynd af staðreyndum - við erum nefnilega komin inn í svartasta sósíalrealismann - og þar að auki var svoleiðis dýratal talið allt of væmið. í fyrra, 1997, var einmitt haldið upp á 25 ára afmæli barnabókabúðarinnar í Kpbmagergade í Kaupmanna- höfn, Bprnenes Boghandel, og við það tækifæri var saga barna- bókanna rifjuð upp og komu þá upp titlar frá fyrstu árum búðar- innar eins og „Mor og far skal skilles", „Min mor er pressefoto- graf“ og það staðfest að sósíal- realistísku barnabókmenntirnar lifðu ekki þann áratug sem þær voru skrifaðar á og forvígis- mönnum bókabúðarinnar létti að sögn óskaplega þegar ævin- týri, ímyndunarafl og prúðbúin dýr fengu aftur inngöngu í bæk- urnar, því það gerðist aldrei neitt skemmtilegt í þjóðfélags- raunsæinu. En það er einnig staðfest að ef sósíalrealisminn hafi einhvers staðar lifað af þá sé það í unglingabókmenntun- um, nægir að nefna nokkur þemu - sifjaspell - nýnasisma - mataróreglu - alnæmi. Og nú er ljóst að við erum á heimavelli, það er að segja í kennslustund í dönsku í íslenskum framhalds- skóla. En þegar rætt er um danskar unglingabókmenntir í kringum 1970, þá erum við kom- in að sjálfum Thpger Birkeland, sem átti eftir að móta danskar barna- og unglingabókmenntir í fjölmörg ár. Birkelands-tímabilið Með Thpger Birkeland má segja að hefjist gullöld danskra barna- og unglingabókmennta „den birkelandske periode" því þarna urðu danskar barnabæk- ur að bókmenntum, sem reynd- ar gerðist ekki upp úr þurru heldur stofnaði Danska akadem- ían til samkeppni árið 1966 um bestu barnabókina og í sam- keppnisgögnunum orðaði Steen Eiler Rasmussen þetta svo: „For det, der gor en god bprnebog, er det samme, der altid skal til for at gpre en bog til et godt kunst- værk. Nemlig et levende bevæg- et sind, en fantasi, der udfolder sig i en fast lovbundet form og udtrykker sig i et sprog, der er klart og brilliant.“ Fyrsti verð- launahöfundurinn var Cecil Bodker fyrir bókina Silas og den sorte hoppe. Og svo rúllar bolt- inn og ári síðar sendir Ole Lund Kirkegaard frá sér sína fyrstu bók, Lille Virgil og í kjölfarið fylgja Orla fmsnapper, Albert og Gummi Tarsan, bækur sem hafa lifað af allar stefnur síðan. 21

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.